Alþýðublaðið - 24.06.1972, Side 3
Sumir hafa gaman af að byggja, aðrir að tæta og skemma
Óprúttinn krakkalýður i
Hafnarfirði hefur gert sér það
að leik kvöld eftir kvöld að rifa
niður og eyðilcggja hús og ýmis-
legt annað, sem duglegir strák-
ar og stelpur hafa dundað sér
við að reisa á starfsvelli þeirra
Hafnfirðinga á Simbatúni.
Siðast i fyrrakvöld gekk ein-
hver lýður berserksgang á
starfsvellinum og braut niður
dagsverk barnanna.
En skemmdavargarnir létu
sér það ekki nægja, heldur var
brotizt inn i skýli varðmannsins
á staðnum og þaðan stolið
ýmsum verkfærum.
Þá voru fjölmargar rúður
brotnar i húsinu.
Rannsóknarlögreglan var
kvödd á staðinn eldsnemma i
gærmorgun til að kanna
verksummerki.
Við fengum þær upplýsingar
hjá henni i gær, að allt frá þvi
starfsvöllurinn tók til starfa nú i
sumar hefði einhver krakka-
lýður farið með ófriði um svæðið
á kvöldin
Og innbrotið i fyrrinótt væri
ekki það fyrsta, þvi þarna hefði
veriðstolið alls kyns verkfærum
að undanförnu.
Hins vegar var okkur sagt, að
þessu sinni hefði keyrt um þver-
bak. Skemmdarverkin voru
meiri, það var stolið meiru og
auki bættust rúðubrotin við
venjulegu skemmdarstarf-
semina.
Þetta er ljót saga og erfitt að
gera sér grein fyrir hvaða
hvatir liggja að baki svona
verknaði. Þó má ætla, að öfund
komi þarna eitthvað við sögu.
Rannsóknarlögreglan skorar
á foreldra, og Alþýðublaðið
tekur undir það af heilum hug,
að reyna að tala um fyrir
börnum sinum, ef þau hafa
gerzt sek um þetta óþokkaverk.
ÞESSAR KOM-
UST SANNAR-
LEGA í FEITT
Ekki geta forráðamenn
barnabókasýningarinnar i
Norræna húsinu, sem var opnuð
á sunnudaginn var, kvartað yfir
slælegri aðsókn. Um klukkan
fimm i gær, er blaðamaður leit
þarna niður i kjallarann, fræddi
umsjónarstúlkan hann á þvi, að
til þess tima hefðu 626 gestir
komið á sýninguna. Af þvi eru
275, sem komu á opnunina.
Ekki vitum við hvað mikill
hluti þessara gesta er börn, en
þegar við litum þarna inn, voru
flestir gestanna af yngstu kyn-
slóðinni, og þau virtust una sér
vel við að lesa og skoða bækur,
aðallega myndabækur.
Þeim Helgu og Guðrúnu, sem
eru hér á myndinni niður-
sokknar i lestur, þótti mynd-
irnar skemmtilegar, en textann
gátu þær ekki lesið. Ástæðan er
einfaldlega sú, að erlendu
myndabækurnar drógu athygli
þeirra mest að sér. En þær fuil-
yrtu þó, að þær kynnu vel að
lesa venjulegt mál.
Þær sátu þarna i uppblásnum
barnastólum, og við hlið þeirra
stóð stóll og sneri upp að stóru
bylgjupappaspjaldi, sem á stóð
SKAMMARKRÓKUR, Þegar
blaðamaður spurði Helgu, hvort
hún hefði setið þar spurði hún:
Er það gott? Það var greinilegt,
að slik fyrirbæri þekkti hún ekki
og barnabækurnar, sem hún var
að skoða, koma henni áreiðan-
lega ekki i kynni við hann.
Landhelgin: Alger óvissa
en aðeins þokast í áttina
Þessi tillaga tslendinga íelur i
sér tvo meginatriði að sögn
sjávarútvegsráðherra. í fyrsta
lagi að miðað verði við að draga
verulega úr sókn og sóknarmögu-
leikum brezkra veiðiskipa við ls-
land. í öðru lagi fælist i tillögunni,
að íslendingar hefðu sjálfir og
„Það rikir enn alger óvissa um
úrslit mála i viðræðum okkar við
Breta, en þó teljum við, að nokk-
uð hafi miðað i áttina”, sagði
Lúðvik Jósepsson, sjávarútvegs-
ráðherra, á blaðamannafundi i
gær.
A blaðamannafundinum kom
fram, að grundvallarsjónarmið
lslendinga og Breta i landhelgis-
málinu eru svo ólik, að um þau
muni ekki nást nokkurt sam-
komulagfyrir 1. september. Hins
vegar bindur islenzka rikisstjórn-
in vonir við, að bráðabirgðasam-
komulag náist um fiskveiðar
brezkra togara við tsland um tak-
markaðan tima, eftir að land-
helgin hefur verið færð út i 50 mil-
ur 1. september.
Sjávarútvegsráðherra sagði, að
rikisstjórnin teldi, að hún gæti
samið við Breta um einhvern
ákveðinn umþóttunartima fyrir
brezk veiðiskip innan 50 miln-
anna.
einir eftirlit með framkvæmd
þeirra reglna, sem settar yrðu
um veiðar erlendra skipa innan
50 milnanna, yrðu minni skip-
in, sem hér veiða, en ekki stærri
togarar, svo sem frystitogarar og
verksmiðjutogarar.
1 tillögunni er lika miðað við, að
umræddar heimildir takmarkist
við ákveðin svæði og ákveðin
timabil, þannig að ákveðin veiði-
svæði verði á umþóttunartimabil-
inu ,,opin” ákveðinn tima ársins,
en örinur svæði „lokuð”.
I tillögum isl. rikisstjórnarinn-
ar er ennfremur gert ráð fyrir, að
lokað verði fyrir botnvörpuveiðar
bæði fyrir islenzk og erlend veiði-
Aðalfundi Sambands islenzkra
samvinnufélaga lauk i dag. Á
fundinum urðu allmiklar umræð-
ur, m.a. um verðlagsmál. Kom
fram, að fulltrúar Sambands-
félaganna eru almennt mjög ugg-
andi um rekstrarhorfur á yfir-
standandi ári vegna stórhækkun-
ar á ýmsum kostnaðarliðum við
verzlunina innan þröngra marka
núverandi verðlagningarákvæða.
skip á tveimur svæðum. Annars
vegar verði svæðið út af Norð-
austurlandi lokað að minnsta
kosti tvo mánuði á ári fyrir öllum
veiðum með botnvörpu og þannig
komið i veg fyrir hættulega veiði
á smáfiski. Hins vegar er gert ráð
fyrir algerri lokun fyrir botn-
vörpuveiðar á Selvogsbanka-
svæðinu á aðalhrygningartima
þorsksins. -
Þá er i tillögunum gert ráð fyr-
ir, að islenzk stjórnvöld hafi full-
an rétt til að tilkynna bann við
togveiðum bæði islenzkra og er-
lendra skipa á ákveðnum linu- og
netaveiðisvæðum.
1 fundarlok fóru fram kosning-
ar, og var Jakob Frimannsson
fyrrv. kaupfélagsstjóri endur-
kjörinn formaður Sambands-
stjórnar til þriggja ára. Auk hans
voru endurkjörnir i Sambands-
stjórn þeir Þórður Pálmason,
Borgarnesiog ÓlafurE. ólafsson,
Króksfjarðarnesi, til þriggja ára,
en fyrir sátu i stjórn þeir Ey-
steinn Jónsson forseti sameinaðs
SIS-MÖNNUM LIST EKKERT A
PUNDIÐ „FLÝTUR" EN HVE LENGI?
HÉR FENGUST AÐ-
EINS DALIR í GÆR
Brezka rikisstjórnin tilkynnti i
gærmorgun að gengi sterlings-
pundsins yrði látið „fljóta” um
óákveðinn tima, og hafði tilkynn-
ingin þegar i stað áhrif og mikla
óvissu i för með sér á öll gjald-
eyrisviðskipti i heiminum.
Seðlabanki tslands tilkynnti
strax, eftir að hafa fengið tilkynn-
inguna frá Englandsbanka, að
skráning sterlingspunds hefði
verið felld niður hér á landi og að
viðskiptabankarnir myndu ekki
verzla með sterlingspund um
sinn.
Klukkan ellefu i gærmorgun
var siðan hætt að afgreiða allan
gjaldeyri i bönkum hér á landi
annan en Bandarikjadali.
Tilkynning brezku stjórn-
arinnar leiddi til þess, að eftir
hádegi i gær var kauphöllum
lokað i öllum Efnahagsbanda-
lagsrikjunum, og einnig i Sviss,
Danmörku, Noregi og á trlandi.
Kauphöllin i London var lokuð i
allan gærdag.
Sérfræðingar i gjaldeyris-
málum útiloka ekki þann mögu-
leika að ákvörðun brezku stjórn-
arinnar sé fyrsta skrefið i þá átt,
að gengi sterlingspundsins verði
formlega lækkað.
Eru bollalengingar þeirra á þá
leið, að Bretar ætli að láta pundið
fljóta um tima°8 er talíðhugsan-
legt að brezka stjórnin hyggist
fara að i þessu efni á svipaðan
hátt og Bandarikjamenn, áður en
dollarinn var opinberlega felldur.
Eins og kunnugt er var dollarinn
látinn fljóta i nokkra mánuði.
1 gærkvöldi var ekki talið ólik-
legt, að aðrar þjóðir verði að fara
að dæmi Breta og láta gjaldmiðla
sina fljóta á sama hátt og pundið.
Til dæmis var tekið fram, að
italska liran væri mjög aðþrengd
og myndu ttalir sennilega neyð-
ast til að fara að dæmi brezku
stjórnarinnar.
Gjaldeyrismálanefnd Efna-
hagsbandalagsins og aðalbanka-
stjórar seðlabanka Efnahags-
bandalagsrikjanna halda fund
um ástandið i gjaldeyrismálum I
dag. —
ÉG LÍKA
Úr þvi það er byrjað eriendis,
þá er þess naumast langt að
biða að það berist hingað:
silfurskarl handa karlmönnum
að skarta með. Þetta á
myndinni er norsk smfði. Það
eru lika gripirnir, sem stúlkan
er með, og þó að það lýsi eflaust
ihaldsemi, þá finnst okkur þeir
einhvernveginn fara betur á
henni en hálsdjásnið á
karlmanninum.
REKSTRARHORFURNAR
Alþingis, varaformaður, Finnur
Kristjánsson kaupfélagsstjóri,
Húsavik, Guðröður Jónsson,
kaupfélagsstjóri, Neskaupstað,
Þórarinn Sigurjónsson, bústjóri,
Laugardælum, Ragnar Ólafsson
hrl., Reykjavik og Ólafur Þ.
Kristjánsson fyrrv. skólastjóri,
Hafnarfirði. Varamenn i stjórn
voru endurkjörnir til eins árs þeir
Ólafur Sverrisson, kaupfélags-
stjóri, Borgarnesi, Sveinn Guð-
mundsson, kaupfstj., Sauðár-
króki og Ingólfur Ólafsson,
kaupfstj. KRON.
Endurskoðandi Sambandsins
til tveggja ára var endurkjörinn
Tómas Arnason hrl., en fyrir var
Björn Stefánsson erindreki.
(Fréttatilk. frá StS)
<D
Laugardagur 24. júní 1972.