Alþýðublaðið - 20.10.1972, Page 1
FLOKKSÞING ALÞÝÐUFLOKKSINS HEFST í KVÖLD
SAMEININGARMÁUD
MEGINVIÐFANGSEFNI
Klukkan 20,30 í kvöld hefst
setningara.thöfn 34. flokksþings
Alþýðuflokksins. Fer hún fram i
Kristalssalnum á Hótel Loft-
leiðum og er öllum heimill að-
gangur að setningarfundinum.
Auk venjulegra þingsetn-
ingarstarfa verða á setninga-
fundinum fluttar þrjár yfirlits-
ræður. Auk þingsetningar-
ávarps flytur Gylfi Þ. Gislason,
formaður Alþýðuflokksins, yfir-
litsræðu um stjórnmálaviðhorf-
ið og mun hann m.a. vikja að
sameiningarmálinu. Þá flytur
Benedikt Blöndal varaformað-
ur flokksins, ræðu um utanrfkis-
mál og Eggert G. Þorsteinsson,
ritari flokksins, flytur ræðu um
flokksstarf og flokksmál.
A morgun, laugardag, hefjast
svo regluleg þingstörf og er
ANNAÐ
ÞESS
áætlað, að flokksþinginu ljúki á
sunnudagskvöld.
Ýmis mál mun að venju bera
á góma i flokksþinginu, en sam-
einingarmálið og viðhorfin i
stjórnmálum munu sjálfsagt
verða stærstu mál þingsins.
Fulltrúar á þingi Alþýðu-
flokksins munu verða eitthvað á
annað hundrað.
LEYNILEGAR VIÐ-
RÆDUR I SAIGON
SNYST THIEII NU
Ohdverdur gegn fridi?
Henry Kissinger, ráðunautur
Nixons Bandarikjaforseta, og
Van Thieu, forseti Suður-Viet-
nam, áttu fimm klukkustunda
leynilegar viðræður i Saigon i
gær. En allt bendir til þess, að
Thieu hyggist hafna sérhverri
tillögu um frið i Vietnam, sem
kunni að stefna rikisstjórn hans
i hættu.
Mjög mikil leynd hvildi i gær
yfir viðræðum þeirra Kissingers
og Thieus, en siazt hefur út, að
verulegur ágreiningur hafi rikt
MYNDIN - Stríðið í Víetnam
eins og danski teiknarinn
Claus Albrechtsen sér þaö.
á fundi þeirra.
Þær fréttir, sem flogið hafa
fyrir i Saigon, benda til þess, að
Thieu óttist, að viðræður Kiss-
ingers við aðalsamningamenn
Norður-Vietnam i Paris kunni
að leiða til þess, að Bandarikja-
menn snúist gegn honum og
stjórn hans i Suður-Vietnam.
Orðrómur var á kreiki um það
i gær, að Van Thieu hugsi sér
jafnvel að efna til nýrra kosn-
inga i Suður-Vietnam og sýna i
þeim styrkleika sinn, telji hann
sig ekki geta fallizt á friðartil-
lögur Bandarikjamanna.
Stjórnmálaleg framtið Suður-
Vietnam hefur til þessa verið
stærsti og viðkvæmasti þáttur-
inn i viðræðum Kissingers við
fulltrúa Norður-Vietnam.
Samkvæmt þvi, sem haft er
eftir stjórnmálamönnum i Suð-
ur-Vietnam, sem styðja Thieu
forseta að málum, en vilja ekki
láta nafna sinna getið, lýsti
Thieu þvi yfir á fundi með
nokkrum þingmönnum i Saigon
fyrir tveimur dögum, að hugs-
anlega verði gert vopnahlé i
landinu eftir forsetakosningarn-
ar i Bandarikjunum, sem fram
fara i næsta mánuði. Ekki hefur
fengizt staðfest, að hér sé rétt
með farið.
Sömuleiðis er haft eftir Thieu,
að hann sé gersamlega andvig-
ur tillögum Norður-Vietnam og
Sameinuðu þjóðanna um mynd-
un samsteypustjórnar þriggja
aðila i Suður-Vietnam, sem taki
við af núverandi stjórn. —
EINS GOTT AD
EKKERT BILI
ÖNGÞVEITIÐ í RAFORKU-
MÁLUNUM NYRÐRA
Nú má ekkert gefa eftir svo að
Norðlendingar megi ekki nota
kerti oggrútartýruri vetur, þvi að
allar rafveitur þar nyrðra eru
keyrðar á hámarksafköstum, og
verulegur hluti rafmagnsfram-
leiðslunnar á Norðurlandi vestra
er nú þegar framleidd með diesel
rafstöðvum.
Af þessu tilefni átti blaðið tal af
HERSKIP
HENNAR
HATIGNAR
KOMIÐ?
Seint í gærkvöldi hélt
fréttastofan Associated
Press i Lundúnum þvi
fram, að brezka freigátan
,,Achilles" væri komin fast
upp að 50 sjómílna land-
helgislinunni við ísland.
Sagðist fréttastofan hafa
þetta eftir áreiðanlegum
heimildum.
Alþýðublaðið hafði samband
við blaðafulltrúa landhelgisgæzl-
unnar laust fyrir klukkan hálf tólf
i gærkvöldi, en hann kvaðst engar
spurnir hafa af umræddu brezku
hcrskipi, en sagði, að frctt þessi
gæli samt verið á rökum reist.
Fyrr i gærkvöldi barst frétt frá
Associated Prcss og var þar frá
þviskýrt, að freigátan „Achilles”
Framhald á bls. 4
Bretinn vill ennþá „bráðabirgðasam-
komulag” - og bætur vegna togarans!
I fréttaskeyti, sem Alþýðublað-
inu barst frá London i gær ,
segir, að Bretar reyni nú að draga
úr spennunni i þorskastriðinu við
íslendinga, þrátt fyrir siðustu at-
burði og árekstra brezkra togara
og islenzkra varðskipa á miðun-
um við Island.
Anthony Royle, ráðuneytis-
stjóri i brezka utanrikisráðuneyt-
ingu, sagði neðri málstofu brezka
þingsins i gærdag, að Bretar væru
þeirrar skoðunar, að bæði is-
lenzku og brezku rikisstjórninni
væri hagur i þvi, að samningavið-
ræðum yrði haldið áfram og
stefnt verði að bráðabirgðasam-
komulagi i landhelgisdeilunni,
unz endanleg lausn gæti tekizt.
t ræðu sinni mæltist Antony
Royle til þess við tslendinga, að
þeir sýndu stillingu og forðuðust
allar aðgerðir gegn brezkum tog-
urum, sem gætu fært meiri hörku
i deiluna. Lýsti hann þvi jafn-
framt yfir, að „árásum” á brezk
skip á tslandsmiðum yrði að
linna.
Royle kvaddi sér hljóðs i neðri
málstofunni i gær og kvaðst taka
til máls vegna mjög alvarlegra
atburða á Islandsmiðum, sem
hann kvaö ástæðu til að harma,
enda hefðu þeir truflandi áhrif á
gang málsins.
Benti hann á, að þrir alvarlegir
atburðir hefðu gerzt á miöunum
við tsland i siðustu viku og sagði
m.a., að brezki togarinn „The
Guðjóni Guðmundssyni, skrif-
stofustjóra Rafmagnsveitna
rikisins.
Hann sagði að ástandið væri að
visu ekki gott, en reynt yrði að
koma i veg fyrir rafmagnsskort
með þvi að fjölga dieselstöðvum.
Það væri hinsvegar bæði dýrt
og óhagkvæmt, en virðist i fljótu
bragði eina lausnin á meðan alger
óvissa væri um framvindu mála
við Laxárvirkjun.
Dieselstöðva rafmagnið er dýr-
ara i framleiðslu en rafmagn frá
vatnsaflsstöðvum, en þeim mis-
mun verður deilt á alla lands-
menn, svo Norðlendingar þurfi
ekki að axla þær byrðar einir.
Nú er verið að leggja raflinu frá
Akureyri yfir að Löngumýri i
Skagafirði, og á þar með að
tengja Norðurland vestra veitu-
kerfi Laxárvirkjunar, en það
kerfi nær alla leið austur til
Raufarhafnar.
Bjóst Guðjón við, að með þeim
aflstöðvum sem til væru, og vænt-
anlegu viðbótarrafmagni frá
Laxárvirkjun, ætti Norðurland
Framhald á bls. 4
Aldershot” hefði fengið á sig stórt
gat i árekstri við islanzka fall-
byssubátinn „Ægi”. Kvað Royle
brezku stjórnina myndu krefjast
fullra bóta vegna tjónsins á tog-
aranum.
Þá er i fréttaskeytinu frá Lond-
on sagt, að Ólafur Jóhannesson
forsætisráðherra hefði sagt á Al-
þingi s.l. miðvikudag, að atburð-
urinn, þar sem „The Aldershot”
og „Ægir” hefðu komið við sögu,
Framhald á bls. 4
HUSIÐ UM-
KRINGT OG
ÞJÓFUNUM
STUNGIÐ í
STEININN
Hópur Stokkseyringa brá
fyrir sig bctri fætinum i fyrri-
nótt, og handsamaði þrjá ó-
boðna gesti, sem brotist höfðu
inn i útibú Kaupfélagsins
llafnar-á staðnum.
Mennirnir, sem eru úr
Keykjavik, brutust inn í útibú-
ið og tóku þegar að raða vör-
um ofan i kassa, og voru m.a.
búnir að finna peningakassa,
scm þeir ætluðu að taka með
sér i heilu lagi.
Einhver athugull Stokkseyr-
ingur varð mannanna var og
hringdi strax i útibússtjórann,
scm safnaði þegar liði og um-
kringdi húsið.
Sáu þjófarnir þá sitt óvænna
og hugðust leggja á flótta, en
þá var þétt vörn fyrir og kom-
ust þeir hvergi. Útibússtjórinn
hafði hringt á Selfosslögregl-
una, um leið og liðsafnaðurinn
fór fram, og kom hún brátt og
sótti mennina, sem sjálfsagt
liafa verið fegnir að sleppa úr
klóm vigalegra Stokkseyring-
anna.
Ekki komust þeir þó langt
frá Stokkseyri þá nóttina, þvi
þeir fengu að gista fangelsið
að Litla-Hrauni. —