Alþýðublaðið - 13.07.1973, Side 1

Alþýðublaðið - 13.07.1973, Side 1
IULÍ ER SLYSfl- MÁNUÐUR BARNA OG ÞETTA ÆTLAR AÐ VERÐA BARNASLYSAÁR Mikill slysafaraldur meðal barna hefur verið það sem af er árinu, og hafa alls niu börn farizt af slysförum, þar af þrjú i þessum mánuði. enda er júlimánuður hvað hættu- legasti mánuður ársins, að þvi er Slysavarna- félagið segir. Þá fara foreldrar barna i sumaríri. og skipta þá gjarnan um umhverfi, en börnunum er sérstaklega hætt i nýju umhverfi er ekki er litið eftir þeim, eða þeim gerð grein fyrir nýjum hættum. I ár hafa t.d. þrjú börn drukknað, en algengt er að börn, sem eru óvön ám og vötnum, vaði út i. i barnaskap sinum, og fari sér að voða. Þá er börnum hætt i klettum og fjallshliðum. Óhugnarlegur stigandi er i slysadauða barna i ár. þvi nú þegar árið er rétt rúmlega hálfnað, hafa niu börn þegar íarizt, en allt árið i fyrra fórust 12 börn, og sami fjöldi árið áður. — Þorir er aðrir þegja Skólplagnir í höfnina samræmast ekki hreinlætiskrofum um gerö matvæ Verður fiskvinnsla bönnuð í Eyjum? Ilöfnin i Vestmanna- eyjum verður mikið vandamál i vetur, ef ein- hver umferð verður um hana að ráði og bærinn byggist aftur. Þar eð inn- siglingin hefur þrengzt til inuna, verður nánast engin endurnýjun sjávar i liöliiinui, eu i hana rennur allt skólp frá Vestmanna- eyjahæ. Getur svo farið að fiskvinnsla verði ekki leyfð i fiskiðjuverunum við höfnina af hreinlætis- áslæðum. t l'yrra sumar var byrjað að teikna skólp- lögn út fyrir Eiðið i Vest- mannaeyjum, enda var höfnin yfir háannatimann eins og forarpollur. Ástandið hefur enn versnað hvað inn- siglinguna varðar, og menn óttast að höfnin verði hreint viðbjóðsleg, ef einhver starfsemi verður i frystihúsunum og fólki fjölgar að ráði i bænum. Er það hald manna, að yfirvöld muni jafnvel banna vinnslu matvæla við þessar að- stæður, en vart verður bönnuð vinnsla loðnu. Ljóst er af þessu, að skólplögn út i sjó verður eitt brýnasta verkefnið ÞETTA ER BAK- HLIÐ PRÍMA- PYLSUSÖLUNNAR Vélum Hvað skyldi það nú vera sem er við bakdyrnar hjá Prima pylsum i Austurstræti? Það er eins og sjá má á meðfylgjandi myndum, mannhæðar háir haugar af alls kyns drasli og óþverra og einhvers staðar undir hrúgunni má sjá grilla i öskutunnur, sem fyrir löngu eru orðnar yfirfullar. Það er vart íorsvaranJegt að selja matvæli við slikar aðstæður, þó ekki sjáist draslið frá afgreiðsluborðinu. Pylsusalan mun vist ekki vera eini eigandi ósómans, Herrabúðin á eflaust drjúgan hluta draslsins. Ekki er nóg að hafa framhlið verzlunarinnar hreinlega og glæsilega. Eigendur verða einnig að huga að öllu umhverfinu i kring. Þá má og benda á, að mikil eldhætta er af svona drasli. Sóðaskapur Kópa- vogsfyrirtækja H varð- skipa breytt Nú er i athugun að breyta vélum allra islenzku varðskipanna þannig, að nota megi til brennslu svartoliu, sem er mun ódýrari en venju leg skipaolia, en að þvi er Pétur Sigurðsson, for stjóri landhelgis gæzlunnar sagði við Alþýðublaðið i gær, er þarna um að ræða milljóna sparnað á ári fyrir gæzluna. t gær hélt landhelgis gæzlan fund með svo nefndri svartoliunefnd um það, hvernig hag kvæmast sé að reyna að gera nauðsynlegar breyt ingar á einu varðskip- til reynslu. Svart oliunefnd þessi var sett á laggirnar til þess að kanna hagkvæmni þess að taka upp notkun £ svartoliu á öllum fiski skipaflotanum, en for- maður hennar er Gunnar Bjarnason, fyrrverandi skólastjóri. Notkun svartoliu hefur þegar verið reynd i tæpt ár i togaranum Narfa, en þær breytingar, sem nauðsynlegar eru koma upphaflega frá vélsmiðju Narfa. Breytingarnar eru aðallega fólgnar i þvi að tengja við oliuverkið tæki til að hita hana upp og gera hana þannig þynnri Blaðið hafði samband við Guðmund Jörundsson eiganda Narfa, og spurði hvernig notkun svart oliunnar hafi reynzt Hann sagði, að ekki sé timabært að skýra frá þvi að svo stöddu, en það muni verða gert þegar til raunin hefur staðið yfir i ár, — en það er næsta haust. Waidheim hef- ur iagt til, aö Mann- réttindasáttmáii Sameinuöu þjóð- annanáitilalþjóð- 11 Hálf miiljón faanda- riskra hermanna eru alkóhólistar, segir í nýrri herskýrslu. Á- LEITA ÍSLENZKIR BANKAR NÝRRA BANKASAMBANDA í BRETLANDI? UPPGJOR VIÐ HAMBROSBANKA Er litilsvirðing á islenzkum bönkum að knýja til nýrra banka- sambanda i Bretlandi? Blaðinu er kunnugt um islenzka aðila, sem telja, að hér sé ekki um að ræða starfshætti heldur óþolandi framkomu, sem gæti valdið tjóni, sem erfitt yrði, eða jafnvel ómögulegt að bæta. Eitt dæmi skal hér tilgreint, sem greinir frá þvi, að senn eru tvö ár frá þvi, er Hambros-banki i London afhenti útflutningsskjöl frá Islandi án þess að taka við greiðslu. Var hér um að ræða nálægt 6 milljón króna verðmæti í loðnumjöli, sem selt var cif. Rotterdam, Hollandi, til greiðslu i banka i Eng- landi. Fóru útflutnings- pappirar i gegnum Otvegsbanka tslands til viðskiptabanka hans i Englandi, sem, eins og fyrr greinir, afhenti skjölin án þess að greiðsla kæmi á móti. Móttakandi skjalanna seldi siðan loðnumjölið til Austurrikis, þar sem það var notað i dýrafóður. Eftir að það va'rð ljóst, að brezki bankinn hafði afhent heimildarskjöl fyrir vörunni án þess að taka við greiðslu hefur hvorki gengið né rekið i þessu máli, en þó ýmis- legt gerzt. Meðal annars komu hingað til lands tveir menn frá Scotland Yard, til þess að rannsaka hina islenzku hlið málsins, sem talið er að liggi raunar mjög ljós fyrir. Hins vegar mun kaup- andi mjölsins i Austurriki hafa farið á hausinn, en móttakandi skjalanna frá enska bankanum situr i London, og ekki kemur greiðslan. •••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.