Alþýðublaðið - 09.11.1972, Blaðsíða 2
Brennivín einungis
gegn nafnnúmerinu
Á þingi Landssambandsins gegn áfengisbölinu, er haldið var i Reykjavik fyrir skömmu, var samþykkt að beina þeim tilmæl- um til heilbrigðisráðuneytisins, að það hlutist til um, i samráði við dóms og fjármálaráðuneytið, að öll sala á áfengi frá Afengis- og tóbaksverzlun rikisins verði bundin við nafn og nafnnúmer og krafizt sé persónuskilrikja við af- greiðslu. Einnig var samþykkt að beina þvi til dómsmálaráðuneytisins, að nafnskirteini verði gerð á þann veg, að fölsun þeirra sé útilokuð. Páll V. Danielsson var endur- kjörinn formaður Landssam- bandsins. Auk hans voru kosin i stjórn, Eirikur Stefánsson, Hanna Jónsdóttir, dr. Jakob Jónsson, Jó- hanna Steindórsdóttir, Óskar Pétursson og Pétur Björnsson.
Áskriftarsiminn er 86666
Lögreglumannsstar f
Laust er til umsóknar starf eins lögreglu- manns i lögregluliði Kópavogs. Upplýsingar um starfið gefur yfirlögregluþjónn. Umsóknarfrestur er til 30. nóv. 1972. Lögreglustjórinn i Kópavogi.
FRÆDSLUFUNDUR
UM
KJARASAMMNtA V.R.
3,.fundur fer fram i félagsheimili V.R. aö
Hagamel 4, i kvöld fimmtudaginn 9. nóv.
kl. 20.30 og fjallar hann um
VINNUTÍMA
Framsögumenn:
Magnús L. Sveinsson
Sigrún Jóhannsdóttir.
YEBIÐ VIRK f V.R.
Vörubifreið til sölu
Tilboð óskast i V-656, sem er M. Benz 14-
18, árg. 1965.
Bifreiðin er búin járnpalli, sturtum og 2 1/2 tonn Foco
krana. Heimilt er að gera tilboð i bifreiðina með öllum
þessum hlutum eða án einhverra þeirra.
Réttur er áskilinn til að hafna þeim tilboðum, er ekki telj-
ast viðunnandi.
Tilboð skulu send Bæjartæknifræðingi, pósth. 60 i Vest-
mannaeyjum fyrir 12. nóvember n.k.
Áhaldahús Vestmannaeyjabæjar.
Jólagetraun
Vikunnar
500
vinningar
Hin árlega og vinsæla Jólagetraun Vikunnar er hafin og veröur í
næstu fimm blöðum. Þaö eru 500 vinningar, leikföng af ýmsum
stæröum og geröum: brúöur, bilabrautir, Corgi-bílar, flugmódel,
töfl, spil, fótboltar, snjóþotur og ótalmargt fleira.
Vikan
AHOFN Ofi UTCERD GAFU
AFLANN ÚR EINIIM RÚDRI
20 MILUONIR
KOMNAR í LAND-
HELGISSJÓÐINN
Beiðni Framkvæmdanefndar
landhelgissöfnunar um að menn
láti renna i Landhelgissjóð upp-
hæð, sem nemur dagskaupi
þeirra, er nú farin að bera
árangur. 1 gær sendi áhöfnin af
m/b Kristni ÞH-163 frá Raufar-
höfn og útgerð bátsins til fram-
kvæmdanefndarinnar andvirði
eins róðurs, að upphæð kr. 53.200.
1 bréfi, sem fylgdi upphæðinni,
segir m.a., að ákveðið hefði verið
að andviröi fiskjarins úr róðri sið-
asta sumardag, 20. október,
skyldi renna i landhelgissjóð, og
þá haft i huga, að sumarúthaldið
var hagstætt að þessu sinni.
Aflinn i þessum róðri varð 3115
kg-
Þá eru söfnunarlistar, sem
voru sendir út á vegum nefndar-
innar, farnir að berast á skrifstof-
una ásamt framlögum. Til dæmis
má nefna framlög frá starfsfólki
Mjólkursamsölunnar, kr. 71,900,
Starfsfólki Kristjáns Siggeirsson-
ar h.f., kr. 15.729, frá skipverjum
á Árvakri kr. 13.734 og starfsfólki
Hraðfrystihúss Þórshafnar kr.
16.500.
Jón Ásgeirsson, framkvæmda-
stjóri landhelgissöfnunarinnar.
sagði i viðtali við Alþýðublaðið i
gær, að gleðilegt væri til þess að
vita, hversu margir hafi tekið
þátt i söfnuninni, og nafnalistar,
sem fylgi framlögunum, séu
óhemju langir.
Nú hafa safnazt um 20 milljónir
króna, en betur má ef duga skal,
þvi verði farið út i að kaupa nýtt
varðskip er ekki um lægri upphæð
að ræða en 400 milljónir. Hinsveg-
ar má fara að hugsa til samninga
strax og 50 milljónir hafa safnazt.
Fólk er beðið að skila söfnunar-
gögnum hið fyrsta og gera skil.
Skrifstofa nefndarinnar er að
Laugavegi 13, og er opin kl. 9-17
daglega. Siminn er 26723.
Þórsmerkurferð
Aukaferö á laugardagsmorgun
kl. 8. Kvöldvaka.
Ferðafélag Islands
öldugötu 3
Simar 19533 og 11798
AUGLÝSINGASÍMINN OKKAR ER 8-66-60
t
Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför
Jóns Guðmundssonar
frá Snartarstöðum
Holtsgötu 34.
Jóna Bjarnadóttir,
Asdis Jónsdóttir, Guðmundur Jónsson,
Guðmundur Jónsson, Elin Þórarinsdóttir,
barnabörn og systkini.
Rýmingarsala
Skyndisala
Vegna flutnings á Teppahúsinu í Skeifuna 15,
seljum við ógölluð Wilton-teppi á niðursettu
verði. Gerið góð kaup meðan birgðir endast.
Teppahúsið,
Húsgagnaverzlun Guðmundar,
Skeifunni 15
0
Fimmtudagur 9. nóvember 1972