Alþýðublaðið - 02.10.1973, Blaðsíða 5
Alþýðublaðsútgáfan hf. Stjórnmála-
ritstjóri Sighvatur Björgvinsson.
Fréttastjóri Sigtryggur Sigtryggsson.
Ritstjórnarfulltrúi Bjarni Sigtryggs-
son. Ritstjóri og ábyrgðarmaður
Freysteinn Jóhannsson. Aðsetur rit-
stjórnar, Skipholti 19. Sími 86666. Af-
greiðsla: Hverfisgötu8-10. Simi 14900.
Auglýsingar: Hverfisgötu 8-10. Sími
86660. Blaðaprent hf.
EINBERIR GASPRARAR
Ráðherrarnir i núverandi rikisstjórn velja sér
sannarlega undarlega starfshætti. Þeir hegða
sér eins og þeir séu einir i heiminum — eða öllu
heldur einir i rikistjórninni — og þurfi ekki að
hafa samráð við einn né neinn, nema kannski
konurnar sinar. Þeir hlaupa út og suður með alls
kyns yfirlýsingar um vilja sinn i stórmálum og
hafa ekki einu sinni haft fyrir þvi að leita sam-
ráðs sin á milli um yfirlýsingarnar, hvað þá
heldur að þeir hafi látið kanna, hvort fram-
kvæmdin sé hugsanleg eða möguleg. Þegar svo
almenningur rekur upp stór augu spyrja ráð-
herrarnir með þjósti, hvernig þetta sé eiginlega,
hvort þeir megi ekki hafa skoðun. Svo taka þeir
til við að athuga málin og ræða saman sin á milli
og leita tiltækra upplýsinga. I stuttu máli sagt:
yfirlýsingin fyrst .Athugunin og samráðið eftirá.
Auðvitað er ráðherrum eins og öðrum mönn-
um heimilt að hafa skoðun. Þó það nú væri. En .
þeir verða að gera sér það ljóst, að þeir gegna
mjög ábyrgðarmiklum störfum og yfirlýsingar
ráðherranna um hver vilji þeirra sé i ákveðnum
sérmálum varðandi stjórn landsins eiga að
sjálfsögðu að hafa meiri þunga á bak við sig, en
yfirlýsingar einhvers Jóns Jónssonar sem hefur
enga ábyrgð nema gagnvart sjálfum sér. Til
dæmis hlýtur að verða að taka meira mark á yf-
irlýsingum Magnusar Kjartanssonar ráðherra,
en Magnúsar Kjartanssonar Austra, en það
virðist maðurinn ómögulega hafa skilið enn sem
komið er.
Ef svo heldur fram sem horfir verður almenn-
ingur með öllu að hætta að taka mark á orðum
ráðherra landsins nema þeir taki það sérstak-
lega fram, hvenær þeir séu að leika ábyrga ráð-
herra og hvenær ekki. En auðvitað yrðu yfirlýs-
ingar þeirra um það sist meira virði en yfirlýs-
ingar þeirra almennt svo almenningur á varla
annara kosta völ, en hætta með öllu að lita á
ráðherrana sem ábyrga menn en skoða þá i
staðinn sem einbera gasprara.
ÓLAFUR SVARAR HEATH
Nú hefur verið gert opinbert efni svarbréfs
Ólafs Jóhannessonar til Heaths, breska for-
sætisráðherrans, en eins og kunnugt er af
fi'éftum, þá sendi hann Ólafi bréf i fyrri viku
þar sem Heath lagði fram það, sem Bretar vilja
kalla nýtt ^sáttatilboð” i landhelgisdeilunni við
íslendinga.
Að sjálfsögðu svarar Ólafur Jóhannesson
með þvi að itreka áður gerða samþykkt rikis-
stjórnar íslands þar sem segir, að verði Bretar
ekki komnir með herskip sin og dráttarbáta út
fyrir 50 milurnar fyrir n.k. miðvikudag muni
rikisstjórnin láta koma til framkvæmda þau slit
á stjórnmálasamskiptum, sem Bretum hefur
áður verið tilkynnt um.
Þessi samþykkt var gerð að höfðu samráði við"
utanrikismálanefnd Alþingis og að sjálfsögðu
ætlum við íslendingar okkur að standa við
hana. Til þess var hún lika gerð. Við erum
ekkert að leika okkur með þessi mál, íslend-
ingar. Við meinum það, sem við segjum.
STJÖRNARFUNDUR
FNSU i REYKJAVlK
I gær stóð yfir hér f
Reykjavík fundur stjórnar
FNSU (Samtök félaga
ungra jafnaðarmanna á
Norðurlöndum) og var
fundurinn haldinn að Hótel
Esju i Reykjavik. Fundinn
sóttu framámenn ung-
hreyfinga jafnaðarmanna
á Norðurlöndunum öllum,
en af tslands hálfu sátu
fundinn þeir Garðar Sveinn
Árnason, nýkjörinn for-
maður Sambands ungra
jafnaðarmanna, Helgi
Skúli Kjartansson, nýkjör-
inn ritari sambandsins, og
Helgi E. Helgason, sem
sæti á í stjórn SUJ.
Norrænu jafnaðar-
mennirnir komu hingað til
Islands nú fyrir helgina og
heimsóttu þeir m.a. 27 þing
Sambands ungra jafnaðar-
manna, sem haldið var á
Akureyri um síðustu helgi.
Einnig hafa þeir ferðast
nokkuð um landið í boði
ungra jafnaðarmanna.
Siðdegis í gær að loknum
stjórnarfundinum hafði
Gylfi Þ. Gíslason,
formaður Alþýðuflokksins,
inni boð fyrir hina norrænu
fulltrúa á FNSU fundinum
þar sem þeir hittu fyrir
nokkra fulltrúa Alþýðu-
flokksins og Sambands
ungra jafnaðarmanna. Var
meðfylgjandi mynd tekin
í fundarhléi Sænsku
fulltrúarnir á FNSU-fund-
inum fóru utan í gær, en
aðrir norrænir fulltrúar
ungra jafnaðarmanna
munu dveljast hér eitthvað
lengur.
MYNDIN
Norrænir stjómarmenn
FNSU i fundarhléi.
» % A
KJÖRDÆMAFUNDIR ALÞÝÐUFLOKKSINS
í REYKJANESKJÖRDÆMI
Þriðjudaginn 2. október n.k. kl. 20.30
Kjördæmisráð Alþýðuflokksins i Reykjaneskjördæmi efnir til kjör-
dæmisþings, sem haldið verður i félagsheimilinu Stapa i Ytri-Njarðvik
þriðjudaginn 2. október n.k. kl. 20,30. Kjördæmisþingið er jafnframt
aðalfundur kjördæmisráðsins.
Auk venjulegra aðalfundastarfa verður efnt til umræðna um stjórn-
málaviðhorfið. Framsögu i þeim umræðum hafa þeir GYLFI Þ.
GÍSLASON, JÓN ÁRMANN HÉÐINSSON og STEFÁN GUNNLAUGS-
SON.
STJÓRNIN
Þriðjudagur 2. október 1973.
0