Alþýðublaðið - 29.09.1972, Qupperneq 8
LAUeflRASBÍÚ Simi 32075
WILLIE BOY
"TELLTHEM
WILLIE BOY
IS HERE”
Spennandi bandarísk úrvalsmynd
i litum og panavision gerö eftir
samnefndri sögu (Willie Boy) eft-
ir Harry Lawton um eltingarleik
við Indiána i hrikalegu og fögru
landslagi i Bandarikjunum. Leik-
stjóri er Abraham Polonski er
einnig samdi kvikmyndahandrit-
nð.
tslenzkur texti
Sýnd kl. 5, 7 og 9
Bönnuð börnum innan 14 ára.
HAFNARBÍÓ s,,,,,
BOB HOPE-JACKIE GLEASON
JANE WYMAN
“HOW TO COMMIT MARRIAGE”
...111,III MtSlN AHWIKIINAklllllK
Tengda f eður nir
Sprenghlægileg og fjörug ný
bandarisk gamanmynd i litum,
um nokkuð furðulega tengdafeð-
ur. Hressandi hlátur, stanzlaust
grin, með grinkóngunum tveim.
Bog llope og Jackie Gleason
tslenzkur tcxti.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
TÚHflBÍÚ Simi 31182
Veiðiferðin
(..The Hunting party”)
Övenjulega spennandi, áhrifa-
mikil, velleikin, ný amerisk kvik-!
mynd.
islenzkur texti
Leikstjóri: DON MEDFORD
Tónlist: Riz Ortolani
Aðalhlutverk: OLIVER REED,
CANDICE BERGEN, GENE
HACKMAN.
Sýnd kl. 5, 7, og 9
Stranglega bönnuð börnum innan
16 ára
Viðvörun: Viðkvæmu fólki er ráð-
ið frá þvi að sjá þessa mynd.
SmA
lYKJAVÍKURlB
LEIKHÖSALFARNIR
laugardag kl. 16.00
ATÓMSTÖÐIN
laugardag kl. 20.30
LEIKHÚSALF ARNIR
sunnudag kl. 15.00
DÓMtNÓ
sunnudag kl. 20.30
Aðgöngumiðasalan i Iðnó er opin
frá kl. 14.00 Simi 13191.
KÓPAVOGSBÍÓ Simi 4.985
litmynd gerð eftir samnefndri
sögu Siv Iloim’s.
Aðalhlutverk:
Gio Petre
Lars Lunöe
Iljördis Peterson
Endursýnd kl. 5,15 og 9.
Bönnuð innan 16 ára.
HAFNARFJARÐARBÍÓsim i 50249!
í ánauð hjá
índiánum
Æsispennandi og vel leikin mynd i
litum með islenzkum texta.
Aðalhlutverk: Richard Harris,
Dame Dudith Anderson.
Sýnd kl. 9.00
STIÖHHUBI'Ó *•••■■
HÁSKÚLABÍÚ
Simi 22140
Viða er pottur
brotinn
franícTé hövverd"up pómpeii
——. f»*nct C*t0 Mwi Murr«r U~. Miui
W.WUM |»iW,M H »1*1011« Hr OIM..II 1« g
4' DC **
Frjáls sem fuglinn
(Run wild, Run free)
Islenzkur texti
Afar hrifandi og spennandi ný'
amerisk úrvalskvikmynd i
technicolor. Með úrvalsleikurum.
Aðalhlutverkið leikur barna-
stjarnan MARK LESTER, sem
lék aðalhlutverkið i verðlauna-
myndinni OLIVER, ásamt John
Mills, Sylvia Syms, Bernard
Miles. Leikstjóri: Richard C.
Sarafian. Mynd sem hrifur unga
og aldna. Sýnd kl. 5 og 7
Harðjaxlar frá Texas
Islenzkur texti
Spennandi amerisk kvikmynd i
technicolor: Hörkuspennandi frá
byrjun til enda. Gerð eftir skáld-
sögu „Nótt tigursins” Aðalhlut-
verk: Chuch Conners, Michael
Rennie, Kathryn Hayes.
Endursýnd kl. 9
Sprenghlægileg brezk gaman-
mynd
Leikstjóri: Bob Kellett
Aðalhlutverk: Frankie Howerd
Patrick Cargill, Barbara Murray
Islenzkur texti
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Ath. Það er hollt að hlæja i
haustrigningunum
#ÞJÓÐLEIKHÍISIÐ
SJALFSTÆTT FÓLK
sýning laugardag kl. 20.
sýning sunnudag kl. 20.
Miðasala 13.15 til 20. Sími 1-1200.
VIÐRÆÐUNEFNDIR ALÞÝDUFLOKKS OG
FRJÁLSLYNDRA SAMMÁLA:
SAMtlNADIR I
NÆSTU KOSNINGUM?
1 umbroti i prentsmiðju aflag-
aðist hluti af sameiginlegu áliti
viðræðu nefnda Alþýðuflokksins
og SFVM, sem birtast átti i blað-
inu i gær, svo gersamlega, að
ómögulegt var að fá nokkurn botn
i ályktunina. Setningaröðunin
ruglaðist margfaldlega.
Um leið og Alþýðublaðið biður
afsökunar á þessum vinnu-
brögðum birtir það álit viðræðu-
nefndanna aftur og fer það hér á
eftir. Er vonandi að það komist
nú óbrenglað til skila.
— Ég tel það vera merkan
stjórnmálaatburð að viðræðu-
nefndir þessara tveggja flokka
skulihafa orðið sammála um að
mæla með þvi við flokksþingin,
að þau samþykki þessa ályktun,
sagði formaður Alþýðuflokks-
ins, dr. Gylfi Þ. Gislason, i við-
tali við Alþýðublaðið i gær um
sameiginlega niðurstöðu við-
ræðunefnda Alþýðuflokksins og
Samtaka frjálslyndra og vinstri
manna. Hér er auðvitað ekki um
neins konar ákvörðun að ræða,
hélt Gylfi áfram. Ákvörðunar-
vald i þessu máli er i höndum
flokksþinganna, sem koma
munu saman á næstunni. Þau
munu marka endanlega stefnu i
þessu mikilvæga máli.
Viðræðunefndir Alþýðu-
flokksins og Samtaka frjáls-
lyndra og vinstri manna um
sameiningarmálið komust á
siðasta fundi sinum að sam-
eiginlegri niðurstöðu um
ályktun, sem nefndirnar beina
til flokksþinga beggja aðila, en
flokksþing Samtakanna fer
fram nú um helgina og flokks-
ping Alþýðuflokksins i lok næsta
mánaðar.
Alyktun þessi er árangurinn
af fundum viðræðunefndanna,
sem staðið hafa öðru hvoru allt
s.l. ár.
I gær var ályktunin formlega
gerð opinber og fer hún hér á
eftir:
„Viðræðunefndir, sem
stjórnir Alþýðuflokks og Sam-
taka frjálslyndra og vinstri
manna hafa kosið, eru sammála
um að beina þvi til flokksþinga
þessara flokka, að þau sam-
þykki ályktun um að sameina
beri alla lýðræðissinnaða jafn-
aðarmenn á Islandi i einum
stjórnmálaflokki og lýsi yfir
vilja sinum til þess að gerast
aðilar að þeirri sameiningu.
Sameiningin skal koma til
framkvæmda fyrir næstu
almennar kosningar i landinu.
Sameiningunni skal haga
þannig, að sem bezt verði
trvggð aðild allra þeirra stjórn-
málasamtaka og einstaklinga
sem aðhyllast stefnu jafnaðar,
samvinnu og lýðræðis að hinum
nýja flokki jafnaðarmanna.
Þing Alþýðuflokksins og SFV
samþykki að kjósa fulltrúa i
sérstaka nefnd, er annist loka-
undirbúning sameiningarmáls-
ins.
Þegar undirbúningsnefndin
telur timabært, skal kalla
saman aukaþing i báðum
flokkum. Skulu þau fjalla
endanlega um sameiningu og
kjósa fulltrúa beggja flokka á
sameiningarþing — stofnþing
hins nýja jafnaðarmannaflokks.
Sameiningarþing skal setja
flokknum lög, ákveða stefnu
hans i meginatriðum, kjósa
honum stjórn, fjalla um inn-
göngu hans i Alþjóðasamband
jafnaðarmanna og gera aðrar
ályktanir, sem móta nýja
sóknarbaráttu iýðræðissinnaðra
jafnaðarmanna i islenzkum
stjórnmálum og hrinda henni af
stað.
Æ fleiri gera sér ljóst, hversu
óraunhæft er, að jafnaðarmenn
séu skiptir i margar fylkingar .
Slik skipting gerir baráttuna
fyrir hagsmunum fólksins bit-
lausa og treystir valdaaðstöðu
ihaldsaflanna. Aðeins öflugur
flokkur allra þeirra, sem
aðhyllast hugsjónir jafnaðar-
stefnunnar, mun tryggja varan-
legan framgang hennar.
Sameinaðir munu jafnaðar-
menn kalla eftir stuðningi allra
þeirra íslendinga, sem að-
hyllast hugsjónina um þjóðfélag
byggt á frelsi, jafnrétti og
bræðralagi. Þeir munu berjast
fyrir frelsi og fullveldi Islands
og styðja baráttu allra annarra
þjóða fyrir frelsi og jafnrétti.
Þeir munu berjast fyrir varð-
veizlu gæða lands og land-
grunns, svo að þjóðin geti lifað
þar heilbrigðu lifi i óspilltu þjóð-
félagi jafnaðar, framfara og
menningar. Sameinaðir munu
jafnaðarmenn berjast fyrir þvi,
að samvinna komi hvarvetna i
stað gróðahyggju og arðráns, en
manngildi verði sett ofar efnis-
hyggju. Þeir munu beita sér
fyrir sókn þjóðarinnar til full-
komnara og virkara lýðræðis á
öllum sviðum bióðlifsins.
Sameinaðir munu jafnaðar-
menn verða nýtt, voldugt afl i
islenzku þjóðlifi og beita sér
fyrir þvi, að jafnaðarhugsjónin
hafi i framtiðinni sivaxandi
áhrif á þróun islenzks þjóðfél-
ags i átt til fegurra og betra
mannlifs.”
1 viðræðunefnd Alþýðuflokks-
ins voru: Gylfi Þ. Gislason,
Benedikt Gröndal, Björgvin
Guðmundsson, Kjartan
Jóhannsson og Orlygur
Geirsson. 1 viðræðunefnd
Samtaka frjálslyndra og vinstri
manna voru: Hannibal
Valdimarsson, Björn Jónsson,
Alfreð Gislason, Bjarni Guðna-
son og Halldór S. Magnússon.
alþýðu IBLAÐBURDARFOLK
9SKAST:
Laugaveg efri og neöri
glg§|Í Rauðalæk
Laugateig
Laugarnesveg
Grettisgötu
Lindargötu
Álfheima
itrekuð auglýsing
Fasteignaskattur 1972
í Kópavogi
Samkvæmt 5. grein laga um tekjustofna
sveitarfélaga, er sveitastjórn heimilt að
lækka eða fella niður fasteignaskatt sem
efnalitlum elli og örorkulifeyrisþegum er
gert að greiða.
Umsóknir samkvæmt framangreindu
óskast sendar á Bæjarskrifstofuna, eigi
siðar en 10. október n.k.
Bæjarstjóri Kópavogs.
Tónleikar
Skólahljómsveit Kópavogs heldur tónleika
i Kópavogsbiói, sunnud. 1. okt. kl. 15.00.
Kynnir: Þorsteinn Hannesson, óperu-
söngvari.
Stjórnandi: Björn Guðjónsson.
Aðgöngumiðar i bókabúðinni
Álfhólsvegi 5 og við innganginn.
Veda,
Skólahljómsveit Kópavogs.
Föstudagur 29. september 1972