Alþýðublaðið - 29.09.1972, Qupperneq 2
VERZLIÐ t HAGKAUP
Falleg dömupeysusett (1095). Peysuúrval
á alla fjölskylduna. Viðar dömubuxur með
uppábrotum Stærð: 8-42.
Jerseybuxur kvenna og vetrarbómull- á
ótrúlega lágu verði.
IVlunið viðskiptakortin i matvörudeildinni.
( ’ID TIL KL.
1 í KVÖLD.
f| Hjúkrunarkonur
S iða deildarhjúkrunarkonu við skurð-
1. mingadeild Borgarspitalans er laus til
i ísóknar.
1 >plýsingar gefur forstöðukonan.
í aðan veitist frá 1. nóvember 1972.
1 nsóknir, ásamt upplýsingum um fyrri
í irf sendist Heilbrigismálaráði Reykja-
\ curborgar fyrir 15. október 1972.
I ykjavik 27. september 1972.
I ilbrigðismálaráð Reykjavikurborgar.
I úkrunarkonur óskast á hinar ýmsu
c ildir Borgarspitalans.
I >plýsingar gefur forstöðukonan i sima
8,m
I iykjavík, 27. september.
L ,rgarspitalinn.
B rnavinafélagið Sumargjöf
Forstöðukonu vantar
a< leikskólanum Barónsborg frá 1. desember n.k.
U: isóknir sendist skrifstofu Sumargjafar, Fornhaga 8,
fy ir 10. október n.k.
S jórn Sumargjafar.
(ierið góð kaup i
Skeifunni 15.
HERNÁM TÉKKÓSLÓVAKÍU
Fjórum órum síðar
ar 1968 að vinna fyrir sér sem
kyndarar og ófaglærðir verka-
menn? Af hverju fá þeir ekki sin
fyrristörf sem fyrirlesarar i há-
skólum, dálkahöfundar dag-
blaða o.s.frv.
Allt þetta bendir eindregið til
þess, að meirihluti landsmanna
sé andvígur núverandi vald-
höfum. Ekki aðeins ,,smá-
borgararnir”, eins og flokks-
dagblöðin vilja halda fram.
1 vestri hafa forystumenn
kommúnistaflokkanna i Belgiu,
Frakklandi og Italiu varað við
áframhaldandi notkun aðferða,
sem einungis séu til þess fallnar
að skaða málstaðinn.
Gustav Husak, sem sjálfur sat
lengi i fangelsi þegar fyrirrenn-
arar hans, leninistar, héldu um
stjórnvölinn, gerir sér sjálfur
vel grein fyrir þessari stað-
reynd, en hann óttast, að hvers
konar tilslökun ýti aðeins undir
öflin, sem beittu sér fyrir um-
bótunum i Tékkóslóvakiu 1968.
Fjöldi umbótasinna, sem nú
eru i útlegð, eins og Ota Sik,
fyrrverandi varaforsætisráð-
herra, hafa jafnvel horfið enn
lengra frá harðlinumarxisma.
Sáttaleið milli manna eins og
hans og Husaks og Svoboda, for-
seta er ekki lengur möguleg eða
finnanleg.
Og i Tékkóslóvakiu i dag er
jafn rækilega skrúfað yfir utan-
aðkomandi strauma og áhrif og
i tið stalinistans Antonins
Novotny.
Nú eru rétt rúm fjögur ár liðin
siðan Sovétrikin og nokkur
önnur austantjaldslönd réðust
með hervaldi inn i Tékkósló-
vakiu, i þeim tilgangi að koma i
veg fyrir, aö landið sneri baki
við kommúnisma.
Þá var Tékkum og Slóvökum
gefin tvö loforö.
Endi yrði bundinn á hersetuna
um leiö og ljóst væri orðið, að
stjórnin i Prag héldi „frum-
reglur Leninisma”, eins og
önnur austantjaldslönd, og
stjórn Novotnys fyrrverandi
forseta, sem komið var til valda
fyrir tilstilli Stalins, yrði ekki
afhent völdin á nýjan leik.
Þá var þvi lofaö, að jákvæðar
umbætur, sem komið var á
snemma árs 1968, fengju að
standa.
Gustav Husak, nýi flokksfor-
inginn lagði einmitt sérstaka
áherzlu á þetta atriði. Hann
lofaði lika, aö.engin „sýningar-
réttarhöld” yröu haldin yfir
þeim, sem brugðiö hefðu út af
„linunni”.
E" hver þessara loforða voru
halt n?
H ín óverulegi herstyrkur
Aust ir-Þýzkalands, Ungverja-
land ', Póllands og Búlgariu var
Kús arnir sögðust vera að
frelsa Tékkana frá „afturhalds-
öflunum" meðal þeirra og
hinum háskalegu „endur-
skoðunarsinnum ”. Að þeirri
frelsun lokinni áttu sovésku her-
mennirnir að halda lieim.
Kjórum árum siðar sitja þeir
enn sem fastast.
fljótt á brott, en her Sovét-
manna varð eftir.
Mikilvægi þeirrar utanrikis-
stefnu, að nauðsynlegt sé að
halda vörð um einu austan-
tjaldslandamærin, sem eru i
beinni snertingu við Vestur-
Þýzkaland, hefur stórlega
minnkað i áróðri stjórnanna i
Moskvu og Prag.
Nú er aðaláherzlan lögð á
samstöðu landanna austan-
tjalds og svokallaðan vilja
þeirra til að leiðrétta stjórn-
unaraðferðir leiðtoganna.
En að áliti Dr. Husaks og
Bresnjefs hlýtur ástandið núna
að vera verra en fyrir fjórum
árum.
Hvaða annan skilning ber að
leggja i þau varnaðarorð, sem
lesa má út úr þeim f jölda réttar-
halda, sem nú eru haldin i
Tékkóslóvakiu yfir mennta-
mönnum og fyrrverandi flokks-
mönnum.
Hvað annað geta hinir þungu
dómar, sem þetta fólk fær,
táknað?
Hvers vegna hefur ritskoðun
blaðanna verið hert svo mjög,
að hún er nú meiri en i nokkru
cðru Austur-Evrópulandi?
Hvers vegna lagði Husak svo
rika áherzlu á það á fjögurra
ára afmæli innrásarinnar, að
stefna fyrirrennara sins,
Dubceks, — sósialismi með
mannlegu yfirbragði — væri
ósættanleg Leninisma?
Og hvers vegna verða menn-
irnir sem innleiddu umbæturn-
GYLFI Þ. GÍSLASON SKRIFAR:
Norræna félagið
Norðurlandaþjóðirnar eru
þær þjóðir, sem Islendingar
eiga eðlilegust og auðveldust og
ljúfust skipti við. f raun og veru
eru Norðurlönd ein menningar-
heild. Þjóðfélagshættir og hug-
myndir um þjóðfélagsmál eru
þar likari en gerist með
nokkrum öðrum þjóðum i
Evrópu. A Norðurlöndum hafa
smám saman oröið til rótgróin
lýðræðisrlki, sem skipulagt hafa
þjóðfélag sitt á grundvelli vel-
ferðarhugsjóna 20. aldar. Þau
hafa orðið öllum heimi fyrir-
mynd að frjálsum og réttlátum
þjóðfélagsháttum, mótuðum af
frelsi og jafnrétti, mannúð og
mannhelgi.
tslendingum hefur verið aö
þvi gagn og sómi að taka vax-
andi þátt i samstarfi Noröur-
landa. Norræna félagið, sem i
dag er fimmtiu ára, hefur átt
mikinn og giftudrjúgan þátt í
eflingu þessa samstarfs. Það
hefur ekki notið mikils stuðn-
ings rikisvaldsins. Framlag til
þess mun nú nema um 400 þús.
kr. En starfsemi þess hefur fært
Islendingum margfalt meira i
aðra hönd. Vegna starfsemi
Norræna félagsins hafa t.d. is-
lenzkir skólanemendur átt kost
á fjölbreyttri skólavist á
Norðurlöndum, kennarar, lista-
menn og visindamenn hafa átt
kost á heimsóknum til hinna
Norðurlandanna, og margt
fleira mætti nefna. Gildi þess
starfs, sem Norræna félagið
hefur innt af hendi og innir af
hendi er miklu meira en séð
verður af þvi að bera saman þaö
fé, sem Norræna félagið fær til
ráðstöfunar hér, og peninga-
igildi þeirrar þjónustu, sem það
útvegar. Gildi þeirra sam-
50 ára
skipta, sem það kemur á og
eflir, er miklu meira en metið
verði til fjár. Það eykur viðsýni
mikils fjölda tslendinga stofnar
til ómetanlegra vináttubanda og
eflir menningartengsl sem bæta
manninn og fegra lif hans.
Norrænt samstarf er ekki
skálaglamur né hégómi. Það
snertir sumt af hinu dýpsta og
bezta i brjóstum norrænna
manna: Sameiginlega menn-
ingararfleifö um aldir, sam-
hygð, sem grundvallast á alda-
gömlum tengslum, og vefur
saman gagnkvæma virðingu og
einlæga vináttu.
Astæða er til aö þakka
Norræna félaginu starf þess i
hálfa öld og óska þess, að við-
leitni þess til eflingar bræöra-
banda milli íslendinga og
annarra þjóða á Norðurlöndum
megi bera sem beztan árangur.
AUGLÝSINGASÍMINN OKKAR ER 8-66-60
Föstudagur 29. september 1972