Alþýðublaðið - 01.02.1973, Side 1

Alþýðublaðið - 01.02.1973, Side 1
Samúðarkveðjur frá Margréti II Sendiherra Danmerkur Birger O. Kronmann afhenti í gær forseta íslands bréf frá Margréti Dana- drottningu þar sem hún lætur í Ijós samúö sína með Vesfmannaeying- um og þjóðinni í heild vegna jarð- eldanna í Eyjum óg afleiðinga þeirra. Kveðst drottning dást að björgunarstarfinu og óskar þess Islendingum til handa að upp- byggingarstarfið megi að sínu leyti ganga eins giftusamlega. m % & 1 É % hfc m Ú I Um leið og heilu héruðin eru læknislaus viða um land, vilja Boivikingar, a.m.k. stór hópur þeirra, reka lækninn sem þar er, af höndum sér, og hafa verið bornar fram kvartanir við landlækni út af hegðun hans. I fr I $ 1 Bolvíkingar vilja reka lækninn og lögreglustjórann I l! 1 8 ! I m M $ ■fí Blaðið hafði af þessu tilefni sam- band við nokkra aðila i Bolungar- vik, og kom þá i ljós að þeir vilja gjarnan losna við lögreglustjórann lika, af svipuðum ástæðum. Dóms- málaráðuneytinu hafa borizt kvartanir vegna hegðunar hans i starfi. Ekki vildu þeir Bolvikingar, sem blaðið haföi tal af i gær, láta nafna sinna getið að svo stöddu, en létu i ljós að þeir væru ófeimnir að láta skoðanir sinar opinberlega i ljós, ef yfirvöld daufheyrðust við kvörtun- um þeirra. Einn þeirra er blaðið átti tal af, 5$ sagði að vafalaust ræki að þvi, að undirskriftum yrði safnað meðal sffl bæjarbiia, ef ekki yrði bætt úr æ þessu ástandi. Það væri skoðun §jr flestra Bolvikinga aö þessir em- bættismenn ræktu störf sin hvergi Fi nær af nægilegri trúmennsku, og slikt væri ekki hægt að una við. Einhvers konar óregla er sögð vera ástæðan fyrir óánægjunni 1 HÆTTIR LODNU- VEIÐUM t allan gærdag hafa loðnubátarnir streymt inn til Eskifjarðar. Ástæðan er megn óánægja sjómanna með loðnuverðið, og ætluðu þeir að þinga um málið á Eskifirði i gærkvöldi. Strax og sjómenn á loðnubátunum heyrðu til- kynninguna um nýákveðið loðnuverð, ákváðu þeir að hætta veiðum. Telja þeir verðið alveg óviðunandi, og einkum þó það ákvæði að 53 aurar af hverju kilói skuli renna i Verðjöfnunarsjóð fiskiðnaðarins. Væntanlega hefur verið tekin um það ákvörðun á fundinum i gærkvöldi, hvort veiðar verða stundaðar áfram, eða þær liggi niöri unz nýtt verð hefur verið ákveðiö, sem sjómenn geti sætt sig við. Skipstjóri einn sem Alþýðublaðið hafði tal af i gærdag, sagði að loðnu- verðið væri all miklu lægra en sjómenn hefðu búist við. Þá finnst sjómönnum greiösla í Verðjöfnunar- sjóðinn of mikil. Það kom reyndar fram í bókun sem fulltrúar loðnuseljenda i yfirnefnd Verðlagsráðs létu gera, að seljendur vilja að greiðsla I Veröjöfnunar- sjóöinn verði minnkuö úr 53 aurum fyrir hvert klló loðnu i 48 aura og fimm aurarnir renni i sérstakan flutningssjóð. REYKIHGflR 06 DRYKKJA STÓRtUKAST Tekjur ríkissjóðs af áfengis og tóbakssölu jukust um 727 milljónir króna á siðasta ári, ef miðað er við árið á undan. Var um töluverða magn- aukningu að ræða i báð- um tegundum, einkum þó tóbakinu. Lætur nærri að 300 milljón sigarettur hafi selzt hér árið 1972. Samkvæmt upplýsing- um ATVR, nam sala tók- baks og áfengis á nýliðnu ári samtals 2621 milljón- um króna, en var árið á undan 1894 milljónir. Tvær verðhækkanir urðu á árinu, fyrst i marz og siöan aftur i desember, en seinni hækkunin hefur þó ekki haft ýkja mikil áhrif til hækkunar vegna þess hve seint hún skall á. Hlutur áfengis I heildarsölunni var 1493 milljónir, en var 1084 milljónir árið á undan. Hlutur tóbaks var 1138 milljónir árið 1972, en var 810 milljónir árið á und- an. Ef litið er á magnaukn- inguna, kemur i jós að hver íslendingur hefur drukkið 2,8050 litra af hreinu alkahóli á siöasta ári, en 2,6980 litra árið áð- ur. Þá voru flutt inn 291.000 mill af sigarettum á siðasta ári, en mill merkir i þessu tilfelli eitt þúsund stykki. Arið 1971 voru flutt inn 253.000 mill af slgarettum. Salan 1972 var þvi nálægt 300 milljón sigarettur. — þrátt fyrir hækkanirnar Banaslys varð seint i fyrrakvöld i Reykjavik, er 61 árs gamall maður, Björn Þorláksson, til heimilis að Skipholti 51, varð fyrir bil, og lézt samstundis. Björn heitinn var giftur, en barnlaus. Slysið vildi þannig til að bil var ekið vestur Borgartúnið, en Björn heitinn var að ganga norður yfir götuna. ökumanninum segist svo, að hann hafi ekki tekið eftir Birni fyrr en hann var beint fyrir framan bilinn og rétt við hann. Tókst honum ekki að koma i veg fyrir slys, með fyrrgreindum af- leiðingum. Samkvæmt rannsóknum lögreglunnar, mun billinn ekki hafa verið á óeölilega mikilli ferð. | Bílfarmur af leikfangakubbum Hún er kumpánleg 2 þessi litla stúlka frá Vest- ■ mannaeyjum þar sem ■j hún tekur sig út fyrir ljós- ■i myndarann okkar, Frið- ■ þjóf, en hann tók myndina ■ i safnaöarheimili Nes- ■■ kirkju i gær. — Þar var I m R*r opnuð barnagæzla ■ fyrir tveggja til sex ára m *,®rn fr£í Vestmannaeyj- ■ ura, aö frumkvæði 2 Hjálparstofnunar ■> kirkjunnar, en samráð ■j voru höfð viö söfnuöinn I Vestmannaeyjum og Vestmanneyjabæ, en Nessöfnuður lét f té hús- næðið. Þarna eru nokkrar fóstr ur frá Eyjum til að líta eftir börnunum, auk sjálfboöaliða á vegum hjálparstofnunarinnar, og er ekki að efa, að börn- unum líkar vel að fá þarna tækifæri til að hitta leikfélaga að heiman eftir viku „útlegð”. Reykjalundur brást vel við, þegar beðiö var um eitthvað smávegis af kubbum handa börnunum að risla sér við, — þaðan kom heill bflfarmur af allskonar leikföngum. Fleira veröur gert þarna sér til dundurs, — mikið tciknað og litað og vitan- lega byrjuðu sum barn- anna aö búa til myndir af eldgosum strax og þau fengu liti I hendur.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.