Alþýðublaðið - 07.02.1973, Blaðsíða 12
alþýöu
mmm
KÓPAVOGS APÚTEK
Opiö öll kvöld til kl. 7
Laugardaga til kl. 2
Sunnudaga milli kl. 1 og 3
SeMMBILASTÖÐiN Hf
SAMKOMULAG UM BJÖRGUNARADGERDIRNAR?
ðLL ÁFORM UM AD FELLA
SAMNINGA UR GILDI MEB
LÖGUM LOGD Á HILLUNA
Þingmannanefndin,
sem kjörin var af Al-
þingi fyrir röskri viku
til þess að gera tillögur
um viðbrögð löggjafa-
valdsins vegna atburð-
anna i Vestmannaeyj-
um, hefur setið á stöð-
ugum fundum undan-
farna daga og i gær var
stefnt að þvi, að tillög-
ur sinar gæti nefndin
lagt fyrir Alþingi i dag i
frumvarpsformi. Sam-
komulag hafði náðst
um ýmis meginatriði,
en einhver ágreiningur
mun enn hafa verið um
ákveðnar tekjuöflunar-
leiðir. Siðdegis i gær
átti að gera lokatil-
raunir til samkomu-
lags.
Allir nefndarmenn munu hafa
verið sammála um þau atriði
m.a., að meginstefna hinna
væntanlegu aðgerða væri, að
landsmenn allir taki sameigin-
lega á sig byrðarnar af áfallinu i
Vestmannaeyjum. Þá munu
nefndarmenn einnig hafa verið
sammála um, að þvi ætti að
haga á þann veg að stofna með
lögum sérstakan sjóö er annað-
ist alla aðstoð og fyrirgreiðslu
við Eyjabúa, — einstaklinga og
fyrirtæki — og lyti sérstakri
stjórn. Auk þess sem öll erlend
fjárhagsaðstoð, samskotafé og
framlög önnur rynnu f sjóðinn
væri nauðsynlegt að fá honum
fasta tekjustofna.er skilað gætu
sjóðnum u.þ.b. 2000 milljónum á
árinu. Eru menn yfirleitt sam-
mála um, að ekki sé rétt að gera
ráð fyrir öllu minni tekjuöflun
til sjóðsins fyrir utan söfnunar-
og gjafafé af innlendum og er-
lendum vettvangi, sem berast
kynni og enginn veit, hversu
mikið muni verða. Munu
nefndarmenn hafa rætt ýmsar
tekjuöflunarleiðir, hafa verið
sammála um sumar, en greint á
um aðrar. Að þvi er Alþýðublað-
ið hefur fregnað, mun ágrein-
ingurinn einna helzt vera um,
hvort afla eigi alls fjárins til
sjóðsins með viðbótarskatt-
heimtu ellegar hvort fresta ætti
einhverjum framkvæmdum og
nota það fé, sem þannig sparað-
ist til aðstoðarinnar en fara sér
að sama skapi hægar í nýjum
skattaálögum. Mun væntanlega
koma i ljós þegar þing kemur
saman i dag, hvort samkomulag
hefur náðst um þessi atriði i
gær, en eins og áður var sagt, þá
var i gær stefnt að þvi, að nefnd-
in skilaöi tillögum sinum til Al-
þingis i dag.
Að lokum er rétt að taka það
fram, að fyrir nokkru hefur ver-
ið fallið frá öllum hugmyndum
um að rjúfa kjarasamninga
verkalýðsfélaganna með lögum,
svipta launþega umsömdum
kauphækkunum og banna verk-
föll.
LOÐNAN
Helmingi
meiri afli en
á sama tíma
í fyrra
Heildarloðnuaflinn á vertiö-
inni nú, var á laugardagskvöld
orðinn 44,215 lestir. Á sama
tlma i fyrra var heildaraflinn
orðinn 25,114 lestir. Alls höfðu
52 skip fengið einhvern afla
um helgina.
Fyrsta loönan barst nú á
land 8. janúar. Voru það 36
lestir sem Eldborg iandaði á
Eskifirði. I fyrra barst fyrsta
loðnan á land 21. janúar.
Aflahæstu skip vertiðarinn-
ar voru eftirtalin, og er þá
miðað við aflatölur Fiski-
félagsins frá miðnætti á
laugardag. Talan á við lestir:
1. GuðmundurRE 2765
2. EldborgGK 2168
3. Loftur Baldvins EA 1888
Í4. FifillGK 1716
5. GisliArniRE 1686
6. Súlan EA 1664
7. Grindvikingur GK 1527
8. Jón Finnsson GK 1441
9. HeimirSU 1438
10. ÞorsteinnRE 1427
Skipstjóri á Guðmundi RE
er Hrólfur Gunnarsson. Er
Guömundur nýtt skip, sem
;keypt varfráNoregi siðastliöið
haust.
Helztu löndunarhafnir voru
jþessar, talið i lestum:
Seyðisfjörður 8296
Neskaupstaður 7905
Eskifjörður 9606
Reyöarfjörður 5173
Fáskrúðsfjörður 3664
Stöðvarfjörður 3821
Djúpivogur 2310
Breiðdalsvik 1333
Hornafjörður 2108
Alls hefur þvi verið landað
loðnu á niu höfnum.
\ \
| Reykjanesstrandið:
I Kjölurinn
uiidan
skipinu
Reykjanesið frá Hafnar-
firöi, sem keyrði upp á Hval- '
I baksgrunn fyrir skemmstu er
nú komið upp i Dráttarbraut-
ina i Neskaupstað.
Nú er ljóst orðið að kjölurinn
hefur rifnað undan skipinu, og
stýriö og hællinn eru einnig
dottin af. Auk þess er skipið
meira og minna kýlt upp undir
sjólinu, og leikur ekki vafi á,
aö skipið hefur verið á mikilli
ferð, er það strandaði. 1 gær
fór Agúst Flygenring, fram-
kvæmdastjóri útgerðarinnar,
austur i Neskaupstað, ásamt
mönnum frá Tryggingamið-
stööinni, en þar var skipiö
tryggt. Munu áhöld um það,
hvernig viögerð verður hagað,
ef hún á annað borö veröur
talin borga sig, en úr þvi
verður skorið næstu daga.
Reykjanesið var á leið á
loðnumiðin, er þetta óhapp
varð, albúiö til veiða.
Blaðinu hefur veriö bent á að á j
sumum veitingastööum borgar- ;
innar, séu aðgöngumiðarnir eða
rúllumiðarnir, seldir aftur og
aftur, þar sem dyraverðir taki við
þeim 1 heilu lagi i stað þess að rifa
af þeim, eins og á að gera. Þetta
er að sjálfsögðu bannað, þar sem
rúllumiðarnir eru m.a. til hag-
ræðis fyrir lögregluna við eftir-
litsstörf, auk þess sem hluti hvers
selds miöa, á að renna i rikissjóð.
Af þessu tilefni hafði blaðið tal
af Ásgeiri Friðjónssyni, fulltrúa i
lögreglustjóra.
Sagði hann að þvi væri ekki j
að leyna, að lögreglan hafi I
kannað þetta mál, en hinsvegar '
væri fals sem þetta ekki óyggj- j
andi sannað á neinn veitingastað- ;
inn.
Ekki taldi hann að eigendur
húsanna væru að þessu einungis
til að stela undan þvi litilræöi af
andviröi miða, sem eiga að renna
i rikissjóð,heldur væri þetta
fremur gert til að villa fyrir lög-
gæzlumönnum um fjölda i húsun-
um.
Þeir græddu ekki nema nokkr-
ar krónur af rikissjóði með hverj-
um miða sem þeir seldu aftur, en
hinsvegar gætu þeir allt eins
grætt nokkur þúsund af hverjum
einstaklingi, sem þeir hleyptu inn
fram yfir leyfilega tölu.
HnMHi
■ 0 í* I •• I
;tu vinfloskur
urinn fannst ekki og því
var rannsókninni hætt
■11
Nú er sakadómur búinn að skila
vinveitingahúsum aftur þvi vini,
sem hald var lagt á fyrir jól,
vegna þess að það fannst ómerkt i
vinbirgðum húsanna.
Eins og blaðið skýrði frá i
desember, fannst eitthvert magn
ómerkts vins i birgðum allra,
stærstu vinveitingahúsanna, en
allt vin sem húsin kaupa af
ATVR, á að vera sérstaklega
merkt til að hægt sé að fylgjast
með rekstrinum.
Þórir Oddsson fulltrúi saka-
dómara, sagði i viðtali við blaðið i
gær, að dómsrannsókn hafi leitt i
ljós, að ónákvæmni i vinnubrögð-
um starfsmanna ÁTVR, væri að
öllum likindum orsökin. Þar sem
ekki væri hægt að útiloka mistök
af þeirra hálfu, hafi frekari rann-
sókn verið hætt.
| Hinsvegar er nú orðið öruggt
! eftirlit með þvi að allt vin til hús-
j anna sé tryggilega merkt, og á
j þvi ekki að sjást þar lengur
ómerkt flaska. —