Alþýðublaðið - 09.11.1972, Síða 12
laiþýdu]
KOPAVOGS APÚTEK
Opið öll kvöld til kl. 7
Laugardaga til kl. 2
Sunnudaga milli kl. 1 og 3
SEN&BIL ASTOÐ1N Hf
EINA FYRIR
MOMMU,
EINA FYRIR
PABBA...
OG 10,808,000
AAARGFÆTLUR
FYRIR AAAO!
Hið opinbera kínverska málgagn,
Jenmin Jih Pao, hefur skýrt frá þvi, að
bændur i 10 sveitarfélögum Hupeh —
héraðsins hafi sett nýtt met í marg-
fætluveiðum með því að fylgja ná-
kvæmlega hinni réttu fiokkslínu.
Vegnajilýðni við Mao — lin-
una, segir blaðið, þá veiddu
bændur i norður-miðhéraðinu
10,808.000 margí'ætlur á einum
mánuði veiðitimans, og juku
þannig veiðarnar um 72% miðað
við siðasta ár. Útl'lutningur til
„bróðurhéraðanna,, jókst um
60% og útflutningur til annarra
landa um 200%. Þurrkaðar
margfætlur hafa lengi verið
notaðar til lækninga i Kina.
Samkvæmt kenningum Maos
er meginþýðing allra hluta fólg-
ín i mótsögn, þannig, að ætið eru
tiitækar að minnsta kosti tvær
steínur. Engu marki verður náð
nema allt framtak sé byggt á
hinni réttu stefnu. Vandi bænd-
anna ekki siður en starfsmanna
flokksins er sá, að það sem eitt
árið er opinberlega tilkynnt
stefna Maos formanns, kann að
verða fordæmt nokkrum árum
siðar sem „endurskoðunar-
stefna”, „vinstri stefna”,
„hægri stefna” eða jafnvel
„hægri stefna dulbúin sem
vinstri stefna.”
Grundvallarmótsögn i land-
búnaðinum hefur verið fólgin i
annars vegar skipulögðu hóp-
starfi fyrir kommúnuna og hins
vegar minni háttar einkafram-
taki, eins og að ala nokkra grisi
eða hænsni, eða flétta smáhluti
úr bambusviði.
Klokksnefndirnar leystu úr
margfætluveiðamótsögninni i
ár, og þustu út á landsbyggðina
til að kynna hina réttu stefnu i
þvi máli.
Niöurstaðan var sú, að þar
sem margfællanna var helzt
von, bar að veiða þær fyrir sam-
félagið, en hins vegar máttu
bændur nota tómstundir sinar
til veiða þar sem minna var um
þær.
Starfsmenn flokksins voru
sendir til að kanna „hugsjóna-
leg viðhorf fjöldans” og gáfu
siðan flokksnefndunum skýrslur
um þau. Siðan fóru þeir til
þeirra svæða, sem helzt var að
finna nefndar margfætlur og út-
skýrðu Iækningamátt þeirra og
viðskiptalega þýðingu á útflutn-
ingi þeirra og fræddu bændur
um lifshætti þessara skorkvik-
inda og veiðiaðferðir.
ATAKAMYND REYNIS
KOSTAR MILUONIR
Atriðið i klefanum á Kefla-
vikurflugvelli var upp á lif og
dauða, og annað eins mun ég
aldrei gera aftur, hvaða verald-
arinnar gæði sem væru i boði,
sagði Reynir Leósson i viötali
við blaðið á dögunum, er hann
var spurður um gang kvik-
myndarinnar, sem Vilhjálmur
Knudsen er að gera um afl-
raunir hans.
Reynir sagðist ekki hafa get-
að sofið i fjóra sólarhringa eftir
að hann sleit af sér fjötrana i
fangaklefanum á Keflavikur-
flugvelli, og brauzt siðan út úr
klefanum, eins og Alþýðublaðið
skýrði frá á sinum tima.
Sagðist hann enn ekki búinn
að jafna sig andlega eftir þessa
geysilegu áreynslu, en hins-
vegar hefði hann náð sér fljót-
lega likamlega.
Nú er búið að taka fjögur
uppistöðuatriði myndarinnar,
en upphaflega var ætlunin að
taka nokkur fleiri. Reynir sagði
hinsvegar að treglega gengi að
fjármagna gerð myndarinnar,
þótt fjöldi fyrirspurna hafi bor-
izt um hana viðsvegar að úr
heiminum, i gegnum fyrirtæki á
italiu, sem sér um kynningu
hennar.
Reynir bjóst við. að ef allt
gengi að óskum. ætti myndin
jafnvel að geta orðið tilbúin um
jólaleytið, þá ef til vill i styttri
mynd en upphaflega var ætlað.
Kostnaður við töku myndarinn-
ar liggur ekki enn fyrir, en hann
sagði ljóst. að hann mundi
skipta milljónum króna.
Þegar myndin verður full-
gerð, hyggst Reynir ferðast með
hana út um land og sýna hana
þar i samkomuhúsum, og jafn-
vel sýna einhverjar aflraunir
um leið. Hann hefur lika i huga
að ferðast eitthvað með hana
erlendis, þótt hann geti ekki alls
staðar verið þar sem hún verður
sýnd.
HANN VAR AAIÐUR SÍN VIKUAA SAAAAN
DEMOKRATAR
HÉLDU MEiRI-
HLUTA Á ÞINGI
Jafnhliða forsetakosningunum i
Bandarikjunum er fram fóru sl.
þriðjudag, var kosið til öldunga-
deildar og fulltrúadeildar. bótt
McGovern hafi hlotið mikið af-
hroð i forsetakosningunum, halda
demókratar meirihluta i þessum
deildum.
Fyrir kosningar höfðu þeir 55
öldungadeildarþingmenn, en
republikanar 45. Bættu demó-
kratar við sig tveim sætum.
P'urðu vakti að republikanir
skyldu ekki bæta við sig nema 10
sætum i fulltrúadeildinni, en búizt
hafði verið við þvi fyrirfram, að
þeir myndu stórauka fylgi sitt.
i fylkiskosningunúm töpuðu
demókratar einum fylkisstjóra,
höfðu áður 31, en hafa nú 30 gegn
20 fylkisstjórum republikana.
Nixon sigraði i 49 fylkjum af 51
og hlaut 521 kjörmann. Aðeins i
Washington og Massachusettes
hafði McGovern yfirhöndina og
hlaut 17 kjörmenn.
Nixon hlaut 61% atkvæða,
McGovern 38% og aðrir fram-
bjóðendur 1%. Fyrirfram hafði
verið reiknað með, að sigur
Nixons yrði jafnvel enn stærri en
sigur Johnsons yfir Barry Gold-
water árið 1964 er hann fékk
61,1% atkvæða. En ljóst er þó að
VELTU JEPPA
SLOMPAÐIR
Tveir þéttdrukknir
Englendingar veltu jeppabil á
Flóaveginum um siðustu helgi, og
var ijótur útgangur á bæði
mönnum og bil, er Selfosslög-
reglan kom að, þótt mennirnir
hafi báði sloppið svo til ómeiddir.
Voru þeir heldur örir til vinsins,
sem hafði þau áhrif að eitthvað
skolaðist til i höfði ökumannsins,
á hvorum kantinum hann ætti að
aka. Ruglingur þessi truflaði
hann svo mjög, að hann missti
stjórn á bilnum með fyrrgreind-
um afleiðingum. Billinn
skemmdist mikið. —
aldrei fyrr hefur frambjóðandi
republikana sigrað eins glæsilega
i forsetakosningum. i forseta-
kosningunum 1920 hlaut republik-
inn Warren Hardinger 60,4% at-
kvæða gegn James Cox.
ALLIR
NEMA
ANKER
Flestir áhrifamenn i
Evrópurikjunum lýstu yfir
ánægju sinni vegna úrslitanna
i forsetakosningunum i
Bandarikjunum. þegar þau
voru kunngerð i gær. Við-
brögðin voru yfirleitt þau, að
þau þýddu nánari vináttu milli
Kandarikjanna og Evrópu og
betri friðarhorfur i heiminum.
Undantekning var þó Anker
Jörgensen, forsætisráðherra
Danmerkur. Hann lýsti þvi
yfir, að hann hefði frekar vilj-
að fá McGovern i embættið, og
vakti það nokkra athygli
heima fyrir þar sem hin opin-
beru viðbrögð stjórnarinnar
og þingsins voru eingöngu
þau, að mikilvægast af öllu
væri, að skjótur endir yrði
bundinn á Vietnam striðið.
Brezkur togari fékk i gær á sig
brotsjó skammt frá Færeyjum og
olli hann mjög miklum skemmd-
um i brú togarans.
Sendi hann strax út neyðar-
skeyti og skömmu siðar komu
tveir brezkir togarar og brezk
freigáta til hjálpar.
P'reigátan tók togarann i tog og •
var ætlunin að fara með hann til
Færeyja.
Brú skipsins brotnaði svo mikið
við lagið, að ýmiss konar sigl-
ingatæki fóru i hafið.
/