Alþýðublaðið - 21.12.1972, Side 5
Alþýðublaðsútgáfan h.f. Ritstjóri Sig-
hvatur Björgvinsson (áb). Fréttastjóri
Bjarni Sigtryggsson. Aðsetur ritstjórn-
ar Hverfisgötu 8-10. — Simi 86666.
Blaðaprent h.K.
Tjaldað til einnar nætur
Hvað er uggvænlegast við þær ráðstafanir,
sem rikisstjórnin er nú að gera i efnahagsmál-
unum? Það, að hún skuli hafa svikið loforð sin
við landsfólkið um að fella ekki gengið, segja
sumir. Sú mikla verðbólguhætta, sem þeim
fylgir, segja aðrir. Árásin á kjör launþega, sem
með þeim er gerð, segja hinir þriðju. Allt er
þetta rétt. En samt sem áður er það ekkert af
þessu, sem er uggvænlegast við efnahagsráð-
stafanir rikisstjórnarinnar. Það allra alvarleg-
asta við þær er, að þær leysa ekki vandann og
stjórnarflokkunum er það mjög vel ljóst.
í ræðu á Alþingi i fyrradag sýndi Gylfi Þ.
Gislason ljóslega fram á, að miðað við upplýs-
ingar sérfræðinga sjálfrar rikisstjórnarinnar
væri fyrir sjáanlegt, að um mitt næsta ár verði á
ný hruninn rekstrargrundvöllur útflutningsat-
vinnuveganna og yrði þá að gripa til nýrra efna-
hagsráðstafana ef ætti að halda þjóðarskútunni
gangandi. Þær ráðstafanir, gengisfelling með
meiru, sem nú er verið að gera geta sem sagt
ekki enzt nema i 6 til 9 mánuði. Þá verður allt
komið i sama kalda kolið aftur.
Samt sem áður leggur rikisstjórnin þessar
ráðstafanir fram. Þótt hún viti fyrirfram, að þar
sé aðeins verið að tjalda til einnar nætur. Og ef
til vill gerir hún það með ráðnum hug. Ef til vill
hefur hún gert sér það ljóst, sem Alþýðublaðið
benti á i gær, að dagar hennar eru i raun og veru
taldir, en vill aðeins fá hentugri tima til að
ganga formlega frá dánarvottorðinu. Með það
fyrir augum sé rikisstjórnin vitandi vits að út-
vega sér nokkra mánaða viðbótarfrest til þess
að hafa ráðrúm til að sviðsetja dauðaatriðið i
sorgarleiknum. um ólafiu með dramatiskari
hætti en hið raunverulega andlát bar að.
Ef til vill þykir sumum, og þá sennilega einna
helzt þeim stuðningsmönnum stjórnarinnar,
sem enn eru henni tryggir, þessi tilgáta Alþýðu-
blaðsins næsta ósennileg vegna þess hviliku
ábyrgðarleysi hún lýsti ef rétt væri. En hvert
hefur ábyrgðarleysið ekki verið hjá þessari
rikisstjórn á umliðnu hálfu öðru ári? Og hafa
ekki allar tilgátur Alþýðublaðsins um þessa
rikisstjórn og athafnir hennar, sem ósennileg-
astar virtust, reynzt réttar?
Heimsborgarinn
kominn heim
Jónas Árnason, heimsborgari, mun væntan-
lega hafa komið i dag til fósturjarðarinnar frá
útlöndum. Heimsborgarinn mun að likindum i
dag eða á morgun skýra lesendum Þjóðviljans
frá landvinningum sinum fvrir ,,westan”.
Að ólygins sögn mun heimsborgarinn, sérleg-
ur sendimaður Lúðviks Jósefssonar, hafa i
hyggju að gleðjast með þjóð sinni um jól.
Traustar heimildir herma einnig, að heims-
borgarinn hafi jafnvel i hyggju, að yfirgefa ætt-
land sitt ekki meir það sem eftir er ársins. Er
þvi ekki að vænta stórviðburða i heimsmálum
um hátiðarnar.
Þessar fréttir hafa þó ekki fengizt staðfestar
af opinberri hálfu i Reykjavik.
UNNIÐ AÐ LÍFS-
HAGSMUNAMÁLI
BRÉFFRÁ
SIGURÐI
New York 13. desember 1972.
Kæri Sighvatur,
Ég var búinn að lofa að hripa
þér héðan nokkrar linur og æila
i nú að efna það, þótt ég hafi aðeins
verið hér fáa daga og sé senn á
förum. Á margt mætti drepa, en
ég ætla aðeins að fjalla um það,
sem nú er efst á baugi hjá okkur i
islenzku sendinefndinni hér hjá
Sameinuðu þjóðunum, enda telj-
um við þau mál mikilvæg fyrir is-
lenzku þjóðina. Er þá fyrst að
nefna baráttu þá, sem nú er i
rauninni háð, þótt lágt fari, fyrir
þvi að Allsherjarþing Sameinuðu
þjóðanna samþykki á mánudag-
inn (eftir þvi sem nú er helzt
talið) tillögu þá, sem lsland og
Perú fluttu ásamt fleiri þjóðum i
II. nefnd Allsherjarþingsins fyrir
skömmu og fengu samþykkta
þar. Fjallar tillagan sem kunnugt
er um það, að strandriki skulu
eiga og fá notið óáreitt auðæfa
þeirra og auðlinda, sem felast i og
undir sjávarbotninum við strend-
ur þeirra sem og i hafinu þar yfir.
Hið siðastnefnda er i rauninni
stefnumörkun af hálfu AIls-
herjarþingsins i stórmikilvægu
máli, ef samþykkt verður, eins og
samþykkt var i þingnefndinni
fyrir nokkru, eins og áður segir.
Ég segi stórmikilvægu máli og
miða þá að sjálfsögðu við lifs-
hagsmuni okkar Islendinga og
annarra þeirra þjóða, sem likt er
ástatt um. Verði þessi tillaga
samþykkt á mánudaginn hafa
Sameinuðu þjóðirnar markað
stefnuna i þessu máli, og sú
stefnumörkun hlýtur að hafa
grundvallarþýðingu fyrir þróun
þessa máls, meðal annars hjá Al-
þjóðadómstólnum i Haag og á
þeirri alþjóðlegu hafréttarráð-
stefnu, sem Sameinuðu þjóðirnar
hafa ákveðið að efna til og hefst
væntanlega á næsta ári,en starfar
sjálfsagt ekkert að gagni fyrr en á
árinu 1974 eða jafnvel 1975. Að
visu og að sjálfsögðu er ekki talað
um það i tillögunni hve langt til
hafs eignarréttindi strandrikj-
anna skuli ná, enda hefði tillagan
vafalaust ekki náö jafn langt og
raun ber þegar vitni og vonir
standa til ef þvi atriði hefði ekki
verið sleppt. Aðalatriðið var lika
að fá grundvallarsamþykkt á
þessu sviði. Verði tillagan sam-
þykkt hefur vigstaða okkar og
annarra fiskveiðiþjóða gjör-
breytzt til batnaöar.
Eins og þú manst gerðu Banda-
rikjamenn tilraun til að bregða
fæti fyrir setninguna: ,,. . .sem og
i hafinu þar yfir” (ég held ég fari
nokkurn veginn orðrétt með
þessa vitnun i tillöguna) meö þvi
að leggja til i þingnefndinni, að
hún yrði felld niður. Sú tillaga
þeirra var kolfelld. tslendingum
þótti þetta óvinsemd við sig og
tóku hana þvi óstinnt upp. Nú er
ástæða til að ætla, að þeir hafi
hugsað sitt ráð og áttaö sig á þvi,
að okkur finnst sem þeir geti látið
það vera að ganga fram fyrir
skjöldu til að bregða fæti fyrir
framgang máls, sem hefur gifur-
lega þýðingu fyrir okkur og önnur
strandriki, þar á meðal þá sjálfa,
en er á engan hátt neikvætt fyrir
þá, ef samþykkt verður. Á hinn
bóginn er illt til þess að vita ef
frændur okkar og vinir á hinum
Norðurlöndunum greiða atkvæði
móti þessu máli i Allsherjarþing-
inu eða láti það ógert i öllu falli að
veita málinu brautargengi. En
enn er óvist með öllu hvort nokk-
urt þeirra fæst til að greiða mál-
inu atkvæði. Þetta er fyrir minn
smekk þvi verra sem þar sitja þó
sums staðar rikisstjórnir jafn-
aðarmanna, sem virðast ætla að
sýna okkur minni skilning og
stuðning en ihaldsstjórnin hér
vestra. Er nokkur furða þótt
maður hugsi með efasemdum til
hugsjónarinnar um norræna
samvinnu, ef svo fer sem horfir?
Nokkur bót i máli er ef önnur
hvor eða máske báðar nýju jafn-
aðarmannastjórnirnar i Ástraliu
og Nýja Sjálandi styðja málið. Og
samt hlýtur hlutur skandinavisku
rikisstjórnanna að teljast af-
leitur, ef þær snúast gegn okkur.
I þessari baráttu fyrir sam-
þykkt tillögunnar hafa margir
góðir menn lagt hönd á plóginn.
Engum er þó gert rangt til þótt
sagt sé, að hiti og þungi dagsins
hafi hvilt á þeim Haraldi Kröýer,
ambassador og fastafulltrúa Is-
lands hjá Sameinuðu þjóðunum
og Gunnari G. Schram, vara-
fastafulltrúa. Þeir Haraldur og
Gunnar hafa unnið að þessu máli
af miklum dugnaði og mikilli
lagni og beitt óspart öllum þeim
áhrifum, sem aðstæður hafa
leyft. En utanrikisráðuneytið i
Reykjavik hefur vitaskuld lika
unnið afar ötullega að málinu og á
skilið hrós fyrir. Ekki má heldur
gleyma þvi, að raunar munu öll
sendiráð okkar beggja megin
hafsins lagt hér hönd á plóginn,
að mér hefur skilizt, eins og eðli-
legt er.
I þessu sambandi finnst mér
ástæða til að benda á, að i raun
virðist hafa orðið breyting á starfi
okkar hér, hjá Sameinuðu þjóð-
unum. 1 stað þess að láta mál litt
til sin taka og hafa litil áhrif á
framgang þeirra, er sendinefndin
okkar byrjuð að „vera með putt-
ana” i þróun mála, hafa afskioti
af þeim, eiga frumkvæði um mál
íslandi i hag eða jákvæða þróun
þeirra á annan hátt. Þetta er ljóst
af þvi, sem nú er að ske, er mjög
ánægjulegt og var timabært. Fá-
ist sú tillaga samþykkt, sem ég
hef gert hér að umtalsefni, þarf
sendinefndin okkar að halda
áfram að hafa jákvæð áhrif á þró-
un mála með daglegu starfi sinu á
Allsherjarþinginu. Er þá hvað
mikilvægast að hún vinni að þvi,
að mál þróist i þá átt, að grund-
völlur verði fyrir enn frekari út-
færslu fiskveiðilandhelginnar
okkar, þegar sú stund rennur upp.
Ég sagði þér áðan að nefndin
væri ötul — ég get nefnt þér tvö
önnur dæmi um störf hennar.
Fastanefndin okkar hefur þegar
lagt mikla vinnu i að koma þvi til
leiðar, að lslendingur verði nú
kosinn i fyrstu stjórn hinnar nýju
Umhverfisstofnunar Sameinuðu
þjóðanna. Eru nú góðar horfur
taldar á að svo verði. Þetta er
afar mikilvægt fyrir okkur að
þessu sinni vegna landhelgis-
málsins, vafalaust munum við
halda áfram að vinna að brautar-
gengi þess sem umhverfismáls,
ekki sizt ef tillagan okkar verður
samþykkt á mánudaginn. Hilt
dæmið er, að fastafulltrúarnir
okkar hér hafa þegar kynnt i Alls-
herjarþinginu hugmynd um að
hugsanleg haffræðistofnun Há-
skóla Sameinuðu þjóðanna verði
reist á tslandi. Gerði Gunnar
Schram það siðast i ræðu á Alls-
herjarþinginu fyrir fáum dögum.
Ef af þvi verður getur það haft
verulega þýðingu fyrir fiskimið
i og sjávarútveg okkar Islendinga.
Beztu kveðjur,
Sigurður K. Guðmundsson.
PIERPONT-ÚRIN
handa þeim sem
gera kröfur um
endingu, nákvæmni
ogfallegt
útlit.
Kven- og
karl-
manns
úr af
mörgum
geröum
og verð-
um.
MAGNUS BENJAMINSSON & CO.
Veltusundi 3 - Sími 13014
Fimmtudagur 21. desember 1972
0