Alþýðublaðið - 26.06.1973, Blaðsíða 12
alþýðu
mhm
INNLÁNSVIÐSKIPTILEIÐ
/^TIL LÁNSVIÐSKIPTA
' ABÚNMMRBANKl
\t\J ÍSLANDS
KOPAVOGS APÓTEK
Opið öll kvöld til kl. 7,
nema laugardaga til
kl. 2, sunnudaga milli
k!. 1 og 3-Simj40102.
„SVONA FLUGSLYS HEFUR ALDREI
ORDIÐ NEMA FYRIR MISTÖK”
,,Það hefur aldrei átt sér stað
nema fyrir mistök, að
„spoilers”, eða loftbremsur fari
á, á meðan DC-8 er enn á flugi,
þvi annars missir vélin alla
flugeiginleika, og er aðeins eins
og stór járnklumpur i loftinu,
sagði reyndur flugmaður i við-
tali við blaðið f gær, en ástæðan
fyrir slysinu á Kennedyflug-
velli, þegar DC-8 vél Loftleiða
brotlenti þar, er einmitt talin sú,
að „spoilerarnir” hafi farið of
snemma út.
„Spoilers”, eða loftbremsur,
eru staðsettar ofan á vængjun-
um, og eru hlerar, sem opnast
upp úr þeim um leið og vélin er
komin niður á brautina til þess
að veita loftmótstööu, sem hæg-
ir ferð vélarinnar niður.
Fyrir nokkrum árum sprakk
DC-8 þota i eigu Air Canada i
loft upp, vegna þess að brems-
urnar voru óvart settar á i flugi.
Bremsur þessar eiga að fara
sjálfkrafa upp, um leiö og vélin
hefur snert jörðina, og hjólin
byrja að snúast.
öryggi er á þeim, svo þær geti
ekki farið upp i flugi, þrátt fyrir
bilanir, en öryggið er tekið af
rétt fyrir lendingu.
Hins vegar er einnig hægt að
setja út bremsurnar með hand-
afli, hvort sem vélin er i lofti eða
á jörðu, ef öryggiö er ekki á.
Við rannsókn á slysi
kanadisku þotunnar kom i ljós,
að flugstjórinn sagði „spoilers”,
og átti þá við að aðstoðarflug-
maðurinn tæki af öryggið, en
hann setti þá hins vegar einnig
upp, með þeim afleiðingum, að
vélin kom á miklum hraða niður
á brautina, hentist aftur upp i
200 feta hæð, og sprakk þar.
Allir fórust, en þaö sem rök-
styður m.a. þessi mistök, er
samtal flutstjórans og aðstoðar-
flugmannsins eftir að ljóst var
hvert stefndi, en það varðveitt-
ist á segulbandsspólu i vélinni.
Orðaskiptin voru stutt,
aðstoðarflugmaðurinn sagði:
Fyrirgefðu flugstjóri”, og flug-
stjórinn svaraði: „Skiptir engu
héðan af. Þetta er búið. —
SVR í VANDRÆDUM MED
AFSLÁTTARFARGJÖLDIN
Erfiðlega ætlar Strætisvögnum
Reykjavikur að takast að finna
það fyrirkomulag á afsláttarfar-
gjöldum fyrir aldraöa og öryrkja,
sem öllum likar.
I fyrstu var sá háttur hafður á,
að sérstakir farmiðar, sem voru
seldir með helmingsafslætti, giltu
á öllum timum nema timabilinu
kl. 4—6 á daginn og fram til kl.
9.30 á morgnana. A þessum tim-
um varð það fólk, sem annars fær
afslátt, að nota venjulega far-
miða. Vildi þá brenna við, að fólk
hafði þá miða ekki handbæra og
vildi nota sina venjulegu af-
sláttarmiða.
Þegar ljóst var, að þetta íyrir-
komulag ætlaði ekki að reynast
vel var ákveðið að taka upp þann
háttinn i staðinn, að á þessum
mestu annatimum dagsins
greiddi gamla fólkið með tveimur
afsláttarmiðum. Ekki sættu allir
sig við þetta fyrirkomulag heldur,
og standa strætisvagnabilstjórar
nú alloft i stimabraki við að fá
fólk til að greiða farið með tveim-
ur farmiðum.en fá á móti fullyrð-
ingar, að þarna sé um okurstarf-
semi að ræða.
Að sjálfsögðu er þarna ekki um
að ræða nema hluta af þvi fólki,
sem á rétt á afslætti, og virðist
það helzt vera fólk, sem stundar
vinnu og þarf þvi að nota strætis-
vagna á annatimunum.
Helmings afslátt á strætis-
vagnafargjöldum, — með fyrr-
greindum undantekningum, —
fær fólk, sem orðið er sjötugt, og
þeir sem eru 75% öryrkjar eða
meira.
FIMMTUDAGUR SKER
ÚR UM FLUGMÁLIN
Næst komandi fimmtudag
verða haldnir hér i Reykjavik
tveir fundir, sem kunna að marka
timamót i islenzkum flugmálum.
Hér er um að ræða aðalfundi
Loftleiða h.f. og Flugfélags Is-
lands h.f., en stóra málið á báðum
þessum fundum verður samein-
ing flugfélaganna. Eins og kunn-
ugt er tókust bráðabirgðasamn-
ingar milli félaganna um þessi
mál i vetur á fundum, sem haldn-
ir voru fyrir milli göngu sam-
göngumálaráðuneytisins, en hlut-
hafar félaganna beggja þurfa að
samþykkja samningana á hlut-
hafafundum svo af framkvæmd-
inni geti orðið. Er ætlunin að
leggja þá fram til samþykktar á
fundunum á fimmtudaginn og
þess vegna hafa félögin tvö valið
að halda aðalhluthafafundi sina
bæði á sama degi.
í morgun átti að halda fund
með forráðamönnum flugfélag-
anna, samgöngu- og fjármálaráð-
herra. Þar átti að ganga frá
„ýmsum formsatriðum varðandi
uppbyggingu hins nýja hlutafé-
lags’, eins og Hannibal Valdi-
marsson orðaði það i samtali við
blaðið i gær Sagði Hannibal að
málið hefði verið i eðlilegum far-
vegi siðan samkomulagið tókst i
vor.
Fyrirfram er allsendis óvist
um, hvort samningarnir verða
samþykktir á fundunum og af
eigendum beggja félaganna.
Vitað er, að ýmsir bæði eigend-
ur og starfsmenn eru ákaft með
þvi, að af samþykktinni geti
orðið, en aðrir — bæði eigendur
og starfsmenn — hafa áhyggjur
af ýmsum atriðum málsins:
m.a. af þvi, að sameiningin
kunni að hafa i för með sér, að
mannahald félaganna dragist
eitthvað saman. Er sérstaklega
vikið að þessu máli i ritstjórnar-
grein i siðasta tbl. af Fréttabréfi
Loftleiða og er þar m.a. sér-
staklega tekið fram af greinar-
höfundi, sem mun vera Sigurður
Magnússon, blaðafulltrúi fé-
lagsins, að fólk eigi ekki að
þurfa að hafa áhyggjur af slik-
um atriðum þar eð sameining
flugfélaganna myndi verða
hvatning til aukinnar og efldrar
starfsemi að flugmálum i land-
inu og myndi sú starfsemi þurfa
á starfskröftum allra þeirra að
halda, sem nú starfa við flugfé-
lögin tvö.
Sennilega verða sameiningar-
samningarnir þó samþykktir af
félögunum báðum n.k. fimmtu-
dag en það verður samt að lik-
indum ekki með öllu ágreinings-
laust.
SÍLDVEIÐIBANNIÐ FRAMLENGT
Sildveiðibannið hér við land
hefur verið framlengt um eitt ár,
eða fram til 1. september 1974. Er
bannið algert.
Full samstaða varð um þessa
friðun hjá fiskifræðingum, út-
gerðarmönnum og sjómönnum.
Er það von þessarra aðila að
sildarstofnarnir nái sér að nýju
hér við land, og hafa fiski-
fræðingar lýst yfir bjartsýni um
að svo verði, og sildveiðar geti á
nýjan leik orðið arðbær atvinnu-
grein hérlendis.
hau eru íbyggin á svip
systkinin, sem þarna eru í
búðararki með mömmu
sinni, - enda hefur
gengið vel Ljósm. Friðþjófur