Alþýðublaðið - 24.06.1972, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 24.06.1972, Blaðsíða 12
alþýðu Alþýóubankínn hf ykkar hagur/okkar metifli«ur KÓPAVOGS APOTEK Opið öll kvöld til kl. 7. Laugardaga til kl. 2. Sunnudaga milli kl. 1 og 3. Lm OíOCAR 1 MILLI Nýútskrifaður kennari brá á leik 17. júni og gekk að hverjum lögregluþjóni sem hann hitti, tók i höndina á honum og óskaði honum til hamingju. Siðan kallaði hann til félaga sinna og spurði hvort þeir ætluðu ekki lika að óska manninum til hamingju með hvita kollinn. Lögregluþjónarnir brugðust misjafnlega við: sumir fyrtust, en aðrir kunnu að meta gamanið • • • Vegaeftirlits- menn rikislögreglunar misstu fyrir skömmu af bil, sem þeir höfðu elt á 140 km hraða. Þeir höföu samband við lögregluna á Blönduósi, sem aftur hafði sam- band við veghefiisstjóra, en hannlokaði veginum i Langadal með hefli sinum og stöðvaði þannig ferð ökuþórsins. Við at- hugun á tímasetningu kom i ljós, að meðalhraði bilsins hafði verið 140 km. og maðurinn hafði ekið úr Reykjavik i Langadal á innan við þremur timum. Hann missti ökuréttindin þegar i stað» • •Lögreglan hefur undir höndum toppa af hamp-. jurtum, sem voru ræktaðar i klæðaskáp i húsi hér i bæ, með aðstoð háfjallasólar. Or þessari jurter unnið hass og marijuana. Til þess að unnt sé að vinna þessi efni úr jurtinni þarf hún að blómstra, en þessar jurtir voru ekki komnar svo langt þegar lögreglan uppgötvaði þær og gerði upptækar* • «Fyrir skömmu auglýsti 19 ára stúlka eftir ferðafélaga um fjöll og firnindi i sumar. Auglýsingin byrjaði svona: Hver vill..Svona okkar á milli sagt hefði verið nær að segja Hver vill ekki * • •! Bandarikjun- um, landi kannana og athugana á liferni fólks, hefur könnun leitt i ljós, að árið 1968 reyktu 36% eiginkvenna lækna og 24% lækna, en fjögur þúsund eigin- konur lækna voru fengnar til þess að gefa skýringu um reykingavenjur sinar og eigin- manna sinna* • «Þá sýna niðurstöður rannsókna, sem hafa veriö gerðar á rottum i þessu sama landi, að neyzla fjörefna- og steinefnalausrar fæðu geti orsakað löngun i áfenga drykki. Þær rottur, sem voru fóðraðar á slikri fæðu drukku fimm sinnum meira áfengi (þær fengu 10% áfengi með matnum) en hinar sem fengu fjörefnarika fæðu« • •Stærsta samvinnu- félagið innan Alþjóðasam- vinnusambandsins er á Ind- landi, en þar eru félagar 59,567.109 talsins. Næst koma Sovétrikin með 58.607.900 félaga og þá Bandarikin með 44.904.500 félaga* • •Islenzka samvinnu- hreyfingin er alls ekki sú minnsta i heiminum. Hún er raunar næstminnst i Evrópu, aðeins Malta hefur færri félaga, eða 785, á mófi 33.444 á tflandi. önnur samvinnufélög, sem eru minni en það islenzka eru á Mauritius, þar sem eru 31.038 félagar, Dominica, 16.000 og Guyana, 9.134. KOMAST TL BOTNS H>VÍ hvort Majorkaflugbannið hafi komið mönnum spánskt fyrir sjónir.... ALÞTÐOBLAÐIÐ FTHIR 50 ÁRUM SJÚKLEIKI LENÍNS. Þýzkir séríræöingar haí'a gefizt upp við lækningu á sjúkdómi Lenins, er heitir Tabes dorsalis á læknamáli. Bilstjórinn, sem flutti mig til Rvikur i gær geri svo vel og sæki borgunina á afgr. blaðsins Ó.F. Byggingu verkamannabústaðanna fyrir Landsbankann tóku að sér Kristinn Sigurðsson, múrari og Jens Eyjólfsson, trésmiður, 18 hús fyrir 231 þús. kr. Tvær rannsóknarstöðvar Á isbungu sem við aulabárð er kennd er upp komin rannsóknarstöð fyrir svæðið i grennd, til þess að bora eftir is og öskulögum og alls konar visdómskornum frá liðnum dögum. Jafnframt var komið upp svipaðri stöð niðri sveit að samræma þessa miklu visdómsleit, en þar á að krukka i kolla á mörgum slyngum og kanna hvað djúpt er á vitinu i Þingeyingum. Á þingeyskum kollum og hjarntröllsins höfuðskel hvortveggja rannsóknin lukkast skínandi vel, þótt seint gangi að visu að kanna klakaforðann og komast i gegnum montið fyrir norðan. wmmmmtmam SENDíBIL ASTOÐtN Hf mamauaamm wmmmmmmmmmamammmmmBmmmtmmam FRETTIR HÉÐAN OG LÍKA ÞAÐAN GERA MÆL- INGAR MED SPRENGI- SKJÁLFTUM I júlímánuði munu jarðvisinda- leiðangrar frá Sovétrikjunum og Bandarikjunum, ásamt islenzk- um visindamönnum, hefja hér rannsóknir á hinum dýpri berg- grunni Islands með sprengi- skjálftum, svo og rannsóknir á Skotlands-Færeyja-íslands hryggnum með sömu tækjum. Mun skip sigla frá Skotlandi til Færeyja og þaðan til Austfjaröa og þá aftur til Færeyja og Hjalt- lands og sprengja reglulega i sjónum á leið sinni, en skjálfta- stöðvar á Skotlandi, lrlandi, Fær- eyjum, Hjaltlandi og Islandi munu hlusta eftir bylgjum frá sprengingunum og reyna að lesa úr þeim gerð jarðskorpunnar á þessu svæði. Auk stöðva i landi verða tvö hlustunarskip, brezkt og sovézkt, sem færa sig til eftir þvi sem sprengiskipinu miðar áfram. Mælingastöðvum þessum verð- ur raðað upp eftir linum þvert ýfir landið, svo að nýta megi sprengingarnar i hafinu austan Islands til þess að lesa dýpri gerð jarðskorpu undir landinu. Ætlar bandariski leiðangurinn að reka eina stöð i Fljótsdal og sex stöðv- ar með suðurströndinni frá Hornafirði vestur undir Eyjafjöll en sovéski leiðangurinn sex stöðvar frá Austurlandi um Norðurland að Húnaflóa. A Austfjörðum munu Orku- stofnun og Raunvisindastofnun setja upp hlustunarstöð og einnig er gert ráð fyrir að stöðvar þess- ara stofnana á Reykjanesskaga muni ná mælingum frá spreng- ingum i hafinu milli Færeyja og Islands. PUNDIÐ ER VALT Englandsbanki hækkaði i gær- kvöldi forvexti úr fimm i sex pró- sent, i von um að stöðva fjár- magnsflóttann úr iandinu og koma þannig i veg fyrir gengis- fellingu pundsins. Brask með pundið var orðið verulegt, og mikið reynt að selja af þvi til að fá þaö lækkað, enda hefur brezki verkamannaflokk- urinn bent mjög á það undanfarið að gengi sterlingspundsins væri fallvalt. TVEIR BÁTAR TEKNIR Um klukkan þrjú aðfararnótt fimmtudags stóð flugvél Land- helgisgæzlunnar TF-SÝR tvo báta að meintum ólöglegum veið- um innan landhelgislinunnar undan Ingólfshöfða. Voru það bátarnir Marz VE 204 og Krist- björg VE 70. Bátarnir voru færðir til hafnar i Vestmannaeyjum, og komu þeir þangað siðdegis i gær. Réttarhöld yfir skipstjórunum hófust hjá bæjarfógetaembættinu i Vest- mannaeyjum i gærkvöldi, og er dóms að vænta i dag. Samkvæmt upplýsingum Land- helgisgæzlunnar var annar bát- anna tvær milur undan Ingólfs- höfða, er hann var tekinn, og hinn báturinn 1,5 milur undan landi. — ☆ EBE: AUKAFUNDUR LIKLE6UR VEGNA AÐILDARUMSÚKNA Otlit er fyrir, að ráðherranefnd Efnahagsbandalags Evrópu haldi sérstakan fund 7. júli i Brussel til að ræða nýjustu vandamálin, sem komu upp i sambandi við verzlunarsamninga við Finnland, tsland, Austurriki og Portúgal. Þetta hefur fréttastofa NTB eftir talsmanni belgiska utan- rikisráðuneytisins, og segir hann ennfremur, að þessi mál verði að leysa á næstunni þar sem önnur vandamál steðji að. Þessi vandamál verður þvi að leysa hið bráðasta og gerist það ekki á ráðherrafundinum i Lúxemborg á mánudaginn og þriðjudaginn verður að skjóta á aukafundi. ☆ SKOTIN ÓFUNDIN Eins og Alþýðublaðið skýrði frá i gær var talin hætta á þvi, að hópur barna i Breiðholti liefði komizt yfir hundruð naglabyssuskota af öflugustu gerö. Lögreglan skoraði á for- eldra og alla þá, sem ef til vill gætu gefið upplýsingar, áð láta sig vita, en siðast, þegar Alþýðublaöiö frétti til, hafði engin vitneskja borizt um, hvar skotin eru niðurkomin. Við viljum itreka tilmæli lögreglunnar. Skullu saman Geysiharður árekstur varð á mótum Reykjavikurvegar og Hverfisgötu i Hafnarfirði um þrjú leytið i gærdag. Þar skullu saman af miklu afli tvær bifreiðar og skemmdust þær mikið, en slys urðu ekki á mönnum.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.