Alþýðublaðið - 26.06.1973, Qupperneq 2
HANNA OG
KNUD LUNDBERG
SVARA:
Er þaö í lagi, að konan mín
skuli sífellt háma í sig
„Librium"?
Kæru Hanna og Knud Lundberg.
Þakka ykkur fyrir bréfakassann,
sem alltaf vekur athygli mina. Nú
langar mig til aö notfæra mér
hann, svo framarlega sem þiö á-
litiö, að það sem ég spyr um sé
þess viröi að þvi sé svaraö.
Vandamáliö er i þvi fólgiö, aö
konan min hámar i sig „Librium”
stanzlaust. Hvaöa hlutverki
gegna þessar töflur, og hvaöa
áhrif hafa þær? Er einhver á-
hætta þvi samfara að nota þær til
langframa? Sjáifur er ég haldinn
meðfæddum ótta gagnvart öllum
töflum — og fyrir þaö hef ég
nokkrar áhyggjur af þessu.
Beztu kveðjur.
t.s.
Librium er gefiö sem lyf gegn
eirðarleysi, ótta og sálrænni
spennu. Þaö er harla óliklegt aö
nokkur veröi likamlega háður þvi
lyfi. En áreiöanlega andlega.
Þaö er vist almennt álit að viö
hámum i okkur of mikið magn af
librium — og svipuðum lyfjum, i
þessum velferöarrikjum. Jafnvel
þótt þær töflur fáist einungis gegn
lyfseðli. Þær eru sumsé harla
virkar gegn spennu, og margir
læknar hafa i svo mörgu að snú-
ast að þeim verður þaö hendi næst
að gefa sjúklingum, sem þjást af
streitu, slikt lyf. Sem að visu ekki
læknar, heldur dregur úr sér-
kennunum.
Það er hrein undantekning, ef
nota þarf lyfið að staöaldri og viö
álitum að þér gerðuð rétt að
reyna að fá konu yðar til að hætta.
Kannski gætuð þér i staðinn
hjálpað henni i átökunum við
streituna.
En hvernig sem alit slikt er i
pottinn búið, þá er það læknirinn,
sem verður að ráða.
Það virðist þvi ekki úr vegi að
hún spyrji lækni sinn hvort ekki
sé timi til kominn aö hún hætti að
nota librium.
Með beztu kveðjum.
Hanna og Knud Lundberg.
—NÝ VON FYRIR-------
„VANGEFNA" BARNIÐ
Ungabarnið, sem virðist
skríða stefnulaust á fjórum fót-
um eftir gólfteppinu, er i raun
og veru i erfiðu námskeiði i
samræmingu hreyfinga og
þroskun þess hluta heilans, sem
siðar meir mun stjórna hæfi-
leikum barnsins til þess að læra
aö lesa og skrifa ásamt mörgu
öðru.
Dr. Sidney Groffmann viö
Endurhæfingarmiöstööina i
Philadelphiu i Bandarikjunum
komst fyrir nokkrum árum að
raun um, að börn, sem vafra áð-
ur en þau fara aö skriða geta
siðar meir átt i erfiðleikum með
lestur og stofun og jafnvel orðið
rangeygð.
Niðurstöður hafa hafa nú ver-
ið staðfestar af dr. Melvin
Schrier við Yale-háskóla.
Kenning sú, að hjá þessum
börnum þroskist hluti heilans
ekki eöliliega, er nú notuð til
þess að hjálpa börnum, sem
einu sinni hefði verið sagt um,
að væru ,,á eftir”.
Vöðvar
Læknar telja, að slæm sam-
ræmun vöðvastarfs geti haft
áhrif á sjónina alveg eins og á
lestrar- og skriftarhæfni.
En slikt ástand er ekki ólækn-
anlegt. Hægt er að endurþjálfa
hinn „óþroskaða” hluta heilans
og sjónin styrkt hjá börnum allt
að 10 ára að aldri. Lækningin er
einfaldlega fólgin i þvi, að barn-
ið er látið skriða eins og það
myndi hafa gert litið. ef allt
hefði verið með eðlilegum hætti.
Niu ára drengur var haldinn
slikri lesblindu, að hann gat
ekki stautaö sig fram úr einu
einasta orði. Honum var þá
kennt að skriða og gera augnæf-
ingar i 10 min. á dag. Eftir
nokkra mánuði gat hann lesið
næstum þvi jafnmikið og vel og
jafnaldrarnir.
Hinar siðu, hnepptu prjóna-
peysur, sem urðu svo vinsælar á
stúlkunum i haust er leiö, eru nú
orðnar jafn vinsælar hjá karl-
mönnunum. Þær eru hlýjar og
gott að vera i þeim á þessum
árstima og raunar langt fram á
sumar þar sem þær eru eitt af
þvi, sem er alveg ómissandi i
sumarferðalaginu.
Þessar peysur eru mjög
skemmtilegar grófprjónaðar og
með röndum úr öðru visi litu
garni á boðungunum.
Rangeygð stúlka sjö ára að
aldri var haldin þeim kvilla. að
vöðvarnir unnu ekki rétt saman,
I svo miklum mæli, að hún gat
ekki gengið almennilega.
.1 næstum þvi tvö ár var hún
reglulega látin skriða.
Að þeim tima loknum gat hún
gengið næstum þvi eðlilega og
aðeins örsjaldan bar á misvisun
augnanna.
En skriðið er þó engin alls- .
herjarmeinabót.
I flestum tilfellum er það að-
eins fyrsta skrefið til þess að
lækna rangeygð börn. Oftast
þurfti einnig að nota gleraugu —
og jafnvel að gripa til skurðað-
gerða.
Hjá flestum er annað augað
öflugra en hitt. Ef þú ert rétt-
hendur, þá er hægra augað
sennilega öflugra, en hið
vinstra.
En verið getur, að þú sért
rétthendur, en að vinstra augað
sé rikjandi. Þá getur þú lent i
erfiðleikum.
Vandamál
Dr. Schrier komst að raun
um, að augnvandamál af þess-
ari tegund urðu iðulega hjá
börnum, sem skriðu ekki nægi-
lega mikið, þegar þau voru ung.
Undirslikum kringumstæðum
eru skriðæfingar oftast nauð-
synlegar svo ráða megi bót á ó-
samrýmun augnanna.
Slíkar skriðæfingar eru nú
einnig notaðar i Philadelphia
Institute for the Development of
Human Potential til þess að
hjálpa börnum, sem orðið hafa
fyrir heilaskemmdum.
Drengur nokkur frá Hull i
Bretlandi, sem sendur var
stofnun þessari til meðhöndlun-
ar árið 1971, gat þá ekki lesið
þótt hann væri orðinn 15 ára
gamall.
Að 18mánuðum liðnum og eft-
ir að hann hafði skriðið samtals
200 milur og gert aðrar þjálf-
unaræfingar gat hann bæði lesið
og skrifað.
Þannig klæðast þær heimsfrægu í sumar:
EKKERT FEGURRA EN GALLABUXUR!
Heimsins fegurstu stúlkur
klæðast þeim. Heimsins mest
eftirspurðu karlmenn nota þær.
Paris má laöa með hversu
margar nýtizkuuppáfinningar,
sem hún vill — gallabuxurnar
verða eftir sem þaður það nýj-
asta nýja hjá öllum fremstu
fyrirmyndum okkar i klæða-
burði. Og við hin fylgjum þakk-
lát i fótsporin. Þeim mun slitn-
ari og upplitaðri, sem vinnufötin
eru, þeim mun betra. Með
applikeruðum blómum og blöð-
um þeim mun kvenlegra. Með
stuttjakka eöa siðjakka — mesti
tizkufatnaöur áratugsins um
morgun, kvöld og miðjan dag.
Mirja Sachs ann mittisjakkan-
um úr gallabuxnaefninu. Hér er
hún i gerð ársins með isaumi og
loðkanti framan á ermunum.
Gunther hefur hins vegar skipt
á gallabuxunum og venjuiegum
karlmannabuxum.
Birgitte Bardot hefur aldrei
sagt skilið við uppáhaldsklæön-
aö sinn, heimsins þrengstu
gallabuxum. Viö þær er hún i
klæöskerasaumuöum siðjakka
með ryja-ermaskjólum.
T-skyrta og filabeinsmen i
gullkeðju tilheyrir hinum rétta
klæönaði. Claudia Cardinale,
svar italíu við BB Frakklands,
bar „tizkueinkennisfötin”.
Ert þú i hópi þeirra, sem
nú kaupa Alþýðublaðið i
lausasölu? t» á hefur þú
væntanlega komizt að
raun um t að það er
sparnaður af þvi að
kaupa það i áskrift. Sim-
inn er 8-66-66
Q
Þriðjudagur 26. júní 1973.