Alþýðublaðið - 13.07.1973, Side 9

Alþýðublaðið - 13.07.1973, Side 9
íþróttir 19 ÁRA SETUR HEIMSMET Það þykir ætið viðburður þegar nýtt heimsmet i hástökki sér dagsins ljós, enda það met sem einna erfiðast er að bæta. Nýtt met sá dagsins ljós i fyrrakvöld, 19 ára Bandarikjapiltur Dwight Stones vippaði sér fyrstur fyrir 2,30 metra, og bætti þar með met landa sina Pat Matzdorf um einn sentimetra. Metið var sett i Munchen, en þar fór fram landskeppni Banda- rikjanna, Vestur-Þýzkalands og Sviss. ALLIR KOMNIR Gárungarnir segja, að það sé þetta, sem Baldur valiarstjóri sé hrædd:,stur við i kvöld. Ilonuni er alltaf illa við það, þegar völlurinn hans er skeinindur, ogekki er að búast við mjúkum tökum, þegar iþróttamönnunum og stjórn KSÍ verður lileypt inn á völlinn hans i kvöld. Nú er allt norræna fimleika- fólkið komið hingað til lands, og hafa ábyggilega aldrei jafn margir fimir gist island fyrr. Á morgun verður fimleikamótið sett i Laugardalshöll, og þá segj- um við nánar frá þvf og birtum myndir. IANDSLHN PRESSULEIKNUM! Eins og við var að búast, kaus KSÍ að tcfla fram óbreyttu landsliði til pressuleiksins á Laugardalsveliinum i kvöld, iiðinu sem stóð sig svo frábærlega gegn Svíum i fyrrakvöld. íþróttafréttamenn tefla cinnig fram liði, sem þeir telja mjög gott. i kvöld ætti því að sannast það sem margir hafa haidið fram, að breiddin i knattspyrnunni okk- ar sé svo mikil, að við getuin teflt fram tveimur svipuðum liðum. Leikurinn i kvöld hefst um klukkan 20.30, en á undan er forleikur er rætt um hér að neðan. sem nanar Til upprifjunar er hér lið KSl: 1. Þorsteinn Ólafsson IBK 2. Ólafur Sigurvinsson IBK. 3. Astráður Gunnarsson IBK 4. Einar Gunnarsson IBK 5. Guðni Kjartansson IBK, fyrirliði 6. Marteinn Geirsson Fram 7. Gisli Torfason IBK 8. Guðgeir Leifsson Fram 9. Ólafur Júliusson IBK. 10. Matthias Hallgrimsson IA 11. Ásgeir Sigurvinsson IBV. 12. Diðrik Ólafsson Vik. 13. Friðf. Finnbogason IBV 14. Asgeir Eliasson Fram. 15. örn Óskarsson IBV 16. Steinar Jóhannsson IBK. Lið iþróttafréttanianna er þannig skipað: 1. Magnús Guðmundss. KR 2. Jón Alfreðsson IA 3. Magnús Þorvaldsson Vik, 4. Jón Gunnlaugsson 1A 5. Jón Pétursson Fram 6. Jóhannes Edvaldsson Val 7. Teitur Þórðarson IA 8. Hörður Hilmarsson Val 9. Hermann Gunnarsson Val, fyrirliði. 10. Karl Hermannsson IBK 11. Þórir Jónsson Val. 12. Sig. Haraldsson Val 13. Róbert Eyjólfsson Val 14. Grétar Magnússon IBK 15. Stefán Halldórsson Vik. 16. Jón Hermannsson Árm. Eins og sjá má, verður þetta eflausthörkubarátta , og marga fýsir eflaust að sjá Sviþjóðar- farana reyna sig gegn þessu liði sem iþróttafréttamenn hafa stillt upp. TVISYNN FORLEIKUR A undan pressuleiknum, eða um klukkan 19,45 hefst forleikur iþróttafréttamanna og stjórnar og nefnda KSI. Þarna gefur að lita margan kappann, en þó munu eflaust augu flcstra bein- ast aö Ómari Itagnarssyni i liði fréttamannanna, og Albert Guðmundssyni i liði KSÍ. Það eru ár og dagar siðan hann hefir snert á knattspyrnuskóm. Aðrir eru t.d. Hafsteinn Guð- mundsson, Helgi V. Jónsson, Bjarni Felixson, örn Steinsen, Guðmundur Haraldsson og fleiri mætti nefna. Iþróttafréttamenn hafa nú ekki eins fræg ,,nöfn” i sinum röðum, en það segir nú ekki alla söguna. Hins vegar hafa þeir i markinu hjá sér mann sem kann sitthvað i faginu, nefnilega Helgi Danielsson. Og frammi mun Ómar sjá um mörkin. Sem sagt, hörkuleikur, og mjög svo tvisýnn, þótt menn reikni nú al- mennt með sigri fréttamann- anna, i það minnsta i frásögnum af leiknum. Blikarnir elta ÍBK • Það er eitt, sem keflviskir knattspyrnumenn óttast öðru fremur, nefnilega að lenda á móti Breiðabliksmönnum, enda geng- ur þeim yfirleitt illa i viðureign sinni við þá. Þó er það svo að lið þessi loða ótrúlega saman, það sannaðist vel þegar lið voru dreg- in saman i 1. umferð aðalhluta bikarkeppni KSl. Urslit dráttarins urðu á þennan veg: IBK-Breiðablik Fram-Haukar Valur-Vestm. Vik.-Þróttur R. FH-Þróttur N. Selfoss - Akranes Isafj.-Akureyri Völsungur- KR. Þessi umferð verður leikin 25. júli. Einn annmarki virðist þó á þessu, nefnilega sá að þrjú Reykjavikurfélög eiga heimaleik sama kvöldið. Getur svo farið að i þessu tilfelli verði að hliðra ein- hverjum leikjum. Stórleikir um- ferðarinnar verða hiklaust leikir Vals og Vestmannaeyja, IBK og Breiðabliks. Jóhann Guðmundsson GR er einn þeirra þriggja pilta sem hafa verið valdi bæði i lnndslið og unglinga- landslið. ilonum gekk ekki vel í Portúgal, en vonandi gengur honum betur i Silkeborg. SÉXPILTAR VALDIR Á NAA í GOLFI í LOK JULÍ Unglingalandslið tslands i golfi, sem tekur þátt i Evrópu- meistaramóti unglinga, sem haldið verður i Silkeborg i Dan- mörku dagana 26. til 29. júli n.k. hefur nú verið valið. I liðinu verða 6 piltar, sem all- ir eru 21 árs og yngri, en auk þeirra hafa verið valdir 4 vara- menn, sem koma inn ef einhver þessara 6 fellur úr. Liðið skipa eftirtaldir piltar: Björgvin Þorsteinsson, Golf- klúbbi Akureyrar — (GA) Lof-tur Ólafsson, Golfklúbbi Ness — (NK) Hannes Þorsteinsson, Golf- klúbbi Akranes — (GL) Ólafur Skúlason, Golfklúbbi Reykjavikur — (GR) Jóhann Ó. Guðmundsson, Golf- klúbbi Reykjavikur — (GR) Óskar Sæmundsson, Golfklúbbi Reykjavikur — (GR) Varamenn eru: Sigurður Thorarensen GK, Atli Arason GR, Þórhallur Hólmgeirsson GS og Ragnar Ólafsson GR. Fararstjóri liðsins verður Konráð R. Bjarnason Liðið mun halda utan strax að loknu Islandsmótinu i golfi, sem hefst 16. júli n.k. og stendur i sex daga. Fara þeir utan þann 23. júli og koma heim þann 30. júli. Keppni þessi verður leikin með sama fyrirkomulagi og EM-karla i Portugal á dögun- um, þannig að liðunum er raðað i riðla eftir árangur fyrsta dags- ins. I EM-karla tóku þátt þrir af þessum piltum: Björgvin Þorsteinsson, Loftur Ólafsson og Jóhann Ó. Guðmundsson. Þetta verður i fyrsta sinn, sem unglingalandslið frá Islandi tekur þátt i golfkeppni frá þvi að fyrst var farið að leika golf hér á landi fyrir nær 40 árum. Föstudagur 13. júli 1973. o

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.