Alþýðublaðið - 09.08.1973, Blaðsíða 10
Hefndin
var sæt
Þessi mynd er frá úrslita-
leiknum i skozku bikarkeppn-
inni vorið 1972. Þá áttust við
Celtic og Hibernian (rnótherji
Keflvikinga), og það var Celtic
sem hrósaði sigri i þetta sinn, og
honum stórum, 6:1.
A sunnudaginn léku sömu lið
til úrslita um Drybrough
bikarinn svonefnda. Sá leikur
fór einnig fram á Hampden, að
viðstöddum 50 þúsund áhorf-
endum. í þetta sinn var
Hibernian sterkari aðilinn, vann
1:0 eftir framlengingu, og
skoraði miðherjinn Alan Gordon
sigurmarkið. Þetta sýnir að
leikmenn Hibernian eru til alls
visir.
Annars er það merkilegt með
hið góða lið Celtic, sem hefur
orðið átta sinnum skozkur
meistari i röð, að liðið hefur
aðeins unnið einn af sjö siðustu
bikarúrslitaleikjum sem það
hefúr tekið þátt i.
OKKUR VANTAR
ÚTBURÐARFÓLK!
í Hverfisgötu,
Lindargötu,
Laugaveg neðri
og Skólavörðuholt
Leikur IBK við Skotana
vellinum í Keflavík?
Búið er að ákveða leikdaga islenzku liðanna i Evrópukeppninni. Fram keppir við svissneska liðið
Basel hcr hcima miðvikudaginn 19. september, og ytra 3. október. Vestinannaeyingar mæta þýzku
bikarmcisturunum Borussia Mönchcngladbach fimmtudaginn 20. september hér heima og 3. október
ytra. Keflavik leikur við skozka liðið Hibernian ytra 19. september og heima þann 3. október.
, Tveir fyrrnefndu leikirnir fara fram á Laugardalsvellinum en ekki er ennþá ákveðið hvort leikur IBK
og Hibernian fari fram á Laugardalsvellinum eða í Keflavik. Hafa Keflvikingar sjálfir áhuga á að fá
leikinn i Keflavik, en það er ekkert launungarmál að margir Keflvikingar ala þá von i brjósti að lið
þeirra komist áfram gegn hinu heimsþekkta skozka liði. Ef leikurinn fer fram i Keflavik fást færri
áhorfendur á völlinn en sá munur vinnst upp á þann hátt, að bæjaryfirvöld munu fús að gefa eftir
vallarleigu.
Vestmannaeyingar hafa þegar haft skeytasamband við Bourssia, og ákveðið leikdaga. Var þeim ekki
hnikað til eins og Eyjamenn höfðu óskað, þvi deildarkeppnin verður þá hafin i Þýzkalandi. Þvi urðu
Eyjamenn að sættast á fimmtudaginn hér heima, þvi Fram hefur forgang að Laugardalsvellinum og
jafnframtað gefa upp þá hugmynd að láta leikinn fara fram i Njarðvikum,—SS.
MOT ÞEIRRA UNGU
1 dag hefst á Melavellinum i
Reykjavik undankeppni fyrir
Andrésar Andar leikana sem
fram fara i Kóngsbergi i Noregi 1.
og 2. september.
og henni verður fram haldið á
sama stað og sama tima á
morgun. Þátttakendur verða
nálega 80 talsins, á aldrinum 11
og 12 ára.
tslenzku krakkarnir sem tekið
hafa þátt i Andrésar Andar
leikunum á undanförnum árum
hafa staðið sig með eindæmum
vel. Má minna á, að i fyrra komu
islenzku þátttakendurnir til baka
hlaðnir verðlaunum, þau Asta B.
Gunnlaugsdóttir, Guðmundur
Geirdal og Unnar Vilhjálmsson,
Meistarar
1. flokks
Við sögðum frá þvf á dögun-
um, að Akureyringar heföu orð-
ið bikarmeistari i I. flokki
karla. Unnu norðanmenn
Þróttara úr Reykjavík i úrslita
leik 6:1. Fór leikurinn fram á
Kapiakrika i Hafnarfirði. Og
eins og markatalan gefur til
kynna, voru yfirburðir
Akureyringa mjög miklir.
Þessi mynd var tekin af leik
loknum, og sýnir sigurlið
Akureyringa. 1 liðinu eru
nokkrir leikmenn sem leikið
hafa með meistaraflokki i sum-
ar, og má þar nefna fyrirliðann
Magnús Jónatansson, en hann
stendur i aftari röð með bikar i
hendinni. Lengst til hægri i efri
röð er fyrirliði Akureyringanna,
Jóhannes Atlason fyrrum lands-
liðsbakvörður.
0-
Fimmtudagur 9. ágúst 1973