Alþýðublaðið - 23.08.1972, Qupperneq 1
alþýðu|
MIÐVIKUDAGUR 23. AGÚST 1972 - 53. ARG. 187. TBL.
HÁTÍD UHDRALAMDI
TORFAN ÞÁ
Nú stendur fyrir dyrum þjóð-
hátið i Undralandi. Hún verður
haldin á föstudaginn kemur.
En hvað er Undraland? Það
er von fólk spyrji. Undraland er
nefnilega i Kópavogi, og þetta
er ekkert venjulegt land, heldur
starfsvöllur.
t dreifibréfi, sem foreldrar i
Kópavogi hafa fengið um þjóð-
hátiðina, segir m.a., að hátiðar-
dagskráin hefjist með þvi, að
fjórum flugdrekum verði komið
á loft — ef veður leyfir. Nú —
ef veður leyfir ekki, þá verður
að byrja með einhverju öðru.
Ýmislegt annað er fyrirhug-
að, svo sem samát og sam
drykkja, og er fólk beðið um að
hafa meðsérnesi. Og ef fólk er i
góðu skapi verður farið i leiki.
Börnin, sem starfa á starfs-
vellinum eru að undirbúa sig
undir skemmtiatriði, en for-
stöðukonan, Valgerður Sn.
Jónsdóttir, sagði okkur i gær, að
vel gæti farið svo, að það mis-
heppnist allt. Fólk verði bara að
taka þvi eins og það verður og
reyna að koma með þvi hugar-
fari, að allt sé skemmtilegt.
Enda endar dreifibréfið þann-
ig: Búist ekki við of miklu, og
gleymið ekki góða skapinu
heima.
Myndina tók ljósmyndari Al-
þýðubalðsins, Edvard, af
nokkrum væntanlegum þjóð-
hátiðargestum i Undralandi.
ÁRÁSARMADURINN
KTUR AÐ OFSTOPA
Má nefna sem dæmi, að rann- I vegna árásarmáls, sem þessi i hann og rændi hann siðan
sóknarlögreglumaðurinn, sem sami maður gerðist sekum um veskinu.
fjallar um þetta siðasta mál, hef- I fyrir u.þ.b. mánuöi. Þótt ekki sá það enn afráðið,
ur i sinum höndum skýrslur | þá réðst hann aö manni, barði j Framhald á bls. 4
BRIÖTA BLÖDIN NAFNBIRTINGARHEFÐINA?
Það hefur verið rætt mjög mik-
ið manna á meðal hvort ekki sé
full ástæða til þess að birta nafn
mannsins, sem misþyrmingunum
olli.
Þetta bar m.a. á góma á
stjórnarfundi i Blaðamannafélagi
tslands i gær, en engin ályktun
gerð i málinu.
Þá er Alþýðublaðinu kunnugt
um, að eitt dagblaöanna óskaði
eftir þvi við rannsóknardómar-
ann i málinu, að fá uppgefið nafn
árásarmannsins.
Þvi var neitað á þeirri for-
sendu, að málið væri enn á rann-
sóknarstigi, en þvi hins vegar
bætt við, að siðar meir gæti farið
svo, að nafnið verði gefið upp
beinlinis til birtingar i dagblöðun-
um.
Borgarráð gerði á fundi á
mánudag samþykkt i sambandi
við tilboð arkitekta um lagfæring-
ar á Bernhöftstorfunni, sem tákn-
ar, að hún verður sennilega rifin
og i staðinn byggt nýtizkulegt
stjórnarráðshús.
Þar með er stutt i, að deilan um
varðveizlu elztu húsaraðir i
Reykjavik verði til lykta leidd og
dagar hennar þar með taldir-.
Á fundi Borgarráðs var sam-
þykkt einróma það svar til for-
sætisráðherra, að taka ekki af-
stöðu til þess hvort rifa eigi húsin
DOLLAR
ÁUPP-
LEIÐ
t gær hækkaði Bandarikjadalur
meira i verði en nokkur önnur
mikilvægmynt á gjaldeyrismörk-
uðum heims. Þegar gjaldeyris-
markaðir lokuðu i gær var verðið
á Bandarikjadal hærra en það
hefur nokkru sinni verið siðustu
sex mánuðina.
Sérfræðingar i gjaldeyrismál-
um telja, að aðalástæðan fyrir
þvi, að dalir hafa hækkað i verði
sé sú, að nú rikju meiri bjartsýni
en áður meðal manna i banda-
risku viðskiptalifi á þvi, að strið-
inu i Vietnam ljúki fyrir forseta-
kosningarnar i nóvember.
Orðrómur um að niðurstaða i
friðarviðræðunum við Norður-
Vietnam sé i uppsiglingu, hafa
glætt nýju lifi i Bandarikjadalinn
og i gær hækkaði hann meira i
verði en nokkur mikilvæg mynt
að undanteknu japönsku yeni.
Einnig er orðrómur um að fyrir
dyrum standi breyting á stefnu
Efnahagsbandalagsins með tilliti
til opinbers verðs á gulli.
Þvi hefur m.a. verið haldið
fram, að bæði Vestur-Þjóðverjar
og Bretar vilji, að verð á gulli
hækki i 70 dali únsan. Hið opin-
bera verð er nú 38 dalir hver
únsa. Hins vegar gengur gull
kaupum og sölum á frjálsum
markaði fyrir nálægt 69 dali úns-
an. —
SACtA Til
NitSTA
BÆJAR.
Kvennaknattspyrna hefur af
ýmsum ástæðum átt örðugt upp-
dráttar. Eitt liö starfsstúlkna i
verksmiðju i St. Neots i Englandi
varð að hætta að keppa þar sem
sjö af 11 stúlkum i iiðinu urðu ó-
léttar samtimis.
eða ekki fyrr en búið væri að
leggja fram teikningar af nýju
stjórnarráðshúsi og þær sam-
þykktar af borgaryfirvöldum.
Borgin vill sam sagt hafa hönd i
bagga með hvernig hús risa
þarna i staðinn fyrir torfuna.
Þetta táknar raunverulega, að
ef borgaryfirvöldum lizt vel á
teikningar af nýju stjórnarráðs-
húsi þá, verður Bernhöftstorfan
látin vikja.
Og ef borgaryfirvöldum lizt
ekki á fyrstu teikningu af nýju
stjórnarráðs húsi má fastlega bú-
ast við, að hún verði endurbætt
þar til hún hlýtur náð fyrir augum
þeirra.
Forsætisráðherra, ölafur Jó-
hannesson, hafði áður sent
borgarráði bréf, þar sem tilkynnt
var, að rikisstjórnin væri búin að
samþykkja að láta rifa húsin.
Hins vegar voru borginni jafn-
framt færð húsin að gjöf og
bauðst rikið til þess að reisa þau i
Árbæ borginni að kostnaðarlausu.
Með samþykkt sinni hefur
borgin ekki tekið ákvörðun um
það hvort hún þiggur þessa gjöf.
Skilyrðið, sem hún setur er, að
nýtt stjórnarráðshús falli vel inn i
umhverfið við Lækjargötu og er
vart að efa, að rikinu takist að
uppfylla það skilyrði.
Alls seldust i siðustu viku 19,500
getraunaseðlar, og er það nokkru
meira en i byrjun getraunastarf-
seminnar i fyrra.
Fjórir seðlar fundust með 11
rétta leiki, og fær hver i sinn hlut
42,500 krónur. Seðlarnir voru frá
Akureyri, Garðahreppi, Keflavik
og Reykjavik.
38 seðlar fundust með 10 leikj-
um réttum, og fær hver þeirra i
sinn hlut 1900 krónur.
HINN SLASAÐIER
ÞUNGT HALDINN
ER ÞEKI
Við rannsóknina á likamsá-
rásarmálinu, sem upp kom i
Reykjavik á föstudagskvöld hefur
komið i ljós, að maðurinn, sem
árásina gerði, notaði ekki einung-
is hnúa og hnefa við barsmiðarn-
ar, heldur er álitið, að hann hafi
einnig notað þykkan glerblóma-
vasa.
Við vettvangsrannsókn fannst
blómavasinn með blóöi og hárum
á.
Litið er á mál þetta mjög alvar-
legum augum og ekki sizt vegna
þess, að maður þessi hefur marg-
oft áður gerzt sekur um likamsár-
ásir.