Alþýðublaðið - 22.06.1973, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 22.06.1973, Blaðsíða 5
lalþýóu MM Alþýðubladsútgáfan hf. Stjórnmálarit- |j st jóri Sighvatur Björgvinsson. Fréttastjóri Sigtryggur Sigtryggsson. Ritstjórnarfulltrúi Bjarni Sigtryggsson. Ritstjóri og ábyrgðarmaður Freysteinn Jóhannsson. Aðsetur ritstjórnar Hverfis- götu 8—10. Simi 86666. Blaðaprent hf. VERÐBÓLGUBÁL ÐLAFÍU — Við munum leitast við að tryggja, að verð- bólga verði ekki meiri hér á landi en i helztu ná- granna- og viðskiptalöndum Islendinga. Þannig hljóðaði eitt af loforðum rikisstjórnar ólafs Jó- hannessonar i loforðakveri þvi, sem hún setti saman við upphaf valdaferils sins. Þá trúðu þvi margir, að rikisstjórnin ætlaði sér að efna það, sem hún lofaði. Og sjálf lét hún rækilega i það skina, að það væri nú ekki neinum vandkvæðum bundið. En hvernig hefur rikisstjórnin efnt þessi lof- orð sin? Hvernig hefur hún t.a.m. efnt loforð sin i verðlagsmálum. Spyrjum húsmæðurnar — þær vita hvernig heimilispeningarnir endast, eða öllu heldur endast ekki. Spyrjum starfsfólkið á skrifstofu verðlagsstjóra, sem næstum daglega sendir frá sér tilkynningar um nýjar vöruverið- hækkanir. Og spyrjum hverja þá tölfræðistofn- un i landinu, sem gerir útreikninga á vexti dýr- tiðarinnar — t.d. Hagstofu Islands, sem fyrir nokkru sendi frá sér tilkynningu þar sem fram kom, að frá 1. febrúar til 1. mai þessa árs hefði verðbólgan aukizt um 11,1% miðað við visitölu framfærslukostnaðar. Og gerum okkur grein fyrir þvi, hvað þessi tala segir okkur. Hún segir okkur að á þrem mánuðum ársins i ár — á ein- um f jórða hluta ársins alls — hefur verðbólgan á Islandi aukizt talsvert meira, en verðbólgan hefur aukizt á heilu áriiöllum nágrannalöndum okkar i Evrópu og Norður-Ameriku. Það kann að vera til eitthvert riki i Suður-Ameriku eða Afriku, sem getur mælt sig við þennan met- verðbólguvöxt okkar Islendinga. Meðal van- þróuðustu þjóða heims þar sem stærstur hluti þegnanna kann hvorki að lesa né skrifa, kann sem sé að fyrirfinnast jafn vond rikisstjórn og nú stjórnar Islandi. En það eru ekki aðeins innlendar tölfræði- stofnanir, sem segja álit sitt á islenzkum verð- lagsmálum og þeim, sem þar ráða ferðinni — ráðaherrunum i rikisstjórn Ólafs Jóhannesson- ar. Hin virta stofnun OECD — Efnahags- og framfarastofnun Evrópu — hefur nýlega sent frá sér skýrslu um þróun efnahagsmála i aðildarrikjunum. Aðildarriki þessi eru, auk Is- lands, þau helztu nágranna- og viðskiptalönd, sem tilgreind voru i loforðakveri ólafiu að verð- hækkanir á Islandi skyldu miðast við. Og hvað segir þessi virta stofnun um islenzku verðbólg- una og samanburðinn við önnur lönd? Hún seg- ir, að ekkert riki i Vestur-Evrópu og Norður- -Ameriku komist með tærnar þar sem Island hefur hælana i verðbólgumálum. Á einu ári — frá 1. mai 1972 til loka aprilmánaðar s.l. — segir stofnunin, að verðbólguvöxtur á Islandi hafi numið 16,6% og er það til muna meira en tvöföld verðbólga á við þá, sem orðið hefur i flestum öðrum aðildarrikjum OECD — þessum „helztu nágranna- og viðskiptalöndum Islendinga”, sem nefnd voru i loforðakveri rikisstjórnarinn- ar. Þannig efnir rikisstjórn ólafs Jóhannessonar loforð sin i verðlagsmálum — þannig efnir hún loforð sin i öllum málum. Almenningi og töl- fræðistofnunum — bæði innlendum og erlendum — ber hér alveg saman og það er gersamlega tilgangslaust fyrir einhverjar samlagningar- og frádráttarhetjur stjórnarblaðanna að ætla að reikna sig frá þessari almennu vitneskju með þvi að búa til einhverjar gestaþrautir. Rikis- stjórnin lofaði. Hún sagði það ekki mikinn vanda að efna loforðin. Hvers vegna hefur hún þá ekki gert það? NORRÆNA AL- ÞÝÐUÞINGIÐ73 SÓSÍÖLSK NÝ- SKQPUN AT- VINNULÍFSINS Norræna alþýöuþingið 1973 — þing rösklega 200 forystu- manna Alþýöuflokks og verka- lýöshreyfinga á Noröurlöndunum fimm — var haldiö I Stokkhólmi dagana 15. - 17. júni s.l. eins og áöur hefur veriö skýrt frá i Alþýöublaöinu. Meginviöfangs- efni þingsins var aö fjalla um félagslega umsköpun atvinnulffs- ins og geröi þingiö um þaö efni merka ályktun, sem hér fer á eftir, og ber aö skoöa hana sem sameiginlegt gurndvallarstefnu- plagg alþýðuhreyfinganna og bróöurflokkanna I þessum fimm löndum: Þróun þjóðfélaganna á Norðurlöndum hefur orðið til betri afkomu, en á sér stað víðast hvar í öðrum löndum. Auðkenni þeirra er öflug alþýðuhreyfing, sem af ákveðni berst fyrir lýð- ræði og hefur verið hið hvetjandi afl í umsköpun samfélagsins. ’A vorum dögum eigum við því að mæta, að vel- ferðarsamfélagið, sem orðið hef ur til undir forystu alþýðu- og verkalýðs- hreyfingarinnar, verður fyrir árásum bæði frá vinstri og hægri. Þessum árásum verður að hnekkja. Við verðum að halda áfram tilraunum okkar til þess að skapa örugg og góð sam- félög fyrir manneskjurnar. Framþróun tækninnar hefur verið þýðingarmikið grundvallaratriði fyrir aukinni almennri velsæld. En jafnframt felur hún í sér hættur á nýju, félags- legu óréttlæti, atvinnuleysi og óöryggi. Hún getur leitt til stóralvarlegar eyði- leggingar á umhverfi mannfólksins. Vitundin um þetta verður að setja svip á stjórnmálabaráttu fram- tíðarinnar. Með í senn faglegu og stjórnmálalegu starfi og samstarfi hefur verkalýðs- hreyfingin haft afgerandi áhrif á leik markaðsafl- anna. Aðeins ef sam- ábyrgðin fær einnig í fram- tíðinni að vera leiðarljós samfélagsþróunarinnar geta ávextir efnahags- framþróunarinnar fallið hinni vinnandi alþýðu í skaut. Því hin „frjálsu" markaðsöf I hafa ekki getað skapað manneskjunum varanlegt öryggi. Þau gátu ekki tryggt fulla atvinnu heldur orsökuðu eyði- leggjandi efnahags- kreppur. Markaðsöf I in skapa skil í efnalegum og menningarlegum að- stæðum fólks i stað þess að auka þar jafnrétti. Markaðsöflin hlífa ekki umhverfi mannsins. Við vísum þeim öflum á bug, sem krefjast rýmra athafnasvæðis fyrir einka- gróðahyggjuna og aukinna valda fyrir fjármagnseig- endurna. Borgaralegu flokkarnir eru gjörklofnir. Frammi fyrir hinum miklu samfélagsvandarhálum samtímans standa þeir ráðalausir. Verkalýðs- hreyfingin vísar á bug hinni borgaralegu pólitík, sem hyggst svipta manneskjurnar tækifærinu til þess að ráðast gegn hinum miklu samfélags- vandamálum í samvinnu og félagi. Það hefur ávallt verið h I u t s k i p t i a I þý ð u - hreyfingar á tímum óvissu og óróleika að færa mann- fólkinu á ný trúna á fram- tíðina. Með því að vera sí- fellt að taka þá stefnu, sem rekin er, til endur- athugunar og með þvi að vera sífellt reiðubúnir til þess að ráðast gegn nýjum vandamálum, sem upp koma, er brautin rudd fyrir framtíðarstjórnmálin. Aðgát á umhverfi mannsins er meðal þýðingarmestu verkefna stjórnmálanna. Umhverf iseyðingin hefst oft á vinnustöðunum og bitnar því fyrst og f remst á fólkinu, sem með vinnu sinni er meginaflvaki þróunarinnar til bættraraf- komu. I atvinnulífinu eru einnig hin djúpu skil í launamálum, öryggi og vinnulund. Á vinnu- stöðunum verða til alvar- legar ógnanir við heilsufar. Norræna alþýðuþingið 1973 slær föstu: að félagsleg nýsköpun aðstæðna i atvinnulífi sé meg inréttlætiskra fa: að þessi nýsköpun sé af- gerandi fyrir samfélags- þróunina i heild, að hún verði að byggjast á áhrifum og ábyrgð laun- þega og verkalýðssamtaka. Það er nauðsynlegt að koma á efnahagsíýðræði og atvinnulýðræði til þess að gera að raunveruleika rétt allra til atvinnu og til þess að skapa byggðajafnvægi, meðeignarrétt og meðákvörðunarrétt handa launþegum, réttláta skiptingu arðs, betra vinnuumhverfi og öryggi í starf i. Afgerandi forsenda fyrir áframhaldandi umbóta- stefnu er fagleg og pólitísk samvinna. Með róttækum lagasetningum getur þjóðf- élagið skapað umgjörð til þess að starfa innan og með því gefið faglegu hreyfing- unni fótfestu í hinu upp- byggjandi starfi sínu á vinnustöðunum, í fyrir- tækjum og stofnunum og í efnahagslífinu. Á þinginu hefur komið fram, að umfangsmikið nýsköpunarstarf á öllu þessu sviði er nú þegar hafið á Norðurlöndum að frumkvæði jafnaðarmanna og verkalýðshreyfinganna. Sérstakur styrkur er, að hinir ýmsu flokkar og verkalýðshreyf ingar í hverju landinu um sig prófa sig áfram með að sumu leyti ólikar aðferðir. Takmarkið — félagsleg umsköpun atvinnulifsins — Framhald á bls. 10 SUJ-HAPPDRÆTTI Þeir, sem fengið hafa heimsenda miða frá happdrætti SUJ eru minntir á að gera skil hið allra fyrsta. Drætti hefur verið frestað til 15. júli. Frekari frestur verður ekki gefinn, svo fólk er vinsamlega beðið um að gera skil fyrir þann tima — helzt sem allra fyrst. Samband ungra jafnaðarmanna Föstudagur 22. júní 1973. 0

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.