Alþýðublaðið - 28.06.1973, Síða 11
ÖRLÖG
Enn einn kapítulinn bætist við í mikla sorgarsögu
hinnar ævintýralega auðugu Getty-fjölskyldu
Óheillafj ölsky ldan
Gegnum allt lif múltimillans Paul Getty
hefur undrum auðsins verið jafnað við
samsafni báginda.
t>að getur vel verið á misskilningi
byggt að gera ráð fyrir, að milljónirnar
hans hafi verið upptök þeirrar eitrunar,
sem gegnsýrt hefur persónuleg sambönd
hans og skilið hann eftir með ör eftir fimm
eyðilögð hjónabönd og sárindin af stöðugu
ósamkomulagi við synina.
Nú þegar hann syrgir yfir hinum dular-
fulla dauðdaga elzta sonarins. George,
er átti að erfa fjölskylduauðinn, sem
mun vera meðal þeirra tveggja-þriggja
mestu i heimi, þá hlýtur hinn illa lánaði
ættfaðir að láta hugann reika til þeirra
fjölmörgu ára, sem feðgarnir tveir eyddu
stöðugt i rifrildi hvor við annan.
Nýlega hafði samband þeirra tekið
mjög að skána, en hinn áttræði faðir, i fel-
um i Sutton Place Stórhýsinu i
Surrey, sem hann gerði að safni meist-
araverka málverka- og höggmyndalistar,
hlýtur að hugsa um hinar slæmu stundir
og hvers vegna svo þurfti endilega að
vera.
ömöguleikinn.
Og hann mun minnast annarra sára
hugans, sem honum hafa verið veitt og
hann hlýtur að spyrja sjálfan sig að hve
miklu leyti hann hafi veitt sér þau sjálfur.
Upptök óhamingju hans kunna ekki að
hafa verið peningarnir, heldur sá blindi
ákafi, sem hann hefur elt þá i.
Allt frá fyrstu skrefum hans i viðskipta-
heiminum — þegar hann hamingjusamur
yfirgaf verndandi aðstæðurnar i oliufyrir-
tæki margmilljónungsins föður sins til
þess að reyna sig i hinni grimmu sam-
keppni um nýjar oliulindir i Oklahóma —
hefur honum auðsjáanlega þótt ógerning-
ur að skilja og viðurkenna annarra
manna gildismat en sjálfs sin.
Og i þessum starfsanda þá skiptir
leyndardómurinn um að vaxa fljótt til
auðs og valda mestu máli. Það hlaut þvi
að brydda fljótlega á deilum við siðari
tima kynslóðirnar og þá einnig við þá af
þeirri kynslóð, sem hann átti sjálfur hlut-
deild i að skapa.
Ást hans á viðskiptunum eyðiiagði öll
hin fimm hjónabönd hans. Það annað i
röðinni, við Allene Ashby, stóð aðeins i
tvær vikur.
George, sem nú hvilir dauður i mold i
Kaliforniu, eftir að hafa verið fluttur i
snarhasti i sjúkrahús úr garðveizlu og við
óljósar kringumstæður, var ávöxtur
fyrsta hjónabands Paul Getty við Jeanne
Demont frá árinu 1922.
Eftir hina skammvinnu hjónabands-
sælu með Allene Ashby, tók það Paul að-
eins tvö ár að búa sig til næstu tilraunar.
Adolphine Helmle var brúðurin árið
1928. Hún ól Paul Getty annan son hans,
Ronnie. Hann er nú löglegur erfingi fjöl-
skyiduauðsins, sem metinn er á 500 millj-
ón dollara (ca. 48 þúsund milljónir isl.
kr.). en einnig kvað hann varðar hafa
hver bágindin rekið önnur.
Samband Ronnie, sem er 43ja ára gam-
all, og fjölskyldunnar, varð þvingað og
hann yfirgaf ættmenni sin og stofnaði sitt
eigið kvikmyndafélag. Hann sagði einu
sinni á þessa leið: ,,Ég þykist ekki lifa
fjölskyldulifi með föður minum.”
Bölvun
Það virðist vera, að mjög fáir Gettyar
hafi lifað fjölskyldulifi með öðrum Getty-
um.
Þegar hann var laus úr hjónabandinu
framangreinda með Fini Helmle, þá gekk
Paul Getty til móts við f jórða hjónabandið
og að þessu sinni giftist hann kvikmynda-
stjörnunni Ann Rork árið 1932.
Hún ól honum tvo syni, Paul og Gordon,
og þeir áttu eftir aö falla fyrir þeirri bölv-
un, sem virðist hvila yfir fjölskyldunni.
Fyrir tveimur árum lézt eiginkona Paul
yngri, Talitha Pol, af ofneyzlu eiturlyfja i
Róm.þar sem hjónin höfðu lifað trylltasta
iifi, sem þessi borg hins ljúfa lifs gat boðið
upp á.
Áður en þessi fagra frænka listmálar-
ans Augustus John gaf upp andann.höfðu
hún og Paul yngri slitið samvistir, en
• George Getty og faðir hans Paul í ár. Nýlega höfðu þeir orðið miklu
samrýmdari eftir margra ára ósamkomulag.
endaiok hennar urðu engu að siður mikið
áfall fyrir gamla manninn á Sutton Place.
Dáður.
Gordon Getty, yngsti núlifandi sonurinn
og 38 ára að aldri, jók ekki vinsældir sinar
hjá fjölskyldunni þegar hann hóf mála-
rekstur til þess að fá þeirri kröfu sinni
framgegnt, aðu.þ.b. 44ra milljón dollara
arði af höfuðstólnum i einkasjóði fjöl-
skyldunnar skyldi skipt milli fjölskyldu-
meðlima.
Paul Getty átti fimmta soninn, sem var
ávöxtur siðustu tilraunar hans til þess aö
finna hamingju i hjónabandi. Louise Dud-
ley Lynch, kölluð Teddy, eignaðist son.
nefndan Tommy, sem var dáður af föður
sinum.
En dýpt þeirrar ástar breyttist i óhugg-
andi sorg þegar Tommy fékk heilaæxli og
varð að leggjast undir skurðarhnifinn hjá
heilaskurðlæknum við University Hospit-
al i New York.
Hver skurðaðgerðin fylgdi annarri um
nokkurra ára skeið og drengurinn fékk
mikil ör á ennið til minja. Það var svo
eftir að hann hafði verið skorinn af lik-
amslýtasérfræðingi svo örin yrðu fjar-
lægð.sem hann fékk eftiraðgerðaráfall og
iézt 12 ára að aldri. Það varð árið 1958.
Paul Getty og Teddy Linch voru þá þeg-
ar skilin og enn einu sinni var hinn marg-
faldi milljónamæringur einn með sorg
sina.
Að sjálfsögðu hafa ekki allir atburðir
lifs hans verið sorglegir. Fyrir utan á-
nægjuna, sem hann hefur hlotið af þvi að
fást við listasafn sitt og einkum og sér i
lagi er hann hefur eytt nokkrum pundum i
að kaupa málverk, sem fleygt hefur verið
á haug.en reynist við nánari athugun vera
sigilt listaverk eftir Raphael, þá hefur
hann augljóslega haft mjög gaman af þvi
að leika hlutverk hins sérvitra nizkupúka.
Hinar f jölmörgu sögur um nizku hans —
sjálfssölusimar i Sutton Place, sú stað-
reynd,að er hann i fyrsta sinn keypti þjón-
ustu auglýsingafyrirtækis eftir að hann
hafði verið valinn rikasti maður ársins,þá
greiddi hann þvi timakaup, þegar hann
krafðist 2000 punda fyrir að leyfa að Sutt-
on Place sæist á kvikmynd og 5 punda i
aukaþóknun fyrir hundana sina tvo — all-
ar þessar sögur eru til merkis um þann
staðfasta tilgang hans að verða þekktur
sem nizkasti maður á jörðinni.
Óhæfur
Elsa Maxvell, sú fræga kjaftatófa og
veizluhaldari, bauð honum eitt sinn i fjöl-
mennan hádegisverð i New York i þeim
augljósa tilgangi, að hann íengist til þess
að skrifa upp á reikninginn.
Getty afsakaði sig rétt áður en fram-
reiða átti kaffið að málsverðinum loknum
og laumaðist út.og skildi þar með vesa-
lings Elsu Maxvell eftir með óleyst
vandamál. Þetta er ein af uppáhaldssög-
um Gettyá sjálfs.
Hún er samt sem áður ekki ein af þeim.
sem um þessar mundir eru sagðar á sorg-
bitnu heimili múltimillans. Hugur Paul
Getty dvelur nú við annað — e.t.v. lang-
helzt við algert getuleysi hans til þess að
setja sig I spor yngri kynslóðarinnar og
skilja viðhorf hennar.
,,Ég hef oft furðað mig á kæruleysisiega
og ,,skiptir-ekki-máli" hætti, sem ungir
karlar og konur nú á dögum varpa frá sér
allri hugsun um þær skuldir. sem þetta
unga fólk á foreldrum sinum að gjalda og
hve viljuglega það yglir sig við fjölskyldu-
tengslum og siðvenjum". ritaði hann eitt
sinn i sjálfsævisögu sinni.
Einfaldleiki.
,,Ef til vill er þetta vegna þess, að ég
heyri gerólikri kynslóð til.sem ég finn ekki
til neinnar feimni þegar ég segi að ég hafi
elskað móður mina og föður inni-
lega....jafnvel eftir að ég hef náð miðjum
aldri ræði ég oft um þau sem ..elsku
mömmu" og ..bezta pabba".
Ekkert — ekki milljónirnar hans eða
listasafnið né heldur sérvizkan — gat
tryggt J. Paul Getty gegn sorglegu getu-
leysi til þess að öðlast þetta sama einfalda
samband við konur sinar eða börn..
o
Fimmtudagur 28. júní 1973