Alþýðublaðið - 13.07.1973, Page 12
EVKST
DRYKKJAN
Að krónutölu hefur sala á-
fengis aukizt allmjög á tima-
bilinu frá 1. april til 30 júni
miðað við sama tima i fyrra,
eða sem svarar 41.5%.
En þar sem veruleg verð-
hækkun hefur i millitiðinni
orðið á áfengisverði, gefa
þessar tölur ekki tii kynna
magnaukninguna. Hins vegar
hefur magnaukning á undan-
förnum árum vaxið nokkuð
jafnt, svo ætla má að svipað
hafi gerzt á þessu timabili.
Á þessum öðrum ársfjórð-
ungi 1973 var selt áfengi fyrir
tæpar 400 milljónir króna i
Reykjavik, enþað er um 130
milljón króna aukning frá
fyrra ári.
•
Enn ein gjöf
i Viðlagasjóð
Sambandið afhenti nýlega
Viðlagasjóði að gjöf hrein-
lætistæki og kranasett fyrir tiu
salerni. Tæki þessi eru af
gerðinni Gustavsberg frá
Gustavsberg Sanitet Fabriker
i Sviþjóð og Damixa frá Dansk
Metal & Armaturindustri i
Danmörku.
•
Nýfundnalandshljóm-
sveit hér á ferð
Laugardaginn 7. júli koma
hingað til lands unglingar úr
skólahljómsveit frá Car-
bonear á Nýfundnalandi,
ásamt Kiwanisfélögum þar,
en Kiwanis-klúbburinn þar
hefur undirbúið ferðina
hingað. Dessi hljómsveit hefur
hlotið margvislega viður-
kenningu i heimalandi sinu,
m.a. þrisvar fengið 1.
verðlaun i keppni skólahljóm-
sveita. Hljómsveitin mun
leika viða hér t.d. i Kópavogi
þann 15. Þá mun og vera fyrir-
huguð ferð til Akureyrar.
•
ofullnæg jandi kynn-
ingarstarfsemi land-
helgismálsins
tslendingar i Norður-Þýzka-
iandi (vestan megin) ályktuðu
nýverið,að þótt fullnaðar sigur
hafi ekki unnizt enn i land-
helgisdeilunni hafi þróunin
verið okkur i hag og aðeins
timaspursmál hvenær and-
stæðingarnir gefist upp, ef rétt
er á málum haldið. Þeir benda
einnig á að þessi hagstæða
þróun hafi orðið þrátt fyrir
ófullnægjandi framkvæmd
kynningarstarfsemi islenzkra
stjórnvalda á málstað Islands
erlendis.
innlAnsviðskipti leið
/jMIL LÁNSVIÐSKIPTA
f’jlÍNMWRBANKl
VV ÍSIANDS
SEHDI8ILAST0DIN HF
GLÆPUM FJÚLGAR
ÚHUGNANLEGA ÖRT
Afbrotafaraldurinn
hér í borginni vex
hröðum skrefum, og er
nú svo komið, að sjö
þjófnaðir eru framdir í
borginni einni á dag, að
meðaltali frá
áramótum, en að sögn
rannsóknarlögreglunn-
ar eru ekki nærri allir
þjófnaðir kærðir, svo
þeir eru i rauninni fleiri
á dag.
Það eru þó ekki
eingöngu þjófnaðir, sem
færast ört i vöxt, heldur
fjölgar svikum og föls-
unum hröðum skrefum,
og berast lögreglunni nú
daglega þrjú þessháttar
mál að meðaltali.
Þetta eru þeir málaflokkar,
sem mest hafa þanizt hjá
rannsóknarlögreglunni upp á
sfðkastið, en i júni lok sl. hafði hn
alls fengið 3.299 mál til rann-
sóknar, en þess má geta, að alls
bárust henni 5,759 mál allt árið i
fyrra. Með sama áframhaldi
verða þau 6.600 i ár, og eru um-
ferðamál þá ekki talin með.
Málafjöldinn i mailok nú var
oröinn jafn mikill og i júnilok i
fyrra.
Þjófnaðarmál i júnilok nú .. eru
1251 en voru 989 á sama tima i
fyrra. Svik og íalsmál nú voru 726
i júnilok, en voru 521 i fyrra, svo
aukningin er ótviræð.
Aukningin iþiófnaðarmálum er
einkum meðal barna og unglinga
enda fremja unglingar undir 16
ára aldri nú yfir helmingi allra
þjófnaða, en það hefur aldrei
verið i átt við þetta áður.
Af svikum og fölsunum hefur
mesta aukningin orðin i
sambandi við ávisanir, en þrátt
fyrir þann fjölda fólks, sem hefur
orðið fyrir barðinu á þessháttar,
virðist fólk vera jafn grandalaust,
jafnvel þótt ávisanirnar séu
skrifaðar af börnum eða rangt út-
fylltar. —
„Bretar hafa lokað öllum leiðum til samninga”
160 Bolvikingar hafa skrifað
undir svohljóðandi ávarp:
Vér undirritaðir ibúar i Bol-
ungarvik, mótmælum harðlega
flotainnrás Breta i islenzka fisk-
veiðilögsögu, sem brezka rikis-
stjórnin fyrirskipaði hinn 9. mai
Yfir 30 riki hafa fært út fisk-
veiðilögsögu sina meira en 12 mil-
ur, og hefur engin þeirra þjóða,
sem hefur talið sig eiga hags-
muna að gæta, gripið til vopnaðr-
ar ihlutunar. Hernaðarofbeldi
Breta nú gegn tslendingum,
vopnlausri smáþjóö, á sér enga
hliðstæöui heiminum og er alger-
lega einstætt i samskiptum þjóða
varðandi fiskeiðilögsögu.
Vér skorum á rikisstjórn ís-
lands að beita öllum tiltækum
ráðum, til varnar þessari svi-
virðilegu árás Breta á sjálfstæði
islenzku þjóðarinnar.
Jafnframt verður að krefjast
þess af fastaráði NATO að það
fordæmi aðgerðir Breta og fyrir-
skipi þeim að afturkalla flota sinn
. úr islenzkri lögsögu tafarlaust.
Brezk stjórnvöld hafa með
flotaárás sinni i islenzka fisk-
veiðilögsögu lokað öllum leiðum
til samninga, nema þvi aðeins aö
flotinn verði kallaður út fyrir 50
milna mörkin.
Vér lýsum fullum stuðningi við
aðgerðir landhelgisgæzlunnar og
sérstökum þökkum til áhafna
varðskipanna, i þeirra erfiða en
áhrifarika starfi.
• Ekki er allt
gull sem glóir
A baðstrendurnar við
Eystrasalt er búizt við sjö
milljónum sóldýrkenda I
sumar, segir þýzka vikuritið
Der Spiegel. Það litur óneitan-
lega freistandi út. En það er
ekki vist að öllum þessum sjö
milljónum virðist jafn freist-
andi að kæla sig i sjónum, þvi
þetta er trúlegast mengaðasta
innhaf i heimi. Myndin sýnir
einn baðstrandargest stiga á
land — og það er ekki hrein og
óspillt náttúran, sem lekur
þykk og svört af stúlkunni.
KOPAVOGS APÚTEK
Opið öll kvöld til kl. 7,
nema laugardaga til
kl. 2, sunnudaga milli
ki. 1 og 3.simi40102_
heimurínn okkar
FIMM á förnum vegi
".. " .............
Finnst ykkur lausung hafa aukizt að undanförnu?
1) Þóroddur Stefánsson,
verzlunarmaður: Það held ég
alls ekki, en hins vegar er ég
ekkert sérlega á móti lausung i
hinu ljúfa lifi. Aðstæöur hafa
breytzt mjög á þvi sviði á und-
anförnum árum og nú er komið
mun meira öryggi á þetta allt
saman.
2) Jens Olsen.: Ég hef nú ekki
hugsaö þetta neitt sérstaklega.
Enisambandi við þetta fóstur-
eyðingarfrumvarp þá finnst
mér að fólk ætti sjálft að sjá um
þessi mál meö verjum.
3) Hafþór Róbertsson, kenn-
ari.: Lausung hefur eflaust auk-
izt i fjármálum á undanförnum
árum. En t.d. með fóstureyðing-
artillögurnar, þá er það langt
frá þvi að þau beri merki um
einhverja lausung heldur aðeins
rökréttur hugsunarháttur.
4) Björgvin Steinþórsson,
skipasmiður.: Það tel ég alls
ekki vera og það ekki á neinu
sviöi. Hvorki i fjármála- og at-
vinnulifinu né i skemmtanalif-
inu.
5) Halldóra Nlelsdóttir, hús-
móðir.: Ég hef nú ekki hugleitt
þetta að neinu ráöi undanfarið
En ég held nú, aö lausung sé
ekkert meiri en verið hefur á
undanförnum árum og áratug-
um nema slöur sé.