Alþýðublaðið - 07.02.1973, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 07.02.1973, Blaðsíða 7
PRENTSMIÐJU- EIGENDUR, ÚTGEFENDUR = Prentsmiðja Alþýðublaðsins = óskar eftir tilboðum i = eftirtalin tæki: S O Sög og sagarborð Gaetan Duval hefur fjölda titla. Einn þeirra er utanrikisráöherra eyrikisins Mauritius I Ind- landshafi. Nokkrir hafa sæmt hann heitinu yfir- hippi Mauritius. Auk þess aö vera utan- rikisráöherra er hann einnig ferðamálaráöherra og borgarstjóri i höfuð- borginni, Port Louis, hann er lögfræðingur, formaður eins af ráðandi stjórn- málaflokkum lands sins og mætti þannig lengi telja. En hann er ekki elskaður af öllum lands- mönnum sinum. Hann er þvert á móti umdeildasti stjórnmálamaður landsins,, enda fella ekki allir sig við það að 42 ára gamall ráðherra, þótt unglegur sé, sé með sitt dökka hrokkna hár axla- sitt og mætti til skrifstofu sinnar klæddur galla- buxum og fráflakandi skyrtu. En Duvai er heldur enginn venjulegur maður. Þegar hann er á heimili sinu, sem er eftir- liking af gömlu hollensku virki, glymur poppmúsik um öll herbergi frá risa- vöxnu stero-hljómkeríi, og hann vill gjarnan hafa dans og drykkju á heimili sinu, þegar hann hefur tima til. Hann sefur i risa- stóru vatnsrúmi, og hann vaknar eldsnemma, eða um leið og sólin skin framan I hann. Þá gerir hann annað tveggja, fær sér sundsprett eða reiðtúr áður en hann heldur til vinnu sinnar i ráðu- neytinu. Það er erfitt fyrir hann að sleppa borgar- st jóraembættinu þótt annir séu miklar, þvi laun borgarstjóra Port Louis eru um þrjár milijónir króna á ári, meðan hann sem ráðherra verður að láta sér nægja einn tiunda þeirrar upphæðar, eða rétt rúmlega það. Duval hefur upp á sið- kastið sætt geysiharðri gagnrýni vinstri manna þar i landi, og þær árásir hafa sannað gagnsemi þess aö Duval hafi sinn sérstaka lifvörð. Sjö af beztu vinum hans eiga yfir höfði sér ákæru fyrir að hafa drepið einn af forsvarsmönnum vinstri- hreyfingarinnar þar i landi, og hann hefur svarað þvl til að það hafi þeir gert i sjálfsvörn. Hann hefur meira að segja gefið það i skyn að hann muni segja af sér embætti til aö verja vini sina fyrir' rétti, og reyndar yrði það honum ekki erfitt verk, þvi hann hefur um tima verið einn bezti verjandi þar i landi. Gaetan Duval er for- maður sósialdemókrata- flokks Mauritius. Talið er stjórnarsamstarf þeirra og verkamannaflokksins undir stjórn hins sjötuga forsætisráðherra, sir Sewoosagur Ramgoolam, muni fyrr eða siðar rofna, þar sem þessir tveir per- sónuleikar eru jafn óskyldir og dagur og nótt. Duval hefur verið giftur, á einn son, 13 ára gamlan, sem er i skóla i London, þrátt fyrir það að Duval hafi hazlað sér völl i stjórnmálum sem bar- áttumaður fyrir þvi að franska yrði gerð að rikis- máli i stað ensku. o Stóra prófarkapressu, handknúna OLitla prófarkapressu, handknúna O Fairchild plastmynda- mótavél ásamt plastefni í myndamót. Allar nánari upplýsingar gefur Benedikt Jónsson, sem verður til viðtals á skrifstofum Alþýðublaðsins,Hverfisgötu 8—10, kl. 3 til 4 e.h. næstu daga, sími 8-66-66 imiiiHiiuiiiiiiiiiiiiiimiimiiniiiiin ER SAGT HOLLT FYRIR magn af svonefndum lipoproteinum i blóöi. Sú aðferö hefur þegar sparað Rikis- sjúkrahúsinu mikið fé og dýr tæki, og nú um þessar mundir á að fara að innleiða þessa aðferð 1 fleiri sjúkrahúsum á Norður- löndum. Með rannsóknum i Danmörku á I70konum og 194 karlmönnum á aldrinum 11-70 ára hefur Jörn Dyerberg sýnt fram á, aö með aldrinum eykst fitumagn blóðsins, en á meðan þessi aukning heldur stöðugt áfram hjá konum, þá nær hún hámarki hjá körlum á aldrinum 40-50 ára. Varla er hægt að imynda sér annað, en kynhormónarnir ráöi hér um. Of þungt fólk af báöum kynj- um hefur yfirleitt meira fitu- magn i blóði en eðlilega þungt fólk á sama aldri. Jörn Dyer- berg hefur einnig fundið fleiri efnasambönd I blóði kvenna, sem nota „pilluna”, en annara, en þær rannsóknir eru þó ekki nægilega ýtarlegar til þess að hann telji sig geta fullyrt nokkuð um samhengi þar á milli. Mælingar á fitumagni i blóði eru sifelltþýðingarmeiri til þess HJARTAÐ að geta séð fyrir, hverjir eru i mestri hættu fyrir aö fá blóö- tappa og að deyja af hjarta- slagi. Rannsóknir Jörn Dyer- bergs ganga út á að slá föstu, hvaða fitumagn sé eðlilegt og hvenær segja megi, að hætta sé á ferðum. 1 ritgerö sinni bendir hann þó á, að enn hafi ekkert verið fylli- lega sannað um örugg tengsl mikils fitumagns i blóði og hjarta- og æðasjúkdóma. Samt sem áður telur hann það vera heillaráð, að fólk fari i blóðrannsóknir með reglulegu millibili. — Ég geri það sjálfur, sagði hann i viðtali við blaðamann danska blaðsins „Aktuelt”. o Miövikudagur 7. febrúar 1973 IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIilllllllIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.