Alþýðublaðið - 11.04.1973, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 11.04.1973, Blaðsíða 12
Auglýsingasími Alþýðublaðsins er 86660 KOPAVOGS APÚTEK Opið öll kvöld til kl. 7, nema laugardaga til kl. 2, sunnudaga milli kL ' °S 3 Simi 40102. Áin sem dó Þorðu varla að láta nem- endurna fá sýnishornin Mengun hefur nú drepift allt lif f Varmá i Mosfellssveit. Ain er orðin gruggug og lituð, og mikill óþrifnaður er i henni, en áður var þetta góð iaxveiðiá, og reyndar þrifust þar fleiri fisk- tegundir til skamms tima. All, sem þolir slæmar aðstæð- ur, lifði i ánni en maöur einn, vel kunnur, telur að hann sé nú einnig útdauður eða flúinn i aðrar hreinni ár. Aðal mcngunarvaldurinn mun vera verksmiðjan aö Ala- fossi; en daglega rennur tals- vert magn af eiturefnum og hverskyns úrgangi frá verk- smiöjunni beint i ána. Talsverö byggð er einnig i nálægð árinnar og rennur skolp frá allflestum húsum í ána. Blaðið hafði i gær tal af Agústi H. Bjarnasyni, menntaskóla- kennara, en hann fór meö nemendur sina upp aö Alafossi i vetur til að sýna nemendum mengunina. Sagði hann aö ástandið væri ótrúlega slæmt og það hafi verið samhljóma álit nemenda, að þeir hefðu ekki trúað, að annar eins sóðaskapur viðgengist. Nemendurnir tóku fjölda sýna víðsvegar i ánni, en greinilegt var að hún gjörspilltist við skolpið, sem kom frá Aiafossi. Sýnin eru enn i rannsókn. Auk þess fengu nemcndur sýnishorn af ýmsum þeim efnum, sem notuð eru I verksmiðjunni og rcnna siöan út i ána. Voru sum þeirra það sterk og hættuleg, að starfsmenn ætluðu vart að þora að láta nemendurna fá þau. Mcðal efna sem nemendur fengu má nefna maurasýru, kalium dikromat, karbónatsoda o.fl. Flest eru efni þessi mjög sterk, og flest þeirra eyðast ekki, þegar þau koma út i náttúruna. Ain rennur þétt við tvær hliðar verksmiðjuhússins, og eru fjögur op á veggjunum, þar sem úrgangurinn kemur beint út i ána. Að sögn nemenda er ástandið svo slæmt, þegar viss ker I verksmiðjunni eru tæmd, að áin litast, og ullarlagðar setjast á steina og bkaka. Tóku þeir sýni úr ánni viö eitt slikt tækifæri, og lýsir það bezt ástandinu, að vatnið var svo gruggugt i litlu tilraunaglasi, aö ekki sást i gegnum það. Samkvæmt upplýsingum Þorbjörns Friðrikssonar, efna- færðikennara við M.T. er þarna um að ræða mjög sterk hreinsi- éfni, og brotna fæst þeirra niður, þegar þau koma út i náttúruna. Sagði hann að sum sýnin minntu miklu fremur á sápu- vatn en bergvatn, og væri áin neðan við verksmiðjuna nánast sem opið klöak. — ALLT SUDUR- LANDSUNDIR- LENDI Ein DÆJARFELAG í atvinnulegu tilliti — er þróunin samkvæmt Suðurlandsóætluninni I Suöurlandsáætlun er gert ráð fyrir, að i framtiðinni miðist vinnumarkaðir á Suðurlands- undirlendi við, að komizt verði á klukkutfma eða styttri tima til til- tekins staðar, og er þá miðað við, að vegir verði lagðir varanlegu slitlagi. Sem dæmi er néfnt, að þegar kominn verður vegur með varan- legu slitlagi milli Selfoss, Hellu og Hvolsvallar verði þessir staðir á sama vinnumarkaðssvæði. Vega- lengdin milli Selfoss og Hellu verður þá 35 km og milli Selfoss og Hvolsvallar 50 km. og ekkert þvi til fyrirstöðu, að fólk geti búið á einum þessara staða en sótt vinnu á öðrum. Miðað við þetta klukkutima mark er' reiknað með, að sjö þúsund af átta þúsund ibúum Árnessýslu séu innan marka Sel- foss og einnig 15-1800 af þrjú þúsund ibúum Rangárvallasýslu Islenzkur ballett í uppsiglingu # Stofnun ballettflokks er nú i undirbúningi og er kominn til landsins ballettmeistari, Allan Carter að nafni, sem ætlar að hjálpa til við stofnuna. Ekki er á hreinu, hvernig rekstrar- form flokksins verður, en Menntamálaráö Islands ætlar að leggja fram 300 þús. kr. til hans. Heildarf jöldi þeirra, sem gætu þá sóttvinnu á Selfossi yrði þá nærri niu þúsund. A svæði Hellu og Hvolsvallar er sennilega nær öll Rangárvalla- sýsla innan klukkutimamark- anna eða þrú þúsund af 3200 ibúum. Auk þess eru 4200-4500 af ibúum Arnessýslu á þessu svæði, og eru þá um 7500 á svæði Hellu og Hvolsvallar. .VIDLAGASIODUR HNEPPIR VEST- MANNAEVINGA I ÁTTHAGAFJOTRA’ ,,Lögin um Viðlagasjóð gera ráð fyrir, að Vestmannaeyingum sé að mestu leyti bætt það tjón, sem þeir hafa orðið fyrir, en reglugerðin, sem Viölagasjóður starfar eftir nú, dregur þetta i land, og nú er svo komið, að Vest- mannaeyingar geta sig hvergi hrært, eru hnepptir i átthaga- fjötra”, sagði Jón Hjaltason, for- maður Húseigendafélags Vest- mannaeyinga á mjög fjölmenn- um fundi félagsins, þar sem ekki voru færri- en þúsund fundar- menn. Jón benti máli sinu til stuðnings á grein i reglugerðinni þar sem stendur: „Allar ráð- stafanir skulu við það miðaðar, að menn þessir snúi aftur til Vest- mannaeyja”, og benti ennfremur á, að orðalagið „menn þessir” lýsi einstæðri mannfyrirlitn- ingu.” Miklar umræður spunnust um húsnæðismálin, og það sérstak- lega gagnrýnt, að Vsestmannaey- ingar skuli ekki geta eignazt hús- næði á meginlandinu. 1 þvi sam- bandi var samþykkt tillaga þar sem gert er ráð fyrir, að Húseig- endafélagið eða byggingasam- vinnufélög einstakra meölima þess standi fyrir byggingu húsa á Reykjavikursvæðinu. Lýstu margir sig fúsa til þess að ganga i slik byggingafélög. Þá var rætt um kaup tilbúinna húsa á Norðurlöndunum og m.a. gagnrýnt, að kaupa eigi sænsk hús, sem eru mun dýrari en þau norsku. Upplýsti Jóhann Frið- finnsson, bæjarfulltrúi i Vest- mannaeyjum, sem nú á sæti i húsanefnd Viðlagasjóðs, að ný- lega hafi borizt frá Sviþjóð boð um mun ódýrari hús en áður hafði verið rætt um. Nú er verið að athuga, hvort þau séu sambæri- leg að gæðum og önnur hús, sem Viðlagasjóði hafa boðizt. Landhelgis- málið á filmu ,240 fiskar fyrir kú” „240 fiskar fyrir kú”, heitir kvikmynd, sem Magnús Jóns- son leikhússtjóri á Akureyri, hefur gert um landhelgismál- ið. Naut Magnús 500 þús. kr. styrks frá Menntamálaráði til kvikmyndagerðarinnar, og 250 þús. kr. lagði Fiskimála- sjóður fram. Við frumsýningu myndarinnar i gær gat Magnús þess, að „beinn út- lagður kostnaður við kvik- myndagerðina” væri orðinn rösklega ein millj. kr. Myndin er 20 minútna litmynd og annaðist Ernst Kettler kvik- myndatöku og klippingu. Ekki er ákveðiö hvernig myndinni verður dreift, en áætlað er að gera fimm eintök til að byrja með: tvö með is- lenzkum texta og þrjú með enskum. Eftir frumsýningu myndarinnar i gær lét Björn Th. Björnsson, listfræðingur, þau orð falla, að kvikmyndin væri vel fræðandi og skemmti- lega farið með liti i henni. Menntamálaráð Islands hefur ákveðið að hækka styrk sinn til kvikmyndagerðar i ár upp i 650 þús. krónur.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.