Alþýðublaðið - 23.08.1972, Side 9

Alþýðublaðið - 23.08.1972, Side 9
ÍMtmR 2 NOKKIIR ENSKU LIÐANNA HAFA KOMIÐ A ÚVART Arsenal, sem sigraði Stoke á Highbury s.l. laugardag hefur tekið forystu i 1. deild eftir 3 umferðir með (I stig. Fjögur lið koma siðan með 5stig, en það eru Chelsea, Everton, Liverpool og West Ham. Frammi- staða Chelsea hefur komið nokkuðá óvart, en liðið hefur sigrað tvö af toppliðunum frá i fyrra, Leeds og Derhy. Sömu sögu má segja um Everton, sent hefur sigrað bæði Manchester liðin, en gert jafntefli viö Norwich. Þá finnst mér frammistaöa Southampton athyglisverð, en liðið hefur ekki tapað leik og er nteö 4 stig, jafntefli við Derby og Coventry, en sigur yfir Stoke. Nokkur lið hafa ekki unnið leik, og i þeim hóp eru meistararnir Derby, Coventry, Crystal Pal., West Bront. og Manchester Utd., sem er eina liðið sem ckki hefur hlotið stig, enn sent kontið er. Það Itefur þvi gengið á ýittsu hjá liðunum, þótt keppnin sé enn skanimt á veg kontin, en linurnar fara að skýrast innan tíðar og vonandi auðveldar það okkur við spádómana. Næsti seðill, sem er nr. 22 býður upp á nokkra skemnitilega og erfiða leiki, en hér kentur spáin: ARSENAL ER ENN MED FIILLT HðS STICA! Arsenal er eina liðið i 1. deild- inni cnsku sent hefur hlotið fullt hús stiga, Itvað sem gerast kann nú i vikunni, þcgar fram fer heil untfcrð i deildinni. Öll önnur lið hafa tapaö einu stigi eða fleirum, en aðeins eitt lið hefur ekkert stig hlotið i fyrstu leikjunum. Er það Manchester United, hið gamla sögufræga félag. A laugardaginn hélt Arsenal áfram sigurgöngu sinni, vann Stoke 2:0. Hay Kennedy gerði bæði mörk liðsins, og yfirburðir Arsenal voru slikir, að Kennedy hefði hæglega getað skorað þrjú i viðbót. SigurChelsea yfir Derbyá laug- ardaginn vakti mikla athygli. Það voru þeir Harris og Garland sem skoruöu mörk Chelsea, en Kevin Hector gerði mark Derby, og sést það mark á meðfylgjandi mynd. Leeds og Manchester Citv unnu létta sigra, Leeds með Jackie gamla Charlton i broddi fylking- ar, en um tima var talið að hann ætti ekki afturkvæmt i lið Leeds. West Ham vann stóran sigur yfir Leichester, 5:2, og Wolves vann óvæntan en verðskuldaðan sigur yfir Tottenham. Dugði það Tott- enham ekki, þótt Martin Peters skoraði sitt fjórða mark i þremur leikjum fyrir liðið. Þá eru það ófarir Manchester United. Á laugardaginn mátti þetta sögufræga lið þola þriðja tapið i röð, i þetta sinn gegn Ever- ton. Reynt var að bæta lið United með þvi að setja Bobby Charlton út úr liðinu og John Fitzpatrick inn i hans stað. En það gerði bara illt verra, og United mátti þakka fyrir að tapiö varð ekki stærra. Hér fylgja með úrslitin i 1. og 2. deild, og út úr töflunum má lesa hverjir skoruðu mörkin, áhorf- enda fjölda og stöðuna i hálfleik. SOLBAÐSLEGUR OG KNATTSPYRNA Keflviskir knattspyrnumenn liafa verið lukkunnar pamfilar á undanförnum áruin. Þcir hafa dregist gegn hverju stórliðinu á fætur öðru, Everton, Tottenham og nú siðast Rcal Madrid á Spáni. Mikill fjöldi áhangenda liafa fylgt liðinu út, og þeir verða eflaust mcð mesta móti nú. Nú er nefnilega hægt að sam- eina sólbaöslegur og knatt- spyrnu. Hafa verið skipulagöar ferðir til Spánar i sambandi viö leikinn, ÍBK og Útsýn i samein- ingu. Farið verður út með Flugfé- lagsþotu 10. september n.k., en leikurinn fer fram i Madrid 13. september. Flogið verður beint til Malaga, og dvalið á bað- ströndinni Costa del Sol. Til að byrja með verður dvöl- in þar þrir dagar, en síðan verð- ur eins dags ferð til Madrid, þar sem þátttakendur fylgja ÍBK liðinu til leiks og fylgjast með Framhald á bls. 4 Orðið ,,pen” i sviga, þýðir að markið hafi veriö skorað úr vita- spyrnu. 1. deild ARSENAL (1) ......2 Kcnnedy 2 COVENTRY (1) .....| Hunt (pen) C PALACE (1) .....1 Taylor DERBY (0) ........1 Hcctor EYERTON (I) ......2 Connolly. Roylc (pcní IPSWICH I) 2 Millcr, Whymark LEEDS (1) ........2 Clarkc, Giles (pcn) MAN CITY J) ......3 Lcc 2, Bcll SHEFF UTD (0) ...1 Salmons WEST HAM (2) ...5 Moore, Coker, Robson 2, Tyler WOLVES (3) .......3 Richards 2, Hibbitt STOKE (0) .......O 42.146 S0UTHAMPT0N (1) 1 Steele-18,484 UVERPOOL (0)......1 Hughcs—30.054 CHELSEA (!) •.....2 Harrir., Garland 31,868 MAN UTD (0) .....O 62.348 BIRMINGHAM (0) O 17.855 WEST BR0M v0) O 36,555 N0RWICH (0) .....O 30.920 NEWCASTLE (0) ...2 Macdonald, Tudor—23,708 LEICESTER (2) ...2 Stringfcllow, Glover—25,414 T0TTENHAM (1) ...2 Pcters, Pratt 24,237 2. deild AST0N VILLA (1) 2 VowcJcn. G'aydou BUCKP001 (j) .. 6 Hotchison 2, Burns, Lonnard, Bentlcy, Dyson BRIST0L CITV (1) 2 Gov, Spiring CARLISLE (0) .....3 Oivcn'. Balderstone 2 FULHAM (0) ......1 Wcnt HUIL (0) ........O LUT0N (1) .......1 Anderson 0XF0RD (1) .......4 Cassidy D, Clarkc 2, Evanson P0RTSM0UTH (0) 3 Lenis, Pipcr, Reynolds O.P.R. (3) ...... 4 Francis, O'Rourkc, Givens. Lcach SUN0ERLAN0 (0) 1 Tucart HUD0ERSFLD (0) O Srl.SO BRIGHTON (i) 2 Irvine 2--10.9SA MILLWALL (!) 2 v/ooti. Sinclhuist 15,648 SWIND0N (0) . O 7,747 BURNLEY (!) ....1 James—10,283 NOTTM F0R (0) ...O 11,189 PRESTON (0) .....O 11,307 MI0DLESBR0 (0) O 8.428 CARDIFF (1) .... 1 Showers—14,067 SHEFF WED (0! 2 Sunlcy 2-12.977 0RIENT (0) .....O 12'.658 BIRMINGHAM-CRYSTAU PAL 1. Birmingham hefur hlotið 2 stig i þeim þrem leikjum, sem liðið hefur leikið og tapaði um s.l. helgi fyrir Ipswich, Chrystal Pal hef- ur einnig hlotið 2 stig eftir þrjá leiki, náð jafntefli, við ekki lakari lið en Derby og liverpool, en tapað fyrir Stoke. Þetta er erfiður leikur, en ég hallast að heimasigri. CHKLSEA—MAN. UITY 1 Þarna mætast tvö þekkt lið, sem jafnan eru i röð þeirra beztu. Chelsea hefur gengið vel það sem af er, unnið Leeds 4-0, Derby 2-1 og gert jafntefli við Leicester 1-1. Man. City hefur aðeins hlotið 2 stig eftir þrjá leiki, unnið Norwich heima 3-0, en tapað fyrir Evert- on 1-0 og Liverpool 2-0. Það bendir þvi flest til þess, að Chelsea vinni þennan leik og spá min er heimasigur. LEICESTKR-COVENTRY 1 Það hefur ekki gengið sem bezt hjá þessum liðum það sem af er, þvi þau hafa aðeins hlotið 1 stig. Leicester hefur tapað fyrir Arsenal og West Ham en gert jafntefli við Chelsea heima. Cov- entry hefur tapaö úti fyrir Tottenham og West Ham, en gert jafn- tefli viðSouthampton heima. Hér eru allir möguleikar fyrir hendi, en spá min er heimasigur. LIVKRPOOL-WKST IIAM 1 Eftir að hafa unnið Manchester liðin með 2-0 á heimavelli, kom Liverpool á óvart með að ná ekki nema jafntefli við C. Pal. um s.l. helgi. West Ham vann góðan sigur, 5-2, yfir Leicester um s.l. helgi og hefur þvi hlotið 5 stig i þrem leikjum. Þar sem Liverpool leikur á heimavelli að þessu sinni, spái ég hiklaust heimasigri. MAN. Utd. -Arsenal 2 Man. Utd. hefur ekki hlotiö stig i fyrstu þrem leikjum, tapað heima fyrir Ipswich og úti fyrir Everton og Liverpool. Arsenal er aftur á móti i banastuöi og hefur unnið alla sina leiki, Úlfana og Stoke heima og Leicester á útivelli. Eins og málin standa nú, finnst mér ósennilegt annað en að Arsenal vinni þennan leik og er spá min því útisigur. NEWCASTLE-IPSWICH 1 Newcastle er spáð góöu gengi á komandi keppnistimabili og hefur m a. sigrað Clfana. Ipswich hefur einnig gert það gott, unnið Birmingham heima og Man. Utd. á útivelli, en tapað fyrir Nor- wich. Mér sýnist þessi leikur vera fremur auðveldur viðfangs, þvi ég er sannfæröur um sigur Newcastle, sem er sterkt heimalið og þau eru ekki mörg liðin sem fara með bæði stigin frá St. James Park. NORWICH-DERBY X Þetta er erfiður leikur, þvi meisturunum, Derby hefur gengið heldur slaklega það sem af er, tapað heima um s.l. helgi fyrir Chelsea, en gert jafntefli úti við Crystal Pal. og Southampton. Norwich hefur gert það heldur skárra þvi liðið hefur hlotið 3 stig jafntefli við Everton, sigur yfir Ipswich á útivelli og tap fyrir Man. City. Mér finnst jafntefli liklegustu úrslitin að þessu sinni. SOCTIIAMPTON-WOLVES 1 Ég held að þetta sé einn erfiðasti leikurinn á seðlinum, að þessu sinni. Southampton hefur komið á óvart með góðri frammistöðu, jafntefli heima við Derby og sigur yfir Stoke og jafntefli úti við Coventry. úlfarnir unnu Tottenheim heima um s.l. helgi, en hafa tapað úti fyrir Arsenal og Newcastle. Jafntefli eða heimasigur eru líklegustu úrsiitin, en ég spái heimasigri. STOKK-KVERTON 1 Everton hefur komið á óvart með góðri frammistöðu i fyrstu leikjunum og getur státað af heimasigri yfir Man. Utd. og útisigri yfir Man. City og jafntefli úti við Norwich. Stoke er aftur á móti með heimasigur yfir Crystai Pal.,töp á útivelli fyrir Arsenal og Southampton. Allt getur skeð i þessum leik, en ég hallast að heimasigri, þrátt fyrir allt. TOTTENHAM-LEEDS X Enn einn erfiður leikur þar sem ekki er auðvelt að segja fyrir um úrslit. Tottenheim hefur hlotið 4 stig, sigrað Coventry heima 2- 1 og WBA á útivelli 1—0, en tapaði fyrir Úlfunum um s.l. helgi á útivelli. Leeds tapaði fyrsta leiknum fyrir Chelsea 4—0, en hefur siðan unniö WBA og Sheff. Utd. 2—0. Hér eru allir möguleikar fyr- ir hendi og mér sýnist ekkert verra en hvað annað að spá jafntefli. W.B.A.-SHEFF. UTD. X W.B.A. hefur hlotið aðeins 1 stig i þrem leikjum og ekki skorað mark enn sem komið er. Sheff. Utd. hefur gengið mun betur, þrátt fyrir tap á móti Leeds á heimavelli. Liðin skildu jöfn i leikjum sinum i fyrra 0-0 og 2-2, svo ekki er úr vegi að ætla, að þau geri jafntefli að þessu sinni. BURNLEY-ASTON VILLA 2 Þá komum við að 2. deildar leiknum sem er á milli Burnley, sem nýlega er fallið úr 1. deild og hins þekkta liðs Aston Villa, sem spáð er miklum frama i vetur, og kom úr 3ju deild i vor. Ég veit satt að segja ekki hverju skal spá um þennan leik, en mér sýnist Aston Villa ætti aö geta hirt bæði stigin, þótt jafntefli komi fullt eins vel til greina. Miðvikudagur 23. ágúst 1972 9

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.