Alþýðublaðið - 09.11.1972, Síða 5
Alþýðublaðsútgáfan h.f. Ritstjóri Sig-
hvatur Björgvinsson (áb). Fréttastjóri
Bjarni Sigtryggsson. Aðsetur ritstjórn-
ar Hverfisgötu 8-10. — Sími 86666.
Blaðaprent h.f.
FORSETAKOSNINGARNAR
Eins og almennt var búizt við hafði Richard
M. Nixon yfirburði yfir keppinauta sina i for-
setakosningunum i Bandarikjunum. Þótt end-
anlegar tölur liggi ekki fyrir þegar þetta er
skrifað er fullvist orðið, að hann verður endur-
kjörinn sem forseti Bandarikjanna og vinnur
einn þann mesta kosningasigur sem frambjóð-
andi hefur unnið við forsetakosningar i landinu.
Richard M. Nixon er leikinn stjórnmálamað-
ur. Það hefur margvislega komið i ljós. Enginn
frýr honum vits. En þótt hann sé mikilhæfur á
sinu sviði blandast engum hugur um að hann
er mjög ihaldssamur i skoðunum, — sérstaklega
þó i innanrikismálum. Sem frambjóðandi hefur
Nixon ávallt verið fulltrúi ihaldssamra afla.
Enda þótt McGovern hefði sigrað i forseta-
kosningunum hefði stefna Bandarikjanna i
utanrikismálum sennilega litið breytzt. Á und-
anförnum árum hefur hún stöðugt verið að fær-
ast i átt til meira frjálslyndis og umburðarlynd-
is og enginn vafi er á þvi, að ráðamenn Banda-
rikjanna, þar á meðal Nixon forseti, hafa lagt
sig fram um að bæta sambúðina við þau riki i
heiminum, sem aðhyllast aðrar grundvallar-
skoðanir i stjórnmálum, en ráðandi öfl i Banda-
rikjunum. Hefði McGovern án efa haldið áfram
á þessari braut hefði hann valizt til forsetaemb-
ættisins, en sennilega þó farið að öllu með gát,
eins og gert hefur verið.
Það er hins vegar i innanrikismálum, sem
munurinn á stefnu frambjóðendanna er mestur.
Þar eiga Bandarikin við erfiðleika að striða,
sem eru auðkenni þess, að þjóðfélagskerfi
þeirra, sem byggir á skefjalausri gróðahyggju,
sé bæði sjúkt og rotið. Hvað er óeðlilegt við það
þótt ofbeldishneigð ágerist i þjóðfélagi, sem
byggir á frumskógarlögmálum kapitalismans
um að eta til að verða ekki etinn? Hvað er óeðli-
legt við það, þótt öryggisleysið skaði sálarlif
mannfólks i samfélagi, sem er gjörsneytt mann-
legri samhygð i allri gerð sinni og lýtur þeim
lögmálum Svartaskóla, að allir keppi við alla og
skrattinn megi hirða þá, sem siðastir verða?
Það eru mörg ár siðan kapitalisminn i Banda-
rikjunum beið algert skipbrot sem leiðandi afl i
samfélagsmálum og upp frá þeim degi hefur
bandariskt samfélag siglt hraðbyri til glötunar.
Ástandið i kynþáttamálunum jaðrar við
borgarastyrjöld. Glæpir aukast hraðfara. Of-
beldishneigðin er að verða einkennandi fyrir
bandariskt samvélag. í siðmenningarlegu tilliti
er bandariskt þjóðfélag orðið langt á eftir flest-
um eða öllum þjóðfélögum i Vestur-Evrópu, þar
sem félagshyggjan hefur fengið að njóta sin, —
og ljósárum á eftir þjóðfélögunum á Norður-
löndum t.d.
Margir frjálslyndir Bandarikjamenn hafa
fyrir löngu séð þessi ummerki og gert sér ljósa
hina raunverulegu orsök þeirra, — ómannúðleik
og villimennsku hins kapitaliska hugsunarhátt-
ar. Þeir gera sér grein fyrir þvi, að bandariska
þjóðfélagið verður ekki læknað, nema með þvi
að innleiða þar þá mannúðarstefnu, sem svo
lengi hefur skort. í hópi þessara manna eru Mc-
Govern og stuðningsmenn hans. Þvi dapurlegri
örlög fyrir bandárisku þjóðina, að þær hugsjónir
skyldu falla.
Hlutverk McGoverns hefur e.t.v. verið hið
sama og Don Quixote hjá Cervantes, — að berj-
ast vonlausri baráttu. En barátta beggja er bar-
átta fyrir fögrum hugsjónum, sem hvað hug-
sjónum McGoverns liður eru eina bjargarvonin
fyrir samfélagið i Bandarikjum Norður-
Ameriku.
alþýðu
I H I I
Björgvin Guðmundsson skrifar um borgarmál
NVTT HRAÐFRYSTIHÚS
FYRIR BÆIAROTGERDINA
A næst siðasta fundi borgar-
stjórnar Reykjavikur lýsti ég .
ánægju minni yfir þvi, að út-
gerðarráð hefði látið i ljós það álit
sitt, að rétt væri að reisa nýtt 315
millj. kr. hraðfrystihús fyrir
Bæjarútgerð Reykjavikur. í til-
efni af þessum ummælum minum
tók borgarstjóri réttilega fram,
að engin ákvörðun hefði enn verið
tekin um það, hvort umrætt
frystihús yrði byggt. Tillaga min
gerir ráð fyrir þvi, að ákvörðun
verði tekin nú þegar enda hefur
málið verið undirbúið það vel, að
borgarstjórn er ekkert að van-
búnaði að taka ákvörðun i máli
þessu eins og ég mun koma að
siðar.
Margir frystihúsaeigendur i
Reykjavik og úti á landi hafa nú i
undirbúningi miklar endurbætur
á frystihúsum sinum vegna
þeirra auknu krafna, er Banda-
rikin gera til frystihúsa i við-
skiptalöndum sinum. Hafa sumir
frystihúsaeigendur komizt að
þeirri niðurstöðu, að hagkvæm-
ara sé fyrir þá að byggja ný,
frystihús i stað þess að láta fara
fram mjög kostnaðarsamar end-
urbætur á eldri húsum. Nýbygg-
ingar gera einnig kleift að koma á
aukinni hagræðingu i rekstri og
þá má breyta staðsetningu frysti-
húsanna, sem viða er mjög ó-
heppileg.
Rekstrartækni sf. hefur gert á-
ætlun um byggingu nýs Frysti-
húss fyrir BÚR á Grandagarði
og Ingimundur Sveinsson
arkitekt hefur gert teikningu af
nýju frystihúsi á framangreind-
um stað i samráði við Rekstrar
tækni s.f.
Áætlun Rekstrartækni s.f. gerir
ráð fyrir þvi, að hið nýja frystihús
verði byggt i 3 áföngum. Aætlað
er að I. áfangi muni kosta 231
millj. kr. II. áfangi á að kosta 44.2
millj. kr. og III. áfangi 39.5 millj.
kr. Byggingarhluti hins nýja
' frystihúss er áætlaður 152,8 millj.
kr. en vélar og tæki 162,8 millj. kr.
Heildarbyggingarkostnaður hins
nýja frystihúss er þvi áætlaður
' 315,6 millj. kr.
Áætlað er, að eftir byggingu I.
áfanga verði afköst hins nýja
frystihúss þau, að það geti unnið
úr 115—150 tonnum á dag. Til
samanburðar má geta þess, að
afköst fiskiðjuvers BÚR eru
70—90 tonn á dag, þannig að þeg-
ar eftir byggingu I. áfanga
mundu afköstin aukast um 65%.
Eftir byggingu II. áfanga er áætl-
að að afköstin verði 170 —220
tonn eða 140% meiri en nú.
Aætlun Rekstrartækni s.f. gerir
ráð fyrir, að svokölluð Bakka-
skemma á Grandagarði, sem er
eign Reykjavikurnafnar, verði
keypt af BÚR og notuð fyrir hið
nýja fyrstihús sem vinnusalir,
fiskmóttökustöð svo og fyrir
mötuneyti og snyrtingu starfs-
fólks. Skemman er 2 hæðir, 20,80
metrar á breidd og 126 metrar á
lengd. Er hún af sérfróðum
mönnum talin henta vel undir
vinnslusali frystihúss. Að sjálf-
sögðu þyrfti að gera ýmsar end-
urbætur á skemmunni vegna
hinna nýju nota hennar. Er reikn-
að með, að hún mundi fullfrá-
gengin til hinna nýju þarfa kosta
109 millj. kr. En það er sama verð
og vera myndi á byggingu nýs
jafnstórs húss. Þó er hugsanlegt
að kostnaður við skemmuna full-
frágengna yrði eitthvað lægri. I
fyrsta áfanga þyrfti einnig að
byggja vélarhús, 500 fm að stærð.
Kostnaður við það með raflögn er
áætlaður 10,7 millj. Um aðrar
byggingarframkvæmdir yrði ekki
að ræða i I. áfanga. Annað starf I.
áfanga yrði uppsetning véla og
tækja til kælingar og frystingar
og uppsetning fiskvinnsluvéla og
tækja.
1II. áfanga yrði ekki um bygg-
ingarframkvæmdir að ræða held-
ur aukna fjárfestingu i vélum til
þess að auka afköst frystihússins.
1 III. áfanga er gert ráð fyrir
byggingu frystigeymslu er rúmi
3000 tonn. Þar til hin nýja frysti-
geymsla verður reist er gert ráð
fyrir að nota hinar gömlu frysti-
geymslur fiskiðjuversins.
Björgvin Guðmundsson
Reiknað er með, að eftir bygg-
ingu I. áfanga muni vinna milli
160 og 180 manns við hið nýja
frystihús BÚR, þar af um 120 i
pökkunarsal. Eftir annan áfanga
yrði starfsfólkið 300—320 manns,
þar af um 200 i pökkunarsal.
Hið nýja fyrstihús mundi
standa á hafnarbakka, i miðri
væntanlegri fiskihöfn á Granda-
garði. Mestan hluta af hráefni
sinu mundi frystihúsið fá úr tog-
urum, sem lönduðu við þennan
hafnarbakka. Er gert ráð fyrir,
að til flutninga á þessu hráefni
yrðu notaðir lyftarar. Mundu þá
sparast bifreiðar nema við flutn-
ing á hráefni annars staðar frá.
Rekstrartækni s.f. telur, að
unnt eigi að vera að hanna nýtt
frystihús það vel, að lækka mætti
vinnslukostnað á einingu veru-
lega, auk þess sem betra yrði að
koma á eftirlitskerfi með hrá-
efnisnýtingu á hinum einstöku
vinnslustigum og nýtingu á dýr-
ari og arðbærari pakkningum.
Rekstrartækni s.f. gerir ráð fyrir,
að hið nýja frystihús BÚR mundi
vinna úr talsvert meira hráefni
en fengist úr togurum BÚR. Fái
BÚR 3nýja togara á næstunni má
áætla lauslega, að togarar fyrir-
tækisins gætu landað i frystihús
fyrirtækisins um 100 tonnum á
dag. En auk þess tekur BÚR á-
vallt við afla úr bátum og togur-
um annarra aðila. Þannig hafa
iðulega verið 12 bátar i viðskipt-
um við Fiskiðjuver BÚR á vertið.
Eru afköst hins nýja frystihúss
miðuð við það, að unnt verði einn-
ig að taka við afla frá öðrum skip-
um en skipum BÚR en einnig
byggjast afköstin á fullri nýtingu
hins nýja húss, þ.e. Bakka-
skemmunnar.
I nýja húsinu er gert ráð fyrir 2
aðallinum i framleiðslu, þannig
að unnt verði að vinna 2 fiskteg-
undir i einu a.m.kven að sjálf-
sögðu fer það eftir samsetningu
aflans hverju sinni, hvort unnt
verður að nýta báðar linurnar
samtimis og ná fullum afköstum.
Fiskiðjuver BÚR var keypt af
rikinu 1959. Húsið er ekki heppi-
legt fyrir frystihúsarekstur.
Þrengsli eru mikil i húsinu enda
meginhluti hússins aðeins 10
metra breiður. Hefur ekki verið
unnt að vinna nema eina fiskteg-
und i einu þ.e.a.s. það hefur verið
ein framleiðslulina i Fiskiðjuver-
inu. Er augljóst, að Fiskiðjuverið
getur ekki hentað framtiðar-
frystihúsarekstri BÚR.
1 undirbúningi er nú að koma á
„bónuskerfi” i gamla Fiskiðju-
verinu. Verður að gera nokkrar
lagfæringar á húsinu til þess að
unnt sé að taka það kerfi upp.
Munu þær lagfæringar kosta
nokkrar milljónir króna. En það
er álit sérfróðra manna, að þær
breytingar muni skila sér fljótt
aftur vegna kosta hins nýja kerf-
is. Sjálfsagt mun það einnig koma
sér vel við rekstur hins nýja
frystihúss að hafa fengið nokkra
reynslu af bónuskerfinu.
Rekstrartækni s.f. samdi áætlun
sina um nýtt frystihús BÚR á
Grandagarði i ágúst og septem-
ber s.l. Hefur áætlunin siðan verið
rædd i útgerðarráði og á fundi
sinum 2. október s.l. lagði út-
gerðarráð blessun sina yfir áætl-
un Rekstrartækni s.f. I fundar-
gerð útgerðarráðs frá 2. október
s.l. segir svo orðrétt: „Útgerðar-
ráð er sammála um að leggja til,
að ráðizt verði i þessar fram-
kvæmdir meö framtiðarstarf-
semi BÚR fyrir augum.” Út-
Framhald á bls. 4
FLOKKSSTARFIÐ
ALÞÝDUFLOKKSKONUR
Kvenfélag Alþýðuflokksins I Reykjavik, heldur félagsfund
fimmtudaginn 9. nóvember n.k. kl. 8.30 I Alþýðuhúsinu við
Hverfisgötu.
Fundarefni:
I.Sagtfrá I landsfundi alþýðuflokkskvenna og 34. þingi Al-
þýðuflokksmins.
2. Gestur fundarins Benedikt Gröndal varaformaður Álþýðu-
flokksins kynnir sameiningarmálið.
3. önnur mál.
Félagskonur eru hvattar til að mæta vel og stundvíslega.
Stjórnin.
HVERGERÐINGAR
Alþýðuflokksféiag Hveragerðis efnir tii fundar n.k. föstudag,
10. nóvember, kl. 20.30 að Bláskógum 2. Gestur fundarins verður
Jón Armann Héðinsson, alþm.
Fundarsókn er heimil öllu Alþýðuflokksfólki og stuðningsfólki
Alþýðuflokksins.
Stjórnin
Fimmtudagur 9. nóvember 1972
0