Alþýðublaðið - 22.06.1973, Qupperneq 7

Alþýðublaðið - 22.06.1973, Qupperneq 7
> Það skiptir ekki máli, þótt höndin sé krók- ur. Börnin hans finna eísku föður sins engu að siður og þá verður hart stálið mjúkt og hlýtt i barnslófanum. honum sigi blundur á brá og án matar — að undanteknum sex tyggigúmmiplötum — sótti Armes hinn 16 ára gamla dreng á eyðiströnd nokkra og fór með hann heim. Nokkúr augnablik var lif Armes i hættu þegar minnstu munaði, að þyrlan rækist á klett og hrapaði i sjóinn krökkan af há- körlum. En Armes slapp. Hann hefur ávallt búið yfir miklum hæfileikum til að sleppa heil- skinna út úr erfiðleikum. En fyrir slika áhættu þarf að borga góðum manni vel.Reikningur hans fyrir þetta þriggja sólarhringa starf nam 10 þúsund dollurum (röskum 920 þús isl. kr.) auk kostnaðar. ‘Meðal sérgreina Armes i faginu er að koma upp um iðnaðar- njósnara og svindlara i starfsliði stórfyrirtækja. Við þetta starf notar hann alls konar rafeinda- hlustunarbúnað gegn hinum ný- tizku hlerunaraðferðum nútima- njósna og tekurað sjálfsögðu ærið fé fyrir. Illa kynntur i undirheimunum Talsverðum hluta teknanna ver Armes svo i að vernda sjálfan sig. Hann hefur aldrei látizt vera neitt annað en hann er — handalaus maður, sem sent hefur fjölda fólks i fangelsi og er þvi ekkert allt of vel kynntur meðal undir- heimalýðsins. Nafn hans hefur verið nefnt i dráps-samningum glæpalýðsins og á heimili hans i E1 Paso, við landamæri Texas og Mexikó, má sjá ummerki þess. bar bendir hann á kúlnaför á veggjum með ánægjusvip þess, sem hafur sloppið. Tvisvar sinnum hafa þó skotin hitt. 1 eitt skipti var hann særður á fæti og i annað sinn var hann skotinn i upphandlegg. Þess vegna er heimili hans um- girt 10 feta hárri rafmagnsgirð- ingu og á henni eru hlið, sem að- eins er hægt að opna innan frá eftir að hringt hefur verið i dyra- sima og gesturinn hefur sagt á sér deili. Þá er komið fyrir sjónvarps- tökuvélum i herbergjum og húsa- garði og getur hann fylgst með þvi, sem þar gerist á myndskermi sjónvarpstækis i svefnher- berginu. „Það er ómögulegt að komast óséöur inn i hús mitt”, segir hann. Húsið, sem hefur 23 herbergi, hefur 30 sima og margvislegt þjófavarnarkerfi — sum þeirra hefur Armes fundið upp sjálfur. Ljón á reiki Ekki hvað árangursminnsta vörn fær hann frá ljónum þeim og tigrisdýrum, sem ráfa um i dýra- garði, er umlykur hús hans. Inn á milli þeirra eru filar, apar og strútar á ferð. Övinur, sem kynni að komast fram hjá öllu þessu, yrði þá að fást við þjófavarnarkerfið og loks við Armes sjálfan, sem er snilldar skytta og æfir sig i skot- fimi að jafnaði i 30 minútur á dag i skotæfingaherbergi i húsi sinu. Þvi til viðbótar er svo kona hans, seiti einnig er góð skytta — og börnin þrjú, sem lita á skot- æfingaherbergið sem annan leik- völl. Þar er allt i lagi og með öllu hættulaust að æfa sig vegna þess, að engin skot eru þar notuð, heldur sérstakur rafeinda- búnaður á byssum og skot- mörkum. 1 eina skiptið, sem óvinum hans hefur tekizt að gera honum lifið leitt, þá kom i ljós veikur hlekkur á öryggisgæzlukerfi hans. Það var þegar hann varð að stöðva bifreið sina framan við hliðið til þess að hringja i dyrasimann og láta opna fyrir sér. Þetta var Akkillesarhæll Armes — og tveir leigubófar réðust þar að honum með slag- boltakylfum og léku hann svo grátt, að hann lá meðvitundar- laus, blæðandi og hálf-lamaöur eftir. En hann náði sér af lömuninni og hélt áfram með rannsókn Ljósmyndun er hluti af starf- inu og hún er lika eitt af áhugamálum Armesutan þess — en þá er það nú helzt fjöl- skyldan, sem fest er á filmu. málsins og tókst að skapa sér það álit, sem hann nú nýtur. Var hann aðeins 19 ára að aldri, þegar hann stofnaöi spæjarafyrirtæki sitt. bá voru aðeins sjö ár liðin frá þeim degi þegar hann reyndi að staulast á fætur og komst að raun Úr sinu volduga rúmi getur Armes fylgzt með hverjum ó- velkomnum gesti, en hús hans er hið rammbyggilegasta og ljónin i garðinum eru ekkert árennileg. um, að hann hafði ekkert til að lyfta sér upp með. Allt frá þeirri stundu hefur hann stöðugt verið að lyfta sér hærra. Postudagur 22. |uni iy73. /

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.