Alþýðublaðið - 14.12.1972, Page 1

Alþýðublaðið - 14.12.1972, Page 1
HALF MILUON f ÚÐAN MANN Ég tel að tjónið hér vegna inn- brotsins i siðustu viku, nemi aldrei undir hálfri milljón króna, sagði Jón Pétursson forstjóri JP innréttinga, i viðtali við blaðið i AÐ HEIMAN Þetta eru mennirnir, sem um þessar mundir ráða rikjum á tunglinu og i nágrenni þess. Dr. Harrison Schmitt efst, er fyrsti visindamaðurinn, sem tckur þátt i tunglflugi. Roland Evans (undir plasthjálmin- um) stjórnar móðurskipinu á hringsóii þess kringum tungl- ið, þar sem það biður tvi- menninganna, sem ,,fóru nið- ur”. Á neðstu myndinni cr svo Eugene Cernan, stjórnandi þessarar tunglferöar Banda- rikjamanna, sem kann að verða sú siðasta á þessari öld. gær, en eins og Alþýðublaðið hef- ur áður skýrt frá, var brotizt inn i fyrirtækið aðfaranótt föstudags- ins sl. Jón sagði að verkstæðið væri fyrst nú að komast i full afköst, þar sem starfsmennirnir 25 hafa flestir unnið að hreingerningum og öðrum lagfæringum frá þvi á föstudag. Taldi hann kaupgreiðslur einar vegna þessa nema hátt i 200 þús- und krónur. Þá var hráefni spillt fyrir tugi þúsunda. Helltu skemmdarvarg- arnir m.a. 500 litrum af lakki nið- ur og ötuðu þvi viða og mökuðu talsverðu magni af limi á full- Framhald á bls. 10 ENNÞA DREGST ÞAÐ Enn seinkar undirritun sam- komulags um frið i Vietnam, i þetta skipti vegna þess, að aftur hefur risið ósamkomuiag um það, hvort N-Vietnamar skuli draga her sinn frá S-Vietnam, og einnig eru samningamennirnir i Paris ekki sammála, hver skuli undir- rita 'samninginn. Van Thieu, forseti S-Vietnam, sagði á fundi i gær, að hann hafi visað á bug tveimur uppköstum að samningum, þar sem settar voru upp málamiðlunartillögur um brottflutning n-vietnamska herliðsins, segir i UPI-frétt frá Saigon. OLAFIA MILLI HEUU Þar kom, að frjálslyndir létu að sér kveða i rikis- stjórninni. Þeir hafa sett samstarfsflokkum sinum svo afdráttarlaus skilyrði i sambandi við lausn efna- hagsmálanna, að i marga daga hefur stjórnin riðað til falls og er ekki útséð um það enn, hvort hún lifir eða deyr, jafnvel þótt annar samstarfsflokkurinn, Framsóknarflokkurinn, hafi i fyrrakvöld fallizt á kröfur frjálslyndra fyrir sitt leyti. Eins og kunnugt er þá benti hin svonefnda valkostanefnd á þrjár leiðir tii iausnar á efna- hagsvandanum, — uppbóta- kcrfi, niðurfærslu og gengis- lækkun. Alþýðubandaiagið, ög þá einna helzt Lúðvik Jósefsson, hafði mestan hug á uppbótaleið- inni, Framsóknarflokkurinn var til i það tusk, en velti jafnframt fyrir sér einhverri gengisfell- ingu, eða yfirfærslugjaldi, en hinir scrfræðilegu ráðunautar töldu gengisfeilingarleiöina hcppilegasta fyrir aiia aðiia. Þannig stóðu málin nokkra hrið, eða þar tii þingflokkur Samtaka frjálslyndra og vinstri manna ásamt þröngum hópi nánustu trúnaðarmanna úr samtökunum samþykkti með öllum greiddum atkvæðum að leggja fyrir samstarfsflokkana tillögur um H>% gengislækkun, sem er talsvert mcira, en talið var nauðsynlegt af valkosta- ncfndinni, en ástæðan er sú, aö i tiliögum sinum gcra frjáls- lyndir ráð fyrir þvi, að bæði verði skiiað aftur þeim visitölu- stigum, sem frestuð var greiðsla á með bráðabirgðalög- unum frá i sumar, og eins að umsamin kauphækkun i marz á næsta ári komi til framkvæmda. Þá fólst einnig i tillögum Samtaka frjálslyndra og vinstri manna, að söiuskattur yröi lagður á ýmsa þjónustustarf- scmi, útgjöld rikisins yrðu skorin niður um 500 m. kr. , söluskattur yrði hækkaður um 2 % án þess að það kæmi fram i visitölu og framkvæmd yrði hækkun á áfengi og tóbaki með sömu skilyrðum. Var samþykkt þingflokks frjálslyndra á tillögu þessari þannig, að ómögulegt var að skilja hana öðruvisi en sem algera úrslitakosti og myndu samtökin gera það að skilyrði fyrir áframhaldandi setu i stjórninni, að á hana yrði fallizt. Þessi skilaboð voru flutt af ráðherrum frjálslyndra inn á fund rikisstjórnarinnar, sem haldinn var s.l. mánudags- morgun og ætlaði þá allt um koll að keyra. Ölafur Jóhannesson reyndi að malda i móinn og Lúðvik ætlaði af göflunum að ganga. Ilvikuðu ráðherrar frjálslyndra þó hvergi frá til- lögum sinum og lauk rfkis- stjórnarfundinum með sam- þykkt um, að ráðherrar hvers flokks um sig skýrðu þingflokk- um sinum frá ágreiningnum. Var það gcrt á fundum þing- flokkanna, sem hófust kl. :i þann sama dag og á fundi þingflokks Framsóknarflokksins komu þá strax fram raddir um stuðning við fyrirætlanir frjálslyndra. Siðar þennan sama dag — mánudag — var svo haldinn annar fundur i rikisstjórninni, þa r sem málin voru rædd og enn annar fundur var haldinn strax morguninn eftir. Var á þann fund mættur fulltrúi llagrannsóknardeildar Framkvæmdastofnunar rikisins og styrkti það mjög stöðu frjáls- lyndra, cr umsögn hans var gefin, — en hún var jákvæð fyrir öll atriði utan eitt i tillögum frjálslyndra. A fundi þingflokks Fram- sóknarflokksins siðar þennan sama dag — þriðjudag — var svo samþykkt að ganga að skil- yrðum Samtaka frjálslyndra og vinstri manna og styðja gengis- lækkunaráform þcirra. Settu Fra msóknar menn þó það skilyrði, að þeim yrði heimiit að segja við umræður um málið, að hugmyndirnar að ráðstöfunum væru ekki frá þeim komnar, heldur frjálslyndum , scm lagt hefðu á þær svo þunga áherzlu, að þeir hefðu gcrt það að fráfararatriði, ef ckki yrði á þær fallizt. Ilefði Framsóknar- fiokknum þvi ekki verið önnur leið fær en að fallast á að standa að gcngislækkuninni, þar eð hann hafi ekki viljað að stjórnarsamstarfið rofnaði. Enda þótt Framsóknarmenn hafi þarna gefið sig og varpað fyrir róða öllum hugmyndum sins eigin flokksformanns um lausn vandans, þá er enn langur vegur frá þvi að Alþýðubandalagið hafi gengið undir sama jarðarmenið. Allt er þvi enn i óvissu um framtiö stjórnarinnar og fara nú fram mjög harðar sviptingar innan Aiþýöuhandalagsins um, hvort sprengja eigi eða ekki. A fundi scm þingflokkur Alþýðubandalagsins og menn úr innsta hring flokksins sátu, hellti I.úðvik Jósefsson úr Framhald á bls. 4 Framsókn fellst á skilyrði Frjálslyndra - en Lúðvík trylltur LOÐNUVERÐIÐ ER HELMINGI HÆRRA EN IFYRRA! OG HVER UGGI ÞEGAR SELDUR Búið er að selja fyrirfram allt mjöl sem kemur til með að verða framleitt á komandi loðnuvertið, og jafnvel eitthvað umfram það. Þá er langt komið með að selja fiskimjöl komandi vertiðar. Mjölið hefur verið selt á topp- verði, þvi hæsta sem þekkst hefur. Er verðið helmingi hærra en i fyrra. Mikill áhugi er meðal útgerðar- manna fyrir loðnuvertiðinni, sem hefst með þvi, að loðnubátarnir verði yfir 70 talsins, en þeir voru flestir 58 i fyrra. Eitt skip, Eldborg frá Hafnar- firði, hefur þegar hafið loðnuveið- ar með flotvörpu undan Norður- landi, en veiðarnar hefjast ekki almennt fyrr en loðnan kemur upp að suðurströndinni eftir ára- mót. Alþýðublaðið hefur fengið þær upplýsingar hjá Gunnari Peter- sen, sem flytur út sjávarafurðir, að allt loðnumjöl á komandi ver- tið sé þegar selt. Gizkaði Gunnar á að búið væri að selja fyrirfram 30—40 þúsund tonn af loðnumjöli, og 15 þúsund tonn af fiskirnjöli. Lýsi er einnig allt saman selt. Verðið á loðnumjölinu hefur verið mjög hátt. Hefur hver ein- ing eggjahvitu selst á 20.00—2,35 sterlingspund, en verðið var i fyrra 1.00 sterlingspund fyrir ein- inguna. Verð á lýsi hefur ekki hækkað eins mikið. Gunnar Petersen bjóst ekki við þvi að verðið breyttist mikið á næstunni. Algjört veiðibann væri rikjandi i Peru, allt fram til marz á næsta ári. Um 350 fiskibátar i Perú hefðu reynt að veiða ansjósu fyrir nokkrum dögum, en veið- arnar voru stöðvaðar strax, þvi veiðin var litil og ansjósan horuð. Þessa dagana eru sildveiðibát- arnir sem óðast að koma úr Norðursjónum. Verða þeir heima Framhald á bls. 10

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.