Alþýðublaðið - 06.12.1973, Side 1
PENINGASTRIÐ
PRESTASTÍTT
Fimmtudagur 6. d es. 1973 s”'árg.'
,,ÍCg, og fleiri starfs-
bræður minir, litum mjög
alvarlega á ummæli séra
Sigurðar Hauks Guðjóns-
sonar i Alþýðublaðinu og
ætlum nokkrir að koma
saman á fimmtudags-
kvöldið og ræða þau nán-
ar", sagði séra Grimur
Grimsson, formaður
Prestafélags lslands, i
viðtali við blaðið i gær.
Eins og blaöið skýrði
frá i gær, er séra Sigurður
Haukur fylgjandi þvi, að
prestar taki ekki þóknun
fyrir auka-prestsverk og
sagði hann, að starfs-
bræður hans hefðu
..margir legið mér á hálsi
fyrirað taka ekki greiðsl-
ur fyrir aukaprests-
verk..."
Séra Grimur litur þetta
alvarlegum augum, eins
og fyrr segir, en vildi ekki
ræða málið nánar að
sinni. Lauk samtali
blaðamanns og séra
Grims, með þvi að prest-
ur skellti á simanum.
EIIM GLEÐI
ENN
HÖLLINNI
Stúdentar hafa fengið
leyfi til þess að halda ára-
mótagleði i Laugardals-
höllinni á gamlársdag.
Siðasta áramótagleði átti
að verða sú siðasta i
Laugardalshöllinni, en
stúdentar fengu leyfi fyrir
einni ,,gleði" enn, enda
munu þeir hafa verið i
miklu húsnæðishraki.
Aramótagleðin hefur verið
ein allra fjölmennasta
skemmtun hvers árs, t.d.
sóttu hana 2500 manns i
fyrra.
Menntaskólanemendur i
Reykjavik hafa einnig
fengið að halda jólagleði
sina i Laugardalshöllinni á
undanförnum árum, og þá
jafnan skreytt sali Hallar-
innar hátt og lágt.
Menntaskólanemar munu
hins vegar ekki halda
skemmtun sina i Laugar-
dalshöll i ár, og verða þvi
engar skreytingar á hús-
næðinu.
2000 K0MNIR HEIM
Nú munu tæplega 2000
Vestmannaeyingar hafa
flutt heim aftur, af 5304
sem voru á skrá um sið-
ustu áramót. t blaðinu
Daskrá, sem gefið er út i
Eyjum,kemur fram, að
samkvæmt aldursflokk-
um hafa Vestmannaey-
ingar á aldrinum 0—4 ára
verið, nauðugir viljugir,
duglegastir við heim-
flutninginn. Af þeim
aldursflokki voru 39%
komnir heim, en næstur i
röðinni var aldursflokk-
urinn 20—24 ára, 37,K%.
Fæstir höfðu flutt heim i
aldursflokknum 80- 94
ára, eða 8,5%.
STORSKOTALIÐ Á
LAUGARDALSVELLI?
Stjórn KSl hefur tilkynnt þátttöku Islands i Evrópu-
meistaramóti i landsliða i knattspyrnu. Keppni þessi fer
fram á tveimur næstu árum, og úrslit hennar verða
sumarið 1976. Fjórar þjóðir verða saman i riðli, tvær veik-
ar og tvær sterkar, og er þvi ljóst að við munum leika
landsleik gegn tveimur af sterkustu þjóöum Evrópu. Það
er þvi ekki fjarlægur draumur aö sjá landslið Eng-
lendinga, Vestur-Þjóðverja eða Skota hér á Laugardals-
vellinum næsta sumar.
Dregið verður um þaö nú i desember,hvaöa þjóðir lenda
saman i riðlum. Frá þessu máli er nánar skýrt á iþrótta-
siöu blaösins, sem er bls. 11.
ALÞYÐUBLAÐSLISTINN YFIR JOLABOKASÖLUNA:
GUÐRÚN A. SÍMONAR
ER LANG-SÖLUHÆST
□ Ragnheiður biskupsdóttir og Vestmannaeyjagosið fylgja í kjölfarið
1. Eins og ég er klædd
(Guðrún A. Simonar og
Gunnar M. Magnúss)
2. Ragnheiður
Brynjólfsdóttir (Guðrún
Sigurðardóttir)
3. —4. Vestmannaeyjar,
eldgos og saga — (Guðjón
Eyjólfsson) og Milli
Washington og Moskva
(Emil Jónsson)
5. Eldgosið i Eyjum-(Árni
Gunnarsson)
6. Fischer gegn Spassky
(Freysteinn Jóhannsson
og Friðrik Olafsson)
7. -8. TruntusóHSigurður
^^GuðjónssorD^og^Stun^ið^
niður stilvopni—(Gunnar
Benediktsson)
9. Mannleg Náttúra undir
Jökli — (Þórður á
Dagverðará og Loftur
Guðmundsson)
10. Hættulegur arfur
(Theresa Charles)
Þessi listi er unnin upp
úr upplýsingum tiu bóka-
verslana á Stór-Reykja-
vikursvæðinu og Akur-
eyri. Bókin um Guðrúnu
Á Simonar var tilnefnd
sem mesta sölubókin i
átta af þessum tiu versl-
unum. Næsti metsölu-
bókalisti Alþýðublaðsins
mun birtast fimmtudag-
inn 13. desember.
SJA VIÐTÖL A BAKSIÐU
VERDUR HITIMN I EYIA-
HRAUNINU VIRKIAUUR?
Kinversku hcims-
mcistararnir i borðtcnnis
sýndu lislir sýnar i
fyrrakvöld. Kinna
mesta athygli vakti 18 ára
piltur, Lu Yuan-sheng, og
cr þessi skemmtilega
mynd cinmitt af honum.
Friðþjófur Hclgason tók
hana, og hitti á rétta
augnahlikið, kúluna ver
við ncfhrodd Kinverjans
og gcrir hann i mcira lagi
duríarfullan i útliti.
..Hugmyndin er að bora
i gegnum hraunið, þar
scm það storknaði i sjó og
athuga, hvort það er nægi-
lega sprungið og laust i sér
til þcss að sjórinn liggi þar
i og gufi upp", sagði pró-
fessor Þorbjörn Sigur-
geirsson við Alþýðublaðið
i gær, þegar við inntum
liann cftir þeirri hugmynd
lians uin nýtingu hitans i
nýja hrauninu í Eyjum,
scm ákvcðið er að jarð-
hitadeild Orkustofnunar
gcri athuganir á.
,,Eg veit raunar ekki,
hvort þctta er eingöngu
min hugmynd, þctta var
rætt fram og aftur i Eyjum
i sumar, og ég iét þetta
fylgja mcð öðru til
iðnaðarráðuncy tisins",
sagði prófessor Þorbjörn.
En mál þetta vakti það
mikla athygli i iðnaðar-
ráðuneytinu, að ákveðið
var að hefja tilraunir til að
nýta þennan hita, og Við-
lagasjóður hefur sam-
þykkt að fjármagna þær
með 865 þúsund krónum.
,,En það er ekki vitað,
hversu lengi hitinn helst
þarna," sagði prófessor
Þorbjörn, ,,en komi i ljós,
að hægt sé að ná honum
þarna upp verður hann
áreiðanlega nýttur til upp-
hitunar húsa”.
MEÐ AFSLATTARKJORUM
Verslanir KRON og
Dómus hafa undanfarið
selt veggskildi Þjóðhá-
tiðarnefndar 1974 eftir
Sigrúnu Guðjónsdóttur á
lægra verði en aðrir, sem
hafa þá skildi til sölu,
með þvi að bjóða félags-
mönnum sinum upp á
10% afslátt af þeim eins
og öðrum vörum. Yfir
þessu eru aðrir kaup-
menn, sem tekið hafa
veggskildina i umbeðs-
sölu, ekkert hressir,
Mál þetta verður tekið
fyrir á fundi hjá Þjóðhá-
tiðarnefnd næstu daga, og
að sögn Indriða G.
Þorsteinssonar, fram-
kvæmdastjóra verður at-
hugað, hvort söluaðilar
þessirhafi leyfi til þess að
undirbjóða aöra i þessu
tilfelli.