Alþýðublaðið - 08.05.1973, Síða 9
Iþróttir 2
SVAVAR BAR AF
islandsmeistaramótiö i judó
fór fram um helgina. Mjög mikil
þátttaka var i mótinu, og
margar glimur mjög snaggara-
legar og spennandi. Svavar
Carlsen JR sýndi þaö aö hann er
okkar bezti judómaöur. Hann
sigraöi meö yfirburöum i
þungavikt, en tók ekki þátt i
opna fiokknum vegna meiðsla.
Þar sigraöi Skoti sem keppti
sem gestur. Heföi veriö fróölegt
að sjá hann giima viö Svavar.
Úrslit i einstökum flokkum
urðu þessi:
Opinn flokkur (án þyngdartak-
markana)
1. Edward C. Mullen, Skotl.
2. Siguröur Kr. Jóhannsson,
J.R.
Þungavigt (yfir 93 kg.)
1. Svavar M. Carlsen, J.R.
2. Hannes Ragnarsson, J.R.
Léttþungavigt (81-93 kg.)
1. Siguröur Kr. Jóhannsson,
J.R.
2. Biarni Biörnsson, J.R.
J.R.
Millivigt (71-80 kg.)
1. Sigurjón Kristjánsson,
2. össur Torfason, J.A.
Léttmillivigt (64-70 kg.)
1. Edward C. Mullen, Skotl.
2. Halldór Guðbjörnsson, J.R.
Léttvigt (63 kg. og léttari)
1. Hörður Harðarson, J.R.
2. Haukur Harðarson, J.R.
Kvennafiokkur
1. Sigurveig Pétursdóttir, J.A.
2. Anna Hjaltadóttir, J.A.
Drengir, 16-18 ára
1. Sigurjón Ingvarsson, J.A.
2. Kristján Ari Einarsson, J.A.
Drengir 14-15 ára
1. Viðar Guðjohnsen, J.A.
2. Hafsteinn Svavarsson,
Drengir 12-13 ára
1. Pétur Pálsson, UMFG.
2. Karl F. Arnarson, J.A.
Drengir, 8-11 ára
1. Bergþór Haraldsson, J.A.
2. Jóhannes Guðjónsson, J.A.
Svavar leggur andstæöing sinn.
J.A.
VALUR OG VIKINGUR UNNU
Vlkingur sigraði Armann 2:0 I
Reykjavikurmótinu I gærkvöld, i
mjög lélegum ieik. A laugardag-
inn vann Valur mjög óveröskuld-
aöan sigur yfir Þrótti 1:0, og á því
enn möguleika á sigri I mótinu.
Veður var heldur bágborið til
knattspyrnuiðkunar i gærkvöld,
súld og hráslagalegt. Vikingar
léku mjög illa gegn Armanni I
byrjun, og átti Armann um tima
betri marktækifæri. I siðari hálf-
leik sóttu Vikingar mjög og tókst
að skora tvisvar. Fyrst var það
Stefán Halldórsson á 54. minútu,
eftir undirbúning Eiriks Þor-
steinssonar, og siðan Jóhannes
Bárðarson á 63. minútu. Rang-
stöðulykt var af þvi marki.
Jón Ólafsson og Magnús Þor-
valdsson voru beztu menn Vik-
ings, en i liöi Armanns var Jón
Huddersfield
niður í 3. deild
Cardiff og Sunderland geröu
jafntefli I 2. deild I Englandi I
gærkvöld 1:1, og þar meö er
Huddersfield falliö I 3. deild.
Woodruff geröi mark Cardiff, en
Halom mark hinna nýbökuöu bik-
armeistara, sem var innilega
fagnaö.
Þá var Leeds enn I taphugleiö-
ingum, tapaöi 3:4 gegn Celtic, i
kveðjuleik Jackie Charlton. Ips-
wich vann Norwich 2:1 i úrslitum
Texaco bikarsins, og bar þar meö
sigur úr býtum I keppninni — SS.
Hermannsson i algjörum sér-
flokki.
Valur átti mjög i vök að verjast
i leiknum gegn Þrótti, og það var
mikil heppni aö liðiö skyldi vinna.
Eina mark leiksins gerði Þórir
Jónsson á 10. minútu fyrri hálf-
leiks.
í kvöld leika KR og ÍBV á Mela-
velli klukkan 20, og ætti það að
geta orðið spennandi viðureign —
SS.
YFIR SKOTUM
islendingar sigruðu Skota
örugglega í landskeppninni
á skíðum sem haldin var í
Hliðarf jallí við Akureyri
um heigina. Þetta er í
annað sinn sem við vinnum
Skota í landskeppni á skíð-
um. Það var svigkeppnin
sem gerði gæfumuninn, og
einkum þó íslenzku
piltarnir þar, því þeir
röðuðu sér í þrjú efstu
sætin.
Eftir stórsvigið á laugardag
höfðu Skotar nauma forystu,
678,78 sek.gegn 679,24 sek,islenzku
keppendanna. Arni Óðinsson fékk
bezta tima i karlaflokknum, og
Guðjón Sverrisson, Reyk-
vikingurinn ungi, varð óvænt
þriðji, en Skotar unnu þrefalt i
kvennaflokknum.
Sem fyrr segir var svo
islendinganna að sigra þrefalt i
karlaflokknum i sviginu á sunnu-
daginn, Arni var fyrstur fyrstur
Haukur Jóhannsson annar og
Jónas Sigurbjörnsson þriðji, allt
Akureyringar. 1 kvennakeppninni
urðu þær nöfnur Margrét
Baldvinsdóttir og Vilhjálmsdóttir
i öðru og þriðja sæti.
Island hlaut þvi 73 stig en Skot-
land 50 stig, en hætt var við að
láta sekúndurnar gilda þvi
margir urðu úr leik i svig-
keppninni. —SS.
SU LITLA ER A LOKASTIG
Litla bikarkeppnin er
komin á lokastig. Um
helgina fóru fram tveir
leikir, og þegar úrslit þeirra
lágu fyrir, var Ijóst að
aðeins Keflavik og Breiða-
blik eiga möguleika á sigri
i keppninni. Keflavik vann
Akranes 3:0 og Breiðablik
vann Hauka 3:1.
1 leik IBK og 1A var staðan i
hálfleik 1:0 og skoraði Jón Ólafur
mark heimamanna. i siðari hálf-
leik bættu Keflvikingar við
tveimur mörkum, fyrst nýliðinn
Stefán Jónsson og svo Astráöur
bakvörður með þrumuskoti af
löngu færi. í leik Hauka og
Breiðabliks, sem fram fór i
Hafnarfirði, urðu Haukar fyrri til
að skora, Þráinn Hauksson.
Guðmundur Þórðarson jafnaöi,
Hinrik Þórhallsson kom Bliktn-
um yfir og siðan bættu þeir við
þriðja markinu. Undir lokin mis-
notuðu Haukarnir vitaspyrnu.
Staðan er nú sú, að IBK hefur 7
stig, Breiðablik 6 stig IBH 4 stig,
IA 2 stig. IBK á eftir að leika við
FH, og Breiðablik á eftir að leika
við 1A uppi á Akranesi. —SS.
••
NÚ URÐU MflRGIR
RÍKIR AF LITLU!
Litla Sunderland tókst hiö
ótrúlega á laugardaginn, lagöi
Lceds aö velli i úrslitum ensku
bikarkeppninnar fyrir framan
100 þúsund áhorfendur á Wem-
bley. Og eins og vera ber viö
slikar athafnir, héldu nær allir
áhorfendurnir meö þeim minni
máttar, Sunderland. Gleöin var
þvi æöisgengin þegar Sunder-
land tókst aö skora, og haida
þessu eins marks forskoti til
endalokanna.
Það var sem sagt enginn
minnimáttarbragur á leik-
mönnum Sunderiand i þessum
leik. Þeir voru alls óbangnir við
hina frægu leikmenn Leeds, og
Harway markvöröur Leeds réö
ekki viö skot Ian Portfield.
þetta kom Leeds úr jafnvægi.
Liðið náði ekki sinu venjulega
spili á miðjunni og það gerði
gæfumuninn. Leeds sótti öllu
meira, en leikmenn Sunderland
voru ætið opnir fyrir sóknarleik,
og það gerði þennan úrslitaleik
aö einum þeim æsilegasta i sögu
keppninnar.
Sigurmarkiö kom á 31. minútu
fyrir hálfleiks.Skoti að nafni Ian
Porterfield náði að skora eftir
að hafa fengið knöttinn úr horn-
spyrnu. Siðar munum við gera
þessum merka úrslitaleik
nánari skil, og einnig verða þá
gerð nánari skil úrslitaleik
skozku bikarkeppninnar milli
erkifjendanna Rangers og
Celtic, en þeim leik lauk meö
sigri Rangers. —SS.
Þriðjudagur 8. maí 1973
Q