Alþýðublaðið - 09.08.1973, Page 2

Alþýðublaðið - 09.08.1973, Page 2
1 LÁTIÐ FÓSTUR- EYÐINGAR- LÖGIN I FRIÐI Þýzki rikiskanzlarinn Willy Brandt, Jafnaðarmannaflokk- urinn og Frjálsi Demókrata- flokkurinn, eiga erfiða tima i vændum þegar þeir munu á næstunni reyna að koma til leið- ar umbótum á fóstureyðingar- lögum rikisins. Þegar hafa 40 þúsund kaþólskar nunnur lýst þvi yfir, að þær muni frekar loka sjúkrahúsum sinum en ! hjálpa læknum til þess að eyða fóstrum og nú hafa 1600 hjúkr- 1 unarmenn mótmælenda hótað I verkfalli ef núgildandi fóstur- eyðingarlögum verður breytt. Hótun mótmælendanna-sem sett var fra"n i bréfi til heil- 1 brigðismála. áðherrans, frú | Katharina Focke — er sú fyrsta I meiriháttar, sem kemur frá fylgjendum annarra trúar- bragða en kaþólskra. Kaþólskir biskupar hafa fordæmt tillög- urnar mjög eindregið og stjórna ákafri áróðurssókn gegn þeim, en klerkar mótmælenda hafa ekki látið i ljós neina opinbera kirkjulega skoðun. Þeir, sem eru gegn breytingum á þessu sviði, kalla fóstureyðingar ein- faldlega „morð”. Ein yfirlýs- ingin er á þá leið, að „morð er morö, hvort sem það er leyft af nasistum eða sósialistum og frjálsum demókrötum”. Þettaeruað visu stór orö, en kaþólsku biskuparnir hafa látið það uppi, að þeir ætli að berjast gegn þessum umbótum með öll- um þeim vopnum, sem þeir eiga kost á. Meðal annars munu þeir víkja úr söfnuðum sinum öllum þeim, er hafa látið eyða fóstr- um. ÚTSALA SUMARÚTSALAN STENDUR SEM HÆST ULLARKÁPUR JERSEYKÁPUR CRIMPLENEKÁPUR FRAKKAR REGNKÁPUR DRAGTIR JAKKAR BUXNADRAGTIR FJÖLBREYTT ÚRYAL LÁGT VERÐ bcrnhard laKtJal •”•>001 ’ . ^ KJÖRGARÐÍx □ LAUNAMIS- MUNURINN ER ENN EKKI UR SÖGUNNI „Enn vantar nokkuð á að launamismunur kynjanna sé úr sögunni, þó heldur hafi dregið úr honum á siðustu árum”, segir i nýútkomnu fréttabréfi Kjara- rannsóknarnefndar. Er tekið sem dæmi, að árið 1966 hafi laun kvenna i fiskvinnu verið 95,9% af launum karla, en 97,5% árið 1971. t verksmiðjuvinnu hafa hlutföllin hins vegar verið 80,3% og 82,7% sömu ár. Þá segir ennfremur að launa- mismunur kynjanna stafi einkum af þrennu. Heföbundinni verka- skiptingu kynjanna á vinnustað, karlmenn séu frekar yfirborgaðir en konur og konur séu yfirleitt ó- stöðugri vinnukraftur. Maður sá, sem fer svo i harðneskjulega (að þvi i er virðist) að ungu kon- i unni á myndinni, er að fram- j kvæma nákvæmar og mikil- j vægar athuganir á henni. J Þeir, sem vilja ná hæst á J stjörnuhimni tennis-iþróttar- J innar i Ástraliu, verða að sætta sig við mælingar af þessu tagi, þvi að þær eiga sinn þátt i að ákveða hvort þeir hafa möguleika á að kom- ast svo langt. Mælingarnar eru þrenns konar: fyrst er mæld þykkt húöarinnar og fituiagsins undir henni, þá vöðvarnir, sem notaðir eru við höggin, og siðan hvernig hjartað bregst við eftir miklar hreyfingar. Tennis-spilari mæld og vegin SEKTAÐAR FYRIR AÐ SÝNA BER BRJÚSTIN Það er orðið dýrt fyrir konur i Berlin að varpa af sér efri hluta „bikini” baðfata sinna. Borgaryfirvöld hafa nefnilega ákveðið, að hver sú kona, sem klæðist „topplausum” baðföt- um, skuli greiða 150 mörk eða um 570 Isl. krónur i sekt, en baðföt af þessari gerð eru ein- mitt hæst móðins á frönsku Rivierunni um þessar mundir. Þær, sem vilja baða sig hálf- eða alveg naktar, verða þvi i framtiðinni að fara á einu bað- strönd borgarinnar, sem er sérstaklega til þess ætluð, — annars staðar verða stúlkur að bera heila sundboli allt frá sex ára aldri. Astæðan fyrir þessari á- kvörðun er sögð sú, að bæði sé það hollara fyrir likama kon- unnar að bera vissan lág- marks klæðnað, en einnig eru naktir eða hálfnaktir kvenlik- amar sagðir valda óróa á bað- ströndunum. HUN Forsíðufyrirsagnir bíða hennar Áhugamenn um iþróttir gera rctt i að veita athygli fjórtán ára gamalli stúiku, sem heitir Sab- ina Chebichi, er slegið hefur i gegn i Kenya, landi Kip Keino. Talið er vist,að hún eigi eftir að verða einn fremsti keppandinn i ólympiuliði Kenya á árinu 1976. Hagsýn húsmóðir notar Jurta nott x/nrA/ gott verð/ gott bragð • smjörlíki hf. Þessi unga stúika kom fram i dagsljós iþróttanna i litilli borg i Kenya, sem nefnist Kericho. Vakti hún athygli á sér fyrir þaö, að berfætt og klædd i þunn- an léreftskjól náði hún slikum afburða tima i 1500 metra hlaupi kvenna, að hún var þar með komin i fremstu röð afrískra. kvenhlaupara. Viku siðar, er henni höfðu verið gefnir fyrstu hlaupaskórnir og iþróttabúning- ur, ók hún 155 milna veg til Nai- robi, þar sem hún hljóp 1500 metrana á 4 minúfbm 38,8 sek- úndum. Er sá timi aðeins einum tiunda úr sekúndu lakari en sá, sem guliverölaunin voru veitt fyrir i afrisku leikjunum i Lagos i janúarmánuöi siðastliðnum. Hún hcfur þvi verið hvött ákaf- lega til þess að þjálfa sig til frekari afreka. En það er ekki svo auðvelt. Á hverjum degi verður hún ásamt fjórum bræðrum og fjórum systrum að vakna fyrir allar aldir á jörð foreldra sinna, hreinsa bæ þeirra, þvo þvott og gera annað þaö, sem gera þarf á sveita- heimili. Eina þjálfunin sem hún fær er þvi skokk nokkurra milna leiö til þess frumstæða skóla sem hún sækir. En hún er von- góð. „Likami minn hefur gam- an af að hlaupa”, segir hún. o Fimmtudagur 9. ágúst 1973

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.