Alþýðublaðið - 14.10.1973, Page 2
„My friend and
— með breskum
söngvara
I kemur út í Bretlandi
Magnús Kjartansson: Hann er nú i London og semur um útgáfu á „My friend and I” I Bretlandi.
Ýmislegt þarf aB semja um þar i landi..
Breska hljómplötufyrirtækið
Orange Records hefur nú i
hyggju að gefa út tveggja laga
plötu með lögum eftir Magnús
Kjartansson - og mun þarlendur
söngvari veröa fenginn til að
syngja lögin. Annað lagið verð-
ur ”My friend and I” af
Mandala Trúbrots, sem nú
standa yfir málaferli vegna.
Þaö var á miðvikudags-
kvöldið, sem Magnúsi bárust
þessar ánægjulegu fregnir frá
Magnúsi Sigmundssyni, sem þá
um daginn hafði staðið i sima-
sambandi viö fulltrúa Orange.
Enn er ekki vitaö hvaöa
söngvari syngur ”My friend and
I” á breskan markað og heldur
ekki hvaða lag Orange vilja fá á
B-hlið plötunnar.
Málaferlin, sem standa yfir út
af texta lagsins, eru sprottin
upp úr kæru, sem Jóhann
Hjálmarsson, skáld, höfðaði á
hendur Rúnari Júliussyni, sem
gerði textann. Segir Jóhann
textann vera unninn upp úr ljóöi
sinu, "Vinur minn og ég”, sem
kom út I ljóðabók hans I
kringum 1967. Ljóðin eru vissu-
lega sláandi lik en Rúnar þrætir
og hafa vitnaleiðslur nýlega
farið fram. Fátt hefur komið
þar fram og er nú beðiö dóms.
Kunnugir segja málið liklega
veröa látið niður falla.
Kæra Jóhanns á hendur
Rúnari er i nokkrum liðum og er
þar meöal annars talað um
"hnekkingu skáldaheiöurs”,
þannig að ekki er um ritstuldar-
kæru aö ræöa. Krefst Jóhann
135.000 króna skaðabóta og
Rúnar hefur á móti fariö fram á
30—40 þúsund krónur fyrir
ýmislegt ónæði, sem hann telur
sig hafa oröið fyrir af þessum
völdum.
— Ég haföi aldrei sé þetta
ljóö Jóhanns þegar ég gerði
textann, sagði Rúnar fyrir
helgina, —og ég hef ekki stolið
Ijóði Jóhanns.
Ekki er vitaö hvort þessi
málaferli — ljúki þeim Rúnari i
óhag — hafa áhrif á útkomu
”My friend and I” I Bretlandi.
Ný plata með Magnúsi og Jóhanni
— gefin út samtímis í Bretlandi og á Islandi llllllllllllllllll
Aður en þessi mánuður er
allur kemur út i Bretlandi og á
lslandi tveggja laga plata með
tveimur náungum, sem kallaðir
eru Pal Brothers. Er um að
ræöa Keflvlkingana Magnús
Sigmundsson og Jóhann Helga-
son og er platan gefin út af for-
lagi þeirra félaga, Orange
Records.
Lögin tvö, Candy Girl og
Then , voru hljóðrituð í London
I mars siðastliðnum og eru bæði
lögin eftir þá Magnús og Jó-
hann. Texti lagsins Then er
eftir Þorstein Eggertsson. Eins
og kunnugt er hefur áður komið
út plata með þeim Magnúsi og
Jóhanni i Bretlandi — Yakkety
Yak — en hún seldist heldur
litið. Forráðamenn Orange
Magnús Sigmundsson: Veröa tónsmiðar hans og Jóhanns Helgasonar loks til að koma Islandi á blað? Records hafa þó ekki misst
trúna á laginu, þvi nú er fyrir-
hugað að gefa það út aftur og
munu þeir Magnús og Jóhann —
ásamt Sigurði Karlssyni og
Birgi Hrafnssyni, eða hljóm-
sveitinni Change — halda utan
um áramót. Magnús Sigmunds-
son er sjálfur farinn — eða á leið
— tilLondon til að ganga þar frá
ýmsum málum.
Astæðan fyrir þvi að þeir eru
kallaðir Pal Brothers á þessari
nýju plötu er sú, aö Orange þótti
”Magnús & Jóhann” ekki nægi-
lega þjált i munni Breta og þvi
var þetta nafn hugsað upp á
stundinni.
Ýmislegt fleira er I bigerð hjá
Change og verður nánar greint
frá þvi á laugardaginn kemur.
TONEYRAÐ
ÓMAR VALDIMARSSON
FIMM NY
Á TOPPINN
Ný lög, sem kynnt voru I
þættinum ”TIu á toppnum” i út-
varpinu I gær voru þessi:
11 . Angel fingers. Wizzard.
12. My friend Stan. Slade.
13. Half—Breed. Cher.
14. Paper Roses. Marie Os-
mond.
15. Life aint easy. Dr. Hook and
the Medicine Show.
Enskar Ijósmæöur eru á
móti sígarettureykingum
Nemendur ljósmæðraskóians,
sem starfar i tengslum viö Rush
Green Hospital I Romford f
Essex, hafa hafiö sitt eigið strið
gegn sigarettureykingum.
Hinar verðandi Ijósmæður, sem
allar eru á aldrinum 18 til 21 árs,
hafa gert llkan af nýfæddu barni
með slgarettu I munnvikinu. Auk
þess eru veggir skólans skreyttir
veggspjöldum, sem eiga að fá
verðandi mæður til þess aö hæua
að reykja.
Upphafið aö baráttunni er
skýrsla frá hópi sérfræðinga I
læknavisindum, sem starfa við
National Childrens Bureau. i
skýrslunni segja sérfræöingarnir,
að 1.500 börn hafi látist i Bret-
landi I fyrra vegna þess að
mæðurnar reyktu á siðustu
mánuðum meðgöngutimans.
ERFITT
AÐ VERA
SÚPER-
STJARNA
Breska súper-
stjarnan Paul
Nicholas, 27 ára að
aldri, er hér ljós-
myndaður i hlutverki
Jesu Krists súper-
stjörnu. Söngleikurinn
hefur nú verið sýndur
meira en árlangt i
London. ”Það er erfitt
að leika þetta hlutverk,
því flest fólk hefur gert
sér ákveðna hugmynd
um Jesú”, segir Paul.
o
Sunnudagur 14. október 1973.