Alþýðublaðið - 14.09.1973, Blaðsíða 12
alþýðu
mnm
INNLÁNSVIÐSKIPTILEIÐ KÓPAVOGS APÓTEK
^\TIL LÁNSVIÐSKIPTA Opiö öll kvöld til kl. 7
MBÚNAÐARBANKI Kfy ÍSLANDS Laugardaga til kl. 2 Sunnudaga m\\\ kl. 1 og 3
SENDIBIL ASTÖÐIN Hf
Lögreglan: „Engin heimild fyrir hækkuninni”
SKEMMTISTADUR HÆKKAR
MIÐAVERD A EIGIN SPÝTUR
wgwa'M
Hæö er nú yfir Skotlandi og
lægð suðvestur af Grænlandi.
Spáð er áframhaldandi hlýind-
;um um allt land. Á Suðvestur-
landi er gert ráð fyrir suðvestan
kalda eða sunnan kalda og
þokulofti eða rigningu. Sama
veðri er spáð á Vestfjörðum. A
Norðurlandi má búast við suð-
vestan eða vestan kalda og
skýjuðu norðan til cn björtu
annars staðar. Austanlands er
spáð sömu átt og vlða björtu.
Spáin fyrir laugardaginn er sú
sama og fyrir daginn I dag.
„Þaö er engin heimild
fyrir þessu miðaverði/"
sagði William Möller full-
trúi lögreglustjóra/ //en
það hangir i lausu lofti
hvaða reglur gilda um
þetta."
Alþýðublaðið hafði
samband við William
vegna þess að um síðast-
liðna helgi tók Hótel Saga
upp svokallað helgar-
gjald. Nú kostar inngang-
ur í Súlnasalinn T00 krón-
urog þótti ýmsum nokkuð
kynlegt.
William sagði/ að hann
hefði gert skýrslu um
málið og sent hana í
dómsmálaráðuneytið og
þar yrði tekin ákvörðun í
málinu. Walter sagði,að
kannski yrði framleng-
ingarleyfið endurskoðað,
þó svo að ekkert hefði
verið ákveðið. Hann
sagði, að ef til vill væri
aðaimálið í þessu hvemig
ætti að skattleggja þenn-
an innganseyri.
William sagði að lokum,
að það mundi kannski
reyna á það um þessa
helgi hvort Saga hefði
heimild til að selja inn-
gang á T00 krónur.
Blaðið hafði samband
við dómsmálaráðuneytið
og þar var okkur tjáð að
málið hafði ekki verið
tekið fyrir ennþá.
Helgargjaid kr. 100,00
Fatagjald og meðfylgjandi rúllumiði innifalinn
Konráð á Sögu: „Erum að mæta auknum kostnaði” . '
ÚBREVTT AÐGONGUMIDA-
VERD SlDUSTU 10 ARIN
KRILIÐ
'os/<fiBL 'om DG'
F/joTfí 5K-S7 fíFL BWMk VOMt/R HLJ'Ott HfíTT ORU Fflfí
'k
vom Wm 1 TdrtM
i
f KfíFF/ 8RÍW0 fíRK/
K'OPIfí mL HVÍLT) fífí
flet tNO tiT/NN /VKfiR ULA/</
«1
Fley Tflrt
f 'fíTT Sft/fíHL HV/LD/
TÓF ÖFUbfí
JURT ■f
„Með þessu nýja miða-
verði erum við aðeins að
reyna að mæta auknum
kostnaði við laun og ann-
að. Alagning hússins á
sterka drykki hefur
minnkað um 40-60% síð-
astliðið hálft annað ár og
við erum aðeins að reyna
að ná upp í kostnað,"
sagði Konráð Guðmunds-
son hótelstjóri á Hótel
Sögu er við spurðum hann
um hið nýja 100 króna
miðaverð sem Hótel Saga
hefur tekið upp um helg-
ar.
Konráð benti á, að veit-
ingastaðir borga megin-
hluta launa fyrir nætur-
vinnu og greiða t.d. 33%
vaktaálag fyriralla vinnu
unna eftir klukkan 17.00
og einnig fyrir alla helg-
arvinnu. Hann sagði, að
það lægi i augum uppi að
það yrði að borga fólki vei
fyrir þennan vinnutima,
svo að einhver fengist í
störf á veitingahúsum.
Konráð sagði að ekki
hefði orðið nein breyting á
miðaverði siðan 1963.
Hins vegar væri alls kyns
félögum leyft að halda
gróðaskemmtanir. Svo
þegar veitingahúsin ætl-
uðu að hækka inngángs-
eyrinn þá ætlaði allt vit-
laust að verða.
Að lokum sagði Konráð,
að besta lausnin væri að
gefa álgninguna frjálsa.
Þá væri gestum það í
sjálfsvald sett hvaða
skemmtistaði þeir sæktu.
FIMM a förnum vegi
Jónas Hvannberg, nemi: Nei,
ég fer ekki i réttir núna. Það
kom fyrir áður fyrr, að ég færi i
réttir, en ég hef það ekki fyrir
venju núorðið. Reyndar fer ég
til útlanda i haust, svo það er
útilokað, að ég komist.
Asgeir Torfason, hættur að
vinna: Ég hef ekki hugsað mér
að fara i réttir i haust, hef
reyndar ekki farið i réttir i 30 ár
eða meira. Ég fór náttúrlega i
réttir þegar ég var i S (randa-
sýslunni, en þaðan fór ég um
tvitugt, og það eru um 60 ár
siðan.
Sigurður Aöalgeirsson
skólastjóri: Ég geri ekki ráð
fyrir að fara i réttir i haust. En
ég fór alltaf i réttir þegar ég var
i sveitinni, — þá fór ég i Hrauns-
rétt i Aðaldal. En ég lagði
réttarferðir niður, þegar ég
hætti að vera i sveit.
Ætlar þú í réttir í haust?
Þorsteinn Jónsson, stud. jur.:
Ég geri ekki ráð fyrir, að ég
komist i réttir, þar sem ég verð
hvergi nálægt réttum i haust.
En ef ég kæmist i tæri við réttir
færi ég sennilega.
Gunnlaug Hanna Ragnars-
dóttir, húsmóöir: Nei, ábyggi-
lega ekki. Ég hugsa að ég
komist ekki núna, þótt ég hefði
gaman af þvi. Ég er að norðan
og fór alltaf i réttir á meðan ég
var þar. En eftir að ég kom
suður hef ég ekki komist.
y