Alþýðublaðið - 14.12.1972, Blaðsíða 11
POST U Lí N SSTYTT U R
POSTULÍNSVASAR
POSTULÍNSSTELL
POSTU L í NSPLATT AR
POSTULÍNSSKÁLAR
JÓHANNES NORÐFJÖRÐ
HVERRSGÖTU49 LALIGAVEGl 5
★ SKARTGRIPIR
★ ÚR OG KLUKKUR
★ SÆNSKUR KRISTALL
★ BÆHEIMSKUR KRISTALL
JOHANNES
NORÐFJÖRÐ
HVERnSGÖTU49 LWJGAVB315
FONDUSETT
HIN EINU OG SÖNNU
_5prin^“
I Swhzejtand .—J
JÓHANNES §jh
NORÐFJÖRÐiroÆ
LNJGAVEGI5
FRÁ
Saumanámskeið
Eins og fram hefur komið i fréttum út-
varps, og blaða verður haldið sauma-
námskeið við IÐNSKÓLANN í
REYKJAVÍK dagana 15. jan.—9. febr.
Kennd verða undirstöðuatriði verk-
smiðjusaums og meðferð hraðsaumavéla.
Umsóknir þurfa að hafa borizt fyrir 20.
des. Þátttökugjald er kr. 1000.00.
Nánari upplýsingar veittar i skrifstofu
skólans.
SKÓLASTJÓRI.
NORÐUR-ATLANTSHAFSFLUGIÐ
SNÚA FLU6FÉLÖQIN
VÖRN í SÓKN?
Eftir Bjarna Sigtryggsson
Ungmennafargjöld og
f jölskylduafsláttur af
flugfarg jöldum heyra
brátt fortíðinni til, — en
þess i stað verður reynt að
laekka öll flugfargjöld í
heild, er stefna banda-
ríska flugráðsins, CBA.
Flugráðið samþykkti með
þrem atkvæðum gegn tveim i
lok siðustu viku að sérstök ódýr-
ari fargjöld fyrir ungt fólk og
önnur sérfargjöld af sliku tagi
væri mismunun og ekki réttlát
gagnvart hinum almenna flug-
farþega.
Einnig var ákveðið að innan 18
mánaða gangi úr gildi hin sér-
stöku fargjöid á flugleiðum inn-
an Bandarikjanna, sem nefnd
hafa verið „Discover America”
— eins konar kynningarfargjöld
á flugleiðum þar.
Röksemdin að baki þessari
ákvörðun er fyrst og fremst sú,
að það brjóti i bága við fram-
tiðarstefnu fargjaldamála að
sérstökum hópum verði gert
kleift að bóka far i venjulegu
áætlunarflugi á lægra verði en
almennt gerist, sé ekki um að
ræða annað tveggja, pöntun á
sæti með löngum fyrirvara og
fyrirframgreiðslu, ellegar „bið-
pöntun”, þar sem farþegi getur
keypt far fyrir lægra verð, en
verður á biða á flugvellinum og
geturátt það á hættu að missa af
flugvélinni komi annar kaup-
andi og greiði fullt verð.
VALKOSTIR
Þessir tveir siðastgreindir
valkostir hafa verið mjög til
umræðu á fargjaldaráðstefnum
flugfélaga i Genf og Montreal
undanfarið.
Flest flugfélaganna aðhyllast
fyrri möguleikann sem áhrifa
rika leið i baráttunni gegn
ásælni svonefndra leiguflugfé
laga á i annamestu flugleiðirn-
ar. Er gert ráð fyrir að'með þvi
að væntanlegur flugfarþegi,
sem skipulagt getur ferð sina
með löngum fyrirvara og færi
þar af leiðandi ella fremur með
einhverri hópferð, sem býður
farið á allt að hálfvirði, muni
eftir breytinguna ferðast með
reglubundnu áætlunarflugi flug-
félags. Hann þarf þá að leggja
inn farpöntun sina með þriggja
til sex mánaða fyrirvara og
greiða a.m.k. helming fargjalds
við staðfestingu farpöntunar
sinnar.
Á þennan hátt hyggjast flug-
félögin ná til sin að nýju þeim
farþegum, sem litið ferðast,en
geta skipulagt og timasett ferðir
sinar með löngum fyrirvara,
eða eru reiðubúnir að fljúga
þegar flugfélaginu hentar.
BEÐIÐ EFTIR
LAUSU SÆTI
Hin leiðin, sem talsvert var til
umræðu i haust, er brezka flug-
félagið Laker Airways sótti um
leyfi til að selja mjög ódýrar
ferðir á leiðinni yfir Norður-
Atlantshafið, er kölluð „Sky-
train-services”.
Með þvi fyrirkomulagi hyggst
brezka flugfélagið, og reyndar
nokkur bandarisk, sem sótt hafa
um leyfi til sams konar flug-
reksturs, ná ofangreindum far-
þegum með þvi að selja mjög
ódýr fargjöld, en án allra þæg-
inda og þjónustu, og þar er gert
ráð fyrir þvi að farþegar kunni
að þurfa að biða á flugvellinum
þar til vitað er með vissu rétt
fyrir brottför hvort sæti séu laus
i viðkomandi flugvél.
SKIPTAR
SKOÐANIR
Nokkuð skiptar skoðanir hafa
verið milli evrópskra og banda-
riskra flugmálayfirvalda um
fyrirkomulag nýrra leiða i far-
gjaldamálum, og hefur raunar
borið talsvert á þvi að banda-
rikjamenn vilji láta frjálsa
samkeppni ráða meiru en boð
og fyrmæli flugmálayfirvalda.
Hins vegar hafa allir aðilar
verið á þeirri skoðun að eðlilegt
sé að þau flugfélög sem skuld-
binda sig til að halda uppi reglu-
bundnu áætlunarflugi allan árs-
ins hring fái öðrum fremur að
njóta þess að fá að flytja þá
hópa, sem af ýmsum ástæðum
geta ferðast ódýrar en hinn al-
menni farþegi. Agreiningurinn
er fyrst og fremst um leiöir.
Akvörðun bandariska flug-
ráðsins gildir einvörðungu flug-
leiðir innan Bandarikjanna. Um
allar alþjóða flugleiðir gildir
samkomulag flugmálayfirvalda
allra hlutaðeigandi rikja.
LOW COST FLIGHTS
AUliouyli thc Intcmalional Heralc
Tribune ma/ccs evcrv rcasonable
. effort to screen its advertisers,
\t cannot vouch ior thc reliabilitn
of thc low cost fliQhts
i advertised below. i
■------------------------------j
U.S.A. & Canada for Xmal
worldwide Jct Flights to all destinal
Lions includine: New York. Loi
Angeles, Toronto. Australia anq
Africa from $125.
CIIARTKR TRAVEl, Í F.NTRF. '
3/5 Maddox Strect. London, W.l. .
Tclephone: 499 3tí45. I
>AII.Y FLIGHTS: Singaporc. KualiS
, Lumpur £70. Australia £150, TokyÆ
£145, New York/Toronto fronm
£45. Seot Centre. 124 New Bondm
SU London. Tcl.; 491 7235/7279^
í auglýsingum af þessu
tagi er lesendum Inter-
national Herald Tribune
og hundraða annarra
blaða boðið að fljúga í
leiguhópferðum yfir
Norður-Atlatnshafið eða á
öðrum leiðum langt undir
samræmdum fargjöldum
flugfélaganna. En flugfé-
lögin telja að þau geti
sjálf og eigi að sinna þess-
um farþegahópum.
NVIR FARÞEGAR
1 greinargerð með niðurstöð-
um ráðsins er sagt að tilgangur
slikra sérfargjalda, svo sem
ungmennafargjalda og fjöl-
skylduafsláttar, sé sá að fá inn i
flugvélarnar farþega sem ella
myndu siður fljúga. Það sé hins
vegar skoðun ráðsins að með
slikum verulegum lækkunum
fyrir afmarkaða hópa fáist
mjög litið fleiri nýir farþegar
heldur en með minni fargjalda-
lækkunum fyrir alla farþega.
Ungmennafargjöld þau, sem
bandariska flugráðið, CAB,
hyggst fella niður, gilda fyrir
fólk á aldrinum 12 til 21 árs, og
nema 80% af upphæð fargjalds
fyrir bókun á tilteknu flugi. Fólk
á þessum aldri, sem er reiðu-
búið að biða á flugvellinum eftir
lausu sæti greiðir hins vegar
aðeins 66.6% af fargjaldinu.
Fjölskyldufargjöld innan
Bandarikjanna eru á þann hátt
að fjölskyldufaðir greiðir fullt
fargjald, en hver fullorðinn fjöl-
skyldumeðlimur annar, sem
ferðast um leið greiðir 75% ,
unglingar á aldrinum 12-21 árs
greiða einnig 75% af fullu far-
gjaldi, en börn á aldrinum 2-11
ára greiða tvo þriðju.
Afsláttarfargjöld i flokknum
„Kynnizt Ameriku” nema
87.5% af venjulegu fargjaldi og
er bundin ýmsum takmörkun-
um. Meðal annars þeim að farið
verður að kaupa báðar leiðir,
ferðin þarf að vera a.m.k. vika
og ekki má fljúga á sérstökum
tilteknum annatimum.
Þegar flugráðið hyggðist af-
nema þessi ódýrari fargjöld
fyrir þrem i.uin urðu ýmsir
aðilar til að mótmæla þvi, og
þess vegna var áætlunin svæfð i
þinginu. Nú er hins vegar gert
ráð fyrir þvi að hún nái i gegn.
GAMALDAGS
Formaöur CAB, Secor
Browne, átaldi IATA, alþjóða
samband flugfélaga, harðlega i
ræðu sem hann hélt i veizlu hjá
konunglega flugmálafélaginu i
London um miðja siðustu viku.
Hann sagði þar að IATA rig-
héldi i gamaldags og úrelt kerfi
um sérstaka afslætti, sem ein-
ungiskæmi félögunum sjálfum i
koll.
Kerfi þeirra væru allt of flók-
in, sagði hann, og félögin 40,
sem þá þinguðu i Genf, neituðu
að viðurkenna og aðlaga sig að
nýjum og stórstækkandi mörk-
uðum.
Hann taldi að IATA ætti að
einfalda fargjaldakerfin og
veita leiguflugfélögunum aðild
að samtökunum.
VANDAMÁL
Ekki er búizt við þvi að IATA
taki þessa hugmynd einu sinni
til umræðu, hvað þá meira.
Hins vegar blasir þaö vanda-
mál við aöildarfélögum IAl'A,
en öll fargjöld þeirra eru háð
einróma samþykkt á árlegum
fargjaldaráðstefnum, að leigu-
flugfélögin haldi áfram, og jafn-
vel i vaxandi mæli, að sópa til
sin þeim farþegum, sem vilja
fljúga ódyrt milli landa, jafnvel
þótt þær leiguferðir séu fáar og
stundum ekki 100% öruggar.
LÖGBROT
Leiguflugfélögin sniðganga
langflest þær reglur að einungis
megi selja slik fargjöld til sér-
stakra félagahópa, sem full-
nægja vissum skilyrðum. Þetta
vandamál hefur meðal annars
komið upp hér á landi, þótt ekki
hafi verið um að ræða jafn gróf
brot eins og tiðkast á leiðinni
milli Evrópu og Norður-
Ameriku.
Það er nú einna liklegast að
IATA flugfélögin fallist á til
bráðabirgða kerfi fjögurra
megin fargjaldaflokka.
LÆKKANIR
1 fréttum i gær var skýrt frá
þvi að Genfarráðstefnan kann-
aði nú tillögur um þetta kerfi, en
samkvæmt þeim er gert ráð fyr-
irnokkurri verðlækkun farmiða
á báðum farrýmum, einnig
ódýrum ferðum fram og til baka
með 14—45 daga gildistima og
svo loks svonefndar „Apex”
ferðir (Advance Purchase
Excursion), en þar gilda þær
reglur að einstaklingar, sem
panta slika farmiða verða að
staðfesta pöntunina með
þriggja mánaða fyrirvara og
greiöa þá fjórðung verðsins.
Mánuði fyrir brottför verða þeir
að hafa greitt farmiðann að
fullu.
Eins og er má telja liklegast
Framhald á bls. 4
Fimmtudagur 14. desember 1972
o