Alþýðublaðið - 14.12.1972, Síða 3

Alþýðublaðið - 14.12.1972, Síða 3
JAFHVEL LÆKNAR ERU LINULAUSIR Þar sem mikill hörgull er á simalinum upp i Breiðholt hefur Bæjarsiminn boðið ibúum þar upp á þá þjónustu að setja al menningssima i anddyri þeirra blokka sem ekki eru enn komnar i samband við umheim- inn. Þetta eru blokkirnar við Torfufell 25-31, Asparfell, Vesturberg og Æsufell. Þessir almenningssimar eru hinir fyrstu, sem eru settir upp innan dyra i venjulegum ibúðarhús- um, og þeir hafa auk þess þann kost fram yfir aðra almennings- sima, að i þá er hægt að hringja utan úr bæ, en ákveðinn maður i hverri blokk annast þá þjónustu að ná i það fólk, sem hringt er i. Simanúmerin voru reyndar ekki komin á skrá hjá sima- skránni i 03, þegar Alþýðublaðið hingdi i það númer i gær, en stúlkan, sem varð fyrir svörum, sagðí, að það yrði væntanlega á næstunni. Alþýðublaðið hefur áður sagt frá simaskortinum i borginni, og upplýsti þá, að um mánaða- mótin febrúar-marz verði tekin i notkun ný simstöð fyrir Breiðholtið, og þá bætist eitt- þúsund ný simanúmer við þar. Um mánaðamótin mai-júni bæt- ast siðan önnur þúsund síma - númer við. Að þvi 'er skrifstofustjóri bæjarsimans sagði i viðtali við Alþýðublaðið i gær hefur verið reynt að halda linum lausum fyrirþá, sem nauðsynlega þurfi á sima að halda. Þar i flokki sagði hann vera m.a. lækna, hjúkrunarkonur, atvinnufyrir- tæki, sjúklinga, sem samkvæmt læknisvottorði þurfa nauðsyn- lega að hafa greiðan aðgang að sima og konur, sem séu komnar nálægt þvi að fæða börn. Einnig FYRRVERANDI STJORNAR- MAÐUR UM HRINGSNÚNING DÝRAVERNDARSAMBANDSINS: „Þéttbýli er ekki vett- vangur fyrir hunda er reynt að flýta uppsetningu sima hjá starfsmönnum flugfé- laganna. Oft þarf að vera unnt að hringja i þá hvenær sólar- hrings sem er, og þess eru dæmi, að fólk i þessum störfum, svo sem flugmenn og flugfreyj- ur, geti ekki flutt inn i ibúðir sinar vegna simaskorts. í Breiðholti hefur ekki verið unnt að veita þennan forgang, þar eð gripið var til þess að nota þær fáu linur, sem voru lausar, fyrir almenningssimana. Þar eru þvi m.a. læknar simalausir. Almenningssima hefur einu sinni verið komið fyrir i klefa við blokk, en það leið ekki nema vika þar til hann var skemmd- ur. Eftir aðra viku þótti ekki annað ráð vænna en fjarlægja hann alveg. Almenningssim- arnir i Breiðholtinu hafa hins- vegar fengið að vera i friði til þessa, enda eru þeir inni I and- dyrum, sem viðast eru læst. „Þessar gifuryrtu yfirlýsingar nýju stjórnarinnar breyta að sjálfsögðu engu um afstöðu okkar til hundahalds i þéttbýli, sem við getum alls ekki fallizt á, að sé dýraverndunarmál”, sagði Þorsteinn Einarsson, iþrótta- fulltrúi, i samtali við Alþýðu- blaðið i gær, en hann átti meðal annarra sæti i stjórn Sambands Dýraverndunarfélaga tslands á árinu 1970, sem þá lagðist eindregið gegn þvi að hundahald yrði leyft i Reykjavik. Þorsteinn sagðist eiga eftir að svara stóryrtum yfirlýsingum nýju stjórnarinnar opinberlega, en eins og komið hefur fram áður lýsir nýja stjórnin þvi m .a. yfir að staðhæfingar þær, sem næstsiðast; stjórn Sambands dýraverndunar- félaga lslands lét frá sér fara á árinu 1970 um hundahald i þétt- býli séu „órökstuddar og ósæm- andi aðdróttanir um dýraniðslu i garð milljóna hundaeigenda i erlendum borgum , stjórnvalda þessara borga og fjölda þjóðhöfð- ingja heims”. „Afstaða okkar er sú, að þétt- býli sé ekki vettvangur eða kjör- lendi fýrir hunda,” sagði Þorsteinn Einarsson og þessi afstaða okkar er i samræmi við afstöðu dýraverndunarsamtaka um gjörvallan heim”. Þorsteinn sagði ennfremur, að hundahald væri nú orðið hið mesta vandamál i fjölmörgum borgum erlendis, ekki sizt varð- andi fyrirkomulag hunda- Framhald á bls. 10 Kólera dafnar í Indónesíu Það er langt i frá að kólera sé á undanhaldi. 1 Indónesiu létust fyrstu 10 mánuði þessa árs 5.025 manns af viildum kóleru, og hvorki meira né minna en 24.128 lögðust inn á sjúkrahús, og bætti það ekki ástandið i ’l andi þar sem sjúkrahús eru ekki á hverju strái. 1 fyrra var tala látinna 3.276, en á sjúkrahús komu alls 17.620. Heilbrigðisráðherra landsins sagðiað svo lengi sem þorp lands- ins fengju ekki ómengað vatn myndi kólerufaraldurinn halda áfram að aukast hröðum skref- um. HASKOUHH ,HARMAR’ Afl- DRÚTTUHIIM VIHNUSVIK Eins og getið var i fréttum á ] sinum tima, urðu nokkur orða- skipti á Alþingi, hinn 5. desem- ber, um störf og skyldur prófess- ora við Háskóla tslands. í tilefni þeirra umræðna hefur varafor- seti Háskólaráðs, Jónatan Þor- mundsson, prófessor, sent blað- inu yfirlýsingu. I henni segir að Háskóli Islands mundi fagna þvi, ef gerð yrði al- menn, hlutlaus úttekt á störfum allra rikisstarfsmanna. Hins veg- ar harmar Háskólinn, að i um- ræðum á Alþingi skuli hafa verið látið liggja að vinnusvikum og misbeitungu valds af hálfu pró- fessoranna, og þeir einir rikis- starfsmanna dregnir til úttektar, og algert þekkingarleysi lagt tfl grundvallar fráleitu mati á störf- um þeirra. Er varað við tor- tryggni og fyrirlitningu milli stétta og starfshöpa, og röngum hugmyndum við samanburð á andlegri og likamlegri vinnu. Þá er vikið að kennsluskyldu prófessora og annarra kennara við Háskólann, sem og rann- sóknar- og stjórnunarstörfum þeirra. Ekki er dregið úr nauðsyn á bættum kjörum barnakennara, en fráleitt talið að gera saman- burð á störfum og kennsluskyldu þeirra og háskólakennara. Bent er á hefðbundið aka- demiskt og fjárhagslegt sjálf- stæði háskóla i öllum lýðfrjálsum Framhald á bls. 10 VOTTAR JEHOVA OFSÚTTIR.DREPNIR -KONUM NAUÐGAÐ Allir Vottar Jehova i Afriku- rikinu Malawi, 23,000 talsins, hafa flúið land undanfarna mánuði, eftir ofsóknarherferð yfirvalda þar i landi á sértrúar- söfnuð þennan. Vitað er um 10 úr hópnum, sem myrtir hafa verið og óttast að sú tala kunni að vera jafnvel 60. Þá hafa fjölmargir verið limlestir og mörgum konum nauðgað. Flestir flóttamennirnir dvelja nú i flóttamannabúðum i ná- grannarikinu Zambiu, aðrir hafa farið til Mozambique. Ofsóknirnar hófust fyrst eftir að ársþing stjórnarflokksins i landinu ályktaði að sértrúar- flokkar væru óæskilegir i land- inu, og voru Vottar Jehova þar sérstaklega nefndir. Var álykt- að að þeir skyldu reknir úr öll- um opinberum stöðum og fólk hvatt til að reka þá á burtu úr þorpum sinum. Talsmenn Vottanna telja að ástæðan sé m.a. sú, að þeir hafi neitað að kaupa félagsskirteini i Malawi-flokknum, hinum eina leyfða stjórnmálaflokki lands- ins, en það hafi verið ósamræm- anlegt trúarskoðunum þeirra. Hann sagði að félagsskirteina- kaup þessi væri eins konar skattlagning á ibúana. Trúar- flokkurinn var bannaður árið 1967, en hefur siðan verið starf- ræktur óopinberlega. Sendiherra Malawi i Washington sagði hins vegar að það væri ekki rétt. Raunveru- lega ástæðan fyrir brottrekstri þessa fólks væri sú, að það neit- aði að borga skatta, og hvetti annað fólk til að borga ekki skatta og syngja ekki þjóðsöng- JÓLIN 0G LJÓSIÐ Kertaljósin eru fögur, en þau geta einnig verið hættuleg. — Foreldrar, leiðbeinið börnum yð- ar um meðferð á óbirgðu Ijósi. Um leið og vér beinum þessum tilmælum til yðar, óskum vér yð- ur öllum GLEÐILEGRA JÓLA. BRUNABOTAFELAG ISLANDS LAUGAVEGI 103, SIMI 26055. o Fimmtudagur 14. desember 1972

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.