Alþýðublaðið - 31.03.1973, Page 12
KÓPAVOGS APÓTEK
Opið öll kvöld til kl. 7,
nema laugardaga til
kl. 2, sunnudaga milli
kL 1 09 3 Sími 40102.
SENDIBIL ASWVIN Hf
á landinu. Gott
veður mun verða í
Amerískir barir að fá
ópersónulegri svip?
TOLVU-SNAFSAR ÞAÐ NYJASTA
HÆG
NORÐAN
OG
FROST
Gert er ráð fyrir
rólegri norðanátt og
frosti um allt land,
sögðu þeir okkur á
veðurstofunni, þegar
við höfðum sam-
band við þá í gær-
kvöldi. Búast má við
smá-éljum á N-
Austurlandi, en hins
vegar verður bjart
veður annars staðar
Reykjavik og
nágrenni á morgun
og verður þá
væntanlega gott
skíðaveður í
Bláf jöllum.
Byltingarhótun vofir
yfir vinbörunum i
Ameriku Og það eru bar-
þjónarnir sem eru i
hættunni. Gestirnir
standa nú andspænis
sársaukafullri breytingu.
Málið er, að tölvurnar
eru nú farnar að láta að
sér kveða við barborðið.
Ýmis fyrirtæki hafa búið
til tölvur, sem blanda
drykki, — og reikna
nákvæmlega á fullu
verði, hvern þann dropa,
sem i þá fer.
Það er Wall Street
Journal, sem segir frá
þessu. Þetta virta fjár-
málarit skýrir frá þvi aö
mörg hundruð af þessum
nýju hanastélstölvum
hafi nú verið seldar, og að
markaðurinn fyrir þær sé
stór.
Ef litið er burt frá
þessum almennu vél-
væðingartilhneigingum á
vorum timum, er
forsenda þessa nýja
viðundurs svo sem nægi-
lega ljós: Amerisku bar-
þjónarnir eru ekki vél-
menni. Einn drykkurinn
verður e.t.v. aðeins of
veikur og annar aðeins og
sterkur. Það er meira að
segja hægt að segja við
barþjóninn að leggja nú
,,a heavy hand on the
gin” (að halla nú gin-
flöskunni duglega). Bar-
þjónar hafa einnig fyrir
vana að bjóöa fastagest-
um upp á ókeypis drykk
stöku sinnum. Veitinga-
húsaeigendurnir telja
einnig, að barþjónarnir
noti tækifæri til þess að
verða sér úti um smá-
aukapening — meö litlum
hrekkjum.
Hanastélstölvurnar eru
ekki útbúnar með slikum
og þvilikum veikleikum.
Þær mæla ekki blönduna
eftir auganu, þær fram-
reiða alltaf drykki af
sama styrkleika, þær
bjóða aldrei upp á einn
litinn fyrir litið — og þær
slúðra ekki við gestina. f
stuttu máli sagt — fram-
tiðin er þeirra, segir fjár-
málablaðið.
HERHVOT
Öll búvara er dýr!
Öll búvara er dýr!
Við hundsum allan landbúnað
og hross og ær og kýr!
Meiri ís?
Við erum fátækt fólk!
Við erum fátækt fólk!
Við höfum ekki ráð á
að kaupa skyr og mjólk!
Við þekkjum þröngan kost!
Við þekkjum þröngan kost!
Og buddan leyfir ekki
að biðja um smjör og ost!
Við kaupum ekki kjöt!
Við kaupum ekki kjöt!
Við herðum sultarólina
um næstu tvö þrjú göt!
SKÆRIN A LOFTI
VERÐUR JÓHANN HAFSTEIN
NÆSTI FORSETI A.S.I.?
Nýtt land.
„Islenzkir fréttamenn hafa t.d. verið
i Vietnam, Biafra, Tékkóslóvakiu,
Bangladesh og á Norður-Irlandi og þar
hafa þeir verið algerlega á eigin
ábyrgð. Sömu sögu er að segja um
erlenda fréttamenn, þeir hafa jafnvel
farið enn viöar..”
Mbl.
Köttur í óskilum
Hvíbur köttur sýnilega gælu-
dýr, er í óskilum í Nesti í Fos&-
l vogi.
Munið
eftir
smá-
fuglunum
Mbl.
MUNIÐ
RAUÐA
KROSSINN
Alþingismenn og borgarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins verða til við-
tals i Galtafelli, Laufásvegi 46, á
laugardögum kl. 14.00 til 16.00 eft-
ir hádegi.
Vísir.
TÍMINN ER PENINGAR
ÞAÐ KOSTAR LIKA SKILDINGINN
ÞEGAR TfMINN STENDUR í STAD
Vegfarendur i mið-
bænum i gær hafa kannski
tekið eftir þvi, að klukkan á
Útvegsbankanum var
biluð. Þetta erekki ný bóla,
þvi klukkan bilar að meðal-
tali tvisvar i mánuði, og
það kostar bankann allt að
250 þúsund krónur á ári að
halda uppi þessari klukku-
þjónustu fyrir - veg-
farendur.
Blaðið fékk i gær þær
upplýsingar hjá Reyni
Jónassyni skrifstofustjóra
bankans, að samkvæmt
reikningum bankans
kostaði útgerð klukkunnar
190 þúsund krónur árið
1971. Mestur varð
kostnaðurinn eitt árið 250
þúsund krónur. Algengast
er að mótorinn sem snýr
klukkunni gefi sig í miklu
roki, eða þá að neon-
pipurnar skemmist. Þrjú
fyrirtæki sjá um viðgerðar-
þjónustuna, og þau verða
öll að samræma störf sin.
„Við gefumst ekki upp,
hvað sem á bjátar, þvi
klukkan er orðin okkar
tákn, auk þess sem hún
veitir góða þjónustu þvi
hún gengur yfirleitt rétt.
En kostnaðurinn er vissu-
lega mikill, og ekki má
gleyma þvi aö hún kostaði
á sinum tima yfir eina
milljón sem þá var-stórfé”,
sagði Reynir.