Alþýðublaðið - 14.11.1973, Side 5
Alþýðublaðsútgáfan hf. Stjórnmála-
ritstjóri Sighvatur Björgvinsson.
Fréttastjóri Sigtryggur Sigtryggsson.
Ritstjórnarfulltrúi Bjarni Sigtryggs-
son. Ritstjóri og ábyrgðarmaður
Freysteinn Jóhannsson. Aðsetur rit-
stjórnar/ Skipholti 19. Sími 86666. Af-
greiðsia: Hverfisgötu 8-10. Simi 14900.
Auglýsingar: Hverfisgötu 8-10. Sími
86660. Blaðaprent hf.
Ráðherrastólarnir hafi forgang
Mikil er niðurlæging Alþýðubandalagsins
þessa dagana og lúpulegir hafa þingmenn þess
og ráðherrar setið i stólum sinum á Alþingi upp
á siðkastið. En þeir létu sig samt hafa það að
auka enn á niðurlægingu sina og vesældarskap
með málflutningi sinum utan og innan þings þá
daga, sem landhelgissamningarnir við Breta,
sem rikisstjórnin lagði til að gerðir væru og hafa
nú verið samþykktir á Alþingi, voru þar til með-
ferðar. í þeim orðræðum sinum fóru þeir marga
hringi i gegnum sig sjálfa og voru sér til slikrar
skammar, að þeir mega þakka fyrir, ef trygg-
ustu kjósendur þeirra fá þvi nokkru sinni
gleymt.
Eitt dæmið um þetta er greinargerð sú, sem
Jónas Árnason flutti fyrir atkvæði sinu á fundi
sameinaðs Alþingis i gærdag. Eftir að hafa farið
hörðum orðum um samkomulagið, fundið þvi
allt til foráttu og flutt forsætisráðherra sinum
litt dulbúnar skammir fyrir afskipti hans af
málinu sneri Jónas Árnason við blaðinu i siðustu
setningu sinni og kvaðst myndu greiða atkvæði
með þvi, að þetta „hroðalega” samkomulag
yrði gert. Og hvers vegna fór Jónas Árnason svo
i gegnum sig sjálfan? Til þess —- að hans eigin
sögn — að rikisstjórninni gæfist tækifæri til að
sinna öðrum mikilvægum málum.
En nú spyr Alþýðublaðið Jónas Árnason og þá
aðra trúbræður hans, sem sömu rökleysur hafa
haft uppi: Eru þá einhver mál mikilvægari fyrir
islensku þjóðina, en landhelgismálið og farsæl
úrlausn þess? Allir alþingismenn, lika Jónas
Árnason, hafa marglýst þvi yfir, að landhelgis-
málið sé mesta lifshagsmunamál islensku þjóð-
arinnar. Hver eru þau önnur mál, Jónas Árna-
son, sem þú telur vera svo mikilvæg, að þú hikar
ekki við að selja sannfæringu þina i þessu mesta
lifshagsmunamáli þjóðarinnar fyrir?
Og þær eru fleiri spurningarnar, sem vakna út
af orðræðum Alþýðubandalagsmanna þessa sið-
ustu daga. Menn eins og Garðar Sigurðsson,
Magnús Kjartansson og Lúðvik Jósepsson hafa
bæði innan og utan þings ráðist harkalega á
samningagerðina, nefnt hana „óaðgengilega úr-
slitakosti Breta” og ráðist með offorsi á forsæt-
isráðherra fyrir aðild hans að málinu. i at-
kvæðagreiðslunni sneru þessir menn svo við
blaðinu og sögðu já. Hvers vegna? Að þeirra
eigin sögn vegna þess, að ella missti Alþýðu-
bandalagið ráðherrastólana.
Einu sinni — raunar margoft — sögðu þessir
sömu menn, að landhelgismálið ætti að hafa
algeran forgang. Nú segja þeir, að þeir styðji
samninga i þvi máli þvert gegn sannfæringu
sinni svo þeir geti setið áfram i rikisstjórn. Og
Alþýðublaðið spyr: Hvernig er hægt að túlka
þetta öðru visi en svo, að sú sé nú orðin skoðun
Alþýðubandalagsins, að það sé ekki landhelgis-
málið, sem eigi að hafa forgang, heldur seta
Magnúsar Kjartanssonar og Lúðviks Jóseps-
sonar i ráðherrastólum? Til þess eins — sam-
kvæmt þeirra eigin sögn — að þessir tveir metn-
aðargjörnu menn geti áfram vermt hin þægi-
legu ráðherrasæti i stjórnarráðinu lýsir Alþýðu-
bandalagið þvi yfir, að það sé reiðubúið að selja
sannfæringu sina i landhelgismálinu — og gerir
það.
Allt framferði Alþýðubandalagsins i þessum
málum öllum er svo ógeðfellt og litilmannlegt,
að hroll setur að áhorfendum öllum — ekki þá
sist kjósendum þessarar óhrjálegu Fróðárhirð-
ar, sem fer mörgum sinnum rangsælis i gegnum
sig sjálfa.
SEXTUGUR ER í DAG
¥
Svavar Arnason
ODDVITI í GRINDAVÍK
Alþýöuflokkurinn hefur
áft því láni að fagna, aö í
sveit hans hafa skipað sér
margir menn, sem reynst
hafa farsælir forystumenn
og lagnir við að fá áhuga-
málum sínum framgengt.
Einn slíkra manna er
Svavar Árnason. Hann er
ekki í hópi þeirra, sem hátt
tala á málþingum, eða eru
aðsópsmiklir á mann-
fundum. En allt, sem hann
segir, er jafnan gerhugsað,
og sérhvert verk hans
vandlega undirbúið. Þess
vegna er þeim málstað vel
borgið, sem hann gerist
forsvarsmaður fyrir. Og
hann hefur sannarlega
látið margt til sin taka.
Honum hefur verið falinn
margháttaður trúnaður á
mörgum sviðum. Öll verk
sin hefur hann unnið af
einstakri kostgæfni. Þau
hafa borið jafn ríkulegan
ávöxt og raun ber vitni
vegna þess, hversu
traustur maður hefur að
þeim staðið og hversu heill
hugur hefur búið að baki.
Alþýðuflokkurinn á
mönnum eins og Svavari
Árnasyni mikið að þakka.
Hann er maður, sem alltaf
má treysta að leggur gott
til mála, hefur rökstudda
skoðun og trausta
þekkingu á því, sem hann
hugsar og talar um. Hann
er ekki aðeins góðviljaður,
heldur býr hann einnig yfir
óvenjulegum hæfileika til
þess að láta gott af sér
leiða. Þess vegna er hann
jafn vinmargur og raun
ber vitni. Og fáa menn
þekki ég, sem eiga
vinsældir sínar og traust
jafnvel skilið og Svavar
Árnason.
Gylfi Þ. Gislason.
Góðvinur minn Svavar Árna-
son, oddviti, Borgarhrauni 2,
Grindavík, verður sextugur i dag.
Svavar er fæddur i Grindavik
14. nóvember 1913 og hefur ætið
átt þar heima siðan.
Foreldrar hans voru Árni
Helgason, sjómaður, og kona
hans Petrúnella Pétursdóttir og
bjuggu þau að Garði i Grindavik.
Svavar ólst upp i foreldrahús-
um i stórum systkinahópi. 1
Grindavik veröur það gjarnan
hlutskipti ungra manna að fara til
sjós, enda stundaði Svavar sjó-
mennsku framan af ævi.
Hugur hans og hæfileikar stóðu
einnig tii náms og i Samvinnu-
skólann fór hann og lauk þaðan
prófi vorið 1937.
1 hreppsnefnd var Svavar kos-
inn árið 1942 og hefur átt þar sæti
óslitið siðan. Oddviti hrepps-
nefndar varð hann 1946 og er það
enn. Frá þeim tima hefur Svavar
tileinkað sinu byggðarlagi mesta
sina starfsorku. Það .mun hafa
verið honum hugsjón að vinna að
málefnum sins byggðarlags, enda
notið til þess óskoraðs trausts i-
búanna. Jafnframt þvi að gegna
oddvitastörfum á hann sæti i
flestum þýðingarmestu nefndum
hreppsnefndar og hefur verið for-
maður i mörgum þeirra um langt
árabil.
Hafnarmálin i Grindavik og
framgangur þeirra hafa alla tið
verið eitt af hans aðal áhugamál-
um. Mun óhætt að fullyrða að ef
þeim málum hefði ekki verið slik-
ur gaurnur gefinn, hefði Grinda-
vik ekki verið sú verstöð, sem hún
er orðin i dag og byggðarlagið þar
af leiðandi ekki náð þeim fram-
gangi, sem raun ber vitni.
Svavar var kosinn i fyrstu
hafnarnefnd Grindavikur árið
1944 og sat þar óslitið til ársins
1970, en þá baðst hann undan
endurkjöri. 1 skólanefnd og bygg-
ingarnefnd hefur hann setið um
langl árabil.
Auk ofantaldra starfa i þágu
sveitarfólagsins hefur hann verið
framkvæmdastjóri útgerðar- og
fiskvinnslufyrirtækisins Hafrenn-
ings h.f. frá árinu 1949.
011 félags- og menningarmál
hefur Svavar mjög látið til sin
taka. Formaður Verkalýðsfélags
Grindavikur var hann frá 1939 lil
1962. Árið 1950 varð Svavar
organisti og stjórnandi kirkjukórs
Grindavikurkirkju og tók hann
við þvi starfi af föður sinum.
Auk þess hefur hann æft smá-
kóra og stjórnað söng við ýmis
tækifæri.
1 sóknarncfnd hefur Svavar átt
sæli um langt árabil. Það fer ekki
milli mála, að maður sem slarfar
að jafn fjölþættum verkefnum i
sinu byggðarlagi hlýtur að vera
gæddur óvenju mörgum hæfileik-
um og starfsþrek hans með af-
brigðum, þvi það er nánast nema
á fárra manna færi að afkasta
með jafn mikilli sæmd svo stórum
og mörgum verkefnum i senn.
Þá er ég flutti til Grindavikur
fyrir um það bil 12 árum, varð ég
þess fljótt áskynja að ef einhver
þurfti upplýsinga eða hjálpar að
leita var það sjálfsagður hlutur
að leita til Svavars. Var hann allt-
af reiðubúinn að leysa hvers
manns vanda, en um greiðslu var
aldrei að tala. Hann hefur nefni-
lega ætið gleymt að gæta sinna
hagsmuna i þeim efnum. Ég not-
aði mér sem aðrir þessi ágætu
friðindi, varð það byrjum á okkar
kunningsskap, sem staðið hefur æ
siðan. Ég starfaði undir hans
Stjórn á skrifstofu Grindavikur-
hrepps frá 1964 til 1971 og varð á
þeim tima þess mjög áskynja
hversu mikils trausts hann naut
bæði meðal samherja og and-
stæðinga vegna heiðarleika og á-
reiðanlegheita.
Stjórnun og fjármál Grinda-
vfkurhrepps hvildu á hans herð-
um allt lrá 1946 til 1971 en þá var
seilarstjóri ráðinn, enda Grinda-
vík þá orðin i svo örum vexti og
mannmörg að þörf var á ráðningu
sveitarstjóra.
Þá er Svavar byrjaði störf sin
sem oddviti var Grindavik aðeins
litið þorp við brimasama og hafn-
lausa strönd, en er nú orðin ein
stærsta verstöð landsins og er nú
verið að vinna stórframkvæmdir i
hafnarmálum, sem skapa óþrjót-
andi möguleika fyrir byggðaríag-
ið. Þótt hér sé aðeins drepið á það
helsta, sem Svavar helur unnið
sinu byggðarlagi, hefur hann
einnig haft mikinn áhuga á gangi
landsmálanna.
A unga aldri gekk hann
jafnaðarstefnunni á hönd. Iiann
er jafnaðarmaður i þess orðs
fyllstu merkingu. llann er for-
maður Alþýðufiokksfélags
Grindavikur og einnig hefur hann
starfað mjög að' málefnum Al-
þýðullokksins utan sins byggðar-
lags.
Fyrir störf þin i þágu byggðar-
lagsins munu allir Grindvikingar
óska þér til hamingju með sextiu
ára afmælið.
Jón llólmgcirsson.
FLOKKSSTARFIÐ
REYKVÍKINGAR:
VIÐTALSTÍMI
BORGARFULLTRÚA ALÞÝDUFLOKKSIMS
Björgvin Guðmundsson, borgarfulltrúi
Alþýðuflokksins i Reykjavik, verður til
viðtals á skrifstofum flokksins i Alþýðu-
húsinu við Hverfisgötu frá kl. 6 til kl. 7 e.h.
,i dag, miðvikudag.
Siminn i viðtalsherberginu er 1-50-20.
Alþýðuflokksfélag Reykjavikur
F.U.J, í KÓPAVOGI:
AÐALFUNDUR
FUJ i Kópavogi verður haldinn að Hraun-
tungu 18, niðri, fimmtudaginn 15. nóvem-
ber kl. 20.30.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Ásgeir Jóhannesson, bæjarfulltrúi, ræð-
ir um bæjarmál.
Stjórnin.
Miðvikudagur 14. nóvember 1973.