Alþýðublaðið - 07.02.1973, Blaðsíða 2
VERTÍÐIN FYRIR VESTAN
NÝI SK«n06-
ARINN ER
AFLAHÆSTUR
togbAta
Eins og fram kom i frétt i blað-
inu i gær, hefur vetrarvertiðin
gengið með eindæmum vel á
Vestfjörðum.
Blaðinu hefur nú borizt yfirlit
um sjósókn og aflabrögð Vest-
fjarðabáta i janúar. Þar kemur
fram að gæftir hafa verið af-
bragðsgóðar i janúar, og flestir
bátarnir fariði þetta 20-25 róðra,
s'em er fátitt, ef ekki einsdæmi, á
þessum tima árs. Afli linubáta
hefur verið góður, en afli togbá ta
hefur verið tregari.
Samkvæmt aflatölum sem
skrifstofa Fiskifélags Islands á
Isafirði hefur tekið saman, var
□ Ekkert nafn
í gærdag kom maður nokkur,
sem ekki villláta nafns sins getið,
inn á skrifstofu sendiráðs Islands
i Kaupmannahöfn og afhenti þar
ávisun að upphæð fimm milljónir
islenzkra króna sem gjöf til Vest-
mannaeyjasöfnunar Rauða kross
Islands.
O---------------------
afli Vestfjarðabáta i janúar 4,585
lestir, en var 4,050 lestir i fyrra.
Langflestir bátanna réru með
linu, og hefur áhugi útgerðar-
manna á linuveiðum aukizt mjög
siðustu árin, enda hefur aflinn á
linu aukizt og linufiskurinn gefur
mest verð.
Aflahæsti linubáturinn og jafn-
framt aflahæsti báturinn á Vest-
fjörðum i janúar var Sólrún frá
Bolungavik með 220,9 lestir i 25
róðrum, en i fyrra var aflahæsti
báturinn með 186,3 lestir. Af tog-
bátunum var nýi skuttogarinn
Július Geirmundsson frá fsafirði
aflahæstur með 212,0 lestir i
þremur sjóferðum.
□ Engin kæra
Vegna ummæla, sem fram hafa
komið i fjölmiðlum um að frétta-
menn hafi gerzt sekir um ól ög-
lega töku bifreiða hér i Vest-
mannaeyjum skal tekið fram, að
lögreglunni i Vestmannaeyjum
hefur engin kæra borizt um þetta
efni.
Vestmannaeyjum, 2. febr. 1973
Bæjarfógetaembættið.
SE OG HÖR ATTI
ENGAN ÞÁTT í
KIRKJUGARÐS-
TÍZKUSÝNINGUNNI
Tízkufólkið
úlfar í
sauðagæru
Svo virðist sem erlent tizku-
fólk hafi laumað sér til Vest-
mannaeyja undir þvi yfirskyni
að þar væri fréttafólk á ferð.
Hélt þetta fólk eins konar tizku-
sýningu i kirkjugarðinum i Eyj-
um á föstudaginn, og myndaði
óspart, með glóandi hraun-
slettur i bakgrunn. Vakti þetta
háttalag furðu manna.
Einn af ritstjórum danska
blaðsins Se og Hör hringdi til Al-
þýðublaðsins frá Kaupmanna-
höfn i gær, vegna frétta sem
blaðið flutti af þessari einkenni-
legu tizkusýningu. Bað ritstjór-
inn um aö þvi yrði komið á
framfæri, að fólk þetta væri á
engan hátt á vegum Se og Hör.
Sagði ritstjórinn, að fólk þetta
hefði enga heimild haft til að
bendla sig við blað sitt.
Samkvæmt þeim upplýsing-
um sem blaðið hefur aflað sér,
var um þriggja manna flokk að
ræða, sem sagðist við komuna
vera á vegum þriggja blaða, Se
og Hör, frá Feminu og Stern.
Forsprakki hópsins hét Hans
Jörgen Bach, en einnig voru i
hópnum Peter Sabro og stúlka
að nafni Kate Gebuwsqe.
Fylgdi það frásögn þremenn-
inganna, að annar mannanna
væri blaðamaður, en hinn
maðurinn og stúlkan væru ljós-
myndarar. Fékk fólk þetta
sömu fyrirgreiðslu og aðrir
erlendir blaðamenn sem hingað
hafa komið vegna gossins, en
hefur jafnframt misnotað hana.
Hefði fólkið ekki undir neinum
kringumstæðum fengið að fara
til Eyja i þeim erindum að taka
tizkumyndir, hefði verið vitað
fyrirfram um þann ásetning
fólksins.
Ritstjóri Se og Hör sagði i
simtalinu við Alþ.bl. i gær, að
blað hans hefði alla tið haft góð
sambönd við Island, og þvi væri
það honum mjög i mun, að sá
misskilningur væri leiðréttur,
að fólk þetta hefði verið á veg-
um Se og Hör.
FRIÐRIK í
HEIMSLIÐIÐ?
Friðrik Olafsson stórmeistari
hefur ekki enn fengið um það vit-
neskju hvort hann eigi að tefla
fyrir heimsúrvalið gegn liði
Sovétrikjanna, en slik keppni er
fyrirhuguð i Hollandi i mai i vor.
Blaðið grennslaðist fyrir um
þessi mál hjá Friðrik og Skák-
sambandinu i gær. Fengust þær
upplýsingar, að keppni þessi
hæfist 18. mai, og yrði keppt á 10
borðum. Slik keppni hefur eini
sinni áður farið fram, og sigruðu
þá Sovétrikin naumlega.
Það er dr. Euwe sem velur
heimsliðið, og mun hann væntan-
lega halda sig við svokallað Elo-
kerfi, en samkvæmt þvi er Frið-
rik 7-9 bezti skákmaður utan
Sovétrikjanna, með 2570 stig.
Samkvæmt þvi ætti Friðrik að
vera öruggur i liðið, eðaþá hann
ætti að komast að sem vara-
maður. Miklar likur eru taldar á
þvi að heimsúrvalið sigri i þetta
sinn.
Friðrik ólafsson tjáði blaðinu i
gær, að hann hyggði ekki á þátt-
töku i stórmótum á næstunni.
Hann væri önnum kafinn við
samningu bókar sinnar um
heimsmeistaraeinvigi Fischers
og Spasskis sem kemur út á veg-
um Almenna bókafélagsins i vor.
Með tónleikum i Háskólabió
annað kvöld, hefst siðara
misseri Sinfóniuhljómsveitar-
innar, en alls mun hljómsveit-
in halda átta reglulega tón-
leika á misserinu.
Hljómsveitarstjórar annað
kvöld verða: Miklos Erdelyn
frá Ungverjalandi, og Atli
Heimir Sveinsson, sem stjórn-
ar frumflutningi eigin flautu-
konserts, sem hann samdi i
fyrra. Einlcikari verður
Robert Aitken frá Kanada.
önnur verk verða Sinfónia nr.
5, eftir Schubert og nr. 2 eftir
Brahms.
Skelfiskveiðin i Breiðafirði hefur verið töluvert dræmari núna
eftir áramótin er reiknað var með. Hafa bátarnir við Breiðafjörð
aðeins veitt þriðjung þess magns sem sjávarútvegsráðuneytið
hafði heimilað að veiða.
Þórður Eyþórsson hjá ráðuneytinu tjáði blaðinu i gær, að um
siðustu helgi hefði heildarveiðin verið rúmar 586 lestir, en leyfi-
legt var að veiða 1500 lestir. Eru nú margir bátanna hættir
veiðum, og farnir að undirbúa vertið, og má þvi búast við þvi að
veiðin leggist sjálfkrafa niður innan skamms.
Langmestur hluti aflans hefur komið á land i Stykkishólmi,
eða um 490 lestir, en á Grundarfirði var landað tæpum 96 lestum.
Astæðan fyrir íélegum afla er að hluta sú, að miðin sem leyfi-
legt var að veiða á, reyndust ekki eins fengsæl og aðalmiðin i
Breiðafirði, en þar hefur þótt nauðsynlegt að friða hörpudisks-
stofninn vegna hættu á ofveiði.
□ □ Skelfiskveiðin í lakara lagi
Sturtt
&
laggott
□ Síðara
□ misseri
sinfóníunnar
□ Ölafur og
□ Kissinger í
sjónvarpsþætti
Ástandið i Indókina og
endurskoðun herverndar-
samningsins á Islandi verða
til umræðu i norska sjónvarp-
inu i kvöld, og i þvi sambandi
verður sjónvarpað viðtölum
við þá Henry Kissinger og Ólaf
Jóhannesson.
I þættinum, sem nefnist á
norsku „Utenriksmagasinet”
og er nokkurs konar „Erlend
málefni”, verða sýndar
myndir frá Suður-Vietnam,
Laos og Kambódiu, og einnig
efni, sem norskir sjónvarps-
menn hafa tekið hér á tslandi
— og var viðtalið við Ólaf
Jóhannesson forsætisráðherra
tekið við sama tækifæri.
Þótt sólin hækki hér
ekki nema um
hænufet á dag er
farið að hilla undir
vorið á meginland-
inu. Það hefur í för
með sér að baðfata-
framleiðeindur eru
komnir út á götur
með sína fram-
leiðslu — og hér er
Ungfrú Frakkland
T 9 7 3 / Isabelle
Krumacker, nýkjör-
in, að sýna það nýj-
asta af þeim fatnaði.
□
Atvinnulýðraeði gaeti
verið á næsta leiti
Þingmenn Alþýðuflokksins
lögðu i gær fram á Alþingi tillögu
um, að rikisstjórninni verði falið
að skipa nefnd til þess að semja
frumvarp til laga um atvinnulýð-
ræði, þar sem launþegum verði
tryggð áhrif á stjórn fyrirtækja
og hlutdeild i arði af rekstri
þeirra. í greinargerð með tillög-
unnibenda þingmennirnir m.a. á,
að fyrir frumkvæði jafnaðar-
manna hafi slik lög nú verið sett i
Noregi og væru i aðsigi i Dan-
mörku og væri timabært, að is-
lenzka þjóðin byggi sig einnig
undir aðgerðir i þessu mikilvæga
lýðræðismáli hið fyrsta. í
greinargerðinni rekja þingmer'n-
irnir einnig efni norsku atvinnu-
lýsðræðislaganna og nefna ýmis
atriði úr hugmyndum Dana um
slikt hið sama, sem þeir segja, að
athuga þurfi miðað við islenzkar
aðstæður.
1 lok greinargerðarinnar segir
svo: Alþýðuflokkurinn hefur oft
hreyft þessu máli á Alþingi, ýmist
með frv. um hlutdeild starfsliðs I
stjórn fyrirtækja almennt eða
með tillögum varðandi einstök
rikisfyrirtæki. Það er von flokks-
ins, að Islendingar — sem telja
sig mikla lýðræðisþjóð — dragist
ekki aftur úr öðrum á þessu sviði.
Miðvikudagur 7. febrúar 1973