Alþýðublaðið - 15.03.1973, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 15.03.1973, Blaðsíða 3
HVAR A AÐ SKERA FYRST Á EYÐSLUNA Embættismenn i einstökum ráðuneytum hafa nú fengið á sinar herðar það vandasama verkefni, að segja til um, á hvaða útgjöldum og framkvæmdum rikisins hinn 15% niðurskurður fjárlaga ársins, sem Alþingi hefur ákveðið, skuli bitna. Alþýðublaðið innti Brynjólf Ökumenn úr Eyjum sendir á námskeið Nokkuð hefur verið um að V- bilar hafi lent i vandræðum i umferðinni i Reykjavik að undanförnu, enda flestir Vest- mannaeyingar óvanir um- ferðinni hér. Fljótlega eftir að fór að bera á óheppni Vestmannaeyinga i umferðinni hér, gekkst lög- reglanfyrir námskeiðum fyrir ökumenn úr Eyjum, til að kynna þeim aðstæður hér. Hafa nú verið haldin tvö þessháttar námskeið, og að sögn lögreglunnar hafa þau verið vel sótt, og Eyjamenn sýnt mikinn áhug^, á að semja sig að breyttum aðstæðum. Ingólfsson, ráðuneytisstjóra i samgönguráðuneytinu, eftir þvi, hvort framkvæmdum við hring- veginn, sem tengja á Austur- Skaftafellssýslu við þjóðvega- kerfi Suðurlands, verði að ein- hverju leyti frestað vegna niður- skurðarins. Brynjólfur svaraði þvi til, að niðurskurður fjárveitinga til vegamála hafi enn ekki veriö ákveðinn, en þessi mál væru nú i gagngerri athugun i ráðuneytinu. ’Loftkastala- Ekki hefur tekizt að leysa kjaradeilu yfirmanna og út- gerðarmanna og liggja togararnir þvi enn bundnir. Sáttafundir i deilunni hafa ekki verið haldnir siðustu daga, en heyrzt hefur, að þolinmæöi rikisstjórnarinnar sé nú senn þrotin og ekki sé óliklegt, að hún bindi enda á verkfallið með lagasetningu ef samningar nást ekki fljótlega. Myndin var tekin i Reykjavikurhöfn i gær, en þar hafa sumir togararnir legið bundnir hátt á annan mánuð. — Stjórnin búin að missa þolinmæðina? MIOBÆRINNIKOPAVOGI FRÆGASTIMIOBÆR HEIMS? ,,Það er ómögulegt að leggja á fólk kostnað við byggingu svona loftkastala að heimsfrægum miðbæ i Kópavogi, en eitthvað verður samt að gera. — ástandið eróviðunandi eins og það er nú," sagði Bergur Sigurbjörnsson hjá Fram- kvæmdastofnun rikisins, þegar Alþýðublaðið innti hann eftir gangi við- ræðnanna um aðstoð ríkisins við áframhaldandi framkvæmdir við Kópa- vogsgjána og mannvirki þau, sem tilheyra henni. Bergur er í nefnd þeirri, sem samgöngumálaráð- herra skipaði fyrir nokkru til að fjalla um málið, en aðrir í nefndinni eru Sigurður Jóhannesson vegamálastjóri, formaður, Ólafur S. Valdimarsson skrifstof ust jóri i sam- göngumálaráðuneytinu og örn Marinósson deildar- stjóri i Fjárlaga- og hag- sýslustofnun. Eins og Alþýðublaðið hefur skýrt frá áður hljóðuðu upphaflegu kostnaðaráætlanirnar upp á um 80 milljónir, en nú vantar um hundrað milljónir til að Ijúka verkinu, og verkefni fyrr- nefndrar nefndar er að fjalla um, hvort ríkið heldur áfram að leggja fé í framkvæmdirnar. A A TEKUR 50 MILUON KROHA LAHHÆGIR SAMT HVERGI 500 þúsund dollara lántaka vegna fyrirsjáanlegs greiðslu- halla á Rafmagnsveitu Reykja- víkur hefur veriö heimiluð i Borgarráði. Fjármálafulltrúi Rafmagns- veitunnar, Hjörleifur Hjör- leifsson, skýrði blaðinu frá þvi i gær, að fyrir lægi vilyrði frá Hambros banka i London um veitingu lánsins. Kvað hann til þessa úrræöis gripið til aö mæta að nokkru leyti greiðsluhalla, sem fyrirsjáanlegur væri. Kvað hann þetta fé ganga til löngu fyrirfram ákveðinna fram- kvæmda, og að mestu leyti til kaupa á háspennustrengjum. Hjörleifur sagði, að ekki hefði fengizt leyfi til nægilegrar hækkunar á orkusölu, til að mæta óhjákvæmilegum framkvæmdum og auknum kostnaði við þær. Rafmagnsveita Reykjavíkur kaupir raforku frá Landsvirkjun. Verö á henni hækkaði um 20% miðað við 1. marz. Hins vegar fékk Rafmagnsveitan aðeins leyfi til 15% hækkunar á sinni orku- „Ábyrgð og skyldur blaða- manna” verða til umræðu á ráö- stefnu, sem Balaðamannafélag Islands heldur i Norræna húsinu um helgina. Ráöstefnan hefst á laugardag klukkan 14 með þremur fram- söguerindum: dr. Gunnar Thoroddsen, prófessor, ræðir um ábyrgð og skyldur blaðamanna að lögum, Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fjallar um siðferði- sölu. Meðal annars vegna þessa, væri við ramman reip að draga, og lántakan nauösynleg. Sagði Hjörleifur aö þessi ráð- stöfun fullnægði þó engan veginn þörfum Rafmagnsveitunnar. lega ábyrgð blaðamanna, en Indriöi á sæti I siðareglunefnd B1aðamannafélagsins , og Freysteinn Jóhannsson, ritstjóri, ræðir um ábyrgð og skyldur blaöamanna frá sjónarhóli starfandi blaðamanns. Að loknum framsöguerindum taka umræðuhópar til starfa og verða niðurstööur þeirra teknar fyrir á sunnudag. Ráðstefnan er opin öllu áhugafólki um fjölmiðla. Ráðstefna um blaðamenn „ATVINNUÞJÓFAR" STÁLU VIÐTÆKJUM AÐVERÐAAÆTI HÁTT í 300 ÞÚS KRÓNUR Þaö er engu likara en hér hafi verið atvinnuþjófar á ferð, þvi I þeim fimm innbrotum, sem framin hafa verið hér I fyrir- tækiö, hef ég aldrei séð eins skipuíögð vinnubrögð! sagöi Ás- geir Guðnason I Radioverzlun- inni.Einholti 2, en þjófar stálu þar fyrir á þriðja hundraö þús- und krónur um helgina. Þeir hafa greinilega veriö með öll nauösynleg tæki til inn- brota, sagði Asgeir, svo sem járnklippur, kúbein o.fl., enda stóö ekkert fyrir þeim, þeir klipptu sig I gegnum stálstyrkta hurð og brutu þrjár til viðbótar. Eftir að þeir voru komnir inn, en Magnús telur vlst aö fleiri en einn hafi verið á ferö, létu þeir greipar sópa og stálu m.a. niu bílútvörpum, sjónvarpi, segul- bandstækjum, plötuspilara o.fl. Asgeir sagði aö stöðugt væri fleiri og fleiri hluta saknað eftir þvi sem betur væri að gáö, en erfitt væri að sjá i fljótu bragði hvaö hefði horfið. Annars sagði hann i gær, að dagurinn hefði að mestu farið i að koma upp öfl- ugu þjófabjöllukerfi, þvi aðra eins heimsókn vildi hann ekki eiga yfir höfði sér á næstunni. — Fimmtudagur 22. marz. 1973. o

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.