Alþýðublaðið - 09.11.1972, Blaðsíða 8
LAUGARASBÍð Simi 32075
SOVÉZKA KVIKMYNDA-
HATÍÐIN
LANGT I VESTRI
Afar spennandi mynd, sem gerist
i herfangabúðum undir stjórn
nazista i siðasta striði. — Leik-
stjóri Alexander Faintsimmer.
Aðalleikendur:
Nikolai Kryuchov og Vsevolod
Safonov.
Sýnd kl. 5
Bönnuð börnum.
DANSLJÓÐ
Ba lletts tjarna n Maya Pliset-
skaya dansar i ýmsum frægustu
ballettum Bolshoi-leikhússins i
Moskvu.
Leikstjóri og kvikmyndatöku-
maður:
Vadim Derbenyov.
Sýnd kl. 7 og 9.
STJÖRNUBÍÓ simi ,8930
Glaumgosinn og hippa-
stúlkan
(There’s a Girl in my Soup)
PETER SELLERS GOLDIE HAWN
^X&ercta GHrlirfMySaup
islenzkur texti
Sprenghlægileg og bráðfyndin ný
amerisk kvikmynd i litum. Leik-
stjóri Roy Boulting. Aðalhlut-
verk: Peter Sellers og Goldie
Hawn .
Sýnd kl. 5,7 og 9
Bönnuð innan 12 ára
TÚHABfÓ Simi 31182
'AoCE'S
EESTAUI1AHTW
Bandarisk kvikmynd með þjóð-
lagasöngvaranum Arlo Guthrie i
aðalhlutverki. tslenzkur texti
Leikstjóri: Arthur Penn
(Bonnie & Clyde)
Tónlist: Arlo Guthrie
Aðalhlutverk: A. Guthrie, Pat
Quinn, James Broderick, Geoff
Outlaw.
Sýnd kl. 5, 7 og 9
Bönnuð börnum innan 15 ára.
í&ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
LÝSISTRATA
Gleðileikur eftir Aristofanes.
Þýðandi: Kristján Árnason
Tónlistarstjórn: Atli Heimir
Sveinsson
Leikmynd og búningar: Sigurjón
Jóhannsson
Leikstjóri: Brynja Benedikts-
dóttir
Frumsýning i kvöld kl. 20
önnur sýning föstudag kl. 20.
TÚSKILDINGSÓPERAN
sýning laugardag kl. 20
GLÓKÖLLUR
sýning sunnudag kl. 15.
Tvær sýningar eftir
LÝSISTRATA
Þriðja sýning sunnudag kl. 20
Miðasala 13.15. til 20. Simi 1-1200.
KÓPAVOGSBÍÓ
Slmi 419X5
i NÆTURHITANUM
(IN HEAT OF THE NIGHT)
Heimsfræg, snilldar vel gerð og
leikin, amerisk stórmynd i litum.
er hlotið hefur fimm Oscarsverð-
laun. Sagan hefur verið fram-
haldssaga i Morgunblaðinu.
Aðalhlutverk:
Sidney Poitier
Rod Steiger
Warren Oates
Lee Grant
Endursýnd kl. 5.15 og 9.00.
Bönnuð börnum.
Siðustu sýningar
HAFNARBÍÖ
Simi 10444
Klækir kastalaþjónsins
“Somethinji for Everyone"
wm o.
/U'
Anyeln Uinsbuiy- Michæl York
Jot n i Ciill • I k.'it kjIii'kJ< .* Wi.'il • J.ii il' (. ir i
Spennandi og bráðskemmtileg ný
bandarisk litmynd, um ungan
mann, Conrad, sem svifst einskis
til að ná takmarki sinu og tekst
það furðuvel, þvi Conrad hefur
,,eitthvað fyrir alla”. Myndin er
tekin i hinu undurfagra landslagi
við rætur Bæjersku Alpanna.
Leikstjóri:
Harold Prince
tslenzkur texti.
Bönnuð innan I(> ára.
Sýnd kl. 5,7,9 og II.
HÁSKÓLABÍÓ
Simi 22140
Guðfaöirinn
(The Godfather)
Alveg ný bandarisk litmynd sem
slegið hefur öll met i aðsókn frá
upphafi kvikmynda.
Aðalhlutverk:
Marlo Brando
A1 Pacino
James Caan
Leikstjóri:
Krancis Ford Cuppola
Bönnuð innan 16 ára
íslenzkur texti
jSýnd kl. 5 og 8,30
Atliugiö sérstaklega:
1 Myndin verður aðeins sýnd i
Reykjavik.
2. Ekkert hlé.
3. Kvöldsýningar hefjast kl. 8.30.
4. Verð kr. 125.00
Iþróttir 1
Ramsey hélt upp á af-
mælið - með íhaldssemi
Kristnihald
i kvöld kl. 20,30 153.sýning
Nýtt aðsóknarmet i Iðnó.
Fótatak
föstudag kl. 20,30
Atómstöðin
laugardag kl. 20,30
Leikhúsálfarnir
sunnudag kl. 15,00.
Dóminó
sunnudag kl. 20,30.
ingar eftir.
Fáar sýn-
Aðgöngumiðasalan i Iðnó er opin
frá kl. 14. Simi 13191.
Auglýsingasíminn
okkar er 8-66-60
Miðvikudaginn 15. nóvember
byrja Englendingar fyrstu lotuna
i baráttu sinni að endurheimta
heimsmeistaratitilinn i knatt-
spyrnu. Meðan Englendingar
voru heimsmeistarar, þurftu þeir
ekki að keppa f undankeppni,
heldur fóru beint i aðalhluta
keppninnar i Mexico. _
En nú er öldin önnur, Brasiliu-
menn eru orðnir heimsmeistarar,
og Englendingar þurfa að byrja
baráttuna i undankeppni.
Fyrsti leikur þeirra i undan-
keppninni fer fram á miðviku-
daginn, og mótherjarnir verða lið
Wales. Leikurinn fer fram i Car-
diff.
Það sem gerir leikinn sérlega
merkilegan, er að þetta verður
100. landsleikurinn sem Sir Alf
Ramsey stjórnar. Og óhætt er að
segja, að Ramsey gamli haldi upp
á leikinn með ihaldssemi, hann
bregður ekki útaf vananum
frekar en fyrri daginn, og gömlu
JOLALEIKUR
— EF TIL HANS KEMUR ÞÁ
Á stjórnarfundi hjá Handknatt-
leiksráði Reykjavikur i gærdag,
var tekin fyrir kæra Vikings
vegna leiks félagsins við ÍR i
Reykjavikurmótinu. Eins og
kunnugt er kæra Vikingar vegna
ólöglegs leikmanns, og ef kæran
verður tekin til greina, verður
Vikingur Reykjavikurmeistari.
Stjórn HKRR mun fela dómstól
sinum að fjalla um kæruna, en i
dómstól HKRR eiga sæti þeir
Helgi V. Jónsson, formaður,
Sigurður Jónsson og Karl Bene-
diktsson. Vegna tengsla sinna við
málið, verður Sigurður að vikja
úr dóminum,en i hans stað kemur
einhver varamanna dómsins, en
þeir eru Hörður Felixson, Valur
Benediktsson og Hilmar Ólafs-.
son.
Það mun alltaf taka nokkurn
tima að fjalla um kæruna, og ef til
aukaleiks kemur milli Vikings og
Vals, er augljóst að hann getur
ekki farið fram fyrr en i fyrsta
lagi um jól. Islandsmótið byrjar i
næstu viku, og verður leikið
tvisvar i viku alveg fram til jóla.
—SS.
nöfnin eru allsráðandi á listanum
yfir leikmennina.
Ramsey hefur oft verið gagn-
rýndunen sjaldan meira en upp á
siðkastið. Menn virðast hafa
gleymt þvi, að enska landsliðið
varð heimsmeistari 1966, aðeins
þrem árum eftir að Ramsey tók
við þvi.
16 manna hópurinn hans
Ramsey litur þannig út:
Markverðir:
Peter Shilton
Ray Clemence
Varnarmenn:
Paul Madeley
Emelyn Hughes
David Nish
Roy McFarland
Bobby Moore
Miðjuleikmenn:
Norman Hunter
Peter Storey
Alan Ball
Colin Bell
Framiinumenn:
Martin Peters
Martin Chivers
Kevin Keegan
Rodney Marsh
Francis Lee
(Leicester)
(Liverpool)
(Leeds)
(Liverpool)
(Derby)
(Derby)
(West Ham)
(Leeds)
(Arsenal)
(Arsenal)
(Man.City)
(Tottenham)
(Tottenham)
(Liverpool)
(Man.City)
(Man.City)
BANKS „EINEYGÐI”
HINN HRESSASTI!
Gordon „eineygði” Banks
hefur ekki ennþá fengið úr-
skurð um það hjá Iæknum
hvort hann kemur til með að
halda sjón á slasaða auganu
eða ekki. Það mun þvi enn um
sinn óráðin gáta, hvort við fá-
um að sjá hann á knattspyrnu-
veilinum enn um sinn eða
ekki.
Banks er hinnhressastiþrátt
fyrir mótlætið, enda hafa
heillaóskir hvaðanæva úr
heiminum orðið til að létta
undir.
ISLANDSMÓT
Islandsmótið i körfuknattleik
hefst i desember. Þátttökutil-
kynningar þurfa að hafa borizt
Körfuknattleikssambandi fslands
fyrir 10. nóv. Þátttökugjald kr.
1000,00 fyrir meistara og I. flokk,
og kr. 500,00 fyrir aðra flokka
fylgi tilkynningunni, annars
verður hún ekki tekin til greina.
» STORLIÐ ÚR LEIK í EB
Nokkur stórlið voru slegin út úr
Evrópubikarnum i knattspyrnu i
gærkvöldi. Kom þar langmest á
óvart að hin þekktu lið Celtic frá
Skotlandi og Feijenoord frá Hol-
landi skyldu slegin út, en bæði
þessi lið hafa orðið Evrópumeist-
arar i knattspurnu, Celtic 1967 og
Feijenoord árið 1970.
Celtic hafði 2:1 forystu gegn
Upjest Doza frá Ungverjalandi
frá fyrri leik 2. umferðar i
Evrópukeppni meistaraliða. En i
gærkvöldi skoraði Doza hvorki
meira né minna en þrjú mörk á
fyrstu 25 minútunum, þar af hinn
frægi Bene tvö markanna. Celtic
átti ekki möguleika upp frá þvi,
og 3:0 urðu lokatölurnar.
Feijnenoord féll úr i UEFA bik-
arnum, tapaði fyrir OFK Beograd
Júgóslaviu 2:1 og er úr leik.
Mörg þekkt lið komast þó
áfram. Má þar nefna Real
Madrid, Derby, Dynamo Kiev og
Juventus í Evrópukeppni
meistaraliða.
Leeds, Moskva Spartak, Hib-
ernian og Shalke 04 i Evrópu-
keppni bikarmeistara og
Liverpool, Tottenham (þráttfyrir
tap i gærkvöldi), Borossia
Mönchencladbach, Inter Milan i
UEFA bikarnum.
011 úrslit verða birt á morgun,
og þá sagt nánar frá keppninni.
—SS.
HAUKAR í I. DEILD!
Nú er fullljóst að Haukar leika i
1. deild i vetur. Fyrri aukaleik
Hauka og Gróttu um lausa sætið í
I. deild lauk i gærkvöldi með sigri
Hauka 17:9. Staðan i hálfleik var
7:5 Haukum i vil.
Seinni leikur liðanna fer fram á
Seltjarnarnesi á sunnudaginn
kemur. Þarf Grótta að sigra i
þeim leik með minnst 9 marka
mun til þess að öðlast setu i 1.
deild.
Slíkt virðist gjörsamlega úti-
lokað, og þvi má telja öruggt að
Haukar hljóti sætið. Nánar
verður sagt frá leik Hauka og
Gróttu á morgun.
— SS.
Fimmtudagur 9. nóvember 1972