Alþýðublaðið - 26.06.1973, Blaðsíða 6
o
BæAi viAskiptahölda og stjórnmálamenn má finna i hópi þeirra, sem
fara lil S/.ölIösi og fá lagt stjörnuspákort fyrir sér áftur en mikilvægar
ákvarftanir eru teknar.
llt frá þvi Ferenc Szöl
lösi gekk i skóla hefur
hann vitað nákvæmlega,
hvenær hann muni deyja. Hann
ræðir um það brosandi breiðu og
drengjalegu brosi, svo það er
áreiðanlega langt þangað til. Sem
sakirstanda hefur þessi ungversk
fæddi Kaupmannahafnarbúi lifað
i 38 ár.
Szöllösi getur einnig mjög snar-
lega reiknað það út, hvenær þú og
ég munum deyja. Raunar þarf
hann bara vitneskju um tvennt.
Hann þarf að vita hvar og hvenær
maður fæddist.
En hann segir aldrei frá hvorki
sinum eignin dánardegi né
annara hversu mikið, sem hann
er beðinn. Það væri ósiðlegt og illt
verk, segir hann.
Ferenc Szöllössidregur fram lifið
með þvi að segja öðru fólki fyrir
um framtiðina. Að þessu með
dauðann undanteknu, þá stað-
hæfir hann, að hann — gegn
greiðslu — muni segja þér allt um
það, sem framtiðin ber i skauti
sér og um hvernig þú getur e.t.v.
haft áhrif á rás örlaganna.
Ferenc Szöllösi er einn af
mjög fáum stjörnuspádómafræð-
ingum i Danmörku, sem hefur
alla atvinnu sina af þekkingu
sinni. Og að margra sögn er hann
einn af þeim allra-hæfustu.
1 þrjá vetur hefur hann kennt
stjörnuspádómafræði við kvöld-
skóla i Kaupmannahöfn. Skólar
þessir fá styrki bæði frá riki og
bæ, svo vel er hægt að kalla
Szöllösi bæjar- og rikisráðinn
stjörnuspámann.
En er þá hægt aö trúa spá-
dómum stjarnanna? Fleiri og
fleiri telja nú, að svo sé. Starfs-
fólk Þjóðskrárinnar verður nú i
siauknum mæli að sinna erindum
fólks, sem vill vita nákvæmlega
hvenær það fæddist, svo það geti
fariö til stjörnuspámanns og
fengið hann til þess að leggja
stjörnukort fyrir sig.
Margir þekktir viðskiptahöldar
i Danmörku leggja t.d. ekki i
neina umtalsverða fjárfestingu
eða framkvæmd nema þeir leiti
fyrst ráða hjá Szöllösi — og
stjörnunum. Sumir stjórnmála-
menn eru jafnvel á sama báti.
Hverjir? Það er eitt af stóru
leyndarmálunum hans Szöllösi.
Hann segir ekkert um viðskipta-
vini sina. En það hefur þó ekki
enn gengið svo langt, að Dan-
mörku sé stjórnað samkvæmt
stööu sólar, tungls og stjarna á
himninum. Stjórnmála-
mennirnir, sem heimsækja
Szöllösi, eru flestir i minniháttar
stöðum i dönskum stjórnmálum.
— Það er öruggt, að stjörnuspá-
dómafræðin kemur til með að
hafa sivaxandi áhrif á póljtikina,
telur Szöllösi. — En perso'nulega
er mér ekki meira en svo um að
blanda þessu tvennu saman. Það
er stórhættulegt, vegna þess, að
sé það rangt notað, þá er hægt að
misnota samband stjörnuspád-
oma og stjórnmála með hryllileg-
asta hætti. Hugleiðið hvað Hitler
gerði á árum seinni heims-
styrjaldarinnar. Hann átti sér
sinn „hirðstjörnuspámann”, og
meö hliðsjón af aðvörunum hans
framkvæmdi Hitler svo hin
hryllilegu verk sin. Það er jafnvel
hægt að spyrja, hvort það hafi
verið Hitler eða stjörnuspámaður
hans, sem stjórnaði. Ég tel, að
stjörnuspámaðurinn hafi ekki
skipt svo miklu máli. Hann sagði
fram þær spár, sem foringinn
helzt vildi heyra. Hefði hann ekki
gert það, hefði hann sjálfsagt
fljótt orðið mjög dauður stjörnu-
spámaður!
Ég vil aðeins nota stjörnuspá-
dómskunnattu mina til þess að
hjálpa einstökum manneskjum til
hamingjusamara lifs!
Szöllösi telur, að flest okkar
sýnum stjörnuspásómafræðinni,
sem er elsta visindagrein i heimi,
megnasta órréttlæti. A sama hátt
og læknar vilja engin afskipti
hafa af náttúrulæknum jafnvel
þótt margar aðferöir hinna siðar-
nefndu hafi valdið byltingu i með-
ferð sjúkra, snúa visindin i
kaldri fyrirlitningu baki við
stjörnuspádómafræðinni.
Astæðan er sú sama i báðum til-
vikum: Hvorki náttúrulæknar né
stjörnuspámenn hafa háskóla-
nám að baki. Sem sagt, þeir
verða stimplaðir „gervivisinda-
menn” hversu duglegir, sem þeir
eru.
— Til hvers gagns er þótt
maður geti sannað hitt og þetta
þegar enginn nennir einu sinni að
gjóta hornauga til þeirrar
reynslu, sem maður hefur orðið
sér úti um?, spyr Szöllösi. — Ég
hef oft og mörgum sinnum getað
tilgreint fyrirfram nákvæma
dagsetningu þess, þegar kona
elur barn sitt, svo ekki hefur
munað nema einum sólarhring,
en þar sem læknarnir hafa
reiknað vitlaust svo munað hefur
heilum mánuði.
t stuttu máli sagt, þá ætti rikið
að kojna á fót stofnun i stjörnu-
spádomafræði. Slik stofnun
myndi geta hjálpað læknum á
ýmsan átt og einnig geðlæknum
og mörgum öðrum. 1 öðrum
löndum svo sem eins og Banda-
rikjunum, Frakklandi, Þýzka-
landi og Englendi, eru starfandi
stjörnuspádeildir við háskóla.
Mikið vildi ég, að slikt hið sama
ætti sér stað hér i Danmörku. Ég
vildi mjög gjarna verða fyrsti
danski prófessorinn i stjörnuspá-
dómafræði og sú löngun á ekkert
skylt við hinn „fina” prófessors-
titil.
Ferenc Szöllösi var 13 ára
gamall, þegar hann i fyrsta sinn
heyrði sagt frá stjörnuspám — en
stjörnuspár voru næstum
óþekktar i hinu kommúniska
Ungverjalandi, þar sem Ferenc
óx úr grasi.
— Kennslukonan min i 6. bekk
lánaði mér bók um efnið, segir
hann. — Fyrst var ég mest hrifinn
og spenntur yfir þvi, að sólin,
jörðin og stjörnurnar skyldu geta
svifið um án þess að detta niður
og að þau héldu brautum sinum
með svo fastmótuðum hætti, að
hægt væri að segja fyrir um, hver
afstaða þeirra yrði eftir þúsundir
ára. Það yfirgekk skilning minn.
Svo er raunar enn.
Fyrst ári siðar fór ég að velta
vöngum yfir, hvort þetta allt
saman gæti ekki haft áhrif á
manneskjurnar. Og ég komst að
raun um, að svo var sannarlega!
Það var ómögulegt að draga
fram lifið á stjörnuspádómum i
Ungverjalandi svo Szöllösi leitaði
annara úrræða. Hann vann við
blaöamennsku og sem aðstoðar-
maður fyrirlesara en i fri-
stundunum spáði hann i stjörnur
fyrir sig og kunningjana. Arið
1956 kom uppreisnin og hinn 22ja
ára gamli Szöllösi flýði til Dan-
merkur.
Hann fékk vinnu við að selja
bækur hjá Gyldendal. Allar
fristundir notaði hann til náms.
Fyrst og fremst nam hann dönsku
og einkum og sér i lagi það flókna
mál, sem notað er i stjörnufræð-
inni. Fyrir 10 árum hóf hann svo
að starfa að fullu og öllu sem
stjörnuspámaður.
— 1 byrjun var næstum
ógerningur að draga fram lifið af
þessu, en smátt og smátt fór það
að ganga betur, segir hann. —
Ahuginn á stjörnuspám verður
stöðurgt meiri. Fyrir þorra æsku-
fólks, sem að þvi er virðist dýrkar
stjörnurnar svo ákaft, að þau
bera stjörnumerki sin steypt i
messing I keðju um hálsinn, er
þetta sjálfsagt bara tizka. En ég
held einnig, að áhuginn á stjörnu-
spádómum eigi rætur sinar að
rekja til samfélagsins, sem við
lifum i. Það verður sifellt
flóknara og fióknara. Mannfólkið
finnur sig vera þvingað og það
reynir að finna æðri tilgang með
llfi sinu. Það leitar oft að ein-
hverju, sem er óumbreytanlegt
og skiljanlegt. Og ekkert er
stöðugra, en stjörnurnar og
brautir þeirra. Með alménnum
orðum er hægt að segja, að þessi
leit að skiljanlegum tilgangi lifs-
ins merkir, að trú — þ.e.a.s. guðs-
trúin og trúarbrögð yfirleitt — eru
á leiðinni út, en stjörnu-
spádómarinir á leiðinni inn. Það
er að minu viti ómögulegt að vera
i senn trúaður og stjarn-
hyggjandi.
1 tvö skipti hef ég haft presta
sem viðskiptavini. Ég held, að
þeir hafi komið vegna þess, aft þá
langaði til að geta stimplað
stjörnuspádómafræðina sem
hreina lygi, en þegar fortið þeirra
og framtið hafði verið lesin heyrði
ég ekki meira frá þeim. Ég veit
TOPPURINN AF POPPINU
Ýmislegt merkilegt er nú að
gerast hjá ROLLING STONES
þessar vikurnar. Þeir hafa nú ný-
lega lokið við að taka upp nýja
breiðskifu, og var það gert á
Jamaica. Þessi plata ber jiafnið
„GOATS HEAD SOUP”, sem út-
leggst Geitarhöfuðssúpa. Hún á
að visu ekki að koma út fyrr en i
September, en þeir eru nú að
leggja siðustu hönd á hana i
London. I sumar hyggjast
STONES fara i langa hljómleika-
ferð um Evrópu. Skandinaviu og
jafnvel allt til Rússlands. Auk
STONES leika á GOAT’S HEAD
SOUP þeir BILLY PRESTON og
NICKY HOPKINS, en frá honum
er kominn sá orðrómur, að
KEITH RICHARD væri að hætta
og við af honum ætti að taka
RONNIE WOOD gitarleikari
FACES. En KEITH hefur borið
þennan orðróm sterklega til baka
og kvað hann vara uppruna frá i
rótum. KEITH býr nú á Jamaica
og hyggst gefa út plötu með þar-
lendri hljómsveit, sem heitir
RASTAFARIAN.
DAVID BOWIE nýtur stöðugt
vaxandi vinsælda, og virðist
enginn endi vera á sigurgöngu
hans. Alls staðar þar sem hann
heldur hljómleika er uppselt
iöngu áður, og eru mörg dæmi
þess, að aðdáendur hans hafi
borgað fimmfalt miðaverö til að
komast á þá. Nýjasta plata hans
„ALADOIN SANE” er viðast
hvar meðal söluhæstu platna.
Tónlist hans er mjög sérstæð og
fersk og er oftast mikil tilfinning i
lögum hans, enda á hann auðvelt
með að aðlaga sig mörgum til-
finningasviðum. BOWIE virðist
ekki hafa náð miklum vinsældum
hér á Islandi og stafar það eflaust
af þvi, að hann hefur ekki átt
mörg lög á enska vinsældar-
listanum og ekki gefið út margar
litlar plötur heldur byggjast vin-
sældir hans i Bretlandi á mjög
sérstæðum hljómleikum og
mörgum góðum breiðskifum. Þó
er væntanleg frá honum 22. júni
n.k. litil plata með laginu „LIFE
ON MARZ,, og fer það eflaust við-
stöðulitið upp i 1. sæti.
LED ZEPPELIN þurfti nýlega að
hætta við fyrirhugaða hljómleika
vegna þess, að Jimmy Page
gitaristi skar sig illa á fingri.
Læknir hljómsveitarinnar
bannaði honum stranglega að
leika en þessir hljómleikar áttu
að vera i FORUM-hljómleika-
höllinni.og var þegar orðið
uppselt. Ýmsar getgátur voru á
lofti um það, hvernig PAGE hafi
fengið skurðinn, en hið sanna kom
fljótlega i ljós. Þeir höfðu sem
sagt verið að skemmta sér, og
fengið allt i einu þá hugmynd, að
henda öllu lauslegu i hóltelher-
berginu út um gluggann, en her-
bergið var á niundu hæð. Þeir
hentu borðum stólum og tómum
bjórdósum, en Jimmy hafði ein-
mitt skoriðsig á einni slikri. Tals-
maður hljómsveitarinnar sagði
að þetta hafi aðeins verið gert i
gamni, og þeir hafi ekkert illt
meint með þessu „you know”.
★
Stones til Rússlands
★
Ný plata með Bowie
„Life on Marz”
★
Led Zeppelin í
„hörkustuði”
o
ENGLAND
1 2 CAN THE CAN, Suzie Quatro RAK
2 5 RUBBER BULLETS, 10 C.C. UK
3 1 SEE MY BABY JIVE, Wizzard Harvest
4 3 ONE AND ONE IS ONE, Medicine Head Polydor
5 6 ALBATROSS, Fleetwood Mac CBS
6 — GROOVER, T. Rex EMI
7 4 AND 1 LOVE YOU SO, Perry Como RCA
8 1 1 STUCK IN THE MIDDLE WITH YOU,
Stealers Wheel A&M
9 7 YOU ARE THE SUNSHINE OF MY
LIFE, Stevie Wonder Tamla Motown
10 10 WALKING IN THE RAIN, Partridge Family Bell
11 17 GIVE ME LOVE (GIVE ME PEACE ON
EARTH), George Harrison Apple
12 25 SNOOPY VERSUS THE RED BARON,
Hot Shots Mooncrest
13 13 WALK ON THE WILD SIDE, Lou Reed RCA
14 9 TIE A YELLOW RIBBON, Dawn Bell
15 LIVE AND LET DIE, Paul McCartney & Wings Apple
16 18 ARMED & EXTREMELY DANGEROUS,
First Choice Bell
17 12’ BROKENDOWN ANGEL, Nazareth Mooncrest
18 19 WELCOME HOME, Peters & Lee Philip
19 15 YOU WANT IT YOU GOT IT,
Detroit Emeralds Westbound
20 21 SWEET ILLUSION, Junior Campbell Deram
21 8 HELL RAISER, Sweet RCA
22 16 COULD IT BE l'm FALLING IN LOVE,
Detroit Spinners Atlantic
23 14 ALSO SPRACH 2ARATHUSTRA (2001), Deodato CTI
24 23 POLK SALAD ANNIE, Elvis Presley RCA
25 22 FRANKENSTEIN, Edgar Winter Group Epic
26 30 STANDING ON THE INSIDE, Neil Sedaka MGM
27 HALLELUJAH DAY, Jackson Five Tamla Motown
28 BORN TO BE WITH YOU, Dave Edmunds Rockfield
29 ROCK-A-DOODLE-DOO, Linda Lewis Raft
30 I M GONNA LOVE YOU JUST A LITTLE
BIT MORE, Barry White _ Pye
Supplied by: British Market Research Bureou/Music Week.
/
1 1 MY L
2 5 PLAY
3 3 PILLC
4 6 l'M G BABY
5 4 DANI
6 2 FRAIV
7 14 WILL
8 13 GIVE ON E
9 17 KOD)
10 7 TIE fi OLD (
11 11 RIGH
12 10 LON<
13 15 ONE
14 19 SHAI
15 12 DRIF
16 9 HOCI
17 8 YOU Stevie
18 20 l'M 1
19 16 WILC
20 26 BAD,
21 18 STUC Steale
22 28 LEAV
23 24 LITTI
24 30 NATl
25 22 REEL
26 23 THE IN Gi
27 31 NO l\
28 21 STEA
29 — YOU' YOU 1
30 — BOOC
Þriðjudagur 26. júni 1973.