Alþýðublaðið - 17.03.1973, Qupperneq 7

Alþýðublaðið - 17.03.1973, Qupperneq 7
íþróttir 1 UM HELGINA ER ÞAÐ... Toppur og botn Þaö verður mikið um að vera i Laugardalshöllinni á sunnu- dagskvöldið. Þá fara fram tveir leikir, sem geta ráðið úrslitum i 1. deild. Er það fyrst leikur KR og Armanns og siðan leikur Fram og Vals. Fyrri leikurinn hefst klukkan 20,15. Þetta verður siðasti mögu- leikinn fyrir KR, þvi ef Armann nær öðru stiginu, sjá KR-ingar sina sæng útbreidda, og failið i ◄ ◄ ◄ Ólafur Jónsson er sá leikmaöur i Valsliðinu sem Framarar þurfa að hafa einna mestar gætur á. Nú er bara að vita hvernig þeim tekst til. 2. deild biður þeirra. Seinni leikurinn er hins vegar toppbar- átta, og það lið sem vinnur, stendur uppi sem meistara- kandidat. i 2. deild karla fara fram fjórir leikir, þar af leikur topp- liðið Þór við ÍBK og Þrótt fyrir sunnan. t 1. deild kvenna fara fram þrir leikir á morgun, um klukkan 14,30. i körfuboltanum fara fram fjórir leikir. i dag klukkan 16 leika á Akureyri Þór og ÍS, og á sama tima leika á Seltjarnar- nesi ÍR og Valur. Annað kvöld klukkan 19,15 leika á Seltjarnar- nesi KR gegn UMFN og HSK gegn Armanni. Þetta eru allt saman hörkuleikir. Stundin loks runnin upp... Verðlaunin afhent í dag 1 dag rennur loks upp sú stóra stund að sigurvegarar i Reykja- vikurmótinu i handknattleik fá afhent sigurlaun sin. HKRR hefur boðið öllum sigurvegurum i mótinu til samsætis að Hótel Esju klukkan 15 i dag, 2. hæð Þar verða sigurlaunin afhent, en þau eru komin frá IBK, og það var að miklu leyti sök IBR að verðlaunaafhendingin hefur dregizt svo úr hömlu sem raun hefur orðið á. Stefánsmótið punktamót i Reykjavik i svigi og stórsvigi, fer fram nú um helgina i Skálafelli. Keppnin hefst á laugardag kl. 15,00 með stórsvigi, i karla og kvennaflokkum, en á sunnudag fer fram svig sem hefst kl. 12,00. EYJAMENN VERÐA MEÐ í REYKJAVIKURMOTINU! Fyrsta Arbæjarhlaup Fylkis 1973 fer fram á morgun við Árbæjarskólann. Skráning hefst klukkan 11,30 Hlaupin verða alls fjögur og góð verðlaun i boði. Vestmannaeyingar hafa nú fengið jákvætt svar hjá KRR við beiðni sinni að fá að vera með i Reykjavikurmótinu að þessu sinni. Þar með er ákveðið að Eyjamenn taki þátt i mótinu, og að þeir hætti við þátttöku i Litlu bikarkeppninni. Eru þetta sannarlega aðstæður sem engan hafði órað fyrir, að lið Vest- mannaeyinga yrði meðal þátt- takenda í Reykjavikurmótinu i knattspyrnu. Að sjálfsögðu verða Eyjamenn einungis með sem gestir, og þeir eiga ekki möguleika á að verða Reykjavikurmeistarar jafnvel þótt þeir vinni alla sina leiki. Hins vegar verður þetta þeim mikil og góð æfing, og ætti að koma i veg fyrir nokkuð sem svo oft hefur hent Eyjamenn i gegnum árin, nefnilega að komast of seint i æfingu, og tapa þannig mörgum og dýrmætumstigum i byrjun Framhald á bls. 4 Hljómskálahlaup 1R fer fram i þriðja sinn á morgun klukkan 14. Hlaupið hefst eins og venjulega við Hljómskálann. ) I HREINSKILNI SAGT Lukkan með? Þá hafa Keflvikingar enn einu sinni tryggt sér sæti i Evrópu- keppni. 1 þetta sinn fara þeir i hattinn i UEFA keppninni margfrægu, og þar með eru þeir komnir i happadrætti sem getur fært þeim stóra vinninginn, og lika þann litla. Þróunin i Evrópukeppni hefur verið okkur tslendingum nei- kvæö. Hér áður fyrr var það tryggt að félög gátu tekið heim erlend lið án þess að fara út úr þvi með tapi. Nú eru aörir timar, og i dag eru það vart nema ensk lið sem geta dregiö að áhorfendur. Þetta hefur aftur leitt til þess að islenzku liðin hafa gripið til þess ráðs að leika báöa leiki sina erlendis, i von um einhvern fjárhagslegan gróða. Margir eru andvigir þessu, en undir- ritaður getur nú ekki sé neitt at- hugavert við þessu afgreiðslu mála. í Evrópukeppni liggur tækifæri fyrir islenzk lið að keppa við erlend lið, oft beztu iið álfunnar, og einnig cr fyrir hendi auðgunarmöguleiki sé heppni með, og slikt kemur sér vel fyrir fjárvana félög. Þátttaka i Evrópukeppni er happadrætti þar sem misjafnir vinningar eru i boði. 1 þetta sinn taka þrjú islenzk lið þátt i happ- drættinu, tslandsmeistarar Fram, bikarmeistarar ÍBV og ÍBK i UEFA bikarnum. Kefl- vikingar eiga mesta möguleik á þvi að draga stórlið, þvi þau eru flest i UEFA bikarnum. Heppni Keflvikinga hefur verið einstök, og nú er bara að sjá hvort hún er að enda eður ei. Það verður fróðlegt að heyra úrslit dráttarins þegar hann verður birtur i sumar. —SS. Þetta er hið stórglæsilega mark sem tryggði ÍBK sæti i UEFA bikarnum i ár. Sannarlega falleg tilþrif hjá Steinari Jóhannssyni Laugardagur 17. marz 1973

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.