Alþýðublaðið - 15.03.1973, Blaðsíða 1
UNGLINGAR ORÐNIR ATHAFNA-
MESTU AFBROTAMENNIRNIR
Enqinn
borgar
betur
en Isal
Hinir hagstæðu kjara-
samningar, sem 10 verka-
lýðsfélög gerðu við tsal um
siðustu áramót, hafa aukið
verulega launamismuninn
milli sambærilegra hópa
vinnandi fólks i landinu.
Þannig er timakaup
járnsmiða hjá Álverk-
smiðjunni i Straumsvik
tæplega 54% hærra en
timakaup járnsmiða, sem
taka laun samkvæmt
kjarasamningunum, sem
gerðir voru i desember
1971, og almennt gilda.
Að þvi er næst verður
komizt eru laun samkvæmt
Isalssamningnum nú að
meðaltali 26%-30% hærri
en annars gerist á vinnu-
markaðnum. I sumum til-
vikum eru þessi laun yfir
50% hærri en annars staðar
eru greidd og i engu tilviki
minna en 15% hærri.
Verkamenn hjá tsal, sem
vinna sambærileg störf og
hafnarverkamenn, fá
greidd laun sem eru liðlega
30% hærri en laun hafnar-
verkamanna, sem taka
laun samkvæmt 4. taxta
Dagsbrúnar.
Miklu meirri munur er á
timakaupi járnsmiðsins i
Alverinu og hins, sem tekur
laun eftir almennu samn-
ingunum eða eftir 2 ár
hvorki meira né minna en
86,10 krónur á timann, þ.e.
kr. 688,80 miðað við átta
stunda vinnudag.
Við gerum nánar grein
fyrir þessum samanburði á
blaðsiðu 2,-
Olíufélögin sam-
einast um tölvu
NU i lok vikunnar taka oliufélögin Shell og BP i notk-
un nýja og mjög fullkomna tölvu sem mun að mestu sjá
um reiknings hald fyrir félögin, auk annarra verkefna.
Er Sjóvátryggingafélag Islands með i þessu samstarfi.
Kaup tölvunnar er einn liðurinn af mörgum sem oliu-
félögin reka i sameiningu, og sagði önundur Asgeirsson
forstjóri BP i samtali við blaðið i gær, að stefnt yrði að
meiri samvinnu félaganna i framtiðinni. Engu vildi
Önundur um það spá hvort þetta leiddi til samruna BP
og Shell i framtiðinni og þá með betri samkeppnisað-
stöðu við Esso i huga, en Esso er stærst islenzku oliu-
félaganna.
Nú er ekki lengur
nokkur vafi á aö
unglingar, 16 ára og
yngri, eru orðnir at-
hafnamestu a f-
brotamennirnir hér í
Reykjavík, sagði
Snjólfur Pálmason
rannsóknarlögreglu-
maður í viðtali við
blaðið i gær.
Nú Iiður ekki orðið sá
dagur að afbrotamál ung-
linga berist ekki I hendur
lögreglunni, og t.d. I
fyrradag voru a.m.k.
fimm unglingar uppvisir
að afbrotum.
Þar voru tveir hópar á
ferð, annar brauzt inn i
ibúðarhús og stal 25 þús-
und krónum i peningum,
en hinn brauzt inn i verzl-
un og vann þar spellvirki
fyrir tugi þúsunda.
Þetta sagði Snjólfur að
væri aðeins litið dæmi um
dagleg afskipti lögregl-
unnar af afbrotaungling-
um.
Snjólfur sagði að
ástandið hefði hríðversn-
að siðan siðasta haust, en
þá var gerð könnun á
fjölda unglingaafbrota i
samanburði við afbrot
fulloröinna.
Könnunin náði yfir tvo
mánuði, og var lögregl-
unni þá tilkynnt um 364
þjófnaöi. Upp komst þá
um 124. Nákvæmlega hel-
mingur þeirra var fram-
inn af unglingum
Með hliðsjón af þessum
tölum, taldi Snjólfur ekki
óliklegt að unglingar
væru nú viðriðnir nálægt
60% allra afbrota, sem nú
væru franiin, en þegar
hann hóf störf hjá lög-
reglunni fyrir fjórum ár-
um, hafi þessi tala verið
nálægt helmingi lægri. —
Mjölverð komið
í hámark?
Ansjósuveiðar Perúmanna eru |
hafnar—og þá lækkar heims-i
markaðsverðið á mjöli fljótt i
Rannsókn
á loðnu-
svindlinu
Loðnulöndunarnefnd hef-
ur farið fram á frekari
rannsókn i loðnusvindlmál-
inu svonefnda, sem kom
upp i Grindavik á dögun-
um. Þykir nefndinni afbrot
verksmiðjunnar svo alvar-
legt, að refsing þurfi að
koma til, en samkvæmt
lögum um loðnulöndun
skulu þeir aðilar sæta fjár-
sektum, sem gerast sekir
um brot á lögunum. Fjár-
Mál þetta kom upp hjá
verksmiðjunni Fiskimjöl
og lýsi hf. i Grindavik i sið-
ustu viku. Hafði verksmiðj-
an ekki tilkynnt loðnu-
löndunarnefnd um laust
þróarrými, heldur tekið i
það loðnu af heimabátum.
Samkvæmt lögunum um
loðnulöndun er algerlega
bannað að hygla heimabát-
um á þennan hátt.
Þetta er alvarlegasta
brotið sem komið hefur upp
á vertiðinni. Nefndin hefur
fengið önnur brot til með-
ferðar, en þau smærri
Heildaraflinn á loðnu-
vertiðinni er orðinn milli
340 og 350 þUsund lestir.
Útflutningsverðmæti
þessa afla mun vera sam-
kvæmt lauslegum Ut-
reikningum um 2500
milljónir króna, en verð-
mæti aflans upp Ur sjó er
tæplega 700 milljónir
króna.
Gerðir hafa verið
samningar um sölu á
52-53 þUsund tonnum af
loðnumjöli, og þarf að
veiða 380 þUsund lestir af
loðnu til að uppfylla þá
samninga. Margar verk-
smiðjur hafa þegar brætt
upp i fyrirframsamninga,
og eru þær nU byrjaðar að
vinna mjöl, sem selst á
um 50 þUsund krónur
tonnið. Meðalverðið hefur
verið 35 þUsund krónur i
fyrir tonnið.
Markaðsverð á mjöli er
nU 3.15 sterlingspund
hver próteineining, en
meðalverðið á seldu
mjöli reiknast á um 2,30
pund próteineiningin.
Óvist er, hvað þetta háa
verðhelzt lengi, þvi PerU-
menn eru byrjaðir
ansjósuveiðar, og mjöl
frá þeim hefur fljótlega
áhrif til lækkunar.
Ctflutningsverðmæti
mjöls Ur veiddri loðnu á
vertiðinni nemur nU um
1750-1800 milljónum
króna, lýsisverðmætið
um 250 milljónum króna
og verðmæti frystrar
loðnu um 450-470
milljónum króna.
■ Sprengjur og stór verkfall M Nixon vill dauðarefsingu 1 |
A meðan fulltrúar verkamanna a Norður-tr- Nixon Bandarikjafor- seti fór þess á ieit við full- ,
landi, sem eru mótrnæl- trúadeild bandariska
endatrUar komu saman þingsins i gær að hún
til fundar um allsherjar- samþykkti, að upp verði
verkfall i gær, sprungu tekin'að nýju dauðarefs- j
öflugar sprengjur viðs vegar I Belfast. Verka- mennirnir hyggjast lama allt athafnalifá Nlrlandi ing við ýmsum afbrotum i sem falla undir iögsögu alrfkisyfirvalanna.
HÁLFDRÆTTINGUR
Fataframleiðslan er oröinn hálfdrættingur á við
sjávarútveginn hvað mannafla snertir — segja for-
svarsmenn iðnaðarins, sem i dag opna vor-
kaupstefnuna Islenzkur fatnaöur. Það er eins konar
markaður fataframleiðenda og seljenda, og við segj-
um nánar frá þvi á 2. siðu i dag.
Ástarlíf undir hamrinum — meðan þrætt er um búrin llllllllllllllllllllllll
„Minkarnir á Lykkju létu
fógetann ekki trufla ástalif
sitt”, sagði maður, sem var
viðstaddur uppboð, sem
haldið var að kröfu Toll-
stjórans I Reykjavík I gær.
Eins og við sögðum frá
hér í blaðinu i siðustu viku,
gerði Tollstjórinn i Reykja-
vík kröfu til þess, að yfir
400 minkabúr yrðu seld á
nauðungaruppboði til lúkn-
ingar á aðflutningsgjöld-
um. Hér er um að ræða
hreiöurbúr á loðdýrabúun-
um Lykkju á Kjalarnesi og
Skeggjastöðum i Mosfells-
sveit.
Eins og áður greinir fór
uppboð fram i gær. Var lit-
ið fjör i boöum. Fulltrúi
Innkaupastofnunar rikis-
ins, Guðmundur Sigurþórs-
son, gerði boð I búrin vegna
fjármálaráðuneytisins.
önnur boð komu ekki, og
voru búrin slegin Inn-
k a u p a s t o f n u n i n n i, á
Lykkju fyrir kr. 75 þúsund
og á Skeggjastöðum fyrir
150 þúsund.
Nú stendur sem hæst
fcngitimi þessara verð-
mætu loðdýra. Var viö-
stöddum Ijóst, að dýrin
leiddu alveg hjá sér allar
þrætur um aöflutningsgjöld
og aðgeröir sýslumanns, og
höfðu allt öðrum höppum
að hneppa.
Tvennt liggur nokkuð
ljóst fyrir:
Læðurnar verða
hvolpafullar, hvað sem öll-
um fógetagerðum liöur, og
eins hitt, að búrin verða
þung I sölu á frjálsum
markaöi.