Alþýðublaðið - 09.08.1973, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 09.08.1973, Blaðsíða 3
RONARNIR ORÐNIR PLAGA A LðGREGLUÞIÖNUNUM Drykkjusjúklingarnir, eða þeir menn, sem eru nefndir í daglegu tali rónar, eru orðnir hreir,- asta plága á lögreglunni í Reykjavík, að því er Axel Kvaran aðalvarðstjóri sagði í samtali við Alþýðublaðið. ,,Þessum vesalings mönnum er bókstaflega fleygt út á götuna næringarlausum og klæðlausum, og sagt um þá, að ,,þeir séu von- lausir greyin". sagði Axel, ,,Og þótt við getum alls ekki sinnt þeim, þá gerum við það, — og munum gera áfram". Að sögn Axels eru ýmsir innan lögreglunnar, sem gera allt hvað þeir geta til að liðsinna þessum mönnum, gefa þeim jafn- vel mat fyrir fé úr eigin vasa, því margir eru svo máttfarnir af næringar- skorti, að þeir komast varla frá lögreglustöð- inni, þegar þeim er sleppt út á morgnana. ,, Fangageymslan er ekkert sjúkrahús hér frekar en annars staðar", sagði Axel Kvaran, „Hún er fyrir afbrotamenn, og það segir sig sjálft, að ekki er mikið pláss fyrir þá, þegar margir þessara róna eru settir inn jafnvel tvisvar til þrisvar á sólar- hring, — og þótt ég viti ekki hvað þeir eru margir gizka ég á, að hér í borg- inni séu ekki færri en fimmtíu rónar, sem hvergi eiga höfði sínu að halla, nema hjá okkur". Raunar er til eitt at- hvarf fyrirþessa heimilis- lausu róna, auk fanga- geymslunnar, en það er Gistiskýlið við Þingholts- stræti. En að sögn Axels er það aðeins opið frá klukkan tíu á kvöldin til tíu á morgnana, og mönnum er ekki hleypt þar inn nema á tímabilinu kl. 10—12 á kvöldin. „Éq efast þó ekki um, að þeir hjá Félagsmálastofnun Reykjavikur vinna að þessum málum eins og þeir geta, en það sem þessir drykkjusjúklingar þurfa er sjúkrahúsvist, og það þarf jafnvel að svipta þá sjálfsforræði. Þetta eru sjúklingar, og ég hef oft notað þá samlíkingu, að enginn læknir mundi vísa dauðvona krabba- meinssj úklingi út af sjúkrahúsi sínu á þeirri forsendu, að hann sé von- laus og ekkert fyrir hann að gera. Og skepnum er ekki einu sinni fleygt bjargarlausum út a götuna, þeim er sýnd meiri mannúð en rón- unum", sagði Axel Kvaran að lokum. „SKEPNUM SÝND MEIRI MANNÚÐ, EN RÖNUNUM” SEGIR AXEL KVARAN, AOALVARÐSTIÖRI LÖGREGLAN LYSIR EFTIR TVEIMUR PILTUM, SEM SÍÐAST SAUST MEÐ SUMARLIÐA Stigarnir gleymdust alveg Hópur málara og annarra iðn- aðarmanna i Austur-Berlin þurftu að glima við óvanalegt vandamál i nýju ibúðarhverfi i bænum Frankfurt við landamæri Póllands fyrir skömmu. Þegar þeir komu i hverfið, þar sem þeir áttu að vinna við að fin- pússa húsin urðu þeir að senda skýrslu til vinnuveitandans, þar sem frá þvi var skýrt, að þeir kæmust ekki nema á fyrstu hæð húsanna. A verkfræðiskrifstofu bæjarins hafði nefnilega gleymzt að gera ráð fyrir stigum i húsun- um. Neues Deutschland, aðalmál- gagn kommúnistaflokksins, seg- ir, að iðnaðarmennirnir haldi enn til á neðstu hæðinni þar sem þeir hafa ekki þjálfun i stangarstökki. Leiðsla yfir túndruna Lagning hinnar umdeildu oliu- leiðslu þvert yfir túndrur Alaska hefur verið samþykkt i kanadiska þinginu með 221 atkvæði gegri 197. Miklar oliulindir fundust i norð- urhluta Alaska fyrir fimm árum, en lagningu 1500 km. langrar oliu- leiðslu frá lindunum var frestað vegna andstöðu umhverfis- verndarmanna. Atta stór oliufélög, m.a. British Petroleum, Standard Oil og, Atlantic Richfield hafa gert samning um oliuvinnsluna, og ráðgert er, að olian taki að renna þarna áriö 1977. 1 fulltrúaráðinu var samþykkt tillaga til breytingar á lögunum um lagningu leiðslunnar, og er þar gert ráð fyrir, að andstaða umhverfisverndarmanna geti verið tekin fyrir til nýrrar yfir- vegunar. Þrátt fyrir, að lagningin var samþykkt i fyrrakvöld ber það mikið á milli i skoðunum þingdeildanna. Þvi veröur að koma til nýrra umræðna áður en framkvæmdir geta hafizt. — Möguleiki á, að dómstólarnir geti tekið málið upp eru enn til staðar. Auglýsingósíminn okkar er 8-66-60 Nafn piltsins, sem Alþýðu- blaðið skýrði frá i gær, að hefði fundizt látinn i Hvitá, skammt fyrir neðan Barnafossa, er Sumarliði Einarsson. Hann bjó að Búlandi 12 i Reykjavik og var 18 ára gamall. Að sögn Krist- mundar Sigurðssonar, rann- sóknarlögreglumanns, er ekki vitað ennþá, hvernig lát Sumar- liða bar að höndum, þar eð ekki hefur náðst til tveggja pilta, sem siðast sáust á gangi með honum i grennd við Hvitá. Annar pilturinn er úr Sandgerði en hinn úr Grindavik, en lög- reglan veit ekki nöfn þeirra. Mikilvægt er, að þeir gefi sig fram við rannsóknarlögregluna i Reykjavik. Sá eini, sem er til frásagnar er ökumaður bils þess, sem Sumarliði fór i, ásamt þriðja manni á íöstudagskvöldið að Húsafelli. Hann skildi við félaga sina tvo, ásamt fimm piltum, sem þeir tóku i bilinn við hliöið inn á mótssvæðið, á móts við Barnafossa, en þeir ætluðu að fara yfir göngubrú á ánni og ganga inn á mótssvæðið, þar sem þeir ætluðu að hitta öku- manninn. Það siðasta, sem piltur þessi sá til Sumarliða heitins, var, að hann dróst aftur úr félögum sinum, ásamt piltunum frá Grindavik og Sandgerði. Þegar ökumaðurinn kom á m mótssvæðið hitti hann félaga JJ sinn, sem hafði verið i bilnum m frá Reykjavik, og spurði um ■ Sumarliða, en hann vissi ekkert m um feröir hans Fóru þeir að svipast um eftir ■ Sumarliða á mótssvæðinu og £ leituðu aiia nóttina og allan m laugardaginn. Að lokum leituðu JJj þeir til lögreglunnar á staðnum, m sem sýndi þeim yfirhöfn, og JJ könnuðustþeir við, að Sumarliði m ætti hana. Skýrði lögreglan þá ■ frá þvi, að yfirhöfnin hefði m fundizt við ána, en skammt frá ■ hefðu þeir fundið pilt, sem þurfti m aðhlynningar við. Siðan fór sá ■ piltur, en félagar Sumarliöa m héldu, að þetta hefði verið hann ■ og hættu leitinni á þeirri for- m sendu, að hann hefði slegizt i ■ hóp með einhverjum öðrum og J farið frá Húsafelli. Einnig kom i ■ Ijós, að skátar höfðu leitað aö JJ manni, sem siðar kom fram, ■ alla aðfaranótt laugardagsins J en ekki orðið varir við Sumar- ■ liða. ■ ÚTISKEMMTANIR (ENDURSKOÐUN 360 MILUONIR ÚR NORSURSJð „Helgin var miklu rólegri en búizt var við. En það er ekki nokkur vafi á þvi, að Æskulýðsráð og landssamtök ungmennafélag- anna koma bráðlega saman til að ræða um þessar tvær miklu ferðahelgar, þ.e. hvitasunnuna og verzlunarmannahelgina, þar sem svo óvænt var lokað ákveðnum svæðum, þar sem samkomuhald hefur verið áður”, sagði Reynir Karlsson, æskulýðsfulltrúi ríkis- ins, i viðtali við Alþýðublaðið i gær. ,,Ég er yfirleitt á þeirri skoðun, að um verzlunarmannahelgina sé nauðsyn á skipulögðum útisam- komum til þess, að þeir stóru hóp- ar, sem hvort sem er fara út á land, hafi einhverja aðstöðu. Þá benti Reynir á þá reynslu, sem hann fékk fjögur ár i röð, þegar hann fór um verzlunar- mannahelgar i Þórsmörk, þar sem 5—6000 unglingar dvöldu á óskipulögðum útisamkomum. Æskulýðsráð stóð þá fyrir þvi, að hjálparsveitir fóru á staðinn, „og ekki veitti af”, sagði hann. Þess- ar samkomur gjörbreyttust til batnaðar, þegar ungmennafélög- in tóku að sér samkomuhaldið og buðu upp á skipulagöar skemmt- anir, að sögn Reynis. Jón Guðbjörnsson, formaður Ungmennasambands Borgar- fjarðar, sem stóð að útisamkom- unni að Húsafelli, sagði við Al- þýðublaðið, að óæskilegt sé, að samkomurnar séu svo fáar og stórar. Þrátt fyrir færri útisam- komur nú en i fyrra, sökum lok- unar útivistarsvæða skógræktar- innar fyrir skipulögðum sam- komum, hefur mannfjöldinn aldrei dreifzt jafn mikið og nú, og að sögn Jóns var fjöldinn á Húsa- felli alveg hæfilegur. Sú breyting varð þó frá i fyrra að mun meira var um unglinga, en fjöldi fjöl- skyldna var svipaður. I fyrra sóttu samkomuna 3—4000 manns, en I ár 5—6000. Þessa óvanalega miklu dreif- ingu mannfjöldans um landið vildi Jón skýra þannig, aö fólk, og þá sérstaklega fjölskyldufólk, hafi viljað breyta til og dvelja um helgina á stað þar sem ekki var von á miklum mannfjölda, „en það er ekki þar með sagt, að þetta fólk sé hætt að sækja útisamkom- ur. Ekkert er liklegra en það komi næsta ár”, sagði Jón. Um samkomuna að Húsafelli i heild sagði Jón, að vitanlega væri hann aldrei ánægður á meðan vin væri haft um hönd á samkomu, sem á að vera vinlaus. Sildarbátarnir islenzku halda áfram að gera það gott i Norður- 67.000 tapaðir Tapaðar vinnustundir vegna verkfalla fyrstu sex mánuði þessa árs eru áætlaðar 66,780, segir i fréttabréfi Kjararann- sóknarnefndar. 1 fyrra voru tapaðar vinnu- stundir vegna verkfalla sam- tals 126,105, árið 1971 voru þær 204,729, árið 1970 voru þær 629,242 og árið 1969 flestar, eða 732,150 talsins. Frá árinu 1960 hafa þær verið fæstar áriö 1964 eða 25,345 talsins. I sjónum. 1 siðustu viku seldu þeir I fyrir 60 milljónir og hafa þeir þá frá upphafi vertiðar selt fyrir 360 milljónir. Á sama tima i fyrra höfðu þeir aðeins selt fyrir 180 milljónir. 30 bátar fengu afla i siðustu viku, og þar af seldu 27 i Hirthals i Danmörku en þrir seldu i Þýzka- landi. Var meðalverðið heldur hærra i Þýzkalandi. Mestan afla höföu Guðmundur RE og Gisli Arni RE, en yfirleitt var afli bát- anna góður. Heildaraflinn i siðustu viku var 2.532 lestir, og var þá frá byrjun vertiðar orðinn 16,647 lestir. Þrjú aflahæstu skipin i ár eru Loftur Baldvinsson EA 1,049 lestir (verbmæti 26,3 milljónir, Gisli Arni 1,222 lestir (verömæti 24,5 milljónir) og Súlan EA 1,035 lestir (verðmæti 23,2 milljónir). --------------------------o Fimmtudagur 9. ágúst 1973

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.