Alþýðublaðið - 11.04.1973, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 11.04.1973, Blaðsíða 3
Vörusýningar - nýjung í verzlunarvenjum fólks HELZTU ATRIÐI Opnun sýningarinnar •Sýningin verður opnuð fimmtu daginn 17. mai að viðstöddum forsetahjónum og um 600 boðs- gestum. Opnunartími • Sýningin verður opin daglega kl. 15-23 (aðgangi lokað kl. 22) dagana 18. mai — 3. júni, opn- unardaginn 17. mai kl. 18 fyrir almenn.a gesti. (Jtisvæði • A útisvæðinu verða m.a. til sýnis: Sumarhús, heilsárshús, byggingareiningar, hjólhýsi, leiktæki, gróðurreitir og hugsanlega sportbátar, mótor- hjól, bilar o.fl. frá innlendum og erlendum framleiðendum. Húsnæðismál • Sérstök sýningardeild er á áhorfendapöllum. í henni taka þátt Húsnæðismálastofnun rikisins, Iðnþróunarstofnun Is- lands og Reykjavikurborg. Tizkusýningar • Tizkusýningar verða daglega. i veitingasal (nema um helgar) jafnvel tvisvar á dag suma daga. Kvöldvökur, skemmtiatriði • Reynt verður að gera sýningu þessa að nokkurs konar heimilishátið, m.a. með þvi að bjóða upp á stutt skemmtiatriði þekktra og vinsælla listamanna. Veitingar • Veitingar verða á boðstólum allan sýningartimann i veit- ingasal. Veitingar annast fyrir- tækið A. Hansen & Co. Gestahappdrætti • Með hverjum aðgöngumiða að sýningunni fylgir happ- drættismiði. Dregið verður um einn eða fleiri vinninga daglega. Stórar vörusýningar eru að verða fastur liður í verzlunarvenjum fólks, og það er að verða sér- grein hérá landi að halda slíkar sýningar og und- irbúa þátttöku fyrirtækja í þeim. Fyrirtækið Kaupstefnan í Reykjavík opnar í Laugardalshöll inni í næsta mánuði þriðju af þeim fjórum stórsýning- um, sem fyrirtækið heldur á árabilinu 1970-1975, og ber þessi sýning nafnið Heimilið 73. Fyrst af þessum sýningum var Heimilið — veröld innan veggja, sem haldin var árið 1970, en ári siðar var svo haldin stærsta og fjölsóttasta stór- sýning sem hér hefur verið haldin, Alþjóðlega vörusýning- in. Sýning af þvi tagi en i stærra mæli verður svo haldin 1975. Gisli B. Björnsson, stjórnar- maður Kaupstefnunnar i Reykjavik og Bjarni Ólafsson, framkvæmdastjóri sýningar- innar Heimiliö 73 skýrðu frétta- mönnum frá þvi i gær, að þátt- taka fyrirtækja 1 þessum sýn- ingum hefði vaxiö stöðugt, og reyndin væri orðin sú, að fyrir- tækin, sem éitt sinn sýna, taki yfirleitt þátt i næstu sýningu, og þá stækki þau sýning- arsvæði sitt oftast verulega. Þetta væru þvi orðnir einskonar fastakúnnar, en ný fyrirtæki séu nú um það bil 20% aöila. Kaupstefna almennings Heimilissýningin er ef til vill fyrst og fremst kaupstefna, sagði Gisli, og það hefur komið i ljós, að mjög mikið af ungu fólki, sem er að stofna heimili, eða bæta við sig húsbúnaði, not- ar mikið fyrri hluta dags, þegar næði er meira i sýningarhöll- inni, til að skoða hvað hin ýmsu fyrirtæki hafa á boðstólum, ræða við sölumenn fyrirtækj- anna, þiggja bæklinga og kynna sér verð og greiðsluskilmála. Þetta fólk kemur gjarnan aftur og aftur, og siðan hugsar það málið, kemst að sinni niður- stöðu og kaupir svo i verzlunun- um þær vörur, sem það hefur kynnt sér á sýningunni. Með þessu móti hefur þróazt nokkuð nýr verzlunarmáti, sem ekki hefur veriö grundvöllur fyrir án slikra sýninga. Vörukynning Sýningaraðilar hafa einnig lært að notfæra sér þetta, og þeim fyrirtækjum hefur fjölgað sem nýta sér til fullnustu mögu- leikana á að stunda slika vöru- kynningu, sem leiðir af sér sölu i verzlunum viökomandi fyrir- tækja. Hins vegar eru enn til fyrirtæki, sem fjárfesta i dýrum sýningadeildum, en spara svo þann kostnað að hafa góða sölu- menn allan sýningartimann og upplýsingabæklinga. í þeirri deild,. þar sem heimilistæki og húsbúnaður er til sýnis er hins vegar lögð mjög mikil áherzla á það að sýningar- aöilar spari ekki þennan kostn- aö, enda er hann forsenda þess að fyrirtækin geti hagnazt vel á sýningunni með aukinni sölu. Allar upplýsingar Þar eiga sýningargestir ein- mitt að geta fengið allar upplýs- ingar um vöruna, verð hennar og annað, sem máli skiptir. Varðandi aðstöðu i Laugar- dalshöll sagði Gisli að hún væri orðin allt of slæm til að halda þar stórar sýningar. Ný íþróttahús Brýna nauðsyn bæri til að fyrir stóru vörusýninguna 1975 yröi búið að reisa nýja skála, og tilvalið væri að sameina þá skála iþróttahúsum, þannig til dæmis að reist yrði skautahöll, sem notuð yrði sem sýninga- skáli þegar stórar sýningar eru. Ráðgert er að nýta malbikuðu flötina vestan megin við höllina fyrir útisýningasvæði á heimilissýningunni — en islenzkt veðurfar setur útisýn- ingum að sjálfsögðu veruleg takmörk. Þess vegna álita for- ráðamenn Kaupstefnunnar að það þurfi að nýta hið fyrsta möguleikana á að sameina frek- ari iþróttabyggingar vörusýn- ingum. HEIMILIB73 Heimilissýning opnuð í næsta mánuði LODNUVEIDI OKKAR HREINT smAræði miðad við an- SlðSUVEIÐAR PERÚMANNA Þótt okkar loðnumjölsverk- smiðjur hafi brætt loðnu dag og nótt frá áramótum, er afrakstur þeirra lítill borinn saman við Perú. Fyrstu vikuna sem verk- smiðjurnar i Perú voru að störf- um, framleiddu þær 90 þúsund lestir af ansjósumjöli, en okkar verksmiðjur hafa framleitt um 60 þúsund lestir frá áramótum. Sést af þessu hversu Perúmenn eru gifurlega stórtækir á mjöl- markaðnum. Sjóveiði Norðmanna, metveiði okkar og ágæt veiði Perú, munu örugglega leiða til lækkaðs mjöl- verðs á næstu vikum. Þetta mun ekki snerta framleiðslu okkar á þessari vertiö, en gæti snert framleiðslu næstu vertiðar haldi AUGLÝSINGASÍMINN OKKAR ER 8-66-60 Perúmenn áfram sinum miklu veiðum. Ansjósuveiðar Perúmanna eru farnar að nálgast tvær milljónir lesta. Verða þær stöðvaðar þegar þvi marki er náö, en veiðarnar verða væntanlega leyfðar að nýju i haust og þá leyft að veiða tvær milljónir lesta. Norðmenn höfðu um siðustu helgi veitt rúmlega milljón lestir af loðnu, en aflinn hjá okkur er um 430 þúsund lestir. Haffræðingar i Perú eru ekki hlyntir eins miklum veiðum og stundaðar hafa verið. Benda þeir á að ansjósustofninn sé ekki sterkur, til dæmis bendi litið fitu- innihald ansjósunnar til þess. En stjórnvöld i Perú hafa verið treg til að takmarka veiðarnar, þvi þær hafa mjög mikla efnahags- lega þýðingu fyrir þjóðina. Má nærri geta, þegar þess er gætt að dagveiðin getur farið upp i 100 þúsund lestir. „Næsta Dvalarheimili fyrir aldraða sjómenn ris i Hafnar- firði”, sagði Baldvin Jónsson, framkvæmdastjóri DAS-happ- drættisins, er hann kynnti stærsta vinning hins nýbyrjaða happdrættisárs, einbýlishús i Garpahreppnum. Kostnaður við byggingu hússins nam nálægt 6 milljónúm króna. Kjartan Sveinsson, bygg- ingartæknifræðingur, teiknaði húsið, sem er 195 fermertrar að stærð. Lauk Kjartan miklu lofs- orði á allan frágang og smiði, en byggjendur hússins voru þeir Arnar Sigurðsson og Konráð Guðmundsson. Húsið er fullgert til ibúðar, en efni og tæki eru frá ýmsum fyrirtækjum. Sjón er sögu rikari, og verður þetta nýj- asta DAS-hús til sýnis með öll- um húsbúnaði til 2. mai, virka SERFRÆDINGUR f AFBROTUM HELDUR ERINDI 1 dag heldur prófessor Nils Christie frá Osló tvo fyrirlestra hér á landi. Fyrri fyrirlesturinn verður fluttur i Háskólanum klukkan 17 i dag, og fjallar hann um afbrotafræði. Þá flytur hann einnig fyrirlestur i Norræna húsinu kl. 20.30 i kvöld, og fjallar hann um æskulýðs- og skólamál. A laugardaginn heldur prófessor Christie annan fyrir- lestur i Norræna húsinu og fjallar sá um afbrot i nútima þjóðfélagi. Sá fyrirlestur hefst klukkan 16. ASHKENAZY LEGGUR SITT AF MÖRKUM Vladimir Ashkenazy hyggst halda tvenna tónleika til styrktar Vestmannaeyingum. Sá fyrri verður haldinn i Borgarbiói á Akureyri laugardaginn 14. april klukkan 17, og sá siðari mánu- daginn 16. april i Háskólabiói. Þetta verða einu tónleikar Ashkenazy að þessu sinni, en hann er hér staddur i frii. Fljótlega eftir að eldsumbrotin hófust i Vestmannaeyjum, setti Ashkenazy sig i samband við bæjarstjórn Vestmannaeyja og bauðst til að leika endur- gjaldslaust til styrktar Vest- mannaeyingum. Hefur nú orðið að ráði að hann haldi þessa tvenna tónleika. A efnisskránni verða verk eftir Mozart, Beethoven og Chopin. MÁL SEM VARÐAR ALLA HUNDA Hundamálið verður munnlega flutt i borgardómi i dag. Mál þetta höfðaði Asgeir Hannes Eiriksson gegn borgarstjóranum i Reykjavik, Heilbrigðisráðu- neytinu og Dómsmálaráðuneyt- inu vegna banns við hundahaldi. Telur stefnandi, að ekki liggi rök til þess, að honum sé meinað að eiga hund, og að samþykkt þess efnis, sem borgarstjórn Reykja- vikur hefur gert, og reglugerð i samræmi við hana, sé meðal ann- ars skerðing á almennum mann- réttindum. Úrslit þessa máls hafa þvi almenna þýðingu, og er auk þess svo sérstætt, að það verður flutt sem prófraun a.m.k. tveggja lögfræðinga til málflutningsrétt- inda I héraðsdómi. Auglýsingasíminn okkar er 8-66-60 daga kl. 18-22, en frá kl. 14-22 á laugardögum og helgum. Auk hins glæsilega einbýlis- húss verða á happdrættisárinu dregnir út 100 bilar, þeirra á meðal Mercedes Benz 280 S, sem kostar um 1.750 þúsund krónur. Er hann meðal vinninga i 1. flokki. 1 hverjum mánuði verður kr. 750 þúsund ibúðar- vinningur og á happdrættisár- inu verða einnig 24 utanlands- ferðir meðal vinninga, og 4664 húsbúnaðarvinningar. 1 nýja DAS-húsinu er mikil húsprýði að sýningu á mályerk- um eftir Atla Má, sem flest eru til sölu. Verð happdrættismiða er óbreytt og gengur allur ágóði af happdrættinu til byggingar dvalarheimila aldraðra sjó- manna. o Miövikudagur 11. apríl 1973.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.