Alþýðublaðið - 09.11.1972, Qupperneq 9
✓
Iþróttir 2
Körfuknattleikslið Real
Madrid, sem leikur i kvöld gegn
ÍK i Laugardalshöilinni, hefur á
aðskipa mjög reyndum og góðum
körfuknattleiksmönnum, eins og
berlega kemur fram i upp-
talningunni hér á eftir:
Nr. 4. Wayne Brabender. 26 ára
gamall framherji. Hæð 193 cm.
Hefur leikið 55 landsleiki með
spánska landsliðinu. Skoraði að
meðaltali 17 stig i hverjum leik á
siðasta keppnistimabili.
Nr. 5. Vicente Ramos. 25 ára
gamall bakvörður. Hæð 180 cm.
Hefur leikið 75 landsleiki og að
auki i úrvalsliði Evrópu. Skoraði
að meðaltali 7.3 stig i leik á
siðasta keppnistimabili.
auk þess margsinnis i úrvalsliði
Evrópu. Skoraði að meðaltali 20.1
stig i leik á siðasta keppnistima-
bili.
Nr. 14. Alberto Vinas. 20 ára
gamall miðherji, 206 cm á hæð.
Hefur leikið 13 leiki með unglinga
landsiiði (undir 20 ára) Spán-
verja.
Nr. 15. Norbert Thimm. 23 ára
gamall miðherji 206 cm á hæð.
Var keyptur á s.l. sumri frá
vesturþýzku meisturunum
Leverkusen. Þótti einn bezti leik-
maður v.þýzka landsliðsins á
Olympiuleikunum á s.l. sumri.
Þjálfari og liðsstjóri Real
Madrid er Pedro Ferrandiz.
Myndin var tekin á æfingu hjá
Real Madrid á þriðjudags-
kvöld. Leikmenn Real léku
ýmsar listir á æfingunni. og
þótti viðstöddum mikið til
koma.
FYRRILEIKUR IR OG REAL
í LAIIGARDALNUM í KVÖLD
Nr. 6. Cristobal Rodriguez. 23
ára gamall framherji. Hæð 198
cm. Hefur leikið 20 landsleiki með
spánska landsliðinu. Skoraði að
meðaltali 8,5 stig i leik á siðasta
keppnistimabili.
Nr. 7. Carmelo Cabrera.22 ára
gamall bakvörður, 185 cm á hæð.
Hefur leikið 40 landsleiki. Skoraði
að jafnaði 6 stig i leik á siðasta
keppnistimabili.
Nr. 8. Vincente Paneagua. 25
ára gamall framherji, 196 cm á
hæð. Hefur leikið 5 landsleiki með
spánska landsliðinu og skoraði að
meðaltali 6.2 stig i leik á siðasta
keppnistimabili.
Nr. 9. Jose Merino. 20 ára
gamall framherji, 190 cm á hæð.
Er nýliði i liði Real Madrid.
Nr. 10. Emiliano Rodriguez. 34
ára gamall bakvörður 188 cm á
hæð. Fyrirliði liðsins og frægasti
leikmaður þess. Hefur leikið 175
landsleiki með spánska landsliðinu
og að auki margsinnis,i úrvalsliði
Evrópu. Hefur oft verið valinn
bezti leikmaður Evrópubikar-
keppninnar. Skoraði að jafnaði 10
stig i leik á siðasta keppnistima-
bili.
Nr. 11. Juan A.Corbalan. 18 ára
gamall bakvörður, 180 cm á hæð.
Hefur leikið 29 landsleiki með
spánska landsliðinu.
Nr. 12. Rafael Rullan. 20 ára
gamall miðherji 211 cm á hæð.
Hefur leikið 50 landsleiki með
spánska landsliðinu, og skoraði á
siðasta keppnistimabili 12.8 stig
að meðaltali i leik.
Nr. 13. C. Luyk. 31 árs gamall
miðherji, 203 cm á hæð. Hefur
leikið 99 landsleiki fyrir Spán, en
í kvöld klukkan 20,15 leikur
körfuknattleikslið ÍR fyrri leik
sinn gegn spænsku meisturunum
Real Madrid i Evrópukeppni
meistaraliða. Leikurinn fer fram
i Laugardalshöllinni, en seinni
leikur liðanna fer fram 16.
nóvember i glæsilegri iþróttahöll
i Madrid.
Þetta er i annað sinn sem IR-
ingar taka þátt i þessari keppni.
Árið 1964 voru IR-ingar lika með,
og lentu þá gegn irsku
meisturunum Collegians i 1. um-
ferð. IR vann báða leikina gegn
irska liðinu, og varð þar með
fyrst islenzkra liða til að komast i
2. umferð i Evrópukeppni. I 2.
umferð voru IR-ingar svo slegnir
út af frönsku meisturunum.
Það verður auðvitað að segjast
eins og er, að i þetta sinn eru
ákaflega litlar likur til þess að 1R
takist að leika sama leikinn og
1964. Til þess eru mótherjarnir of
sterkir i þetta sinn, eins og bezt
sést á þvi að Real Madrid hefur i
fjögur skipti sigrað I Evrópu-
keppninni. Þá hefur liðið 14 sinn-
um orðið spænskur meistari og
jafnoft spænskur bikarmeistari.
IR-ingar hafa æft vel að undan-
förnu, og þeir tefla fram sinu
sterkasta liði. Þvi er ekki að efa
að þeir veita Spánverjunum
harða keppni i kvöld og á fimmtu-
daginn i næstu viku, þegar IR-
ingar keppa ytra.
Ef fólk vill koma og sjá góðan
körfuknattleik, þá er tækifærið i
Laugardalshöllinni i kvöld, tæki-
færi sem varla gefst aftur næstu
árin. Dómarar i kvöld verða þeir
Harry Keats frá Englandi og
Oskar Petterson frá Sviþjóð.
Fyrirliði IR er Kristinn
Jörundsson.
Þjálfari IR er Einar Ólafsson.
Lið IR i leiknum á fimmtudag
verður skipað eftirtöldum leik-
mönnum:
Nafn Aldur llæð Staða Leikið Landsl. með
Birgir Jakobsson 23 194 framh. 13 223
Kolbeinn Kristinsson 19 182 bakv. 77
Agnar Friðriksson 26 191 framh. 23 298
Sigurður Gislason 28 194 miðh. 9 265
Þórarinn Gunnarsson 20 185 bakv. 61
Þorsteinn Guðnason 18 193 framh. 74
Finnur Geirsson 18 184 bakv. 6
Kristinn Jörundsson 22 183 bakv. 10 148
Einar Sigfússon 24 194 miðh. 2
Anton Bjarnason 25 191 framh. 5 94
Jón Jörundsson 18 197 miðh. 3
Pétur Böðvarsson 24 180 bakv. 87
ÞAÐ ERU ENGIR
AIIKVISAR I
REAL MADRID
FINHBOGIHEISTARI
Finnbogi Guðmarsson varð tslandsmeistari i billiard 1972.
Keppnin fór fram á mánudags- og þriðjudagskvöld á billiardstof-
unni við Klapparstig. Var eingöngu keppt i snóker.
Finnbogi hafði töluverða yfirburði, og kom það nokkuð á óvart,
þvi snókerinn hefur verið nokkurs konar hliðargrein hjá Finn-
boga en krambúl er hans sérgrein.
i úrslitunum sigraði Finnbogi Dagbjart Grímsson, og var staðan
184-133 þegar Dagbjartur gaf.
i undanúrslitum sigraði Finnbogi islandsmeistarann frá i fyrra,
Gunnar Hjartarson 163-124, og Dagbjartur vann Jóhann Magnús-
son 180-101. í kcppninni um þriðja sætið sigraði Jóhann Gunnar
152:134. —SS.
Fimmtudagur 9. nóvember 1972