Alþýðublaðið - 31.03.1973, Blaðsíða 9
IÞROTTIR 3
BADMINTON í DAG:
60-70 ÞÁTTTAKENDUR
Rejkjavikurmeistaramótiö i badminton fer frani um helgina. Þaö
hefst i Laugardalshöllinni klukkan 16 i dag, og veröa þá leiknir
undanúrslitaleikir. en úrslitakeppni mótsins fer fram i Laugardals-
höllinni annaö kvöld*. sunnudag, kiukkan 20. Þátttakendur verða milli
60—70.
Alls verður keppt i 10 greinum. Einliöaleik og tviliðaleik i meistara-
flokki karla og kvenna, tvenndarleik i meistara- og A-flokki, einliða-
og tviliðaleik karla og tviliðaleik kvenna i A-flokki svo og tviliðaleik i
öldungaflokki.
Allir helztu badmintonmenn landsins búa á Reykjavikursvæðinu,
svo ljóst er að þarna verður um afar harða keppni að ræða. Haraldur
Korneliusson verður að visu að teljast sigurstranglegastur allra
keppenda, en það hefur sýnt sig i vetur, að hann getur tapað óvænt.
Það gæti t.d. orðið um hörkukeppni að ræða milli hans og Sigurðar
Haraldssonar i einliðaleiknum, og eins milli Haraldar og Steinars
Petersen annars vegar og Sigurðar og Garðars Alfonssonar hins
vegar i tviliðaleiknum.
SU ENSKA KEPPIR
Frjálsiþróttadeild ÍR gengst fyrir innanhússmóti i nokkrum völd-
um greinum frjálsiþrótta i Laugardalshöllinni i dag (31 marz),
klukkan 13,30.
Mót þetta er haldið i tilefni dvalar brezku stúlkunnar Lynn Ward
frá Solihull hérlendis, en hún mun keppa i 1500 m hlaupi kvenna sem
sérstakur gestur. Auk hennar munu m.a. keppa i hlaupinu Islands-
methafinn Lilja Guðmundsdóttir, 1R, og Ragnhildur Pálsdóttir,
IJMSK. Ætla má að hér verði um skemmtilegt hlaup að ræða.
NÚNA VILL BEST
George Best er eins og vingull 1
klukku, hann segir eitt i dag, en annaö
á morgun. Þaö nýjasta er, aö hann vill
nú ólmur leika meö landsliöi
Norður-trlands, en alls ekki meö liöi
Manchester United. Ek|ii er langt
siðan Best sagðist vera alveg hættur
knattspyrnu.
Engin skýring hefur fengizt á hinum
skyndilega áhuga Best að leika með
norður-irska landsliðinu Forráðamenn
landsliðsins vilja ólmir fá Best i liðið,
þvi hann hefur enn aðdráttarafl fyrir
áhorfendur. Fáist leyfi Manchester
United, mun Best leik i Bretalnds-
keppni landsliða i vor.
Nýjustu fréttir frá Englandi herma,
að Tommy Docherty framkvæmda-
stjóri Manchester United hafi beðið
Best að koma til félagsins. „Enginn
yrði eins glaður og ég, ef þú kæmir til
okkar aftur”, hefur Docherty sagt.
Það óvænta var aö gerast febrúarnott eina i Kingstown i
Jamaica. Joe Frazier er sigraöur, og nýr maöur hefur tekiö viö
kórónunni, George Foreman. „Þetta var daprasta stund llfs
mins,” sagöi Frazier er hann sá þessa frábæru ljósmynd. Enda
enginn furða, þar sem hann, heimsmeistarinn sjálfur, tapaöi strax
i annarri lotu.
BYRJA!
FRAZEB Ftli IGOHLU GRYHUHfl
- VANMAT ANDSIÆUNG SINN ALVEG
Þegar Joe Frazier undirritaöi samning viö George Foreman um
kappleik í hnefaleikum fyrr á þessu ári, hvarflaöi ekki annaö aö
honum cn þetta yröi léttur Ieikur, einskonar æfing fyrir keppnina
viö Cassius Clay, eða Muhamed Ali eins og hann vill sjálfur kalla
sig. En George Foreman var miklu betri hnefaleikari en Frazier
haföi nokkru sinni getað imyndaö sér, og blóöugur og hálfruglaöur
mátti Frazier staulast f horn sitt um miðja 2. lotu. Að baki honum
dansaöi Foreman striösdans, hann var nýi heimsmeistarinn i
þu ngavigt hnefaleikanna. Frazier haföi falliö á þvi gamla bragöi
sem svo margir fþróttamenn hafa falliö á I gegnum árin, nefnilega
að vanmeta andstæðing sinn. Og þetta vanmat kostaöi hann
kórónuna.
Með hægri hönd sem Ingimar
Johanson, snerpu sem Cassius
Clay, baráttuþrek sem Joe
> Frazier, ró, fhygli og aðeins þá
hugsun i höfðinu að bíða eftir
færi fyrir sina ógnvekjandi
sterku hægri hönd, þannig var
myndin af George Foreman
þessa febrúarnótt i Jamacia.
Þannig er myndin af hinum ný-
bakaða heimsmeistara, 24 ára
gömlum svertingja frá Banda-
rikjunum.
Kappleikurinn við Frazier var
39. kappleikur Foreman sem
atvinnuhnefaleikara. Hann
hafði hlotið sigur i öllum
leikjunum, og aðeins þrjá þeirra
hafði hann unnið á stigum, hina
36 hafði hann unnið á rothöggi.
A þessum langa lista var fátt
um fræg nöfn, en þó var ljóst á-
þessum einstæða ferli, að
George Foreman var hnefa-
leikari sem stefndi á toppinn.
Heimsmeistarinn Frazier var
ekki i fullri æfingu er hann gekk
til leiksins gegn Foreman. Hann
var nýlega búinn að ljúka
hljómleikaferðalagi um
Evrópu. en hann hefur einnig
fengizt við söng auk hnefaleik-
anna. Hugurinn var bundinn við
fyrirhugaðan leik við Cassius
Clay, sem átti að gefa honum
þrjár milljónir dollara i aðra
hönd eða sem svarar 290
milljónum islenzkra króna.
Hann leit á leikinn við Foreman
sem ágæta æfingu, sem þó gæfi
drjúgan pening i aðra hönd. t
sannleika sagt leit hann á Fore-
man sem ungan viðvaning, sem
hreinlega gæti ekki unnið hann.
Og þvi sló Frazier til, jafnvel
vitandi um að hann var ekki i
góðri æfingu.
George Foreman er fæddur i
Huston i Texas. Hann er af
fátæku foreldri kominn. Hann
naut litillar skólagöngu, enda
var þá ekki algengt að blökku-
fólk i fátækrahverfunum hefði
tækifæri til sliks. Aftur á móti
varð fljótlega ljóst er sveinninn
óx úr grasi, að hann var allra
sveina sterkastur i fátækra
hverfinu, og eldri sveinar höfðu
ekkert i hann að segja. Það kom
fyrir i nokkur skipti að Foreman
varð að sitja inni smátima, ekki
vegna afbrota, heldur vegna
þess að hann var heldur harð-
hentur i slagsmálum.
Foreman lærði kúnstir hnefa-
leikanna þegar hann dvaldi við
störf i Kaliforniu, og hann var
ekki enn orðinn 20 ára gamall er
hann var valinn i lið Bandarikj-
anna á Olympiuleikunum i
Mexico 1968. Gulliö var hans, og
hann vakti almenna reiði
blökkumanna i Bandarikjunum
er hann neitaði að taka þátt i
mótmælum Svörtu hlébarð-
anna. 1 stað þess að steyta
svartklæddum hnefa i banda-
riska fánann við verölaunaaf-
hendinguna, veifaði hann litlum
bandariskum fána.
Foreman vill ekki ræða
stjórnmál. „Ég er ekki eins
vitlaus og fólk heldur. Ég hef
minar skoðanir, en ég vil bara
ekki ræða þær opinberlega. Mitt
eina markmið þessa stundina er
að verja heimsmeistaratitil
minn”.
Eftir að hafa unnið gullið i
Mexico varð hann að sjálfsögðu
atvinnumaður. En ekki gekk
honum of vel i byrjun, þótt hann
hafi nú sigrazt á öllum erfiðleik-
um. Foreman þykir mjög geð-
þekkur maður, og hann er
þekktur fyrir það að fylgja
fyrirmælum þjálfara sins út i
yztu æsar, og reglusemi hans og
áhugi við æfingar er einstæður.
Hann hefur ekki undirritað
neinn samning ennþá, en liklega
verður á næstunni undirritaður
samningur milli hans og
Cassiusar Clay sem næsta
áskoranda. Annars er listinn
yfir áskorendur þessi i réttri
röð: 1. Cassius Clay, 2. Joe
Frazier, 3. Jimmey Ellis, 4.
Jerry Quarry, 5. Ron Lyle. Allt
eru þetta Bandarikjamenn.
Hver sem verður næsti mót-
herji Foreman, er öruggt að
hann verður ekki vanmetinn.
Foreman lætur slikt ekki henda
sig. Hann mun undirbúa sig af
natni fyrir hvern leik, eins og
verðugum heimsmeistara
sæmir, og hver veit nema hann
eigi eftir að halda titlinum i ára-
tugi? Það kæmi sérfræðingun-
um ekki á óvart. — SS.
Laugardagur 31. marz 1973.
o