Alþýðublaðið - 22.06.1973, Qupperneq 11
William Terry
Hannie Caulder
sem væri vopnaður tvihleypti
haglabyssu, bvrfti ekki að vera
góðskytta. Honum nægði að miða
i rétta átt og hleypa af báðum
hlaupum.
Emmett fór þvi einn að æfa sig
og taldi sjálfum sér trú um, að
hann væri ekkert hræddur við
Hannie Caulder. En gæfan
hafði snúið baki við þeim bræðr-
um upp á siðkastið, og þess vegna
gat ekki sakað að gripa til
varúðarráöstafana.
Þannig frétti hann ekki lát
Rufusar, fyrr en hann kom aftur
til bæjarins glaðhlakkalegur á
svip. Hann hafði skotið mikið og
taldi sig góðan miðað við
venjulega getu. Hann hafði æft
sig i að skjóta með báðum
höndum af margvislegu færi.
Hann hafði ekki einu sinni losað
hnifana úr sliðrum, þvi að hann
þóttist bezti hnifakastari isuð-
vesturrikjunum.
Prédikarinn, sem sat beinn i
baki i hnakk sinum, varð til þess
að segja Emmett sorgartiðindin.
Þeir komu úr gagnstæðri átt og
mættust á miðri leið, og Emmett
varðað lita undan augnaráði
svartklædda mannsins.
„Lögreglustjórinn er með
peninga handa þér,” sagði
Prédkarinn og stöðvaði^hest sinn.
Emmett tók i tauma a hesti sin-
um. „Ertu að tala við mig?”
spurði hann frekjulega og reyndi
aö horfast i augu við Prédikar-
ann, en varð aftur að lita undan.
„Hann mun skýra þér nánar frá
þessu,” sagði Prédikarinn og
ætlaði að knýja hest sinn úr
sporunum, en Emmett teygði
fram sítuga krumlu og greip i
jakkaermi hans.
„Þú skýrir mér frá þessu
núna!” skipaði hann.
„Ég er búinn að gera það,”
svaraði svartklæddi maðurinn og
lagði hanzkaklædda hondina yfir
hönd Emmetts.
Sársaukinn lýsti sér úr litlum
augum Emmetts, er hnúar hans
klemmdust saman,sem i skrúfu-
stykki. „Hvað ertu að gera?”
veinaði hann.
„Ég var að fá fötin min úr
hreinsun,” sagði Prédikarinn
rólegri, en ógnandi rödd. „Þú
óhreinkar jakkann minn. Ef þú
sleppir mér ekki, skýt ég þig, áð-
ur en Hannie Caulder gengur af
þér dauðum.”
Emmett sleppti takinu, og
jafnskjótt lossnaði hönd hans úr
klemmunni. Prédikarinn burstaði
ermina og horfði reiðilega á hinn
svipljóta andstæðing sinn.
„Hannie Caulder! Er hún
ennþá i bænum?”
Enn sáust engin svipbrigði á
friðu andliti svartklædda manns-
ins. „Hún var inni á skrifstofu i
lögregustöðinni áðan,” svaraði
hann. „Mér skilst, að hún hafi
beðið lögreglustjórann fyrir
peninga til þin.”
„Peninga?” Það var útilokað,
að tregur heili Emmetts gæti
numið þessa vitneskju. Reiði
hans i garð Hannie var blönduð
ótta við þennan ókunna mann, og
varð það sizt til skilningsauka.
„Það sama sagði ég lika” sagði
Prédikarinn. „Ég held
peningarnir séu fyrir útför
Rúfusar.”
Emmett varð svo undrandi, að
hann féll næstum af hesti sinum.
„Rufusar?” öskraði hann
starandi augum og yggldi sig, svo
að dökkar tennur hans komu i
Ijós. „Drap hún Rufus? Eins og
Frank?”
Prédikárinn hristi höfuðið.
„Frank lét lifið i hóruhúsi. Hún
kálaði Rufusi inni i tizkuverzlun.”
En svo kinkaði hann kolli. „En
það má kannski segja, að þeir
hafi báðir hafnað i göturæsinu.”
Hávaxni, svartklæddi maður-
inn bjargaði sennilega mannslifi i
Arramas þennan dag. Ef einhver
annar hefði fært Emett fréttirnar,
hefði hann að öllum likindum
skotið þann hinn sama til bana,
þvi að hann réð sér ekki fyfir
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
Aðstoðarlæknisstaða
Staða aðstoðarlæknis við röntgendeild
Landspitalans er laus til umsóknar. Laun
samkvæmt kjarasamningum Lækna-
félags Reykjavikur og stjórnarnefndar
rikisspitalanna.
Umsóknir með upplýsingum um aldur,
námsferil og fyrri störf sendist stjórnar-
nefnd rikisspitalanna, Eiriksgötu 5, fyrir
22. júli n.k.
Byggingartæknifræðingur.
- Umsjónarmaður
Staða umsjónarmanns við Vifilsstða-
spitala er laus til umsóknar. Óskað er eftir
að ráða byggingatæknifræðing i stöðuna.
Starfið er einkum fólgið i eftirliti með
framkvæmdum, áætlanagerð og annarri
undirbúningsvinnu um framkvæmdir.
Byrjunartimi gæti verið samkomulags-
atriði. Laun samkvæmt kjarasamningum
opinberra starfsmanna.
Umsóknir, er tilgreini aldur, menntun og
fyrri störf, ásamt meðmælum, ef fyrir
hendi eru, sendist stjórnarnefnd rikis-
spitalanna fyrir 6. júli n.k.
Reykjavík, 21. júni 1973
SKRIFSTOFA
RÍKISSPÍTALANNA
EIRÍKSGÖTU 5, SÍM111765
bræði. Er Prédikarinn hélt af stað
niður götuna, varð skynsemin
reiðinni yfirsterkari. Maðurinn
sneri baki að Emmett, en hann
sá, að hinn hélt laust um taumana
með annarri hendi, en hin hvildi á
byssuskeftinu. Maðurinn bar
greinilega með sér, að hann var
vígamaður, og hann var ekki
mjög ungur að árum. Það gat
ekki táknað annað en hann væri
góður.
Emmett urraði reiðilega, knúði
hest sinn grimmdarlega úr
sporum og tók stefnuna á lög-
reglustöðina. Hann stökk af baki
og tafði sig ekki á þvi að binda
hest sinn, heldur sparkaði upp
hurðinni. Hann staðnæmdist i
gættinni og horfði illilega á lög-
reglustjórann, sem sat við skrif-
borð sitt, en á þvi lágu tveir fimm
dala seðlar.
„Bölvuð tikin!” öskraði
Emmett. „Hver heldur hún, aö
hún sé, að borga svona útför
bræðra minna? Ég ætla mer að
búa til axlabönd úr görnunum
hennar. „Hann gekk að borðinu,
sópaði peningunum af þvi, teygöi
sig fram og greip um kverkar
Lees. „Hvar er hún? Hvar i hel-
vitinu er hún?”
Lee var rámur. „Við ár-
kvislina.”
„Hvar er það? Þar sem áin
kvislast?”
„Skarplega ályktað!” Þrátt
fyrir hálstakið gat Lee ekki annað
en hæðzt að honum, „Hún sagðist
ætla að biða.”
Emmett herti takið og lét
þannig bitna á lögreglustjóran-
um, hve Predikaranum hafði
tekizt að egna hann til reiöi.
„Jæja, ætwr hún að biöa?” Rödd
hans fylltist heift, og hann sleppi
takinu af lögreglustjóranum.
„Biddu bara, Hannie Caulder.”
Er hann hélt af stað i átt til dyr-
anna, sá hann seðlana tvo á
gólfinu. Hann beygði sig eftir
þeim og leit um öxl á Lee,
glettnislegur á svip.
„Ég hélt, að jarðarförin kostaði
fimm dali.”
Lee neri auman hálsinn og varð
að kingja ákaft, áður en hann gat
svarað.
„Hún sagði, að þetta væri fyrir
tveimur jarðarförum,” svaraði
hann. „Rufusar og þinni.”
„Ég skal sýna henni i tvo
heimana,” öskraði Emmett,
hljóp út og stakk peningunum i
vasann.
Lee dró upp óhreinan vasaklút
og þerraði svitann af andliti sinu.
18.KAFLI
Ain var ekki vatnsmikil og hún
rann I hringlaga stöðuvatn, en
þaðan runnu tvær kvislar, sem
Áskriftarsíminn er
B6666
SKEMMTANIR
SKEMMTANIR
HÓTEL LOFTLEIÐIR -
VÍKINGASALURINN
er opinn fimmtudaga, föstudaga,
laugardaga og sunnudaga.
HÓTEL LOFTLEIÐIR
Cafeteria, veitingasalur með sjálfsafgreiðslu, opin alla
daga."'
HÓTEL LOFTLEIÐIR
Blómasalur, opinn alla daga vikunnar.
HÓTEL BORG
við Austurvöll. Resturation, bar og dans I Gyllta saln-
um.
Sími 11440
HÓTEL SAGA
Grillið opið alla daga. MÍmisbar og Astrabar, opið alla
daga nema miðvikudaga. Slmi 20890.
INGÓLFS CAFÉ
viö Hverfisgötu. — Gömiu og nýju dansarnir. Simi 12826
Í>ÓRSCAFÉ
Opið á hverju kvöldi. Sfmi 23333.
HABÆR
Klnversk resturation. Skólavörðustlg 45. Leifsbar. Opiö
frá kl. II. I.h. tilkl. 2.30 og 6e.h. Sfmi 21360.
Opið aila daga.
SKEMMTANIR — SKEMJVITANIR
Engólfs-Café
Gömlu dansarnir í kvöld kl. !
Hljómsveit Garöars Jóhannessonar
Söngvari Björn Þorgeirsson.
Aðgöngumiðasala frá kl. 8. — Simi 12826.
Tilboð óskast
i nokkrar fólksbifreiðar, Pick-up bifreið
og ennfremur nokkrar ógangfærar fólks-
bifreiðar, er verða sýndar að Grensásvegi
9 þriðjudaginn 26. júni kl. 12-3.
Tilboðin verða opnuð i skrifstofu vorri kl.
5.
Sala varnarliðseigna.
Volkswageneigendur
Höfum fyrirliggjandi: Bretti — Hurðir —
Vélarlok — Geymslulok á Volkswagen i
allflestum litum. Skiptum á einum degi
með dagsfyrirvara fyrir ákveðið verð.
Reynið viðskiptin.
Bilasprautun Garðars Sigmundssonar
Skipholti 25. Simar 19099 og 20988.
Andersen & Lauth hf.
Júní — Júlí — Ágúst veröa verzlanir okkar opnar sem
hér segir:
Mánudaga - fimmtudaga ki. 9-6.
Föstudaga kl. 9 - 7, í Glæsibæ ki. 9-8.
Lokað laugardaga.
ANDERSEN & LAUTH HF.r
Vesturgötu 17, Laugavegi 39,
Glæsibæ.
Föstudagur 22. júni 1973.
o