Alþýðublaðið - 28.06.1973, Qupperneq 7
BB
Hún þarf ekki að vera sérlega fögur kona. Ekki
af þeirri gerðinni,að karlmaður horfi á eftir henni
um öxl á götunni. Eigi að siður er konan ,,J”
gædd kyntöfrum — og eftir að hún hefur lokið
hinni löngu ferð frá ófullnægjandi kynlifi til kyn-
rænnar hamingju til að skýra öðrum konum frá
þvi,hvernig þær geti lært það sem með þarf til að
lifa raunverulega hamingjusömu og fullnægjandi
kynlifi.
Það hefur hún gert i bókinni ,,The
Sensous Woman” — sem verið hefur metsölubók
viða um heim, og er nú komin út á íslenzku undir
heitinu „Kynlif kvenna”. Þetta er einn kafli úr
þeirri bók— og hann heitir???????
Útlit, auglýsing og umsetning
Beygðu þig fram. Strikkar á
saumunum i grennd við bak-
hlutann eins og loðnunót sé
að bresta?
Klæðnaður, sem ekki er
mátulegur, er ekki heldur
kynæsandi.
Þá verður þú að komast að
raun um hvaða litir klæða
þig bezt, og haga þér siðan
samkvæmt þvi. Gefðu brúna
kjólinn, sem gerir litaraft
þitt svo fölt að þú minnir á
uppvakning, i fatasöfnun
einhverrar liknarstofnunar,
en gerðu alvöru úr þvi að
kaupa þann rauðbleika, sem
varpar heitri glóð á hörund
þitt.
Gerðu allt sem i þinu valdi
stendur til þess að útlitskost-
ir þinir verði sem augljósast-
ir, en gallar þinir dyljist.
Reyndu ekki að halda þvi
fram að þú sért ekki neinum
útlitskostum búin, þvi að ég
trúi þvi ekki. Athugaðu
sjálfa þig betur. Hvað um
augun, tennurnar, fæturna,
hárið? Hefurðu fallegan bak-
svip, eggjandi skut?
En skömm sé þér, og það
tvöföld skömm ef þú gerir
þig nokkru sinni seka um þá
óvirðingu að láta karlmann
sjá, að þú haldir undirfatnaði
þlnum að þér með öryggis-
nælum!
Notkun fegurðarlyfja get-
ur verið jákvæð eða neikvæð,
og fef það eftir tækni og
smekkvisi þess er fram-
kvæmir andlitssnyrtinguna.
Kunnáttuleg og smekkleg
notkun eykur tillitstöfra
þina. óhófleg og klaufaleg
notkun getur vakið grun um
að þú hafir sloppið út af geð-
veikrahæli. Ef þú ert ekki
viss um hvernig þú átt að
haga snyrtingunni, geturðu
viða fengið leiðbeiningar.
Margar snyrtivöruverzlanir
hafa sérfræðinga i þjónustu
sinni, sem miðla þér fúslega
af reynslu sinni og kunnáttu:
bæði hvaða snyrtilyf eigi
bezt við hörund þitt og
hvernig þú eigir að nota þau
þannig að hið fallegasta I
andlitsfalli þinu og svip komi
sem bezt i ljós, en dragi úr
þvi sem miður fer. Þá veita
og erlend kvennablöð og
tizkublöð oft nytsöm ráð i
myndum og máli hvað snyrt-
ingu og notkun fegrunarlyfja
við kemúr. Hyggilegast mun
þó hverri konu að fylgja
þeim leiðbeiningum þar sem
fram kemur hófsemi i notk-
un fegurðarlyfja, en ekki er
reynt að telja henni trú um
þaö — jafnvel að smyrja
andlit sitt yfir hundrað mis-
munandi lyfjablöndum áður
en hún dirfist að láta sjá sig
á almannafæri.
Siðan skaltu leita um alla
borgina þangað til þú finnur
sérfræðing i hárklippingu,
sem er starfa sinum vaxinn,
og greiða honum með bros á
vör hversu háa upphæð sem
hann krefur þig um að verki
loknu. Konan sem kollsligar
þig með þrem tylftum af vaf-
hólkum og bakar svo hárið
undiiþurrkhjálmi einu sinni i
viku, ræður ekki mestu um
daglegt útlit þess, heldur sá
sem klippir það. Sé það ekki
rétt klippt, getur lagningin
aldrei bætt svo úr þvi að hár-
ið skapi andliti þinu fegrandi
umgerð og sé þin helzta
prýði.
Notaðu ilmvatn, hafi
HANN þinn ekki ofnæmi
fyrir þvi. Það getur tekið
nokkurn tima og tilraunir að
finna þá tegund, sem bezt á
við þig. Þú getur haft það til
marks um að þú hafir fundið
hana, þegar það fólk sem þú
umgengst hefur orð á þvi
hvað þú angir dásamlega i
dag, og karlmenn spyrja þig
hvað hún heiti, ilmvatnsteg-
undin sem þú notar, vegna
þess að þá langi til að gefa
unnustu sinni, konu eða vin-
konu glas til prófunar.
Gættu þess stöðugt að
neglur á fingrum þinum og
tám séu óaðfinnanlega
snyrtar og fágaðar. Yfirleitt
fellur karlmönnum ekki að
neglur kvenna minni á
drekaklær, svo að þú skalt
forvitnast um smekk karl-
mannsins áður en þú tekur
upp þá tizku.
Jafnvel þótt þér kunni að
finnast slikt hálfgerður hé-
gómi, þá máttu ekki láta það
henda þig að þú sért ekki ó-
aðfinnanleg i klæðaburði.
Það má ekki henda að undir-
pilsfaldurinn gægist niður
fyrir, lykkjufall sé i sokkum,
saumspretta á hönzkunum,
eða skórnir skakkir með
slitnum hælum. Eða að
blússufaldurinn standi upp
úr pilsinu, eigi hann ekki að
vera utan yfir, handtaskan
sé úttorðin, og skæld, að
það vanti hnappa á kápuna
þina, þræðir hangi niður úr
földunumeðaleyfar af snyrt-
ingunni frá þvi i gær hrúðri á
andlitinu. Ef blettur, sem
ekki næst úr, kemur I blússu
eða kjól, skaltu ekki nota þær
flikur nema þegar þú ræstir
geymslurnar i kjallaranum.
Og siðast en ekki sizt
þetta: Láttu þig aldrei henda
að ganga I of litlum skóm eða
skóm sem meiða J)ig. Það af-
skræmir svo göngulagið.
Hreiniæti
Þó að margir evrópskir
karlmenn virðist leggja
takmarkaða áherzlu á hrein-
læti, taka bandariskir þær
konur, sem baða sig reglu-
bundið fram yfir aðrar. Ef
þú forðast að láta likama
þinn komast i snertingu við
H^O nema um algert neyðar-
tiívik sé að ræða, áttu þaö á
hættu að jafnvel svinahiröir
fúlsi við þér.
Farðu oft i bað. Notaðu
svitalyktareyði. Upprættu
hár I handakrikum og á fót-
leggjum. Eigir þú við skegg-
vöxt að striða, þá skaltu láta
sérfræðing eyða honum með
rafbruna. Haltu nöglum á
fingrum og tám hreinum og
fáguðum. Þvoðu hárið úr
„sjampó” þangað til neistar
af þvi.
Gættu þess vandlega þegar
þú hefur tiðir að skipta svo
oft um þurrkur og legganga-
stauta að ekki sé nein hætta á
að nokkur ódaunn myndist.
Ódaunn á meginathafna-
svæði ástarinnar er allt ann-
að en kynmakaörvandi.
Einn er sá staður þar sem
konum hættir við að gleyma
að gera hreint fyrir sinum
dyrum, en það er snipurinn
og snipstæðið. Sakir sköpu-
lagsins þar geta litlar ó-
hreinindaagnir lokazt þar
inni án þess að vera sjáan-
legar. Dragið hörundsfell-
inguna til baka og laugið
stæðið gaumgæfilega og með
varúð á hverjum degi.
Vaxtarlagið
Ef þú hefur safnað á þig
fitu hingað og þangað, þá
losaðu þig við hana, þvl að
hún er þvi þröskuldur i vegi,
að sá sem þú elskar komist
eins nálægt þér og þú þráir.
Kunnir þú ekki sjálf nein ráð
til að fjarlægja aukakilóin,
skaltu leita sérfræðings i
megrun. Hann leiðbeinir þér
varðandi nauðsylegar breyt-
ingar á mataræðinu, en ef
slikur sérfræðingur er ekki
við hendina, skaltu leita fyrir
þér I nuddstofum og á heilsu-
ræktarstöðvum. Þar hefur
fólk losnað við óþarfa fitu i
smálestatali.
Enda þótt átt geti sér stað
að HANN unni þér af öllu
hjarta eins fyrir það að þessi
sjö til átta aukakiló hangi
sem skvap utan á þér, þá er
það fortakslaust að hann
muni elska þig enn heitara
og verða stoltari af vaxtar-
lagi þinu, ef þú losar þig við
keppina.
Ef það er ekki fitan, sem
bagar þig, heldur vöðvaslaki
og holdslap kemstu ekki hjá
að stunda likamsæfingar. Jú,
eins og ég viti það ekki —
mér er lika meinilla við þess
háttar áreynslu. Það fyrir-
finnast margar ágætar bæk-
ur varðandi likamsrækt, og
einnig geturðu snúið þér til
sérfræðinga á þvi sviði, það
er nóg af þeim. Og loks eru
það enn heilsuræktarstöðv-
arnar.
Þótt likamsæfingar séu
þrautleiðinglegar, þá eru
þær gagnlegar. Og áður en
langt um liður verður þau
laus við þessa stöðugu lúatil-
finningu, allar hreyfingar
stæltari og göngulagið fjaö-
urmagnaðra.
Heilbrigði
Láttu ekki undir höfuð
leggjast að leita til sérfræð-
ings I kvensjúkdómum
tvisvar á ári og einu sinni til
heimilislæknisins til gagn-
gerrar skoðunar. Þú nýtur
ekki kynmaka né annarra
ástaratlota nema þú sért að
öllu leyti heilbrigð.
Röddin
Fátt er jafn fráhrindandi i
fari kvenna og leiðinlegur
málrómur. Þaðgildireinu þó
að þú sért jafn girnileg útlits
og ásýndum og Gina
Lollobrigita, ef það ltur i
eyrum eitthvað svipað og
gaddavir sé dreginn þvert
yfir bárujárnsplötu i hvert
skipti sem þú opnar munn-
inn, þá er hætt við að HANN
haldi sig ekki i návist þinni
lengur en brýna nauðsyn ber
til. Margar konur sem hafa
óþægilega rödd, eru
blessunarlega lausar við að
renna grun i það, auk heldur
meir. Þú ættir að fá lánað
segurbandatæki, tala inn á
það og hlutsta siðan
gaumgæfilega á þina eigin
rödd. Er sú rödd sem þú
heyrir þýð, kvenleg og
hljómfögur? Eða er hún
hrjúf og glymjandi? Hváö er
unnið við að þú sitjir lengi
dags i snyrtistofu og gangir
út þaðan ásýndum eins og
fegursta draumadis, ef
HANN kippist við eins og
stungin með glóandi nálar-
oddi i hvert skipti sem þú
„hvislar” hugljúfum gælu-
orðum i eyra hans?
Ef þú telur þig komast að
raun um að nokkuð muni
skorta á æskilega hljómfeg-
urð raddar þinnar, fyrirfinn-
ast nú sérfræðingar i radd-
beitingu og raddþjálfun, sem
lagt geta þér lið. Auk þess
geturðu sjálf lagað rödd þina
að mun með aðstoð segul-
bandstækis ef þú ert nógu
viljasterk og smekkvis.
En borgar slik fyrirhöfn
sig? Vissulega. Ef rödd þin
er gædd slikum seiðtöfrum,
og hann þráir mest af öllu að
vera kominn til þin og vefja
þig örmum i hvert skipti sem
þú talar við hann i sima — er
það þá ekki nokkurs virði,
sem þú hefur fengið i aðra
hönd?
Minnstu þess að allar kyn-
gyðjur á okkar tið hafa mælt
þeirri röddu sem ekki var
siöur áhugaverö en ytra útlit
þeirra.. Marlyn Monroe tal-
aði hvisllágri og við
kvæmri röddu, sem allir
muna er heyrðu. Rödd
Sophie Loren er seiömjúk og
dul. Þó aö rödd Elizabeth
Taylor láti ekki mikið yfir
sér, er hún þrungin gleði og
lifsfjöri. Þessar konur hafa
lært að beita röddinni þann-
ig. Þú getur einnig öðlazt
þlna seiðþrungnu rödd sem
enginn karlmaður stenzt. Ef
þú vilt einungis vilt. Og það
áttu að vilja og vinna að þvi.
Hættur kynlifsins
Þvi er ekki aö neita, að
kynlifinu fylgir alltaf viss á-
hætta.
Kæruleysi getur valdið
óskilegri þungun.
Eiginmaður þinn eða elsk-
hugi geta sýkt þig af sam-
ræðissjúkdómi. Detti
mér sárasótt eða lekandi i
hug, verður mér flökurt og
sennilega er eins um þig.
Það er hræðilegt að taka
slikan sjúkdóm — en þvi fer
fjarri að það sé hið versta
sem getur hent þig i þessu
lifi. Þú leggur þig i mun al-
varlegri hættu þegar þú
reykir sigarettu heldur en
við samfarir, þar eð þú ert
svo heppin að vera ekki fædd
til unaðssemda lifsins fyrr en
visindin höfðu fundið upp ör-
uggt og fljótvirkt lyf við
samræðissjúkdómum.
Ekki vil ég beinlinis halda
þvi fram að sárasótt og lek-
andi hafi verið einskonar
yfirstéttarsjúkdómar, en
margir frægir og mikilsvirtir
menn sýktust af þeim. Það
er ekki ýkjalangt siðan ég
var að lesa ævisögu Jennýar
Churchill, og þar var frá þvi
sagt, mér til mikillar undr-
unar, að eiginmaður henn-
ar, Randolph lávarður —
faðir Winstons Churchill —
hefði þjáðst af sárasótt.
Verði eitthvað til þess að
vekja með þér ótta um að
ekki fari allt með felldu niðri
þar, skaltu ekki standa eins
og glópur stjörf af skelfingu
heldur taka sprettinn til
næsta kvensjúkdómalæknis
og láta hann kipp'a þessu i
lag. Þvi lengur sem þú dreg-
ur það, þvi erfiðara verður
að ráöa niðurlögum sjúk-
dómsins.
Fyrir það skaltu tafarlaust
biðja lækninn hjálpar, en
bölbæna þeim er sýkti þig —
þó ekki svo hátt að hnýsnir
nágrannar heyri til þin. Enn
er ekki komin sú tið að sómi
þyki af kynsjúkdómum.
Þungun og samræöissjúk-
dómar eru þó ekki einu
óþægindin, sem þú getur orð-
ið þér úti um fyrirkynmök.
Bezta vinkona min átti vin-
gott við einhvern þann há-
göfugasta piparsvein af
hinni alþjóðlegu glaumhirð,
sem um getur — flestir af
lesendunum mundu kannast
við hann, ef ég segöi til hans.
Nema hvað það bar við eitt
rómantiskt vorkvöld er þau
sátu á veitingastað i La
Grenouille, að hann stakk
upp á þvi að þau skryppu
flugleiðina undir lágnættið til
Suður-Frakklands, þar sem
hann hafði óðalssetur til um-
ráða. Þetta setur var hið dá-
samlegasta, búið rekkjum
frá sextándu öld, þessum
sem maður sekkur i og vill
aidrei þurfa að fara fram úr
aftur. Þannig var það að
minnsta kosti með þau —
þangað til þau urðu þess vör
að á þau hafði skriðið flatlús
úr sængurfötunum, en sú
tegund lúsar sezt að i skapa-
hárum konunnar og kyn-
færahári karlmannsins, þó
að flestir likamshlutar hans
séu raunar undirlagðir. Vin-
kona min fylltist ólýsanleg-
um viðbjóði, þegar hún sá
þessi andstyggilegu snikju-
dýr bita sig föst, og enda þótt
hún og félagi hennar fengju
tafarlaust viðeigandi með-
höndlun var það lengi á eftir
að henni fannst sem eitthvað
kvikt væri á iði og skriði þar
sem þessi kvikindi höfðu gert
sig heimakomin. Eitt er vist,
að eftir þetta tekur hún sótt-
hreinsuð rekkjufötin á
Hilton-hótelunum fram yfir
sextándu aldar rekkju-
búnaðinn á hinum
rómantisku óðalssetrum.
En þrátt fyrir allt það, sem
hér hefur verið á minnzt —
kynsjúkdóma, flatlús og
óæskilega þungun — er
áhættan ekki slik, að ástæða
sé til þess að þú rænir sjálfa
þig öllum unaði kynlifsins
hennar vegna. Fyrst og
fremst er það harla óliklegt
að þú verðir fyrir neinum
þess háttar óþægindum.
ööru lagi er hægurinn nærri
að ráða bót á þeim, ef til
kæmi. Þú stofnar þér i mun
meiri hættu i umferðinni,
ekki einungis daglega, held-
ur oft á dag.
Varpaðu þvi frá þér öllum
kviða og njóttu unaðar sam-
faranna áhyggjulaust.
i geta karlmenn haldið getu sinni?
nörgum góö ráð, að
bg leita nú til þin i
>eirri von.að þú getir
iinnig hjálpað mér.
Ég hef aðeins einn
ím fimmtugt, en er
;igi að siður getu-
aus. Geturðu gefið
nér góð ráð við þvi?
Hvað lengi ævinnar
er eðlilegt að karl-
maðurinn haldi getu
sinni?
Fyrirgefðu til-
ætlunarsemina og
með fyrirfram þakk-
læti.
Beztu kveðjur.
A.A.
Kæri A. A.
Spurningin varðandi
„getuhvörf karlmannsins”
er mikið rædd einmitt nú.
Ekki ætla ég að gerast
dómari þar. Og getuleysið
getur orsakazt af svo mörgu
og á sér oft og tiðum
sálrænar ástæður.
En sé orsökin minnkandi
hormónagerð I likamanum,
þá fyrirfinnast hormónalyf,
sem reynzt geta þér gagnleg.
Einnig sem töflur. Ræddu
það mál við heimilislækni
þinn. Aldursins vegna gæti
vel átt sér stað að um getu-
hvörf væri að ræða. Leiði
rannsókn hins vegar i ljós
þverrandi hormónagerð, er
eins vist að læknirinn láti þér
i té lyfseðil — en töflurnar
eru dýrar.
Karlmenn geta haldið getu
sinni fram á elliár. En það er
ákaflega mismunandi og
einstaklingsbundið.
Beztu kveðjur.
Knud Lundberg.
Fimmtudagur 28. júní 1973
o