Alþýðublaðið - 17.03.1973, Qupperneq 2
Viðviljum minna þig
á þennan unga mann
HJALPARBEIÐNI
Einkenni dagsins er lýsing á
hinu stóra, mikla, fjölmenna.
Eyru og augu fyllast af þvi, sem
i efstastigi er tjáð. Heimurinn
færist lika allur inn fyrir dyr
svo til hvers heimilis, og þvi er
hið stóra, sem i útlöndum gerist,
daglegt brauö hjá flestum,
hvort heldur jákvætt er eða nei-
kvætt. Þess vegna ber það lika
oft fyrir, sem ofviða er venju-
legum skilningi.
Þessar linur eru þó fram
settar til þess að minna á ein-
stakling. Hann liggur á
sjúkrabeði, hefur orðið fyrir
slysi, og væri hann ekki gæddur
þeirri lifstrú og dug, sem neitar
að viðurkenna uppgjöf, væri
dimmt fyrir augum hans i dag.
Þvi hann hefur mikið misst,
vinstri fótinn fyrir neðan hné,
hægri handlegg fyrir ofan oln-
boga, og að auki er hægri
fóturinn mjög illa farinn.
Kunnugir munu átta sig á þvi,
að hér er veriö að lýsa Hilmari
Sigurbjartssyni, Hólmgarði 19,
sem lenti i slysi i grjótnámu
fyrir mánuði. Hinir minnast
þess e.t.v. að hafa heyrt um
þetta, fyllzt samúð, en siðan
kom eitthvað annað, sem ýtti til
hliðar.
Það er erfitt fyrir ungan
mann, rétt liðlega tvitugan, meö
litið barn og unnustu til forsjár,
að verða fyrir sliku áfalli, og
enginn getur til fulls bætt hon-
um það. En vissri tegund af
áhyggjum má létta af honum
með samstilltu átaki, og þvi eru
þeir beðnir, sem linur þessar
lesa með skilningi að tjá samúð
sina með þvi að láta eitthvað af
hendi rakna til unga mannsins.
Dagblööin hafa góðfúslega
heitið móttöku.
Olafur Skúlason, prestur i
Bústaðasókn.
Prestkosningar í Dómkirkjusöfnuðinum fara fram á
morgun, sunnudag.
Kosið verður í Menntaskólanum við Tjörnina
(Miðbæjarskólanum) kl. 10-22.
Skrifstota stuðningsmanna
séra Þóris Stephensen
er í Hafnarstræti 19, II. hæð
Upplýsingar og bílasímar
23377-24392 -11645 -11646
Stuðningsfólk— vinsamlega hafið samband við skrif-
stofuna.
Stuðningsmenn.
VEIZLUBRAUÐIÐ FRÁ OKKUR
í FERMINGARVEIZLUNA
Hálfar sneiðar og kaffisnittur
Munið að panta tímanlega
BRAUÐBORG
NJÁLSGÖTU 112 — SÍMI 18680 OG 16513
“ kan vi
Baráttumál veröur til
Blað sænskra jafnaðarmanna,
Aktuellt i politiken, birti ný-
verið ræðu þá, sem Olof
Palme, forsætisráðherra Svía
flutti á umhverfisráðstefnunni
í Stokkhólmi í fyrra. Þar sagði
Palme m.a..
#Fyrir þrem árum þekktist
orðið starfsumhverfi alls ekki.
Það eitt gefur okkur nokkra
hugmynd um hvernig stort fé-
lagslegt og pólitiskt mál eykst
smátt aö vöxtum og verður að
stórvægilegu pólitisku baráttu-
máli. Umræöur um það byrjuðu
nokkuð þokukenndar, en er á
leiö skýröust þær og hugmyndir
fólks um starfsumhverfi mótuö-
ust jöfnum skrefum.
Palme lauk máli sinu með
því að ræða um möguleikana á
frumáætlanagerð og lýðræði á
vinnustöðunum sem leið til að
hindra skrifstofuveldi:
• Samábyrgðin gefur starfs-
löngun og sköpunargáfu manns-
ins frelsi. Við spyrjum þvi ekki:
Hvað getur þú gert fyrir sjálfan
þig. Við eigum einnig að spyrja:
Hvaö getur fólk gert hvert fyrir
annað. Þaö er þessi kennd
samábyrgðar, sem veitir okkur
möguleikana á aö eignast betra
starfsumhverfi og gerir okkur
hæfari til aukins atvinnu-
lýðræðis.
Málmiðnaðarmenn
Óskum eftir að ráða nokkra járniðnaðar-
menn og bifvélavirkja til sumarafleysinga
á timabilinu frá 2. mai til 15. september
1973.
Þeim sem eiga eldri umsóknir hjá fyrirtækinu er bent á að
hafa samband viö starfsmannastjóra.
Umsóknareyðublöð fást hjá Bókaverziun Sigfúsar Ey-
mundssonar, Austurstræti, Reykjavik og Bókabúð Olivers
Steins, Hafnarfirði.
Umsóknir óskast sendar eigi slðar en 23. marz 1973 f
pósthólf 244, Hafnarfirði.
ÍSLENZKA ALFÉLAGIÐ H.F.
STRAUMSVIK
Sveinafélag pipulagningarmanna
Aðalfundur
félagsins verður haldinn sunnudaginn 25.
þ.m. kl. 14.00 að Freyjugötu 27.
Stjórnin
® ÚTBOÐ
Tilboð óskast i að steypa gangstéttir við ýmsar götur I
Austurbænum og i Skerjafirði.
Útboösgögn eru afhent I skrifstofu vorri gegn 2.000.- króna
skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 3. aprli n.k.
kl. 11.00.
INNKAUPAST.OFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
AUGLÝSIÐ I
ALÞÝÐUBLAÐINU
0
Laugardagur 17. marz 1973