Alþýðublaðið - 24.06.1972, Qupperneq 7
íþróttir 1
Golfsnillingurinn Jack Nicklaus sigraöi fyrir stuttu i einni
stærstu golfkeppni heimsins, US Open, og bætti þar meö viö einni
rós i hnappagatiö
Af tilefni þessa sigurs fékk iþróttasiöan Einar Guönason til aö
kynna Nicklaus nánar fyrir lesendum, en þess má geta, aö margir
telja Nicklaus mesta golfmann sem uppi hefur veriö!
Hinn snjalli atvinnumaöur i golfi, Jack Nicklaus, er nú 32 ára
gamall og hefur leikiö golf óslitiö siöan hann var 10 ára aö aldri.
Scioto golfklúbburinn í Ohioriki skammt fyrir utan Columbusborg
var heimavöllur hans allt þar til hann varö atvinnumaöur 1961.
U.S.Open keppnin var haldin á þeim velli 1926, þegar Bobby Jones
tókst að sigra á aðeins einu höggi eftir aö haf a unniö upp fimm
högga forskot Joe Turnesa.
Faðir Nicklaus var áhorfandi og kynntist Jones persónulega og
urðu þeir beztu mátar. Upp úr 1950 þegar Jack fór aö æfa golf, af
krafti, lét Jones hafa þaö eftir sér, aö þarna væri efni i stór-
meistara framliaöarinnar. Nicklaus kunni auövitaö vel aö meta
ummæli frægasta golfkappa allra tima og lagöi sig enn betur fram
cn áður.
i mörgu tilliti má segja, aö Jack Nicklaus hafi tileinkað sér sem
flest af þvi, er Bobby Jones hélt i heiöri á nær óslitinni sigurgöngu
sinni 1926-30. Einbeiting, keppnisharka, iþróttamennska og siöast
en ekki sizt sigurviljinn eru einkenúi þeirra beggja. Nicklaus tefl-
ir ekki leik sinum i tvisýnu, ef forskot hans er lítiö. Ákvaröanir
hans miðast viö markmiöiö sjálft en ekki hugdettu augnabliks
sýndarmennsku fyrir áhorfendur.
Golf er atvinna hans og sérgrein, sem hann vill sjálfur fá að
stunda o.g taka ákvarðanir um. M.a. af þessum orsökum var Jack
ekki jafn vinsæll meðal áhorfenda og Arnold Palmer.
Ferill Nicklaus frá 1961, cr hann gerðist atvinnumaöur er stór-
glæsilegur. Ilann hefur unniö talsvert á aöra milljón dala i
keppnisverðlaun, unniö Brezku opnu keppnina 1966 og 1970,
Bandarisku opnu keppnina 1962, 1967, og 1972 og Masters keppnina
1963, 1965, 1966, og 1972 auk fjölda annarra viös vegar um heim.
1966og 1972 auk fjölda annarra viös vegar um heim.
Nú i ár hefur hann veriö i ágætu formi og unnið hverja keppnina
af annarri og oröiö framarlega i öörum. t apríl sigraöi hann glæsi-
lega i Masters keppninni i Georgiuriki, sem taliö er eitt sterkasta
mót i heimi. Nú i júni vann hann siðan bandarisku opnu keppnina
(U.S. Opeti) og ógnaöi cnginn sigri hans i þeirri keppni.
Nicklaus hcfur litiö breytt sveiflu sinni siöan hann var 15 ára
gamall, en þó sifellt aukið öryggi sitt og högglengd. Tækni hans er
meö ólikindum enda hefur Bcn Ilogan sagt, að sveifla Nicklaus og
tækni séu i sérflokki. Fjöldi kennslubóka og greina eftir Nicklaus
hefur birzt á prenti, og hefur undirritaður m.a. þýtt eina bók hans,
cr ncfnist á islenzku ,,Má ég gefa ýður ráð”, og hefur henni veriö
vel tckið af islenzkum golfmönnum.
Til fróöleiks má mbenda mönnum á bók Nicklaus um feril hans I
golfi cn hún heitir á ensku ,,The greatest game of all, my life in
golf”.
E.G.
ÍSLENDINGUR
ÞEKKT NAFN
í ÍSKNATTLEIK
VESTRA
i nýlegu tölublaði Lögbergs-
lleimskringlu er frá þvi skýrt, að
Vestur-islendingur þjálfi hið
fræga bandariska isknattleikslið
Boston Bruins. Lið þetta vann
meðal annars þaö sér til ágætis,
að vinna StanleyCup i Bandarikj
unum i vetur, sem eru liklegast
eftirsóttustu verðlaun sem þekkj-
ast innan þessarar iþróttagrein-
ar.
Maöurinn sem um ræðir hcitir
Thomas Johnson, en hann cr
þckktari undir nafninu Tom.
Thomas er af islcnzkum ættum,
og lék sjálfur ísknattleik með'
góöum árangri, áður en hann
sneri sér að þjálfun með þeim
árnagri sem að framan greinir.
Þcssi mynd var tekin þegar
Tom Johnson lék ishocky á sinum
yngriárum. Hann var þá þekktur
iþróttamaöur.
SIMD. FRIÁLSAR OC BOLTI
k DAGSKRÁ OM UELGINA
Töluverð umsvif eru i iþrótta-
lifinu um þessa helgi. Boltagrein-
arnar eru i fullum gangi, og auk
þeirra veröur keppt i frjálsum
iþróttum, sundi og lyftingum.
Laugardagur:
Knattspyrna:
Laugardalsvöllur kl. 16.
1. deild, Valur-IBV.
Akranesvöllur kl. 16.
1. deild, Akranes-Vikingur.
2. deild: bróttur-lBt (kl. 14), ÍBA-
FH (kl. 16) og Haukar-Völsungur
(kl. 16).
Lyftingar:
Fálkagata 30. júnimót Armanns
kl. 15.
Sund:
Reykjavikurmót kl. 18.
Laugardalslaugin.
Sunnudagur:
Sund:
Reykjavikurmót kl. 15.
Laugardalslaug.
Mánudagur:
Frjálsar iþróttir:
Laugardalsvöllur kl. 18.30.
Tugþrautarlandskeppni.
Handknattleikur:
Lækjarskóli kl. 20.
Ármann-Haukar
FH-Fram.
’f' Síðustu fréttir
Breiðablik og ÍBK léku i 1. deild íslands-
mótsins i knattspyrnu i gærkvöldi. Leikurinn
fór fram á „heimavelli1’ Breiðabliks, Mela-
vellinum, og lauk honum með jafntefli. Ekkert
mark var skorað.
Laugardagur 24. júni 1972.