Alþýðublaðið - 09.08.1973, Page 1

Alþýðublaðið - 09.08.1973, Page 1
„Ég er alveg sammála Kristni í þessu” sagði Magnús, bæjarstjóri í gærkvöldi STADAN: VIDLAGASIÓDUR GEGN VESTMANNAEVIUM 177. tbl. Fimmtudagur 9. ágúst 1973 54 árg ÞORIR E» HINIR ÞEGIA | „Ég get ekki séð betur en að Viðlaga- sjóður sé að byggja upp allt annað en Vestmannaeyjar, því um leið og sjóðurinn keppist víð að byggja íbúðarhús uppi á landi, er orðinn húsnæðis- skortur í Eyjum, og enn fellst sjóðurinn ekki á að byggja þar", sagði Kristinn Sigurðsson slökkvi- liðsstjóri þar, í við- tali við blaðið i gær. Nú eru hátt á annað hundrað manns seztir að í Evjum i húsum sinum, sem þýðir að ekki nema brot þeirra 800 húsa, sem stóðu af sér gosið, eru nýtt. Hins vegar eru þessi hús i einkacign. og sagði Kristinn að samkvæmt könnunum hygðust flestir eigendur þeirra flytja i þau i vetur og næsta sumar. Nokkur hús eru til sölu, en það er yfirleitt vegna þess að þau eru ekki leng- ur eigulcg. liugsaniegt er að fá citthvað húsnæöi á ieigu, en þá ekki nema fram til vors, i mesta lagi, en Kristinn sagði að það væri of stuttur timi fyrir þá sem fengju leigt, að byggja sér ný hús, til að lenda ekki á götunni. Sagði hann að rök Við- lagasjóðs að ekki væri ástæða til að byggja i Eyjum á ineðan fleiri hundruð hús stæðu þar auð, væri þvi rökleysa. Ennfremur sagði hann að sjóðurinn hefði enga miliigöngu um að útvega ieiguhúsnæði i Eyjum, og væri honum kunnugt um þó nokkrar fjölskyidur, sem ekki þyrðu að fiytja til Eyja vegna óvissu I húsnæöismálum.— VERÐA ÞEIR REKNIR ÚR LANDI? Bandarískir öryggisverð i r ákærðir fyrir ofbeldi % ruddaskap hér á landi „Ég hef verið nógu lengi í Viet Nam til þess að mig muni ekki um að lumbra á e n n e i n u m vesalingnum, you bloody cooly boys" sem eru einhver Ijótustu blótsyrði enskrar tungu. Og að þessu mæltu réðist bandariskur öryggisvörður bandaríska sendi- ráðsins hér, að tveim íslendingum, sem voru að standa á rétti sínum gagnvart yfirgangi öryggis- varðanna. Þetta atvikaðist fyrir utan hús nr. 32 við Þing- holtsstræti i fyrrakvöld. Þar hafa þrir til fjórir öryggisverðir bandariska sendiráðsins aðsetur. Hafa nú a.m.k. tveir öryggisverðir verið kærðir fyrir lögreglunni fyrir ofbeldi og rudda- skap. Jón Sæmundsson frv. skipstjóri hjá FAO, nú starfsmaður hjá Otvarpinu, býr i húsinu við hliðina, en ibúar þess húss tóku sig saman fyrir nokkrum árum, og gerðu innskot f eignalóð sina fyrir bilastæði. Voru stæðin merkt vendilega. öryggisverðirnir, sem sjálfsagt eru oft i vand- ræðum með bilastæði, hafa virt þessar merking- ar að vettugi, einkum stæði Jóns, sem er næst húsi þeirra. Jón og nágrannar hans, eru lengi búnir að liða öryggisvörðunum ýmis- legt. Sem dæmi má nefna að fyrir tveim mánuðum er Jón bankaði upp á hjá þeim og bað þá að rýma stæði sitt, þá komu fjórir menn út og fylgdu Jóni með dólgshætti heim á tröppur hans. En hvergi hreyfðu þeir bil sinn. Svo var það i fyrra- kvöld, að læstur bill öryggisvarðanna stóð á einkastæði Jóns. Sem oft áður fór Jón til þeirra og bað þá að færa bilinn. Var hann rekinn burt með háðsglósum og látinn skilja að hann yrði beittur ofbeldi, ef hann væri ekki góður. Jón beið þá i þrjá til fjóra klukkutima, en þá brast þolinmæði hans. Hringdi hann á son sinn, sem á jeppa, og bað um aðstoð hans. Þegar sonurinn var kominn, fór Jón enn til . . . :■ ■ mm öryggisvarðanna og sagði þeim, að ef þeir fjarlægðu ekki bilinn með góðu, hygðist hann láta jeppann koma honum i burtu. Þustu þá út þrir menn og einn viðhafði þau orð, sem i upphafi má lesa, og réðist að þeim feðgum. Annar hafði sig eitt- hvað litið i frammi, en sá þriðji brá sér inn og sótti mikla trékylfu, eitthvað á annan metra að lengd, og steytti hana þegar út kom. Rétt i þessu kom islenzka lögregla að, en Jón hafði hringt i hana fyrr. Þá loks hlýddu öryggisverðirnir og færðu bil sinn, en feðgarnir fóru með lögreglunni: gáfu skýrslu um máliö og kærðu Bandarikjamenn- ina um leið. t gærkvöldi gerðist það svo, þegar málið hafði verið kært til lög- reglunnar, að bandariska sendiráðið hafði samband við Jón. Var honum tjáð, að öryggisverðirnir myndu ganga á hans fund og biðja hann afsökunar. Og svo alvarlegum augum var litið á fram- ferði tveggja aðalmann- anna, að haft var við orð, aö ekki yrði um frekari þjónustu þeirra að ræða hér á landi. Bifreið Jóns á stæðinu, sem strlðiö hcfur staðið um. öryggisvörður á leiö inn í hús nr. 34 viö Þingholts- stræti. mann FRETT- NÆMT □ Agnew segir ekki af sér Spiro Agnew visaði i gær á bug ummælum um að hann hefði beitt fjár- kúgunum, þegar hann var rikisstjóri með þeim orð- um að þarna væri um „djöfullega lýgi að ræða”. Agnew gaf það skýrt til kynna, að hann hefði ekki i hyggju að segja af sér. □ Sameining tókst ekki Samninganefndir frá Egyptalandi og Libiu hafa ekki komizt að sam komulagi um sameiningu landanna, eftir að hafa þingað i fjóra daga i Tri poli. Aðeins hefur náðst samkomulag á vissum sviðum. □ Niu tókst að flýja Niu Austur-Þjóðverjar flúðu i siðasta mánuði yf ir til Vestur-Berlinar i gegnum göng sem þeir höfðu sjálfir gert. Austur þýzka landamæralög- reglan hefur nú fundið göngin og lokað þeim. f hópnum, sem flúði voru tvenn hjón og fimm börn þeirra. □ Moberg látinn Sænski rithöfundurinn Wilhelm Moberg fannst drukknaður i gær fyrir ut an sveitaheimili sitt. Hann varð 75 ára fyrir ör fáum dögum. □ Svarar Nixon? Búizt er við, að Nixon muni svara ásökunum um aðild að Watergate málinu mcð sjónvarps ávarpi og útgáfu hvitrar bókar um málið. Frumskóga- gyðjan má ekki gráta „Villimaðurinn starði á Gloriu stórum, gljá- andi augum. Siðan reif hann fjaðrahaminn af likama sinum, unz hann var allsnakinn. Hann þrýsti henni að hvelfdú brjósti sinu. „Taktu hjarta mitt, gyðja, rifðu það úr brjósti minu!” Lesið um ævintýri stúlkunnar, sem lenti i höndum hausaveiðara i frumskógum Brasiliu eftir að flugvél hennar fórst. Ný framhalds- saga, „Fumskógagyðj- an má ek-ki gráta,” hefst i blaðinu á morg-

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.